Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Síða 25
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
33
LífsstíU
PAPRIKA
,+16%
s
c
'O
OQ
I
746 339
/ . - ffn ii
Jl\ œ]
GURKUR
-12%
3
_ 'O
I í
402 271
SVEPPIR
+5%
o
c
'O
li
549 487
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Paprika hækkar
stöðugt í verði
- yfir tvöföldun á einum mánuði
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum; Bónusi í Skútuvogi,
Fjarðarkaupum í Hafnarflrði, Hag-
kaupi, Skeifunni, Kjötstöðinni,
Glæsibæ og Miklagarði í Mjódd.
Bónusbúðirnar selja grænmetið í
stykkjatali en hinar samanburðar-
verslanirnar selja eftir vigt. Til að fá
samanburð þar á milli er grænmeti
í Bónusi vigtað og umreiknað eftir
meðalþyngd yfir i kílóverð.
Meðalverð á tómötum er nánast
það sama og í síðustu viku en það
er nú 333 krónur. Tómatar voru á
lægsta verði í Bónusi á 182 en þar á
eftir kom verðið í Fjarðarkaupum
294, Hagkaupi 369, Kjötstöðinni 399
og Miklagarði 423. Kjötstöðin og Hag-
kaup seldu einnig íslenska tómata á
599 krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði á erlendum tómötum er 132 %.
Meðalverð á gúrkum var eina með-
alverðið sem lækkaði eitthvað að
ráði milli vikna. Lækkunin nam 12
af hundraði og er meðalverðið nú 313
krónur. Gúrkur voru ódýrastar í
Bónusi á 271 krónu. Næst kom Hag-
kaup 295, Fjarðarkaup og Kjötstöðin
298 og Mikligarður 402. Munur á
hæsta og lægsta verði var 48 af
hundraði.
Fimm prósent hækkun varð á með-
alverði á sveppum frá síðustu könn-
un og er það nú 516 krónur. Lægsta
verið á sveppum var í Bónusi 487, en
á eftir kom verðið í Kjötstöðinni 498,
Fjarðarkaupi 499, Miklagarði 545 og
Hagkaupi 549 krónur. Munur á
hæsta og lægsta veröi á sveppum var
óvenjulítill eða 13%.
Hækkun um 13% varð á meðal-
verði á grænum vínberjum milli
vikna og er meðalverðið nú 307 krón-
ur kílóið. Græn vínber fengust að
þessu sinni ekki í Bónusi en lægst
var verðið í Fiarðarkaupi, 198 krón-
ur. Næstlægst var verðið í Hag-
kaupi, 299, en síðan kom 356 í Mikla-
garði og 376 í Kjötstöðinni. Múnur á
hæsta og lægsta verði á grænum vín-
berjum var 90%.
Sextán prósent hækkun varð á
meðalverði á grænni papriku og er
það nú 544 krónur. Græn paprika var
ódýrust í Bónusi þar sem kílóverðið
var 339 krónur. Síðan kom Kjötstöðin
með 480, Hagkaup 559, Fjarðarkaup
594 og Mikligarður 746 krónur. Fjarð-
arkaup var einnig meö íslenska
papriku á 660 kg verð. Munur á
hæsta og lægsta verði á grænni pa-
priku er 120%.
Hækkun varð á meðalverði á kart-
öflum um 3 af hundraði og meðal-
verðið er nú 72 krónur á hvert kg.
Kartöflur voru á lægsta verðinu í
Bónusi á 55 en á eftir fylgdu Hagkaup
64, Kjötstöðin 74,50, Fjaröarkaup
75,50 og Mikligarður 89 krónur. Mun-
ur á hæsta og lægsta verði er 62 af
hundraði.
Meðalverð á blómkáli lækkaði að
þessu sinni um 3% og er það nú 201
króna. Blómkál fékkst ekki í Bónusi
en lægsta verðið er í Fjarðarkaupi
135. Næst kemur verðið í Miklagarði
206, Hagkaupi 225 og Kjötstöðinni 237
kr. kg. Munur á hæsta og lægsta
verði er 76%.
Eins prósent hækkun varð á með-
alverði á hvítkáli frá í síðustu könn-
un og er það nú 95 krónur á hvert
kíló að jafnaði. Hvítkál var ódýrast
í Bónusi á 67, næst kom Fjarðarkaup
og Hagkaup 79, Mikligarður 119 og
Kjötstöðin 132 krónur. Munur á
hæsta og lægsta verði á hvítkáli er
97%.
Meðalverð á gulrótum lækkaöi um
2% milli vikna og það er nú 149 krón-
ur. Gulrætur voru á hagstæðasta
verðinu í Bónusi á 98 krónur en á
eftir fylgdu Fjarðarkaup 136, Hag-
kaup 139, Mikligarður 165 og Kjöt-
stöðin 208 krónur. Munur á hæsta
og lægsta verði á gulrótum er 112%.
ÍS
Meðalverð á grænni papriku hefur meira en tvöfaldast á rúmum mánuði.
Sértilboð og afsláttur:
Unghænur og örbylgjupopp
í Bónusi gat að líta umhverfisvænt
Bluevit compact þvottaefni, 1,3 kg á
414 krónur á tilboðsverði. Einnig
CampbeUs sveppasúpu í dós, 295 g á
72, íscola, 1 'A 1 á 86 krónur stykkið
og Papco eldhúsrúllur, 4 stk. í pakka,
á 158 krónur.
Fjarðarkaup var með niðursoðið
rauðkál, 570 g á 99 krónur og 1070 g
á 174 krónur á tilboðsverði. Club salt-
kex var á sértilboði, 100 g á 66 krón-
ur, Bold þvottaefni, 4 kg á 779 sömu-
leiðis og Olof bruður, 200 g á 117
krónur.
í Hagkaupi, Skeifunni, var hálfur
lambaskrokkur á sértilboðsverðinu
486 krónur kílóið, Home McVities
súkkulaðikex, 400 g á 99, Krakus
jarðarber, 850 g á 89 krónur, og Lotus
dömubindi, Scipella og Futura á 259
krónur.
í Kjötstöðinni Glæsibæ gat að líta
á tilboðsverði Brink kremkex, 250 g
á 85, Arlex salernispappír, 12 rúllur
á 239 krónur, og Blutex þvottaefni, 2
x 1,2 kg, á 299 krónur. Á tilboðsvegg
þar voru Gité hreinsi- og þvottaefni
á kynningarverði.
Mikligarður, Kaupstaður í Mjódd
er með tilboðsverð á unghænum á
198 krónur kílóiö, framhryggur þar
var á 20% afsláttarverði á 689 krónur
kgverð, Hy Top örbylgjupopp á 99 og
Rynkeby appelsínusafl á 74 og epla-
safi á 69 krónur lítrinn.
ÍS
Paprika
6001 Verð í krónum
544
Sepf. Okt Nóv. Des. Jan. Feb. Mars April
Tómatar
Verð f krónum
333
Sept. Okt. Nóv. Des Jan. Feb. Mars April
<Q) Sveppir
Verð í krónum
516
Sept Okt Nov Des Jan. Feb Mars April