Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1991, Page 33
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1991. 45 G-samtökin Þrátt fyrir forundran margra og efasemdir um stofnun G-samtak- anna á sínum tíma eru þau nú kom- in talsvert á þriðja áriö og enn starfandi. Eins og fram hefur kom- ið í ræðu og riti var ekki um vand- legan undirbúning eða samantekin ráð frumherjanna að ræða, heldur aðeins stofnun samtaka fólks með bitra reynslu sem vildi eitthvað gera til að hjálpa hvað öðru og að- stoða aðra við að lenda ekki í sömu gröfinni. Síðan hefur margt gerst. í dag tel ég að samtökin standi á tímamótum. í farvatninu er viss bernska með ótal mistökum og skakkafóllum. Fram undan er ákvörðunartaka um markmið og leiðir. Eitt þaö markverðasta sem sannast hefur af reynslunni er það að þjóðinni er nauðsyn að eiga slík samtök. Markmið Mér er ljúft að geta þess að það sem ég rita hér er mín persónulega skoðun sem ég veit þó að á sér marga fylgjendur innan G-samtak- anna. Ég tel að ein mistökin sem gerð hafa verið séu sú mikla áhersla sem lögð hefur verið á upp- gjörsvinnu og beina samninga fyrir fólk. Ástandið í þjóðfélaginu er ein- faldlega með þeim hætti að samtök með litla fjármuni úr að spila ráða ekki við það verkefni enda er nú svo komiö að ýmsir aðrir eru í auknum mæh að taka það hlutverk að sér. Þar má nefna Húsnæðisstofnun og bankana. Einnig eru dæmi um verkalýðs- félög sem veita slíka þjónustu. Síð- KjaUarinn Grétar Kristjónsson stofnandi G-samtakanna an ber að nefna eitt lykilatriði sem reynslan hefur kennt mér ræki- lega: Það gagnar ekkert að gera þessa hluti algjörlega fyrir fólk. Svo lengi sem einstaklingurinn er ekki reiðubúinn til að takast sjálfur á við raunveruleikann, er borin von að hann komist á réttan kjöl og verði fær um að „akta“ í þessum harða heimi. Það þarf að virkja viija þessa fólks og það á að vera eitt aðalmarkmið G-samtakanna. Enginn aðili er betur til þess fallinn en samtök þeirra sem sjálfir hafa lent í greiðsluerfiðleikum og gjald- þroti. Og fólk leitar frekar og fyrr til slíkra vegna þess að „sælt er sameiginlegt skipbrot". Og það þarf einfaldlega aö kenna íslen'dingum að meðhöndia peninga. Leiðir Það sem G-samtökin hafa helst komið til leiðar hingaö til er sú umræða sem skapast hefur í þjóð- félaginu. Henni þarf að viðhalda. Ekkert vandamál leysist nema allir séu tilbúnir að ræða þaö ræki- lega og óttalaust. Við stöndum frammi fyrir því að þjóðfélags- breytingin, sem átt hefur sér stað, hefur komið slíku róti á hugi fólks að margir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Örstutt er síðan lántakendur þurftu ekki að greiða lán sín aftur því verðbólgan „át þau“. Og við höfum daglega fyrir augum dæmi um aðila sem komast upp með að einfaldlega skipta um nafn á „hf- inu“ sínu og byrja síðan sama leik- inn í lántökum og röngum fjárfest- ingum. Einstaklingum lána bank- arnir ekki út á viðskiptavild eða raunhæfar áætlanir, heldur það að einhver annar einstaklingur, sem á eignir, sé tilbúinn að setja veð í sjálfum sér - lífi sínu og framtíð. Þetta gengur ekki. En það þarf að bregðast við raun- veruleikanum. Það tel ég aö G- samtökin geri best með því að við- halda umræðunni, efla fræðslu og veita fólki í vanda félagslegan stuðning. t „Greiningarstöð“ í dag er uppi sú hugmynd þess efnis að samtökin reki það sem nefnt hefur verið „greiningarstöð". Þar mundi fólk geta komið og feng- ið vanda sinn greindan. Viður- kennt er að fólk kemur frekar til G-samtakanna en annarra. Á sllkri greiningarstöð ættu að liggja fyrir upplýsingar um hina ýmsu aðila sem unnt er að leita tÚ með Ijár- hagsvanda. A skrifstofu samtakanna væri aöili eða aðilar sem hafa náö ár- angri í fjárhagsvanda sínum. Það- an væri stjómað öllu fræðslustarfi, sem bæði væri fyrirbyggjandi starf og einnig vopn til að aðstoða fólk við aö hefla nýtt líf því ólíkt hluta- félögum þá þarf lifandi fólk að halda lífinu áfram þrátt fyrir skakkafóll. Nú er kominn tími til að gleyma mistökum G-samtak- anna, sem vissulega em næg, og hefja skipulega og markvissa bar- áttu fyrir betra mannlífi. Verkefnin em næg. Grétar Kristjónsson „Svo lengi sem einstaklingurinn er ekki reiðubúinn til að takast sjálfur á við raunveruleikann er borin von að hann komist á réttan kjöl.. SMÁAUGLÝSINGASÍMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6272 -talandi dæmi um þjónustu! KAUTTUfiin KAUTT LJOS UOS/ DÖMUBINDIN jSöf^VE KVENLEGU llibresse Tilboð um áskrift Úrval er froðfullt af áhugaverðu efni, sjáðu bara . . . iSi Áskrift að Úrvali kostar krónur 2.125- fyrir allt árið 1991, alls 6 hefti. Pantir þú áskrift núna, færðu 6 eldri hefti að gjöf, og send með fyrsta heftinu. Tekið er við áskrift frá kl.9 til 20 alla virka daga Pantaðu áskrift síma 626010 ð út af Frjálsri Fjölmiðlun sem einnig gefur út DV og Urvalsbækur. Nú er annað hefti ársins komið út, -troðfullt af vönduðu efni til fróðleiks og skemmtunar fyrir alla. Eins og þú séró er allt efnisyfirlitið á forsíðunni, sem auðveldar þér að skoða innihaldið.. Úrval er 160 síður að stærð og kemur út annan hvern mánuð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.