Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Page 31
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991. 43 Stjómmál Reykjaneskjördæmi: Frekar erf itt púsluspil Töluverð óvissa ríkir um úrslit al- þingiskosninganna í Reykjanes- kjördæmi en að sama skapi ríkir um þau allnokkur spenna. EÍIefu framboðslistar bjóða fram í Reykjanesi, fleiri en í nokkru öðru kjördæmi. Fyrir utan fjórflokkinn og Kvennalistann bjóða Fijálslynd- ir, Heimastjórnarsamtök, Verka- mannaflokkur, Grænt framboð, Þjóðarflokkur-Flokkur mannsins og Öfgasinnarðir jafnaðarmenn fram lista. Flestir Reyknesingar, sem talað var við vegna kosning- anna, voru á þeirri skoðun að ein- ungis fjórflokkurinn og Kvenna- listinn ættu möguleika á að fá menn á þing þannig að hér á eftir verður aðeins fjallað um þá flokka. í Reykjaneskjördæmi eru 9 kjör- dæmakjörnir þingmenn og 2 jöfn- unarmenn. í síðustu kosningum fékk Alþýðuílokkur 18,2 prósent atkvæðanna og 2 menn, Framsókn 19,8 prósent og 2 menn, Sjálfstæðis- flokkur 28,9 prósent og 3 menn, Alþýðubandalag 11,7 prósent og 1 mann, Borgaraflokkur 10,9 prósent og 2 menn (annan sem jöfnunar- þingmann) og Kvennalisti 9,1 pró- sent og 1 mann sem var jöfnunar- þingmaður. í þeim kosningum tap- aði Sjálfstæðisflokkur miklu fylgi og Alþýðubandalag nokkru. Aðrir flokkar unnu á, Framsókn og Al- þýðuflokkur mest. Borgaraflokkur var nýr. Nokkrar útgáfur Þegar menn spá um úrslitin í kosningunum um helgina koma út úr þeim spádómum nokkrar ólíkar útgáfur sem allar eiga það þó sam- merkt að einungis ijórflokkurinn og Kvennalistinn eiga möguleika á að fá mann kjörinn. Fylgi Borgara- flokksins virðist farið aftur til fóð- urhúsana að mestu og njóti Fijáls- lyndir þess ekki nema í mjög tak- mörkuðum mæli. Það ræður nokkru um útkomuna hvort Kvennalistanum tekst að halda sínum manni. Ef svo fer þyk- ir ýmislegt benda til þess að sá verði annar tveggja jöfnunar- manna kjördæmisins. Ef gengið er út frá því að Kvennalistinn sé með mann inni leiða samtöl við Reyk- nesinga að eftirfarandi niðurstöðu: Alþýðflokkur fær 3 menn, einn jöfnunarmann, Framsókn 1 mann, Sjálfstæðisflokkur 5 menn og Al- þýðubandalag 1. Þykjast menn jafnvel sjá baráttu milli 3. manns Alþýðuflokks, Rann- veigar Guðmundsdóttur, og 6. manns Sjálfstæðisflokks, Maríu E. Keilisnes er ósjaldan uppi á teningnum i kosningaslagnum í Reykjanesi. Fréttaljós Haukur L. Hauksson Ingvadóttur, um annað jöfnunar- þingsætið. Bent er á að möguleikar Rannveigar tengist því nokkuð hvort Sighvatur fari inn sem kjör- dæmakjörinn eða jöfnunarmaður á Vestfjörðum og eins kratar í öðrum kjördæmum. Fari Sighvatur inn sem jöfnunarmaður „steli“ hann töluvert miklu af jöfnunaratkvæð- um frá Rannveigu. Þannig hangir þetta allt saman, hjá öllum flokk- um. Sóló Steingríms og Ólafs Framsók'n virðist missa Jóhann Einvarðsson út í kuldann. Stein- grímur Hermannsson er atkvæða- segull, eins og fylgisaukning Fram- sóknar 1987 sýndi. Þá flutti Stein- grímur sig um set frá Vestfjörðum. Hann getur þó ekki dregið hlassið einn og reynir því mjög á Jóhann sem dráttarhest í öðru sætinu. Þar þykjast sumir Reyknesingar, sem DV ræddi við, sjá ákveðið kraft- leysi. Ólafur Ragnar er talinn öruggur inni og ekki mikið meira um það að segja. Spumingin virðist vera hvort Sjálfstæðisflokkur fái virkilega jafnmikið fylgi og honum hefur verið spáð undanfarið. Velta menn því meðal annars fyrir sér hvort 5. maður á listanum, Sigríður A. Þórðardóttir, verði kjödæmakjörin eða fari inn sem jöfnunarþingmað- ur. Allflestir viðmælendur DV telja þó að inn fari hún og það án meiri- háttar baráttu. Bjartsýnir sjálf- stæðismenn leyfa sér að spá 6 mönnum en þeir hófsamari halda sig við 5. Ef Kvennalisti fær ekki mann kjörinn skiptast 11 þingmenn kjör- dæmisins á milli fjórflokkanna. Fær Sjálfstæðisflokkurinn þá kvennalistaþingsætið og fagnar 6 þingmönnum eða heldur Jóhann sínu þingsæti eftir allt saman? Lík- ur þykja benda til að kratar fái alls ekki fleiri en 3 menn og Alþýðu- bandalag aðeins 1 mann. Reykjaneskjördæmi er mjög erf- itt viðureignar þegar spáð er í úr- sht alþingiskosninganna enda kom það fram í samtölum við fólk í kosningabaráttunni. Fjölgun kjós- enda um heil 12,8 prósent, þar sem nýir kjósendur eru í meirihluta, gerir þetta púsluspil síðan enn erf- iðara viðfangs. FAMILY FRESH FJÖLSKYLDU- LlNAN SHAMPOO • HÁRNÆRING • FREYÐIBAÐ • STURTUSÁPA • ROLL ON • SVITASPRAY • GEL- SPRAY • HÁRGEL • HÁRFROÐA • VARA Á GÓÐU VERÐI Heildsala: Kaupsel Laugavegi 25 S: 2 77 70 og 2 7740 Furugrund 3, Kópavogi. IS-SHAKE OTRULEGA ODYR 1/1 lltri aðeins kr. .......259, ís í brauðformi kr. .........99,- ís í brauðformi með súkkulaðiídýfu kr. .....109,- ís í brauðformi með súkkulaðiídýfú og rís kr.119, - Shake aðeins kr.. ..........185,- V - ÍSinrt HJÁ OKKUR Söluturn - ísbúð - videoleiga - bakari Lurugrund 3 - Kópavogi - Sími 41817 Opið: mán.-laugardaga kl. 9-23.30, sunnudaga kl. 10-23.30. FERÐAVINNINGUR NR. 1 DREGINN ÚT 19. APRÍL VIÐ DRÖGUM EFTIR1 DAG! ERT ÞÚ ÖRUGGLEGA ORÐINN ÁSKRIFANDI? SÍMI27022 OG 99-6270 (GRÆNISÍMINN)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.