Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 18.' APRÍL1991.
Fréttir
Þátttaka íslendinga 1 heimssýningunni 1 Sevilla 1992:
Höf um þegar tilkynnt
um að við verðum með
- segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
„Við erum vissulega orðnir mjög
seinir með þetta allt saman. Segia
má að það sé komið fram á elleftu
stundu. En við höfum ákveðið að
gera allt sem hægt er til að vera
með. Ég er að skipa nefnd til að sjá
um þetta mál. Ég vonast til að gengið
verði frá nefndarskipaninni á morg-
un (í dag). Þá fer hún þegar á fleygi-
ferð í málinu," sagöi Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
Það hefur þegar verið tilkynnt að
íslendingar taki lóðina sem þeim var
úthlutað undir skála í Sevilla. Einnig
hefur verið staðfest við norska út-
gerðarmanninn, sem vill styðja ís-
lendinga með flárframlögum, að rík-
isstjórnin leggi fram 150 milljónir í
þátttökuna, að sögn Steingríms.
„Þá er þegar búið að vinna nokkra
nauðsynlega forvinnu í máhnu. Ver-
ið er að ræða við ýmsa frammámenn
í náttúruvemdarsamtökum, ekki
öfgasinna heldur menn sem hægt er
að tala við,“ sagði Steingrímur.
Hann sagðist sjálfur vera spenntur
fyrir þátttöku okkar í heimssýning-
unni. Hann sagðist gera sér vonir að
íslenski skálinn gæti orðið miðstöð
alheimsumhverfismála á sýning-
unni. Hann sagðist viss um að ef það
tækist væru ómældir möguleikar í
framhaldinu.
Hann var þá spurður hvort hvala-
málið gæti ekki skemmt fyrir okkur.
„Ég er að vona að hvalamálið leys-
ist á grundvelh tillögu Hahdórs Ás-
grímssonar. Fari svo sleppum við
fyrir hom. Ef samkomulag tekst ekki
og aht fer í hörku verður róðurinn
eflaust mjög þungur hjá okkur. Við
verðum þá bara að gera upp við okk-
ur kalt og ákveðið hvemig við vinn-
um úr máhnu og hvað við viljum,“
sagðiforsætisráðherra. -S.dór
Útflutningur á rafmagni til E vrópu:
„Ekkert vandamál11
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að útflutning-
ur á rafmagni frá Islandi sé ekkert
tæknilegt vandamál lengur.
„Það er búið að yfirvinna flutnings-
tapið á rafmagninu þannig að tækni-
lega séð er þetta hægt. Og fjárhags-
lega verður þetta ahtaf vænlegri
kostur eftir því sem tíminn líður. Það
er ekki útilokað að þetta geti orðið
raunhæfur möguleiki um og upp úr
aldamótunum. Þetta er hins vegar
gífurlega mikil framkvæmd og tíma-
frek,“ segir Halldór.
Halldór segir að Landsvirkjun hafi
vegna þessa máls verið í sambandi
við franska fyrirtækið Alcatel en það
framleiddi sæstrenginn á milh
Frakklands og Englands.
„Þetta fyrirtæki er eitt af fremstu
fyrirtækjum í framleiðslu og lagn-
ingu á sæstrengjum. Fyrirtækið sýn-
ir þessu máli mikinn áhuga og full-
trúar þess fullyrða að það sé ekkert
tæknilegt vandamál því samfara að
framleiða og leggja svona kapal á
mhh íslands og Skotlands á þremur
til fjórum árum, ef því er að skipta.
Það er stefnt að því að þeir komi
hingað í sumar til skoðanaskipta."
-JGH
Islendingur kærir herlögreglumenn:
Ógnuðu með kylff um og
losuðu um byssuhulstur
íslenskur starfsmaður hjá verk-
takafyrirtæki á Keflavíkurflugvelh
hefur kært herlögregluna fyrir hand-
töku og niðurlægingu sem hann telur
sig hafa orðið fyrir á mánudags-
kvöld.
Maöurinn hafði lokiö vinnudegi
sínum og óskaði eftir leyfi til að
kaupa sér hamborgara á veitinga-
stað. Var það leyfi veitt. Þegar mað-
urinn var að bíða eftir afgreiðslu
birtust átta herlögreglumenn. Þeir
tóku í öxl hans og skipuðu honum
að standa gleiður á meðan leitað var
á honum. Maöurinn óskaði eftir að
fá að fara en þá var honum ógnað
með kylfu og tveir herlögreglumann-
anna losuðu um byssuhulstur sín.
Herlögreglan sagði við manninn að
þeir væru að hafa afskipti af honum
vegna „fortíðar hans“. Hann hefur
staðið í málaferlum við varnarhðið.
íslenskir lögregluþjónar komu
skömmu síðar. Maðurinn fór síðan
með þeim að hliði varnarsvæðisins.
Hann telur sér hafa verið gróflega
misboðið og hefur kært málið til lög-
reglustjórans á Keflavíkuflugvelh.
-ÓTT
lllllil
ss:::::;:®:®:::™;
llf
Aætluö leiö
Roforkan fram
leidd hér
FÆREYJAR
ATLANTSHAFIÐ
Shetlandseyjar:
Thurso
SKOTLAND
Veitukerfi
Bretlandseyja
Það er ekki tæknilegt vandamál lengur að flytja út rafmagn frá Islandi.
Líkingin um ísland sem rafmagnsinnstungu fyrir Evrópu er því orðin raun-
hæf.
Tvísýnar kosningar
Jæja, þá er þessari kosningabar-
áttu loks að ljúka. Hún hefur að
visu ekki staðið lengi yfir, en engu
að síður er Dagfari í hópi þeirra
kjósenda sem verður guðs lifandi
feginn þegar kosningunum lýkur.
Þá verður aftur hægt að lesa blöðin
fyrir kjallagreinum og auglýsing-
um, þá verður aftur sæmilega
hreint í forstofunni heima án þess
að kosningabæklingar liggi þar
eins og skæðadrífa og þá verður
loksins hægt að tala við annað fólk
án þess að tala af sér.
Raunar má allur almenningur
eiga það að hann hefur blessunar-
lega leitt þessa kosningabaráttu hjá
sér. Staðreyndin er eiginlega sú,
að það hefur enginn verið í kosn-
ingaham nema frambjóðendurnir
sjálfir, sem hafa tahð sjálfum sér
trú um að framtíð þjóðarinnar
væri undir því kominn að þeir
kæmust á þing. Sem betur fer hefur
þingmönnum heldur fjölgað í
seinni tíö svo þaö er rúm fyrir fleiri
í alþingishúsinu og fleiri komast
aö til að bjarga þjóðinni.
Ef frambjóðendur eru frátaldir,
hefur sáralítill áhugi skapast um
þessar kosningar enda hafa sumir
fiokkarnir lagt sig fram um það aö
láta sem minnst á stefnu sinni bera
og ennþá minna á ýmsum óheppi-
legum frambjóðendum og er það
vel. Það á ekki að vera rugla þjóð-
ina meö einhverjum stefnum sem
hvort sem er verður aldrei fylgt
eftir. Aðalatriðið er það aö flokk-
arnir eru sammála um að vera á
móti verðbólgunni, á móti Evrópu-
bandalaginu og yfirleitt á móti öllu
sem kemur fólki illa. Nú vhja þeir
allir hækka skattleysismörkin,
þeir eru allir afar góðir við gamla
fólkið, fatlaða og lamaöa, lands-
byggðina, unga fólkið og nánast
allt sem hreyfist.
Menn eru líka sammála um að
fjórflokkarnir gömlu fái sitt fylgi
nær óbreytt frá því síðast og er þá
gert ráð fyrir að Borgaraflokks-
fylgið fari aftur heim til fóður-
húsanna hjá íhaldinu. Kvennalist-
inn fær sitt að frátöldum þeim kon-
um, sem hafa látist á kjörtímabil-
inu og smáflokkamir eru svo smá-
ir að það tekur ekki að greiða þeim
atkvæði. Nema þá helst öfgasinn-
aðir jafnaðarmenn, sem hafa farið
aö fordæmi leiðtoganna í póhtík-
inni og haft gamanyrði að leiðar-
ljósi. Davíð hefur farið um landið
og sagt brandara og ahir hafa skhið
brandarana og hlegiö. Steingrímur
hefur líka verið fyndinn án þess
að ætla sér að vera fyndinn en
Dagfari hefur einmitt bent á það
hvað Steingrímur verður ofsalega
fyndinn með því að vera ekki fynd-
inn. Þannig hefur Steingrímur sagt
frá því á fundum að hann liggi
undir því ámæli að vera drykkju-
maður, þótt vinir hans hafi einmitt
haft á orði að það sjáist aldrei á
honum. .Þetta finnst Steingrími
ekki fyndið en áhorfendur
skemmta sér hið besta undir slík-
um sógum.
Jón Baldvin hefur reynt aö vera
skemmtilegur með því að birta
reglulega auglýsingar um þá sem
ekki þora að mæta honum á fund-
um og þannig 'hefur hann lagt
hvem andstæðinginn aö fætur öðr-
um með því að skora þá á hólm og
mæta svo einn til einvígisins. Þetta
þykir krötum mjög fyndið og öðr-
um sömuleiðis því það er nýtt að
menn heyi kosningabaráttu í stíl
við Don Quiqote með því aö berjast
við vindmyhur.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
vakið á sér athygli fyrir það hvað
hann hefur skemmtilega fram-
komu, enda er Ólafur Ragnar tví-
mælalaust hlægilegasti flokks-
formaðurinn. Guðmundur Árni og
Ösur Skarphéðinsson hafa samið
leikþátt sem þeir hafa sýnt víðs
vegar um landið þar sem enginn
þarf að kjósa þá og það sást meira
segja mynd í blaði nýlega, þar sem
brá fyrir brosi á andliti Bjöms
Bjarnasonar. Og Þorsteinn Pálsson
er farinn að hlæja að bröndurum
Davíðs, sem sannar að nú er gróið
um heilt mUli hans og formanns-
ins. Mogginn birti myndina, svo
þaö er örugglega ekki fólsuð mynd.
Það er gott að einhver skemmtir
sér í kosningabaráttunni. Ekki
gera kjósendur það. Og nú er bara
um að gera aö mæta snemma á
kjörstaö og muna að kjósa það
sama og síðast svo ganga megi út
frá því vísu aö ekkert breytist í ís-
lenskri pólitík það sem eftir lifir
af þessari öld. Enda er framtíðin
undir því komin að allt verði eins
og áður. Það er okkur að minnsta
kosti sagt.
Dagfari