Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991. Fullyrðing Júlíusar og Kvennalistinn Júlíus umhverfisráðherra fuU- yrðir að mengun af ferðamönnum sé slík að nokkur stóriðjuver séu sem dropi í hafið hjá henni. Þetta lætur hann hafa eftir sér, án nokk- urra raka, til að hefna sín á Kvennalistakonum sem eru á móti stóriðju en með auknum ferða- mannaiðnaði og vilja að tekið sé á þeim málum af skynsemi og fyrir- hyggju. Útlendingar okkur fremri Við hjónin hættum fyrir nokkr- um árum hefðbundnum búskap og snerum okkur alfarið að ferðaþjón- ustu, svo ég veit heilmikið um ferðamenn, en kannast ekkert við þessa mengun hans Júlíusar. Á sl. ári voum við með 2-3000 gistinætur, bæði íslendinga og út- lendinga. Margir ferðamenn ferð- ast í hópum með rútum svo meng- un af útblæstri frá bifreiðinni dreif- ist á 20-50 manns. Fólk er afar hrifið af íslandi eins og það er núna, af hreinni og ó- spifftri náttúrunni og gerir sitt til að skemma hana ekki. Það spyr hvar það megi fara og hvar ekki og útlendingar eru yfirleitt okkur fremri með sorphirðingu og um- hverfisvemd. Auðvitað kemur töfuvert af rusfi frá svona mörgu fólki, en við brennum þaö og urð- um það sem ekki brennur til agna, sama og engin mengun. Kjallariim Svava S. Guðmundsdóttir húsmóðir og gistihússtýra Gestirnir okkar fara mikið í fjör- una hérna og kveikja þá gjarna varðefda í sandinum með sprekum og drash sem þeir finna í fjörunni, af þessu er mikifl þrifnaður. Ég man eftir fréttamynd af ráðherram að hreinsa fjörur, þar var Júlíus umhverfisráðherra iðinn við að tína þangið og þarann. Það er dáht- ið erfitt að átta sig á hvað Júlíusi finnst mengun. Getur veriö að hon- um þyki það mengun á ísfandi ef þeldökkt fólk sækir okkur heim? í fámennu landi verða útfendir ferðamenn mjög áberandi í sam- félaginu, en er það ekki allt í lagi í tvo til þrjá mánuði á sumrin? Júfíus ætti að hugsa um fjármagnið sem þessir „mengunaraðifar“ skilja eftir í landinu og dreifast tif svo margra. Ferðamaður sem kem- ur til okkar borðar t.d. fambakjöt og skyr og fer svo í sundlaugina og hestaleiguna síðan á HóteUö (aflt hér í sveitinni), hann ekur hring um Snæfellsnesið og kemuf við á bensínsölu, sjoppu, banka og í búð- um, fer á Jökulinn eða í Eyjaferðir o.s.frv. Hann skilur eftir sig pen- inga hvar sem hann kemur og ótaf margir njóta góðs af. Hvaða at- vinnuvegur gefur okkur íslending- um jafnmikið með jafnlítilli meng- un? Þangið, þarinn og ferðamenn. Ég held að það hljóti að vera kominn tími til að fá alvöru umhverflsráð- herra. Fórnuðu ríkisstjórnaraðild Þegar þessi orö era skrifuð er fiskverkafólk í verkfalU .vegna megnrar óánægju með kaup og kjör, enda ekki að furða eins lúsar- leg og launin þeirra era fyrir erfiða og slítandi vinnu. Það er svo sann- arlega kominn tími til að umbuna þessu fólki svo sem vert er þar sem það vinnur við undirstöðuatvinnu- veg okkar. Fyrir tveimur til þremur dögum var þetta verkfall til umræðu í Þjóðarsálinni á rás 2. Þar voru Stef- án Jón og viðmælandi hans hjart- anlega sammála um að enginn stjórnmálaílokkur léti launamál láglaunafólks sig nokkru varða. En það er nú öðru nær, sannleik- urinn er sá að KvennaUstinn lætur sig launamál miklu varða (ekki síst þeirra lægst launuðu). Svo miklu að haustið 1988 fómuðu þær kvennalistakonur aðild að ríkis- stjórn, vegna þess að þær vildu virkilega taka á þessum málum en stjórn sú sem nú er að fara frá treysti sér hins vegar engan veginn til þess, heldur stóð hún saman um launafrystingu og heftan samn- ingsrétt launafólks. Svo er fólk enn að klifa á því að kvennalistakonur þori ekki að fara í ríkisstjóm. Ég hins vegar dáist að þeim, þær stóðu við það sem þær sögðu fyrir kosningar og til þess þarf þor. Þó að Kvennalistinn sé ungt stjórnmálaafl finnst mér fólk ætti að vera búið að átta sig á þeim reg- inmun sem er á þeim og hinum flokkunum. Heiðarleiki og orð- heldni era nefnilega í heiðri höfð hjá frambjóðendum Kvennahst- ans, en það virðist því miður ekki vera metið sem skyldi nú til dags enda kannski ekki í tísku lengur eða hvað? Oft hef ég undrast fádæma hundstryggð sumra kjósenda sem í áratugi kjósa æ ofan í æ sama gamla flokkinn sinn í blindri vissu um að hann sé sá eini rétti. Þó svo ekkert af góðum loforðum fram- bjóðendanna standi þegar til kast- anna kemur enda er þá embætt- isgleðin og framapotið það eina sem kemst að í hugum þeirra flestra því miöur. Loforðin skipta ekki svo miklu máli þegar eru fjög- ur ár til næstu kosninga. Kjósandi góður, hvaö ætlar þú að gera í kosningunum? Með því aö skila auðu eða kjósa ekki styður þú þann sterkasta. - Ef það er ekki vilji þinn verður þú að velja. í vor er valið X-V. Svava Guðmundsdóttir „ Júlíus ætti að hugsa um fjármagnið sem þessir „mengunaraðilar“ skilja eftir í landinu og dreifist til svo margra.“ Hvers vegna Frjálslyndir? Þessi spuming hefur dunið á mér frá vinum og vandamönnum und- anfama daga. Svarið er einfalt. Ég tel Frjálslynda besta kostinn í kom- andi kosningum. Ég tel þá ekki aðeins besta kostinn heldur með því að styrkja þá með ráðum og dáð eygi ég nýja framtíð fyrir ísland og íslendinga. Stefnuskrá þeirra end- urvekur hjá manni þá trú að í okk- ar fallega landi sé hægt að lifa áfram góðu mannsæmandi lífi með reisn og jafnvel glæsibrag. Valkostimir við kosningaborðið undanfamar kosningar hafa verið slæmir og hefur vahð gjarnan veriö um þann skásta af mörgum léleg- um. Fjórhöfða þursinn, sem ráðið hefur hér ríkjum í hartnær hálfa öld, fjórflokkakerfið, er orðiö úr sér gengið, fast í stefnuskrám sem gerðar vora við aht aðrar aðstæöur en nú á tímum tækni og vísinda. Rangt væri að segja aö „þursinn" hafi verið alvondur en hjá því getur ekki farið að einhver, þar á meðal ég, spyrji sem svo hvort ástæða sé th að láta tregðulögmálið ráða ferð- inni öllu lengur. Enginn bitlingabýtir Frjálslyndir eru sprottnir upp af rótum Borgaraflokksins sem varð til við það að Þorsteinn Pálsson sparkaði Albert Guðmundssyni úr Sjálfstæðisflokknum en eins og al- þjóð veit þá era Albert og flestir fylgifiskar hans komnir aftur heim til fóðurhúsanna. Eftir stendur hópur hugsjónamanna ásamt fólki sem gengið hefur til liðs við þá og vill berjast við hhð þeirra. Sjá stefnu þeirra hrint í framkvæmd. Borgaraflokkurinn sannaði SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN UTANKJÖRSTAÐARKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS VALHÖLL, HÁALEITISBRAUT1, 3. HÆÐ. SÍMAR: 679902 - 679903 - 679904 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá borgarfógetanum í Reykjavík, Skógarhlíð 6, jarðhæð, alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nejna sunnudaga kl. 14-18. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningunum. Aðstoð við kjörskrárkærur. Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstof- una ef þið verðið ekki heima á kjördag, 20. apríl nk. KjaUariim Ragnheiður G. Haraldsdóttir fóstra. Skipar 6. sæti F-listans, Lista frjálslyndra raunar þegnskap sinn á sl. kjör- tímabili. Hann var enginn bitlinga- býtir og skipti þá engu máh hvort maðurinn var „lítih“ eða „stór“. Hann tók að sér umhverfismálin, sem öll voru hér í ólestri, og byggði upp ráðuneyti til að fara með þau. Því ráðuneyti fylgir engin póhtísk gróðavon heldur þrotlaus vinna. Sé til lengri tíma litið getur slík vinna skipt sköpum í heimi sem halda mætti að sé að kafna í eigin óþrifum. Við fólk sem styðjum og bjóðum okkur fram undir merki Frjálslyndra í komandi kosningum eram ekki að bjóða okkur fram fyrir klofinn klofningsflokk úr Sjálfstæðisflokknum. Langt þar í frá. Við erum að ganga til liðs við nýjan flokk, „borgaralegan" að vísu en frjálslyndan og einlægan. Fylgjandi álveri Ég nefndi í upphafi þessarar greinar að spurningin hvers vegna „Frjálslyndir" hefði dunið á mér og í framhaldi af því hafa spurning- ar um einstök mál fylgt í kjölfarið, Hvað um álver? Hvað um E.B.? Hvað um Nató? o.s.frv. Við Frjáls- lyndir erum fylgjandi álveri við Keihsnes, enda undirbúningur fyr- ir það langt á veg kominn og krafa liggur fyrir um að fyhstu mengun- arvarna sé gætt. Álver fyrri tíma og álver framtíðarinnar era tveir gjörólíkir hlutir hvað umhverfis- vernd varðar. Þrátt fyrir það að Frjálslyndir séu fylgjandi álveri við Keihsnes þá era þeir engir sérstakir stóriðjuaðdá- endur, þótt þeir útiloki ekki shka möguleika, heldur sjá fyrir sér, eins og kemur fram í stefnuskrá þeirra, lítil framleiðslufyrirtæki, sem henta til rekstrar hvar sem er á landinu, svo að jafnvægi haldist í byggð landsins: Endurskoðun varnarsamnings Varðandi aðild íslands að Evr- ópubandalaginu er stefna Frjáls- lyndra ótvíræð. Aðild kemur ekki til greina miðað við haröneskjulega stefnu þess í sjávarútvegsmálum, en við teljum eðlhegt að eiga við það vinsamleg samskipti og freista þess að bæta þá viðskiptasamninga sem við höfum, ef samningur EFTA-ríkjanna og EB um stofnun hins evrópska efnahagssvæðis tekst ekki. ísland er í Nató, það er stað- reynd, en Frjálslýndir vilja að varnarsamningur við Bandaríkin sé endurskoðaður. Athuga beri hvort íslendingar geti ekki tekiö yfir stóran hluta af þeim eftirhts- og friðargæsluverkefnum sem nú er sinnt af herliðinu. Það er skýlaus krafa Frjálslyndra að íslendingar vinni öll þau störf sem ekki þarf sérstaklega hernaðarlega þjálfun til að vinna. Einnig er það stefna Frjálslyndra að íslendingar eigi frumkvæðið að því að fá kjarnorkuveldin til að við- urkenna nauðsyn afvopnunar á höfum ekki síður en á landi og í lofti. Hvað sjálfa mig varðar þá vil ég taka það fram að ég hef ætíð verið hemámsandstæöingur og tel þær skoðanir rúmast vel innan ramma frálslyndra og skírskota til þess að „í húsi föður míns eru margar vistarverar". Ég hef hér leitast viö að svara „Hvers vegna Frjálslyndir?" að nokkru leyti en svörin eru ótal fleiri. Eins og ævinlega í kosning- abaráttu flæðir nú áróðurinn yfir þjóðina. „Alhr þykjast „vissir“ vera vitlausir að agitera". Haldi því hver vöku sinni en væri ekki rétt að ígrunda ögn þau gömlu sannindi að „nýir vendir sópa best“. Ragnheiður G. Haraldsdóttir „Þaö er skýlaus krafa Frjálslyndra aö Islendingar vinni öll þau störf sem ekki þarf sérstaklega hernaðarlega þjálfun til að vinna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.