Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Qupperneq 9
rppr
• • - i • * . i . j . .11 >1. v • j i i i. \
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991.
DV
Sænsku gísl-
unum hótað
Iffláti
Menn velta því nú fyrir sér hvort
hótunin um að drepa sænsku gíslana
tvo í Kasmír hafi verið ekta eða hvort
einhver í Janbaz-hreyfingunni, þar
sem mikill ágreiningur ríkir, sé að
reyna að notfæra sér ástandið.
Fréttamenn í Srinagar í Kasmír á
Indlandi fengu í gær upphringingu
frá aðila sem kvaðst vera talsmaður
Janbaz-hreyfingarinnar er berst fyr-
ir sjálfstæði Kasmír. Sagöi hann
Svíana, sem rænt var um páskana,
myndu finnast látna eða lifandi fyrir
utan Kasmír þar sem kröfur mann-
ræningjanna um að sendinefndir frá
Sameinuðu þjóðunum og Amnesty
Intemational kæmu til kanna meint
mannréttindabrot í Kasmír hefðu
ekki verið uppfylltar.
Meðal annars vegna þess að fyrri
tilkynningar frá mannræningjunum
hafa verið skriflegar eru menn efins
um aö þessi síðasta hafi verið frá
þeim. Þetta var reyndar í fyrsta
skipti þar sem lífláti er hótaö. Hingað
til hafa ræningjarnir látið sér nægja
að lýsa því yfir að þeir hiki ekki við
aögrípatilörþrifaráða. TT
Fiskveiðifloti
EB40%ofstór
Fiskifræðingar, sem starfa fyrir
fiskveiðinefnd Evrópubandalagsins,
segja að fiskveiðifloti bandalagsríkj-
anna sé um 40% of stór. Þeir segja
óhjákvæmilegt að leggja hluta flot-
ans ef einhver möguleiki á að vera á
að móta fiskveiðistefnu fyrir banda-
lagið.
Málið verður rætt á fundi Evrópu-
ráösins nú í lok vikunnar í Lúxem-
borg. Þar er sagt að ekki sé lengur
hægt aö horfa fram hjá þeirri stað-
reynd að fiskur er ofveiddur á öllum
miðum bandalagsríkjanna og þó
hvergi meir en í Norðursjónum. Því
verði að grípa í taumana strax áður
en það er um seinan.
Ekki eru þó allir sammála um of-
veiðina og fulltrúar nokkurra ríkja
segja að fiskifræðingamir ýki mjög
í niöurstöðum sínum. Fiskifræðing-
arnir halda þó fast við fyrri niður-
stööur sínar og leggja til að dregið
verið úr sókninni um 40%. Ritzau
Kennedy-hneyksliö:
Athyglin bein-
ist að konunni
semkærði
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa
nú greint frá hver konan er sem
William Kennedy Smith er sakaöur
um aö hafa nauðgað nóttina fyrir
páskadag í húsi Edwards Kennedy,
frænda síns, á Palm Beach í Flórída.
Hún heitir Patricia Bowman, 29 ára
gömul einstæð móöir, og býr á Palm
Beach.
Með þessum upplýsingum hefur
málið tekið nýja stefnu því nú bein-
ast sjónir manna að Patriciu. Hún
er stjúpdóttir milljónamæringsins
Michaels O’Neil og hefur raunar ver-
ið kunn fyrir vafasamt líferni allt frá
æskuárum. Sögur herma að hún hafi
af og til reynt fyrir sér með vinnu
en hvergi verið lengi á sama stað og
hafi síðustu misseri aðallega stundað
hið ljúfa líf á Palm Beach.
Patricia á íbúð í nágrenni við hús
Edwards Kennedy. Sagt er að stjúpi
hennar hafi keypt húsnæðið fyrir um
10 milljónir króna. Þar býr hún
ásamt ungri dóttur sinni. Nágrann-
arnir segjast lítið hafa af henni að
segja og haft er eftir einum þeirra
að hún sé mjög róleg.
Vinir segja að hún hafi hitt William
á bar kvöldið fyrir nauðgunina og
þau þá talað saman drykklanga
stund. Það þykir líka í frásögur fær-
andi að við næsta borð sat engin
önnur en Ivana Trump, fyrrum eig-
inkonaDonaldsTrump. Reuter
0
9
Utlönd
John McCarty, blaðamaður frá Bretlandi, hefur verið í haldi mannræningja
í Líbanon i fimm ár. Símamynd Reuter
Fimm ár gísl í Líbanon
Breski blaðamaðurinn John
McCarty hefur nú verið rétt fimm
ár í haldi hjá mannræningjum í Líb-
anon. Þrátt fyrir vonir um aö gíslum
í landinu verði sleppt nú þegar dreg-
ur úr spennu í Miðausturlöndum þá
hefur ekkert komiö fram síðustu
daga sem bendir til að McCarty eða
öörum vestrænum gíslum verði
sleppt.
„Ég sé þig á morgun," var það síð-
asta sem McCarty sagöi í síma við
vinkonu sína í Bretlandi áður en
mannræningjarnir náðu honum á
sitt vald fyrir fimm árum. Hann hélt
síðan til flugvallarins í Beirút en var
rænt á leiðinni og eftir það hefur
ekkert til hans spurst.
Lengi vel var ekkert vitað um af-
drif McCartys og jafnvel var talið að
hann heíði veriö myrtur því enginn
hópur hryðjuverkamanna vildi
kannast við að hafa hann í gíslingu.
Það var ekki fyrr en Brian Keenan
var sleppt í ágúst á síðasta ári að eitt-
hvað fréttist. Keenan sagðist hafa
verið í haldi á sama stað og McCarty.
Nú eru 12 vestrænir menn í haídi
mannræningja í Líbanon. Taliö er
að þeir séu flestir á valdi manna sem
ei u hliöhollir klerkastjórninni í íran.
Litlu munaði að nokkrir þeirra
fengju frelsi seint á síðasta ári þegar
samskipti stjórna Bretlands og írans
bötnuðu en af því varð ekki.
Reuter
Ef þuWyljsjt að kaupa Panasonic vídeómyndavél
bjóðum við eftirfarandi kostningaioforð:
PANASONIC MS70B
S SUPER VHS
MAÐEINS 1 KÍLÓ
S SJÁLFVIRKUR FÓKUS
"M6 x AÐDRÁTTUR
.0 TEXTA INNSETNING
ADEINS KR. imzOb.-
ADEINS KR. 84 200.-
69.600. ~stgr.
PANASONIC MC20B
B vhs vél
Bf FULLKOMIN AFSPILUN
MLÉTT OG LEIKANDI
Kí TASKA FYLGIR