Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991.
Stjórnmál
Skoöanakönnun DV um fylgi flokkanna:
Fylgi Sjálfstæðisf lokks minnkar
- A-flokkar og Kvennalisti vinna á - Framsókn dalar
Sjálfstæöisflokkurinn hefur tapað
miklu fylgi síðan í marslok. Það sýn-
ir skoðanakönnun sem DV gerði í
gær- og fyrrakvöld. Alþýðuflokkur-
inn hefur bætt viö sig. Kvennalisti
hefur unnið á. Framsókn hefur misst
fylgi. Alþýðubandalagið hefur sótt
sig.
Úrtakiö í skoðanakönnuninni var
1200 manns. Jafnt var skipt milli
kynja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Spurt var: Hvaða lista mundir þú
kjósa ef þingkosningar færu fram
núna?
Skekkjufrávik í slíkri könnun eru
3-4 prósentustig í plús eöa mínus.
Af öllu úrtakinu segjast 8,8 prósent
mundu kjósa Alþýðuflokkinn, sem
er aukning um 2,1 prósentustig frá
könnun DV í marslok. Framsókn
kjósa 12 prósent sem er minnkun um
0,2 prósentustig. Sjálfstæðisflokkur-
inn fær 28,5 prósent úrtaksins, sem
er minnkun um 2,7 prósentustig frá
fyrri könnun. Alþýðubandalagið
hlýtur 7,2 prósent. Það er aukning
um 1,7 prósentustig. Kvennalistinn
fær nú 5,1 prósent, sem er aukning
um 1,1 prósentustig. Heimastjórnar-
samtökin fá 0,2 prósent, sama og síð-
ast. Verkamannaflokkurinn kemst
ekki á blað og ekki heldur Grænt
framboð. Frjálslyndir fá 0,3 prósennt
og Öfgasinnaðir jafnaðarmenn 0,3
prósent á landsvísu, en þeir bjóða
bara fram í einu kjördæmi. Þjóðar-
flokkurinn-Flokkur mannsins fær
0,8 prósent, en þeir flokkar höfðu 0,4
prósent í fyrri könnun. Óákveðnir
eru 29,3 prósent, sem er fækkun um
6,2 prósentustig, og þeir sem svara
ekki eru 7,4 prósent, sem er aukning
um 3,1 prósentustig.
Samanburður við kosningar
Til að bera saman við kosningaúrslit
tökum við aðeins þá sem taka afstöðu
nú. Þá fær Alþýðuflokkurinn 14 pró-
sent sem er aukning um 2,9 prósentu-
stig frá fyrri könnun en minnkun 1,2
prósentustig frá kosningunum.
Framsókn fær 19 prósent sem er
minnkun um 1,2 prósentustig frá
marskönnuninni en aukning um 0,1
prósentustig frá síðustu þingkosn-
ingum. Sjálfstæðisflokkurinn fær
45,1 prósent sem er tap um 6,7 pró-
sentustig frá marskönnun en aukn-
ing um 17,9 prósentustig frá kosning-
unum. Alþýubandalagið hlýtur 11,3
prósent. Það er aukning um 2,2 pró-
sentustig frá marskönnuninni en tap
upp á 2 prósentustig frá kosningun-
um. Kvennalistinn fær 8 prósent. Það
er aukning um 1,4 prósentustig frá
marskönnuninni en tap upp á 2,1
prósentustig frá kosningunum.
Heimastjórnarsamtökin hljóta 0,3
prósent, sama og í mars. Fijálslyndir
fá 0,5 prósent, en Borgaraflokkurinn
fékk 10,9 prósent atkvæöa í síðustu
kosningum. Öfgasinnaðir jafnaðar-
menn eru með 0,5 prósent. Þjóðar-
flokkur-Flokkur mannsins fá 1,3 pró-
sent. Þeir flokkar höfðu 0,6 prósent
í fyrri könnun og 2,9 prósent til sam-
ans í kosningunum.
Ef þingsætunum 63 er skipt í beinu
hlutfalli við fylgi samkvæmt könn-
uninni fær Alþýðuflokkur 9, Fram-
sókn 12, Sjálfstæðisflokkur 30, Al-
þýðubandalag 7 og Kvennalistinn 5.
Staðan í Reykjavík
og á Reykjanesi
í könnuninni er sérstaklega tekin út
staðan í Reykjavík og á Reykjanesi,
en úrtakið nægir þó ekki alveg til
þess að niöurstöður séu fyllilega
marktækar um einstök kjördæmi.
Niðurstöður urðu þær að Alþýðu-
flokkur fengi í Reykjavík 14,2 prósent
og 3 þingmenn (hafði 3). Framsókn
fengi í borginni 8,2 prósent og einn
þingmann (1). Sjálfstæðisflokkur 56,2
prósent og 11 þingmenn (6). Frjáls-
lyndir fengju 0,4 prósent. Alþýðu-
bandalagið hlyti 9 prósent og einn
þingmann (2). Kvennalistinn 11,6
prósent og 2 þingmenn (3).
Á Reykjanesi fengi Alþýðuflokkur-
inn 16,9 prósent og 2 þingmenn (2).
Framsókn 15,3 prósent og 2 þing-
menn (2). Sjáfstæðisflokkurinn fengi
í kjördæminu 49,2 prósent og 6 þing-
menn (3). Frjálslyndir fengju 0,5 pró-
sent. Alþýðubandalagið fengi 7,4 pró-
sent og 1 þingmann (1). Heimastjórn-
arsamtökin fengju 0,5 prósent. Öfga-
sinnaðir jafnaðarmenn mælast með
2,1 prósent í kjördæminu þessa dag-
ana. Kvennalistinn hlyti 6,3 prósent
og engan þingmann (1). Þjóðarflokk-
ur-Flokkur mannsins fengi 1,6 pró-
sent.
-HH
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar (í %):
mars júní sept. nóv. jan. mars júni ág- okt. des. apr. ág. okt. des febr. 4. mars mars- lok nú
Alþýðuflokkuf 6,0 4,8 4,7 6,7 5,8 4,5 4,2 4,8 3.3 3,7 4,7 6,5 8,2 7,5 5,8 6,5 6,7 8,8
Framsóknarfl. 11,3 11,2 11,3 14,0 10,7 10,0 9,7 7,3 7,7 11,0 9,8 9,3 11,2 13,7 12,7 11,2 12,2 12,0
Sjálfstæðisfl. 18,3 18,7 18,0 16,2 21,3 25,8 24,5 27,7 33,2 262 25,2 33,2 27,2 26 29,2 31,8 31,2 28,5
Alþýðubandalag 5,0 6,7 4,3 4,2 5,8 5,7 4,0 7,2 5,5 5,8 4,0 6,2 4,7 6,7 3,8 5,8 5,5 7,2
Stefán Valgeirss. 0.3 0,2 0 0,2 0 0,2 0,3 Ö 0,2 0,3 0,2 0,0 0,2 0,0 0,0 0,0 0,0
Borgaraflokkur 3,0 1,2 1,3 1,5 1,0 1,3 0,5 0,5 0,3 0 0,2 0,3 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 -
Kvennalisti 19,2 17,2 15,2 13,0 8,3 8,0 6,8 6,5 5,2 4,8 5,3 4,8 4,2 6 5,5 3,0 4,0 5,1
Heimastjs. 0,2 0,0 0,2 0,2
Verkamannafl. * 0,2 02
Græningjar 0,3 0,0
Fijálslyndir 0,3
Öfgas. jafnaðarm. 03
Þjóðfl.-Fl.manns. 0,4 1,0 0,2 1,0 0,7 1,2 0,7 0.5 0,8 0,5 0,3 1,2 0,5 0,7 0,4 0,4 0,8
Óákveðnir 28,6 36,2 40,7 36,0 42,2 41,5 45,2 38,8 40,5 44,8 39,3 35,3 39 35,5 37,2 35,7 35,5 29,3
Svaraekki 6,9 3,7 3,5 5,8 3,8 2,3 3,5 6,3 3,3 2,2 10,8 3,5 4,3 4,2 5,0 52 4,3 7,4
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu eru niðurstöðurnar þessar (í %):
kosn. júni sept. nóv. jan. mars júni ág. okt. des. apr. ág- okt. des febr. 4.mars mars- lok nú
Alþýðuflokkur 15,2 8,0 8,4 10,4 10,8 8,0 8,1 8,8 5,9 6,9 9,4 10,6 14,4 12,4 10,1 11,0 11,1 14,0
Framsóknarfl. 18,9 18,6 20,3 24,1 19,8 17,8 18,8 13,4 13,6 20,8 19,7 15,3 19,7 22,7 21,9 18,9 20,2 19,0
Sjálfstæðisfl. 27,2 31,0 32,2 27,8 39,5 46,0 47,7 50,5 59,1 49,4 50,5 54,2 47,9 43,1 50,4 53,8 51,8 45,1
Alþýðubandalag 13,3 11,1 7,7 72 10,8 10,1 7,8 13,1 98 11,0 8,0 10,1 8,2 11 6,6 9,9 9,1 11,3
Stefán Valgs. 12 0,3 0 0,3 0 0,3 0,6 0 0,3 0,6 -o 03 0,3 00 00 0,0 0,0 _
Borgarafl. 10,9 1,9 2,4 2,6 1,9 2,4 1,0 09 0,6 0 0,3 0,5 00 00 00 0,0 0,0 -
Kvennalisti 10,1 28,5 27,2 22,3 15,4 142 13,3 11,9 9,2 9,1 10,7 7,9 7,4 9,9 9,5 5,1 6,6 8,0
Heimastjs. 0,3 00 03 0,3
Verkamannafl. 02 0,3
Græningjar 0,6 0,0
Frjálslyndir 0,5
Öfga.jafn.menn - 0,5
Þjóð.fl.-Fl.manns. 2,9 0,6 1,8 03 1,8 1,2 2,3 12 09 1,6 1.0 0,5 2,1 0,9 12 0,6 0,6 1,3
Ummæli fólks í könnuninni
„Hér í kjördæminu köllum við for-
sætisráðherrann pláguna og viljum
því helst fá eitthvað nýtt á þing,“
sagði karl á Reykjanesi. Karl á Siglu-
firði kvaðst ætíð hafa kosiö Sjálf-
stæðisflokkinn en nú yrði þar breyt-
ing á. „Ég vil ekki sjá Davíð á þing,“
sagði hann. „Ég er orðin 89 ára og
hef alltaf kosið íhaldið nema í fyrsta
sinn sem ég kaus. Þá kaus ég ófétis
Framsóknarflokkinn sem aldrei
skyldi hafa verið," sagði kona í
Reykjavík. Önnur kvaðst vera með
það á hreinu að hvorki kommarnir
né Framsókn fengju sitt atkvæði. „Ég
hef hins vegar ekki gert það upp við
mig hvort ég kýs Kvennalistann eða
Sjálfstæöisflokkinn," sagði hún.
„Þetta er allt snarvitlaust fólk og svo
vitlaus er ég ekki sjálf að fara að
kjósa það,“ sagði kona á Austur-
landi. Karl á Vestfjörðum kvaðst
harðákveðinn í að kjósa Alþýðu-
flokkinn enda væri hann eini flokk-
urinn sem stæði á móti afturhaldsöfl-
unumíhinumflokkunum. -kaa
Ef þingsætum er skipt í réttu hlutfalli við úrslit skoðanakönnunarinnar verða niðurstöður þessar.
Til samanburðar er staðan í þinginu nú:
kosn. júni sept. nóv. jan. mars júni ág- okt. des. apr. ág. okt. des febr. 4. mars mars- lok nú
Alþýðuflokkur 10 5 5 10 7 5 5 5 3 4 / 9 8 6 7 7 9
Framsóknarfl. 13 12 13 16 12 11-12 13 9 9 14 12 10 13 14 14 12 13 12
Sjálfstæðisfl. 18 20 21 18 25 30-31 32 34 39 33 33 35 31 28 33 35 33-34 30
Alþýðub.lag 8 ,7 5 4 7 6 5 8 6 6 5 6 5 7 4 6 5-6 7
StefánValg. 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 -
Borgarafl. 7 1 1 1 1 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 -
Kvennalisti 6 18 18 14 -10' 7 5 4 6 6 3 4 5
Þjóð.fl.-Fl.manns. 0 0 0 0 1 0 0 0 0 1 0 0 1 0 0 0 0 -
Skýringar
Unnið þingsæti
Glatað þingsæti
UrsUtin í Rvík
Reykjavík
B ck
AA +5
DVJFIJ
Reykjanes
A Óbreytt
® Óbreytt
^ MAAAA +3
G Óbreytt
V / -1
Fylgi flokkanna
— Þeir sem tóku afstöðu —
□ Kosningar
li 25. mars
Nú
Alþýðufl. Sjálfstæðisfl. Kvennalisti
Framsóknarfl. Alþýðubl.