Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Síða 2
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
Fréttir
Formaður Sjálfstæðisflokksins bjartsýnn um myndun viðreisnarstjómar:
„Þetta var ágætur fundur þar sem
við köfuðum dýpra í málin en áður,
án niðurstöðu þó. Það er engin
ástæða til annars en að vera bjart-
sýnn, ekki síst á sumardaginn fyrsta.
Ég býst frekar við því að fá stjórnar-
myndunarumboðið frá forseta ís-
lands á morgun,“ sagði Davíð Odds-
son í samtali við DV eftir fund með
Jóni Baldvini í gær. Var Davíö spurð-
ur um næstu skref í stjórnarmynd-
unarviðræðunum.
Davíð Oddsson var þá á leið til
þingflokksfundar sjálfstæöismanna
þar sem hann skýrði frá stöðu mála.
Veitti þingflokkurinn honum umboð
til að hefja stjórnarmyndunarvið-
ræður við Alþýðuflokkinn fengi
hann umboð til stjórnarmyndunar
frá forseta íslands í dag.
Formenn til forseta
Formenn flokkanna ganga á fund
Vigdísar Finnbogadóttur forseta í
dag og gera henni grein fyrir stöðu
mála eftir nokkurra daga óformlegar
stjórnarmyndunarviðræður. Að
þeim fundum loknum mun forseti
veita einum formannanna umboð til
stjórnarmyndunar. Eins og staðan í
óformlégum stjórnarmyndunarvið-
ræðum flokksforingjanna er í dag og
eftir viðtölum við Davið Oddsson og
Jón Baldvin Hannibalsson að dæma
þykir nokkuð víst að Davíð fái stjóm-
armyndunarumboöið frá forseta.
Vart hefur orðið við kurr meöal
ýmissa fylgismanna Alþýðuflokks-
ins, einkum meðal Austfirðinga og
fyrrum alþýðubandalagsmanna sem
nýverið hafa gengið til liðs við flokk-
inn vegna mögulegrar myr.dunar
viðreisnarstjórnar. Fundur í nafni
„kjósenda Alþýðuflokksins" var
haldinn á Hótel Borg í hádeginu í
gær. Þar var myndun viðreisnar-
stjórnar mótmælt og samþykkt
ályktun þar um. Sú ályktun var lesin
upp á lokuðum flokksstjórnarfundi
krata í Rúgbrauðsgerðinni í gær-
kvöld.
Á löngum fundi flokksstjórnar Alþýðufiokksins í gær var ákveðið að styðja þá ákvörðun sem þingflokkurinn mun
taka um stjórnarmyndunarviöræður. DV-mynd Hanna
Viðreisnartónn
Á fundi flokksstjórnarinnar, sem í
eiga sæti um 200 manns, gerði Jón
Baldvin Hannibalsson grein fyrir
stjórnmálaástandinu og verkefnum
nýrrar ríkisstjórnar í langri ræðu.
Almennt var það mat þeirra fundar-
manna sem DV ræddi við að tölu-
verðs viðreisnartóns hefði gætt í
ræðunni sem var vel tekið. Stóðu
fundarmenn upp í lok ræðunnar og
klöppuðu. Eiginleg niðurstaða fund-
arins var sú að styðja bæri forystu-
sveit flokksins, sama hvaða skref
yrðu stigin til stjórnarmyndunar.
„Ég er ánægð með þá samheldni
sem ríkti á fundinum þó engin bein
niðurstaöa hafi fengist á honum. Við
munun boða til nýs flokksstjórnar-
fundar áður en endanleg ákvörðun
verður tekin um stjórnarmyndun,"
sagði Jóhanna Sigurðardóttir við DV
að afloknum fundinum laust eftir
miðnætti.
í samtölum viö nokkra fundar-
menn kom sú skoðun fram að við-
ræður Jóns Baldvins við formenn
annarra flokka en Sjálfstæðisflokks
væru nánast ekki annað en „leikara-
skapur", beinn og breiöur vegur lægi
nú aö viðreisnarsljórn.
Auk funda hjá forseta íslands í dag
var búist við að Davíð og Jón Bald-
vin hittust í morgun og einnig að Jón
Baldvin ræddi við Halldór Ásgríms-
son sem var austur á fjörðum í gær-
dag.
-hlh/kaa
Davíð býst við að
fáumboðídag
- flokksstjóm Alþýðuflokksins sameinuð að baki forystunni
Viðreisnarhugmyndum krata mótmælt á Hótel Borg:
Slík stjóm er andvana fædd
- sagði Svanur Kristjánsson stjómmálafræðingur
Efnt var til fundar i nafni kjósenda
Alþýðuflokksins á Hótel Borg í gær.
Á annað hundrað manns mættu á
fundinn. Meðal fundargesta bar mik-
ið á fólki úr öðrum stjórnmálaflokk-
um, einkum Alþýðubandalagi. At-
hygli vakti að enginn úr þingflokki
AÍþýðuflokks mætti á fundinn. í lok
fundarins var samþykkt ályktun þar
sem forysta Alþýðuflokks er vöruð
við myndun ríkisstjórnar með Sjálf-
stæðisflokki. Fundarstjóri var Reyn-
ir Ingibjartsson.
Fram kom í máli Reynis þaö mat
að kjósendur Alþýðuflokks hefðu
fyrst og fremst verið að lýsa vel-
þóknun sinni á ríkisstjómarsetu Al-
þýðuflokks með atkvæðum sínum.
Hann sagði að ef forystan gengi nú
til ríkisstjórnarsamstarfs við Sjálf-
stæöisflokk væri hún að koma aftan
að kjósendum og því myndu þeir
ekki una.
Aðrir fundarmenn, sem töluöu á
fundinum, tóku í sama streng, meðal
annarra Svanur Kristjánsson stjóm-
málafræðingur og Ásgeir Hannes
Eiríksson, fyrrverandi þingmaður
Meöal kjósenda Alþýðuflokksins, sem mættu á fundinum á Hótel Borg í
gær, var Ásgeir Hannes Eiriksson, fyrrum þingmaður Borgaraflokksins.
DV-mynd Hanna
Borgaraflokksins. Svanur fullyrti að
ef af viðreisn yrði myndu allir jafnað-
armenn, jafnt í Alþýöuflokki sem
öðrum flokkum, fylkja sér í harða
stj órnarandstöðu.
„Flokkur frjálslyndra jafnaðar-
manna, sem ætlar sér þann hlut ein-
an að ganga til liðs við fundarstjóra
kolkrabbans, Davíð Oddsson, er
dauður og á sér ekki viðreisnar von.
Slík stjórn er andvana fædd,“ sagði
Svanur.
Ásgeir Hannes kvaðst einungis
hafa kosið Alþýöuflokkinn nú til að
tryggja vini sínum, Össuri Skarphéð-
inssyni, kosningu og áframhaldandi
samstarf ríkisstjórnarflokkanna.
„Ég hef einungis lánað honum
þingsæti mitt þetta kjörtímabil og
treysti því að hann haldi áfram því
verki sem stjórnin hófst handa við á
kjörtímabilinu, það að halda verö-
bólgunni niðri og stuðla að því að
gjaldþrotum í þjóðfélaginu megi
fækka. Þetta eru stóru málin í mín-
um huga,“ sagði Ásgeir Hannes.
-kaa
Jón Baldvin: á stöðugum fund-
um.
Stjóraarmyndun:
Atburðarásin
á miðvikudag
8.00 - Frambjóðendur Alþýðu-
flokks í F.eykjavík hittast á
flokksskrifstofunni á Hverfis-
götu.
10.00 - Kvennalístakonur ganga
á fund Jóns Baldvins í utanríkis-
ráðuneytinu. Hugsanleg stjóm-
arþátttaka þeirra rædd.
11.00 - Kvennalistakonur ganga
á fund Jóhönnu Sigurðardóttur í
félagsmálaráðuneytinu.
11.00 - Halldór Ásgrimsson hitt-
ir Jón Baldvin að máli 1 utanríkis-
ráðuneytinu. Áframhaldandi
samstarf Alþýöuflokks, Fram-
sóknar og Alþýðubandalags uppi
á teningnum.
12.00 - Ólafur Ragnar Grímsson
gengur á fund Jóns Baldvins
Hannibalssonar í utanríkisráöu-
neytinu. Enn eru möguleikar á
félagshyggjustjórn ræddir.
12.00 - Framkvæmdastjórn Al-
þýðuflokksins kemur saman til
fundar á flokksskrifstofunni.
Engir ráðherrar á fundinum.
13.00 - Þingflokkur Alþýðu-
bandalags fundar og fer yfir
áherslumál Alþýðubandalags
sem umræðugrundvöll ef tU viö-
ræðna kemur við AÍþýðuflokk.
17.45 - Stjórn Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur fundar á flokks-
skrifstofunni við Hverfisgötu.
21.00 - Kjördæmisráð Alþýöu-
flokksins á Austurlandi fundar á
Egilsstöðum.
Atburðarásin
áfimmtudag
12.00 - „Kjósendur Alþýöu-
flokks" efna til fundar á Hótel
Borg þar sem viðreisnarhug-
myndum er mótmælt og sam-
þykkt er ályktun þess efnis.
13.00 - Jón Baldvin gengur á
fund Davíðs Oddssonar á skrif-
stofu hans í Pósthússtræti, Fer
bakdyramegin á brott. Davíö fer
á þingflokksfund, bjartsýnn um
aö fá formlegt umboð til stjórnar-
myndunar.
14.00 - Þingflokkssfundur Sjálf-
stæðisflokks. Davið gerir grein
fyrir stöðu mála. Þingflokkurinn
veitir Davið umboð til að hefja
formlegar viðræður við Alþýðu-
flokk um stjórnarmyndun fái
hann stjórnarmyndunarumboð
frá forseta íslands.
14.30 - Jón Baldvin hittir Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur og
Kristínu Einarsdóttur frá
Kvennalista að máli og síöar Ólaf
Ragnar Grímsson.
17.00 - Jón Baldvin og fleiri
kratar í sextugsafmæli Harðar
Zóphaníassonar, stórkrata í
Hafnarfirði.
18.30 - Flokksstjórn Alþýðu-
flokks fundar aö Borgartúni 6.
Jón Baldvin gerir fundarmönn-
um grein íyrir stöðunni í stjórn-
málunum. Umræður á eftir.
Skiptar skoðanir voru um hvort
gerlegt væri að halda núverandi
stjórnarsamstarfi áfram eða
hvort rétt væri aö fara beint í
stjórnarmyndunarviðræður viö
Sjálfstæðisflokkinn. Fundar-
menn sammála um að standa aö
baki forystunni hvaða skref sem
hún tekur. Boðaður nýr fundur
þegar línur hafa skýrst frekar.
11.30 - Þingflokksfundur hjá Al-
þýðuflokknum strax aö afloknum
flokksstjórriárfundi.
Báða dagana áttu sér stað ýms-
ir fundir flokkanna á bak við
tjöldin og viöræður milli ein-
stakraforystumanna. -hlh/kaa