Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Side 12
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
12‘'
Spumingin
Hver verður næsti
forsætisráðherra?
Jakob Guðnason sjóm.: Jón Baldvin
Hannibalsson.
Gunnhildur Gestsdóttir sjúkral.: Jón
Baldvin.
Elín Hjálmsdóttir nemi: Jón Baldvin.
Una Sigurðardóttir húsm.: Ég vona
Jón Baldvin.
Sigurður Gunnarsson verkam.: Dav-
íð Oddsson.
Hafsteinn Ólafsson simam.: Jón
Baldvin.
Lesendur
Þaðáaðgefa
Framsókn frí
Páll Jóhannsson skrifar:
Ég hefði talið að nú væri komið
kjörið tækifæri til að flokkarnir þrír,
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubandalag
og Alþýðuflokkur, mynduðu hér rík-
isstjórn. Það yrði góð, sterk og hugs-
anlega langlíf ríkisstjórn sem gæti
unnið gott starf fyrir þjóðina. Flestir
þjóðhollir íslendingar munu telja að
Framsókn sé löngu búin að renna
sitt skeið á enda og eigi því að gefa
henni frí og losa hana úr stólunum.
Bolabrögð Framsóknar hafa ber-
lega komið í ljós í sambandi viö þess-
ar kosningar, t.d. varðandi prófkjör,
og viðbrögð flokksformannsins er
hann taldi að hann þyrfti ekki að
segja af sér nema fram á það væri
farið af samstjórnarflokkum hans.
Það hefur raunar ekki verið margt
sem er eðlilegt við Framsóknarflokk-
inn, þegar málin eru skoðuð, og m.a.
það hvernig flokkurinn hefur haldið
á mikilvægum málum, bæði í land-
búnaði, sjávarútvegsmálum, afstöðu
til samvinnu við erlenda aðila og
margt, margt fleira.
Margt af því sem við íslendingar
búum við og okkur fmnst vera úrelt
og staðnað má rekja til stefnu Fram-
sóknarflokksins og lykilaðstöðu
hans í ríkisstjórnum hér á landi.
Hvernig væri borgarmálum í
Reykjavík komið ef þar hefði t.d.
verið samsteypustjórn með eins
miklum áhrifum Framsóknar og hún
hefur haft í ríkisstjómum? Það væri
ekki vænlegt um að litast hér í borg.
- Líklega svipað og nú í landsmálum.
Ég skora á formann Sjálfstæðis-
flokksins, og formann flokkanna
tveggja, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, að taka saman höndum
og gefa landsmönnum raunhæfa og
sterka ríkisstjóm sem hugsar um
heill landsins og íbúa þess. Ég tel að
stjórn flokkanna tveggja, Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks, verði varla
nógu sterk til að ráða við þau vanda-
mál sem nú eru í sjónmálir
Bréfritari höfðar til formanna Sjálfstæðisflokks, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks um stjórnarmyndun.
Fiskmarkaðir færast vestur um haf
Hólmsteinn skrifar:
Það kann að fara svo að fljótlega
verði afdrifarík breyting á fisksölu-
fyrirkomulagi hjá okkur. Nú er að
koma að því að Bandaríkjadollar
styrkist með hverjum degi en þýska
markið veikist. Enska pundið gæti
einnig orðið illa úti hvað líður. Þetta
allt veldur því að smám saman förum
við íslendingar að hugsa til verulegr-
ar hreyfingar með fisk til Bandaríkj-
anna. Við höfum að undanfórnu lagt
talsvert undir í Evrópu við að kynna
og selja fisk þangað og í ýmsu
ástandi, þó mestmegnis óunninn.
Þetta var aldrei góð viöskiptapólitík.
En hvað áttum við að gera? Hér er
fiskur fyrst og fremst hráefni og í
flestum tilvikum verður hann aldrei
meira en þaö. Hann er fluttur út til
vinnslu að mestu leyti. Segja má að
saltfiskurinn sé eina fiskafurðin sem
staðist hefur tímans tönn hvað varð-
ar verulega eftirspurn. Hann hefur
verið okkar besta og traustasta afurð
áratugum saman. - Þetta er ekki
hægt að segja um ferskfiskinn svo-
kallaða sem er ýmist frosinn eöa ýs-
aður. Hann lýtur lögmálum markað-
ar sem er síbreytilegur og vandmeð-
farinn.
Það sem mestu máli skiptir hins
vegar fyrir okkur er að fá verðmætan
gjaldeyri fyrir fiskinn. Ef þýska
markið á undir högg að sækja, sem
allar líkur eru á, þá er vá fyrir dyrum
annars staðar í Evrópu líka. Aðrir
gjaldmiðlar á meginlandinu eru líka
í hættu. Það má svo rekja til óvissu-
ástands sem ríkir í hinum „ný-
frjálsu“ Austur-Evrópuríkjum. Þau
munu ekki reynast það mikla mark-
aðstorg viðskipta og sumir bjuggust
við, a.m.k. ekki í bráð.
Allt bendir því til þess að við Ís-
lendingar munum sækja fast í að
senda og selja meira af fiski til
Bandaríkjanna. Þar vantar fisk og
hann er að verða í enn meiri metum
þar en nokkru sinni fyrr. Ekki síst
þorskur. Nú er illt að hafa ekki hafið
viðræður um fríverslunarsamning
við Bandaríkin samhliða hinum
gangslausu viðræðum um aðild að
evrópsku markaðssvæði.
Islandsmeistaramótiö 1 dansi:
Nánast sniðgengið af fjölmiðlum
Aldís Gunnarsdóttir skrifar:
íslandsmeistaramótið í dansi var
haldið hér á landi dagana 13. og 14
apríl sl. Þaö stóð í heila tvo daga,
byrjaði kl. 11 f.h. og stóð til kl. 23.00
báða dagana. Mótið var haldið í Ás-
garði í íþróttahúsinu í Garðabæ og
varla er hægt að halda því fram að
þaö hafi verið úr alfaraleið, þannig
að fjölmiðlar hafi ekki getað komið
því við að afla góðra og nákvæmra
frétta. En þannig fór að fjölmiðlar
nánast sniðgengu fréttir af þessu vel
heppnaða móti og þess var lítið og
stundum alls ekki getið í fréttum.
Hér var um mót að ræða sem var
einkar glæsilegt í alla staði eins og
svona mót eru reyndar oftast. Margt
var um áhorfendur og því tel ég að
hér hafi verið um alveg kjörið tæki-
færi til að sýna frá í sjónvarpi og
jafnvel til þess að sýna sem viðbótar-
eða aukafrétt í þeim fjölmiðli.
Á mótinu var keppt í ýmsum ald-
ursflokkum, t.d. 7 ára og yngri, síðan
8-9 ára, 9-10 ára og allt til 14-15 ára.
Þá komu 16-24 ára aldurshópur, og
25-34 ára, 35-49 ára og loks 50-66 ára
aldurshópur. Þetta var mjög hörð
keppni eins og gefur að skilja þar sem
íslandsmeistararnir I suður-amerískum (Latin-American) dönsum, þau Hild-
ur Ýr Arnars og Þröstur Jóhannsson. - Þröstur var einnig íslandsmeistari
í „Ballroom“-dansi.
dansarar höfðu góða þjálfun eftir að
hafa æft sleitulaust í marga mánuði,
sumir árum saman. - Ég vil fullyrða
að hér er um einhverja bestu
skemmtun að ræða sem við höfum
upp á að bjóða hér á landi og því er
skaði að tækifærið var ekki vel nýtt
til að kynna þessa sígildu íþrótt fyrir
almenningi.
Eitthvaðmeira
en170þúsundin
Halldóra lmngdi:
Nú eru okkur sýndir í sjón-
varpsfréttum nýir þingmenn með
sælubros á vör, kyssandi og
faömandi hver annan. Það er eins
og þeir haíi himin höndum tekið
í bókstaflegri merkingu. Þeir sem
féllu í kosningunum eru hins veg-
ar allir undrandi á útkomunni og
skilja ekki hvers vegna þeir féllu.
En hvað um það. Mér finnst
þessi gleöi yfir að ná þingsæti
vera óeðhleg ef miðað er við laun-
in ein, kr. 170 þúsund á mánuðí.
Ég tnii því ekki aö þetta fólk sé
aö sækjast svona ofboðslega eftir
þessum launum einum. Það hlýt-
ur að vera eitthvað annað og
meira að sækjast eftir á Alþingi.
Það skyldi þó ekki vera að þing-
mannsstarfið gefi af sér mun
meira en upp er geíið? Því má
ekki minnast á launuð nefnda-
störf, fríðindin, ferðalögin ogdag-
peningana? Gáum vel að þessu
öllu.
Vlljiþjóðar
vinstri stjórn
Bárður R. Jónsson skrifar:
Sjálfstæöisflokkurinn bauð
fram gegn glundroða vmstri-
stjórnarstefnu I landinu. Þjóðin
lúýtur að hafa tekið tillit til þeirra
skilaboða flokksins. Hún kvað
upp úrskurð sinn í nýafstöðnum
kosningum.
Þá kom í ljós að Sjálfstæðis-
flokkurínn hlaut 38,6% atkvæða
i landmu, „Vinstri glundroðinn"
fékk 61,3%. Vilji þjóðarinnar er
skýr, þjóðin vill áfram vinstri
stjórn í landinu.
Endasleppthjá
Félagsmaður skrifar:
Mér finnst það lítilmótleg og
niðurlægjandi endalok hjá einu
elsta kaupfélagi landsins að veröa
gjaldþrota. Það sýnir ekki mikla
reisn eöa stjórnvisku hjá þeim
mönnum sem hafa farið með völd
i KRON að draga allt á langinn
þar tíl þurftj aö óska eftir gjald-
þrotaskiptum.
Fyrrum var KRON öflug versl-
unareining með marga félags-
menn. Síöan tók að halla undan
fæti. Allir vissu hvert stefndi. En
aö bíða eftir því að þurfa að láta
félagið enda sem gjaldþrota ves-
aling er meira en margir vilja
kyngja. Ég gagnrýni stjórnar-
menn KRON harðlega undanfar-
in ár og get ekki séð að þeir eigi
neins staðar innlúaup þar sem
verslun og viðskipti eru stunduö.
Konuríráðherra-
stóla fyrir Sjálf-
stæðisflokk
Guðmundur Kristinsson skrifar:
Það ætti reyndar að vera óþarfl
að vera að skrifa um það sem mér
hggur á hjarta, en læt samt flakka,
þótt ég þykist vita að forusta Sjáli-
stæðisflokksins muni ekkí snið-
ganga konu eða jafnvel konur þeg-
ar skipað verður í ráðherrastóla
ef til kemur að sá flokkur taki að
sér stjórnarmyndun.
Nefna má Sólveigu Pétursdótt-
ur og Láru Margréti Ragnars-
dóttur. Þær eru báðar vel hæfar
til ráðherraembættis. Lára
Margrét gæh gegnt embætti heil-
brigðisráðherra og Sólveig t.d.
ráðherraembætti dóms- og
kirkjumála. - Þriðja þingkona
þeirra sjálfstæðismanna, Salome
Þorkelsdóttir, ætti svo að fá emb-
ætti forseta Sameinaðs þings. Það
væri aigjört hneyksh ef ekki
a.m.k. annaðhvort Lára Margrét
eöa Sólveig skipuöu ráðherrasæti
hjá Sjálfstæðisflokknum. Sjálf-
stæðismenn ættu þó að geta staö-
ið jafnfætis krötum með sinn
ágæta kvenráðherra sem þeir
hafa haft um árabil.