Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Side 17
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
25
lavangs-
flokki og
sigraði í
nas Har-
i og eldri
■mynd GS
Rúmeni í mark
KA-manna?
- Viggó og Baumruk áfram í herbúðum Haukanna
Svo kann að fara aö rúmenski
landsliðsmarkvörðurinn í hand-
knattleik, Vasely Cocuoz sem er 24
ára gamall og leikur með Dynamo
Búkarest, leiki með KA í 1. deild-
inni næsta vetur
„Það er auðvitað númer eitt að
halda því sem við höfum og reyna
að byggja ofan á það,“ sagði Alfreð
Gíslason er DV ræddi við hann um
komandi keppnistímabil. Alfreð
mun sem kunnugt er þjálfa lið KA
næsta vetur og leika með því en
hann er nú að ljúka síðasta tíma-
bili sínu sem atvinnumaður með
Bidasoa á Spáni.
Alfreð sagði að Cocuoz hefði
áhuga á að koma til íslands og leika
meö KA, spurningin væri hvort
hægt væri að koma því heim og
saman. „Þetta er geysilega sterkur
leikmaður sem væri mikill fengur
fyrir okkur aö fá, bæði til þess að
leika við hlið Axels og ekki síður
til sjá um markmannsþjálfun og
stuðla að því að viö eignumst fleiri
góða markmenn."
Gunnar Gíslason, bróðir Alfreðs,
er væntanlegur heim í haust og
spilar með KA næsta vetur, en
hann leikur nú knattspymu með
Hácken í Svíþjóð. Gunnar lék með
landsliðinu í handknattleik fyrir
nokkrum árum en einbeitti sér síð-
an að knattspyrnunni.
Viggó og Baumruk
áfram hjá Haukum
Viggó Sigurðsson hefur verið end-
urráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Hauka og er húinn að skrifa undir
eins árs samning. „Við erum
ánægðir með störf Viggós og fögn-
um því að hann verði áfram þjálf-
ari,“ sagði Þorgeir Haraldsson, for-
maður handknattleiksdeildar
Hauka, í samtali við DV.
Tékkneski landsliðsmaöurinn
Petr Baumruk, sem lék með Hauk-
um í vetur, verður einnig áfram
hjá liðinu en hann gerði á síðasta
hausti tveggja ára samning við
Hauka. Þegar keppnistímabilinu
lýkur fer Baumruk í þriggja mán-
aða frí og æfir með tékkneska
landsliðinu í tvo mánuði.
-gk/JKS/VS
i skíðaíþróttum hófust í Hlíðarfjalli við Akureyri í gærmorgun en setningarathöfnin fór
(kar á aldrinum 6-12 ára en alls tengjast um eitt þúsund manns leikunum á einn og
i leikana í máli og myndum í DV á mánudaginn en myndin hér að ofan var tekin af
DV-mynd gk
Metfé f yrir Ólaf
Ólafur Þórðarson frá Akranesi er
orðinn annar tveggja dýrustu knatt-
spymumanna í norskri knattspymu.
Norska hlaðið Verdens Gang skýrði frá
því í gær að dómstóll norska knatt-
spymusambandsins hefði úrskurðað
að Lyn bæri að greiða Brann 2,7 millj-
ónir íslenskra króna fyrir Ólaf. Áður
hafði verið greidd sama upphæð þegar
Rosenborg keypti Rune Tangen frá
Moss.
Blaðið sagði ennfremur að Brann
hefði fariö framá mun hærri upphæð
fyrir Ólaf, eða um 4,5 milljónir ís-
lenskra króna. Félögin gátu ekki komið
sér saman um kaupverðið og því kom
til kasta dómstólsins.
Með þessu hefur Lyn nú varið um 7
milljónum íslenskra króna til kaupa á
nýjum leikmönnum fyrir tímabilið en
félagið kom uppúr 2. deild. Teitur Þórð-
arson, bróðir Ölafs, var sem kunnugt
er ráðinn þjálfari Lyn í vetur, eftir að
hafa stýrt Brann undanfarin ár, og eitt
hans fyrsta verk var að sjá til þess að
Ólafur yrði fenginn til félagsins. -VS
Evrópukeppnin
heist 1. maí
- kemst ísland 1 aöalkeppnina?
Á miðvikudaginn kemur hefst
keppni í öðrum riðli forkeppni 28.
Evrópumótsins í körfuknattleik.
Þetta er A-riðill C-keppninnar og fara
allir leikirnir fram í Laugardalshöll-
inni. í A-riðlinum eru Islendingar,
Finnar, Norðmenn, Danir og Portúg-
alar. \
Einu sinni áður hefur forkeppni
farið fram hér á landi en það var
árið 1986 og náði ísland þá þeim
merka áfanga að vinna sér sæti í
B-keppninni. Til mikils er að vinna
að þessu sinni en tvær efstu þjóðim-
ar komast í aðalkeppnina og þar
keppa 20 þjóðir. Þá myndi íslenskum
körfuknattleiksáhugamönnum gef-
ast tækifæri á að sjá bestu þjóðirnar
í Evrópu keppa hér á landi. Leikjum
héðan yrði sjónvarpað beint til Evr-
ópu sem um leið færði KKÍ peninga
í kassann. Það er því mikið kapps-
mál fyrir körfuknattleikshreyfmg-
una að ísland verði meðal tveggja
efstu þjóðanna en þegar sjónvarps-
tekjur eru annars vegar eru miklir
peningar í spiliou.
Fyrsti leikur keppninnar er á milli
íslendinga og Dana 1. mai klukkan
16. ísland mætir Portúgölum 2. maí
klukkan 20 en á fóstudeginum á liðið
frí. Laugardaginn 4. maí mætir ís-
land liði Noregs klukkan 15 og
sunnudaginn 5. maí verður síðasti
leikur liðsins gegn Finnum klukkan
15. Ef allt gengur að óskum gæti það
orðið úrslitaleikur keppninnar.
íslenska liðið hefur undirbúið sig
ágætlega fyrir keppnina, leikið sjö
vináttulandsleiki, gegn Skotum og
Austurríkismönnum, og unnið þá
alla. Um helgina dvaldist liðið í æf-
ingabúðum í Borgarnesi.
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari
sagðist vera bjartsýnn á gott gengi
íslenska liðsins í keppninni:
„Okkar leikur mun byggjast upp á
sterkum varnarleik en við höfum
æft hann stíft fyrir mótið. Viö eigum
nóg af skyttum en þaö sem kemur
einna helst til að há okkur er hæðin.
Það er bara vonandi að Pétur Guð-
mundsson geti leikið með í keppn-
inni en hann myndi óneitanlega
styrkja liðið mikið,“ sagði Torfi. Ekki
verður ljóst fyrr en rétt fyrir keppn-
ina hvort Pétur getur leikið með en
hann kom til landsins fyrir helgina
og æfði með liðinu í Borgarnesi.
-JKS
• Valsmenn sigruðu i meistarakeppni KSÍ i knattspyrnu í fyrrakvöld þegar
þeir lögðu Framara, 2-1, á gervigrasvellinum i Laugardal. Öll mörkin komu
i framlengingu, Jón Erling Ragnarsson skoraði fyrst fyrir Fram en síðan
Steinar Adolfsson (víti) og Jón Grétar Jónsson fyrir Val.
DV-mynd Brynjar Gauti
Íþróttír
Sport-
stúfar
ísland tapaði þremur
fyrstu leikjum sínum i
riðlakeppni heims-
meistaramótsins í
borðtennis sem nú stendur yfir í
Chiba í Japan. íslenska liðið beið
lægri hlut, 3-0, gegn Pakistan,
Danmörku og Skotlandi í gær og
fyrradag en átti í morgun að
mæta Kúbu og Egyptalandi.
Ólafur og Grétar
til Bretlands
Tvær breytingar voru
gerðar á landshðs-
hópnum í knattspyrnu
sem fór til Bretlands í
gær. Kristján Jónsson úr Fram
og Eyjólfur Sverrisson frá Stutt-
gart heltust úr lestinni vegna
meiðsla og í þeirra stað fóru utan
þeir Ólafur Kristjánsson úr FH
og Grétar Einarsson úr Víði. Þeir
höíðu áður verið valdrr í hópinn
sem fer tíl Möltu í næstu viku.
ísland mætir B-liði Englands í
Watford á morgun og Wales í
Cardiff á miðvikudag en spilar
síðan viö Möltu í Valletta 7. maí.
Úrslitaleikurinn
í litla bikarnum
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunu
Órslitaleikurinn í litlu bikar-
keppninni i knattspymu fer fram
á morgun, laugardag, í Kefiavík.
Þar mætast heimamenn og Akur-
nesingar klukkan 14 en þessi liö,
sem bæði leika í 2. deild í sumar,
unnu riðlana í keppninni.
-V
Þór vann Leiftur
Gylfi KristjánsscHi, DV, Akureyri:
Þór sigraði Leiftur, 4-1,1 fyrsta
leik Tactic-mótsins í knattspymu
sem fram fór á Akureyri í gær.
Ásmundur Arnarsson gerði tvö
marka Þórs og Árni Þór Árnason
og Axel Vatnsdal eitt hvor. KA
og Tindastóll taka einnig þátt í
mótinu sem lýkur á sunnudag-
inn.
Stórsigur Forest
gegn Norwich
Nottingham Forest malaði Nor-
wich, 5-0, í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar í fyrrakvöld. Glover,
Clough, Pearce, Crosby og Woan
skoruöu fyrir Forest. Tottenham
og Everton skildu jöfn, 3-3. Allen,
Mabbutt og Nayim skoruðu fyrir
Tottenham en Nevin og Cottee
fyrir Everton og eitt marka liðs-
ins var sjálfsmark. í 2. deild gerðu
Sheffield Wed. og Leicester jafn-
tefii, 0-0, West Ham og Newcastle
skildu jöfn, l-l, og Ipswich vann
Barnsley, 2-0.
Batty fyrir Gascoigne
Paul Gascoigne frá Tottenham
getur ekki leikið með enska
landsliðinu í knattspymu þegar
það mætir Tyrkjum í Evrópu-
keppninni á miðvikudag. Hann :,
þarf að hvíla sig í nokkra daga
þar sem hann er ekki búinn að
jaffia sig eftir uppskurð á nára.
David Batty frá Leeds hefur verið
valinn í hans stað og þaö vakti
athygli aö Graham Taylor, lands-
liðseinvaldur, skyldi taka hann
fram yfir Bryan Robson og Chris
Waddle.
Norðurlandamót
íStykkishólmi
Ingibjörg Hínriksd., DV, Stylddshóliw:
Norðurlandamót ungl-'
inga 17-19 ára í körfu-
knattleik hófst í Stykk-
ishólmi í morgun og
því lýkur þar á sunnudagskvöld-
ið. Þar keppa ísland, Svíþjóð,
Noregur, Danmörk og Finnland,
bæði í pilta- og stúlknaflokkL
Aðgangur á mótið er ókeypis.