Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Síða 20
.„20
FIMMTUDAGUR. 18. AERÍL 1991.
Sljómmál_____________________________________________________________________pv
Reykjavlk:
Nokkur hreyf ing virðist
vera á fylgi f lokkanna
Menn þykjast sjá nokkuö hreinar
línur í alþingiskosningunum í
Reykjavík um 16 þingsæti en erfiðara
sé aö spá um hvaða flokkar fái 17.
og 18. sætiö. Fróðir menn og áhuga-
samir um pólitík halda því fram að
spumingin sé hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn fái 9 eða 10 þingmenn og
Framsóknarflokkurinn einn eða tvo.
Þingmannafjöldi Alþýðuflokksins og
Kvennalista fari eftir þessu. Fái Sjálf-
stæðisflokkurinn 10 þingmenn og
Framsókn tvo þá missa Alþýöuflokk-
ur og Kvennalistinn sinn manninn
hvor en báöir listarnir eiga nú 3 þing-
menn. G-lista er spáð tveimur þing-
mönnum. Önnur framboð komist
ekki á blaö.
Úrslitin 1987
Þingmenn Reykjavíkur eru 18. Af
þeim eru 14 kjörnir í fyrstu lotu en
síðan koma fjögur svokölluð jöfnun-
arsæti.
Lítum á úrsht alþingiskosninganna
í Reykjavík 1987. Þá fékk Alþýðu-
flokkurinn 9.527 atkvæði og 3 þing-
menn. Framsóknarflokkurinn fékk
5.738 atkvæði og 1 þingmann, Sjálf-
stæðisflokkurinn 17.333 atkvæði og 6
þingmenn, Alþýðubandalag 8.226 at-
kvæði og 2 þingmenn, Borgaraflokk-
urinn 8.965 atkvæði og 3 þingmenn
og Kvennalistinn 8.353 atkvæði og 3
þingmenn.
Sigurdór Sigurdórsson
Þá voru á kjörskrá í Reykjavík
67.387 manns. Þar af kusu 59.682 sem
er 88,5 prósent kjörsókn.
Nú eru á kjörskrá í Reykjavík
73.411 og hefur því fjölgað um 8,9
prósent.
Hvaða breytingar eru
líklegastar?
Persónufylgi Davíðs Oddssonar í
borgarstjómarkosningunum 1986 og
1990 varð til þess að Sjálfstæðisflokk-
urinn vann stærri sigra en dæmi er
um áður. Þetta voru borgarstjórnar-
kosningar. Nú eru það alþingiskosn-
ingar og Davíð orðinn formaður
Sjálfstæðisflokksins og í efsta sæti
hstans.
Þá er það stóra spurningin hvort
hann heldur því persónufylgi sem
hann hefur sem borgarstjóri. Flestir
efast um að hann haldi því öllu. Hluta
þess mun hann halda. Síðan e^ önnur
spuming sem margir velta fyrir sér:
Hvert fer fylgi Borgaraflokksins frá
kosningunum 1987? Ef megnið af
fylgi Borgaraflokksins fer yfir á
Sjálfstæðisflokkinn væri hann kom-
inn með um 45 prósent atkvæða og
fengi að öllum líkindum 10 þing-
menn. Þar með myndi Alþýðuflokk-
urinn eða Kvennalistinn missa einn
af þremur þingmönnum sínum.
Þá er því haldið fram að Framsókn-
arflokkurinn sé í sókn um allt land
síðustu dagana. Nýjustu skoðana-
Fréttaljós
er ávísun á vinstrí stjóm
Sjálfstæðisflokkurinn
— gegn glundroða
" ji, .........
Menn þykjast sjá nokkuð hreinar línur í alþingiskosningunum í Reykjavík
um 16 þingsæti en erfiðara sé að spá hvaða fiokkar fái 17. og 18. sætið.
kannanir benda til þess. Fylgi hans
í Reykjavík mælist í sumum skoð-
anakönnunum um 11 prósent og
hann gæti því farið langt í að bæta
við sig manni. Það væri þá líka á
kostnað annaöhvort Kvennalista eða
Alþýðuflokks.
011 þessi skipting, hvort D-hstinn
fær 9 eða 10 þingmenn, hvort A-hst-
inn fær 2 eða 3 og hvort Kvennalist-
inn fær 2 eða 3, Alþýðubandalagið
fær 2 eöa 3 og B-listinn 1 eða 2, getur
oltið á örfáum atkvæðum.
Uppsveifla - niðursveifla
Flestir af þeim sem DV ræddi við
um úrsht kosninganna í Reykjavík
fuhyrtu aö strax eftir landsfundinn
í mars hefði Sjálfstæðisflokkurinn
verið með um 50 prósent fylgi á
landsvísu og heldur meira í Reykja-
vík. Síðan þá hafi fylgi hans verið
að dala. Gallup mældi hann fyrir
tvgim vikum með um 53 prósent at-
kvæða. í skoðanakönnun Morgun-
blaðsins, sem birt var í gær, var hann
kominn niður í 40 prósent á lands-
vísu. Gera má ráð fyrir að fylgið í
Reykjavík sé heldur meira.
A sama tíma mælir skoðanakönn-
un Morgunblaðsins mikla uppsveiflu
hjá Alþýðubandalaginu sem er kom-
ið með 15,1 prósent í þeirri könnun
en var með 10,1 prósent í mars. Svona
hreyfingar upp og niður hjá flokkun-
um geta haldið áfram fram á kjördag
og því erfitt að spá hver lendingin
verður.
Að ná til fólksins
Margir viðmælenda DV sögðu að
Steingrími Hermannssyni hefði tek-
ist með umræðunni um EB og þjóð-
aratkvæðagreiðsluna að ná til
margra kjósenda. Honum hafi tekist
að vekja þar upp mál en fram að því
hafi málefnaskortur verið alger í
kosningabaráttunni. Þeir telja aö á
þessu muni flokkurinn hagnast, jafnt
I Reykjavík sem annars staðar.
Þá telja þeir einnig að Sjálfstæðis-
flokkurinn gjaldi þess nú og komi
fram í minnkandi fylgi í skoðana-
könnunum nú hve stefna hans í sjáv-
arútvegs-, landbúnaðar- og byggðar-
málum hefur verið óljós. Þeir benda
á að enda þótt margir haldi því fram
að óljós málflutningur fyrir kosning-
ar sé heppilegur sé það samt ótrúlega
stór hópur kjósenda sem vill mál-
efnalegar umræður og skýrar hnur
fyrir kosningar. Þeir benda einnig á
aö Davíð Oddssyni hafi tekist að afla
sér vinsælda fyrir borgarstjórnar-
kosningar með gamanmálum og
fyndnum ræðum. Þetta hafi honum
aftur á móti ekki tekist í fundar-
herferð sinni um landið að undan-
fornu. Þeir telja samt að þetta dugi
honum áfram í Reykjavík þar sem
hann á ótrúlega mikið persónufylgi.
Þeir halda því líka fram að mál-
flutningur og gerðir þeirra Ólafs
Ragnars Grímssonar fiármálaráð-
herra og Svavars Gestssonar
menntamálaráðherra hafi náð eyr-
um og athygh kjósenda. Undirritun
um byggingu skóla hér og flugskýlis
þar hafi náð athygli kjósenda. Nú sé
flokkurinn að uppskera vegna þessa
í skoðanakönnunum.
Menn tala um að einhverra hluta
vegna hafi málflutningur og athafnir
ráðherra Alþýðuflokksins ekki náð í
gegn á sama hátt og ráöherra Al-
þýðubandalagsins í kosningabarátt-
unni.
Svo virðist sem fylgi Kvennahstans
sé svipað á landsvísu og það var í
síðustu kosningiun; einnig í Reykja-
vík. Konurnar hafa haldið því fram
að málflutningur þeirra komist ekki
til skila í fiölmiðlum til jafns við
málflutning fiórflokkanna. Þær hafa
þó haft alveg jafnan aðgang og aðrir
flokkar að DV og Ríkisútvarpinu,
sjónvarpi og útvarpi, og hinir flokk-
amir sem bjóða fram í þessum kosn-
ingum. Samt mæla skoðanakannanir
að lítil breyting verði á fylgi þeirra í
þessum kosningum miðað við síð-
ustu kosningar. Margir halda því
fram að Kvennalistinn eigi orðið
fastan stokk kjósenda sem muni ekki
breytast mikið nema eitthvað alveg
sérstakt gerist í þjóðfélaginu.
Það er því niðurstaða þeirra sem
DV ræddi viö að Sjálfstæðisflokkur-
inn nái til sín þingsætum Borgara-
flokksins í Reykjavík. Síðan sé það
spuming um skiptingu, sem velta
muni á fáum atkvæðum, hvar tvö
þingsæti, sem Alþýðuflokkurinn og
Kvennalistinn áttu, lendi. Halda
þessir flokkar þeim? Fær Sjálfstæðis-
flokkurinn 10 þingmenn? Bætir
Framsóknarflokkurinn við sig
manni? Allt þetta kemur í ljós á kosn-
inganóttina.
-S.dór