Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
11
Tippað á tólf
Bráðabani í vorleiknum
Úrslit voru ekki mjög óvænt á laug-
ardaginn en þó komu einungis tvær
raöir fram með tólf rétta. Ríkisút-
varpið fékk átta rétta í fjölmiöla-
keppnina sem nægði til að skjótast á
toppinn og vinna keppnina. í vor-
leiknum fékk ÖSS-hópurinn 12 rétta
en BOND ellefu rétta. BOND og ÖSS
eru jafnir með 107 stig og verða að
heyja bráðabana til að knýja fram
úrslit.
Þrátt fyrir að Liverpool, Manchest-
er City, Nottingham Forest,
Southampton, Oldham og West Ham
ynnu öll á heimavelli komu einungis
tvær tólfur fram. Sennilega voru það
úrslit í leikjum Aston Villa/Wimble-
don, Luton/Sunderland og Mill-
wall/Notts County, hvar heimaliðin
töpuðu, sem ollu því að tipparar
lentu í ógöngum.
Alls seldust 196.354 raðir. Potturinn
var tvöfaldur, 1.616.425. Fyrsti vinn-
ingur, 1.056.817 krónur, skiptist milli
tveggja raða með tólf rétta og fær
hvor röð 528.408 krónur. Annar vinn-
ingur, 279.804 krónur, skiptist milli
65 raða með ellefu rétta og fær hver
röð 4.304 krónur. 687 raðir skiptu
með sér 279.804 krónum fyrir tíu
rétta og fær hver röð 407 krónur.
Getraunaspá
fjölmiðlanna
CD
C = =5
E > £ .2. •=
^ 3 'E « §) ®
D ^ \- £L Q QQ CC
«o
:0
(/) <
*o
_co
-Q
D C
«0 3
'É. 2
LEIKVIKA NR.: 17
Blackburn West Ham 2 X 2 2 2 2 2 1 2 2
Bristol C Millwall 1 1 X 1 X 2 X X X 1
Charlton Newcastle X 1 1 1 1 1 1 X X X
Hull Brighton 2 2 2 2 2 2 X 1 1 2
Ipswich Oldham 2 1 2 2 2 1 X 1 1 2
Middlesbro Wolves 1 1 1 1 X 1 1 X 1 1
Notts C Plymouth 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Oxford Bristol R 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Portsmouth Watford 1 1 1 X 1 1 1 X 1 1
Sheff.Wed Barnsley 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Swindon Leicester 1 1 X 1 2 1 X X X 1
W.B.A Port Vale 1 1 2 1 2 1 1 1 1 X
Árangur eftir fimmtán vikur.: 68 77 64 77 71 76 78 76 71 63
Enska 1. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
35 13 4 0 42 -8 Arsenal 9 8 1 23 -8 76
35 13 3 2 40 -13 Liverpool 9 4 4 32 -21 73
36 10 6 2 23 -17 C.Palace 8 3 7 21 -24 63
36 11 3 4 32 -23 Manchester C 5 8 5 29 -27 59
35 10 2 5 39 -20 Leeds 7 5 6 16 -20 58
34 10 3 4 32 -16 Manchester Utd 5 8 4 23 -22 55
36 8 6 4 28 -19 Wimbledon 6 7 5 24 -23 55
35 9 4 4 36 -17 3 7 8 22 -28 47
35 8 8 2 34 -21 Tottenham 3 6 8 15 -25 47
36 8 4 6 26 -21 Q.P.R 4 5 9 17 -30 45
36 9 6 3 29 -23 Chelsea 3 3 12 23 -42 45
35 8 5 5 25 -15 Everton 3 6 8 20 -28 44
36 9 5 4 32 -21 Southampton 3 3 12 23 -41 44
36 10 5 3 30 -16 Coventry 1 5 12 11 -27 43
35 8 3 7 21-22 Sheffield Utd 4 3 10 12-30 42
35 8 3 7 26 -32 Norwich 4 3 10 12 -28 42
35 6 8 3 25 -22 Aston Villa 2 5 11 15-28 37
36 6 5 7 20 -18 Luton 3 2 13 20 -42 34
36 6 5 7 15-16 Sunderland 2 4 12 21 -41 33
35 2 8 7 17-31 Derby 2 1 15 12 -37 21
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
42 14 6 1 39-16 West Ham 9 8 4 17 -12 83
42 15 5 1 50-19 Oldham 7 8 6 26-29 79
40 9 9 1 35-20 Sheff.Wed 10 5 6 34-24 71
42 11 4 5 36 -27 Notts C 8 7 7 29-26 68
43 10 6 6 41-27 Millwall 8 7 6 22 -20 67
43 11 4 7 35 -30 Brighton 8 3 10 25 -36 64
42 10 4 7 32 -17 Middlesbro 8 5 8 30 -27 63
42 14 4 3 42 -23 Bristol C 5 2 14 20-38 63
41 12 6 3 37 -15 Barnsley 5 5 10 21 -26 62
43 9 9 3 38 -27 Oxford 4 10 8 28 -36 58
42 11 6 5 28 -19 Bristol R 4 6 10 25 -32 57
42 8 10 4 23 -20 Newcastle 6 5 9 23 -31 57
43 10 6 6 42 -34 Wolves 2 12 7 17-25 54
43 7 6 8 25 -24 Charlton 5 10 7 30 -34 52
41 7 8 5 26 -24 Ipswich 4 10 7 26 -35 51
42 9 3 9 28 -22 Port Vale 5 6 10 22 -38 51
43 9 10 3 34 -20 Plymouth 2 7 12 18 -42 50
43 3 6 6 31-25 Portsmouth 4 5 13 23 -40 50
43 7 5 9 22 -25 Blackburn 6 4 12 24-37 48
43 7 6 8 25 -26 Swindon 4 8 10 33 -40 47
42 11 4 7 40 -33 Leicester 2 3 15 15 -42 46
43 7 9 5 24 -19 W.B.A 3 6 13 25 -39 45
43 5 8 9 22 -29 Watford 5 7 9 19 -27 45
43 5 10 6 33 -31 Hull 3 5 14 20 -52 39
ÖSS símsendi tólfuna
Tvær tólfur fundust. Það voru hóp-
arnir Þ.H. og ÖSS sem áttu tólfum-
ar. Báðir hóparnir tippa yfirleitt á
PC-tölvu. Forsprakki Þ.H. hópsins
var á Sauðárkróki um helgina og gat
ekki sent raðirnar inn á disk svo
hann notaði venjulegan seðil. Setti
merkin á Ú 5-3-520 kerfi og kerflð sló
inn.
ÖSS-hópurinn notar einnig PC-
tölvu til að hjálpa til. ÖSS sendir
raðirnar inn með mótaldi og náði
tólfu. Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem tippari á íslandi nær tólfu eftir
að hafa sent raðirnar símleiðis. Þessi
mótaldþjónusta hefur staðið yfir í tvo
mánuði og sparar mörgum sporin.
BOND og OSS munu heyja bráða-
bana um sigur í vorleik getrauna, eru
báðir með 107 stig. SÆ-2 lenti í þriðja
sæti með 105 stig, SÍLENOS og
JUMBÓ eru með 104 stig, BÓ, B.P.,
PEÐIN og ÞRÓTTUR eru með 102
stig, EMMESS og WEMBLEY eru
með 101 stig og RÓKVÍS, SVENSON
og Þ.H. eru með 100 stig.
RÚV sigraði í fjölmiðlakeppninni,
fékk 78 stig. Þjóðviljinn og Morgun-
blaðið fengu 77 stig, Bylgjan fékk 76
stig, Alþýðublaðið og Dagur fengu 71
stig, DV og Stöð 2 fengu 68 stig,
Tíminn fékk 64 stig og Lukkulínan
62 stig.
Fram heldur toppsætinu í keppn-
inni um áheit, fékk áheit 17.950 raða,
K.R. fékk áheit 10.611 raða og Fylkir
fékk áheit 10.335 raða.
Manchester
United lánar
Leighton
Fimmtudaginn 4. apríl síðastliðinn
var skrúfaö fyrir kaup og sölur leik-
manna á Englandi. Það var mikill
hasar síðustu dagana fyrir lokunina,
margir leikmenn seldir, keyptir og
lánaðir.
Auk minni spámanna má nefna að
Manchester United lánaði Arsenal
markmanninn Jim Leighton,' sem
var sá þriðji í röðinni um stöðuna.
Óvíst er hvenær sovéski landsliðs-
maðurinn Andreij Konchelskis kem-
ur til Manchester United liðsins.
Konchelskis spilar á kantinum eöa
miðjunni og var keyptur frá Donetsk
á 650.000 pund, en við bætast 350.000
pund ef hann spilar fleiri en 80 leiki
fýrir Uðið.
Aðrir frægir og efnilegir leikmenn
sem voru keyptir eru: Robert
Warzycha, sem Everton keypti frá
Gomik Zabrze á 500.000 pund, Robert
Rosario, sem Coventry keypti frá
Norwich á 500.000 pund, Iain Dowie,
sem West Ham keypti frá Luton á
480.000 pund, Alan Mahood, sem
Nottingham Forest keypti frá Mor-
ton á 300.000 pund, Glyn Hodges, sem
ShefField United keypti frá Crystal
Palace á 400.000 pund, Paul Williams,
sem WBA keypti frá Stockport á
250.000 pund og John’Gittens, sem
Southampton keypti frá Swindon á
400.000 pund.
Vissulega voru fleiri leikmenn
keyptir og seldir á síðustu dögum
markaðarins, en upphæðirnar voru
lægir, allt aö frjálsri sölu.
Enn einn Allen
Enn einn knattspyrnumaðurinn
Bradley Allen, af hinni þekktu Allen
knattspyrnuíjölskyldu hefur tekið
við að skora mörk í 1. deildinni
ensku.
Fyrsti Alleninn er Les Allen, sem
spilaði lengi með Tottenham Hot-
spurs en sonur hans Clive Allen spil-
aði með QPR, Crystal Palace, Arsen-
al, Tottenham, Bordeaux og nú
Manchester City. Frændur þeirra
eru Paul Allen, sem spilar með Tott-
enham og Martin Allen, sem spilar
með West Ham.
Bradley Allen, hinn ungi, spilar
með QPR og er þegar tekinn við að
skora mörk eins og bróðir hans Clive.
1 Blackbum - West Ham 2
Liðin í 1. deildinni fa frí vegna landsleiks Tyrklands og
Englands. West Ham tryggði sér sæti í 1. deild á laugardag-
inn. Nú er einungis eftir að tryggja sér efsta sætið í deild-
inni. Blackbum er komið í fallhættu. Þrir gamlir leikmenn
frá Manchester United em í liðinu: Frank Stapleton 34 ára,
Mike Duxbury 32 ára og Kevin Moran, sem verður 35 ára
á mánudaginn. Meðalaldur liðsins er álltof hár, enda er lið-
ið kallað Manchester United Old Boys.
2 Bristol C. - MiIlwaU 1
Þrjú lið fara beint upp úr 2. deild í 1. deild. Fjögur næstu
liðin keppa um laust sæti. Millwall er á því svæði, en Bri-
stol City örlítið neðar. MillwaU hefur gefið efdr í síðustu leikj-
um, tapað tveimur heimaleikjum og gert eitt jafntefli. Bristol
City er sterkt heima, hefur unnið þar fjórtán af tuttugu og
einum heimaleik.
3 Charlton - Newcastle X
Hvorugt lið er í fallhættu, en þó er vissara að tryggja sig
gegn áföllum. Charlton hefúr ekki sýnt staðfestu í heimaleikj-
um sínum, en virðist geta unnið hvaða lið sem er ef sá er
gállinn á leikmönnum. Ossie Ardiles hefur komið með ferska
vinda til Newcastle. Ungir leikmexm hafa fengið tækifæri til
sýna hæfileika sína og bregðast vel við.
4 Hull - Brighton 2
Bla er komið fyrir fískibænum Hull, sem er neðstur í 2.
deild. Fallið blasir við. Brighton er ofarlega, á möguleika á
sæti í úrslitakeppni. Liðin þarfnast bæði stiga og því verður
hart barist í þessum leik.
5 Ipswich - Oldham 2
Ipswich hefur ekki gengið vel í vetur, þrátt fyrir að John
Lyall, sem lengi sat við stjómvölinn hjá West Ham, sé orð-
inn framkvæmdastjóri. Liðið er ekki beint í fallhættu, en
neðarlega þó og gæti dregist með í fallsoginu. Oldham er
nokkuð ömggt með að komast upp í 1. deild, en þarfhast
samt nokkurra stiga,
6 Middlesbro - Wolves 1
Middlesbro er meðal efstu liða t 2. deild, en Wolves er um
miðja deild. Úlfamir hafa hrapaö niður töfluna undanfamar
vikur. Tveir sigrar í síðustu tólf leikjum er slæmur árang-
ur. Á útivelli hefur liðið leikið afar illa. Síðasti sigur á úti-
velli er rakinn til 20. október, er liðið lagði Hull. Það lítur
þvi ekki út fyrir sveiflur í þessum leik.
7 Notts C. - Plymouth
Notts County komst upp í 2. deild í fyrravor og hyggur á
frekari landvinninga. 1. deildin er takmarkið og þangað
gæti liðið komist. Fyrsta skrefið er að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni. Liðið er sem stendur á réttum stað, en
mörg lið sækja að og hvert stig er dýrmætt.
8 Oxford - Brístoi R. 1
Oxford er rétt fyrir ofan rniðja deild og Bristol Rovers litlu
neðar. Hvomgt liðið á raunhæfa möguleika á sæti í úrslita-
keppninni, en halda þó öllum möguleikum opnum. Oxford
tapar ekki oft heima, hefur til dæmis ekki tapað nema þrem-
ur leikjum til þessa í vetur. Bristol Rovers hefur tapað tíu
leikjum á útivelli, en náð stigum í tíu leikjura.
9 Porísmouth - Watford 1
Hér er það fallbaráttan á fullu. Bæði lið þarfnast stiga, Wat-
ford þó meira. Watford er í næst neðsta sæti. Örvænting
hefur gripið um sig þar á bæ. Þegar ástandið er þannig
hjá leikmönnum geta þeir verið hættulegir. Heimavöllurinn
rseður úrslitum í þessum leik.
10 Sheff.Wed. - Bamsley 1
Það er ekki að efa að mikíð verður um dýxðir í Sheffield á
laugardaginn, þegar nýkrýndir bikarmeistarar spila sinn
fyrsta heimaleik eftir sigurinn á Manchester United. Sheffi-
eldliðið er á þröskuldí 1. deildar, á eftir að stíga síðasta
skrefið og loka á eftir sér. Sennilega munu þeir skella hurð-
inni með sign í þessum leik.
11 Swixidoxt - Leicester 1
Glenn Hoddle, hinn nýráðni framkvæmdastjóri Swindon, á
erfitt verk fyrir höndum því liðið er komið í Mhættu. Marg-
ir snjallir leikmenn hafa verið seldir frá félaginu í vetur og
mikið starf er fyrir höndum. Leicester á við svipuð vanda-
rnál að etja. Leicester er afar slakt á útivöllum, hefur tapað
fimmtán leikjum af tuttugu, einungis unnið tvo. Feimnin verð-
ur leikmörvnum Leicester að fafli.
12 W.B.A. - Porí Vale 1
Nú verður barist í Birmingham. W.B.A. hefur verið í fall-
hættu síðari hluta vetrar. Port Vale er ofar. Birminghamliðið
hefur tapað fimm leikjum á heimavelli í vetur, en hefur feng-
ið sjö stig af xtiu mögulegum úr þremur síðustu leikjunum.
Port Vale hefur staðið sig sæmilega á útivöllum.