Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Síða 26
34 it'ti ,r:ri/ .t« FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. Afmæli Davíð Ólafsson Davíð Ólafsson, fyrrv. seðlabanka- stjóri, Hörgshlíö 26, Reykjavík, varð sjötíu og fimm ára í gær. Starfsferill Davíð fæddist í Bakkagerði í Borg- arfirði eystra og ólst þar upp til fjög- urra ára aldurs, bjó á Noröfirði til níu ára aldurs en flutti þá með for- eldrum sínum í Viðey þar sem hann bjó þar til hann fluttist til Reykja- víkur, 1933. Hann lauk stúdents- prófi frá MR1935 og Bac.sc.oec.- prófi frá háskólanum í Kiel í Þýska- landi 1939. Davíð var forseti Fiskifé- lags íslands og fiskimálastjóri 1940-67 og bankastjóri Seðlabanka íslands 1967-86. Hann sat í stjóm Fiskimálasjóðs 1954-68 og var formaður 1967-68, í stjórn Bjargráðasjóðs íslands 1940-67, í bankaráöi Framkvæmda- banka íslands 1961-66, í stjóm Framkvæmdasjóðs íslands 1966-67, í stjóm Iðnþróunarsjóðs EFTA fyrir Portúgal frá 1977, í stjórn Sam- ábyrgðar íslands á fiskiskipum 1962-67, í stjóm Hafrannsóknastofn- unar 1962-67 og í stjóm Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins 1962-70, í Rannsóknaráði ríkisins 1962-67, for- maður stjómar Hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins og síðar Aflatrygg- ingasjóðs sjávarútvegsins 1949-67, formaður stjórnar Fiskveiðisjóðs íslands 1967-86, formaður stjómar Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins 1969-86, formaður stjórnar félagsins Germaniu 1972-77, forseti Ferðafé- lags íslands 1977-85, í vísindaráði Krabbameinsfélags íslands 1985-90, formaður stjórnar sjóðsins Þjóð- hátíðargjöf Norðmanna 1976-82, í stjóm Almenna bókafélagsins frá 1980 og í stjórn Heildverslunarinnar Heklu frá 1990. Davíö var landskjör- hm alþingismaður 1963-67. Hann var ritstjóri tímaritsins Ægis 1955-67 og hefur skrifað fjölda greina og álitsgerða um fiskveiði- og sjávarútvegsmál í innlend og er- lend dagblöð og tímarit. Hann er heiðursfélagi Fiskifélags íslands og Germaniu og í heiðursráði Krabba- meinsfélags íslands. Hann hefur verið sæmdur stórriddarakrossi fálkaorðunnar, auk KDD, KNO, StkÞV, SHmRK. Fjölskylda Davíð kvæntist 31.5.1941 Ágústu Þuríði Gísladóttur, f. 4.4.1918, hús- móður, en hún er dóttir Gísla Jóns- sonar, prests á Mosfelli í Grímsnesi, og Sigrúnar Kjartansdóttur hús- móður. Börn Davíðs og Ágústu Þuríðar eru Ólafur, f. 4.8.1942, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iön- rekenda, og Sigrún, f. 30.10.1955, cand.mag. og rithöfundur. Ólafur var fyrst kvæntur Kládíu Róberts- dóttur leiðsögumanni en þau skildu og er seinni kona Ólafs Helga Ein- arsdóttir viðskiptafræðingur en börn Ólafs em Mikael Róbert, f. 1965, Davíð, f. 1981, og Kjartan, f. 1983. Sigrún var gift Helga Guö- mundssyni, dósent við HÍ, en börn þeirra em Davíð, f. 1977, Ingvar, f. 1980, ogAri.f. 1986. Systkini Davíðs: Margrét, f. 4.11. 1910, d. 1983, skrifstofustjóri; Gísli, f. 3.1.1912, ritsijóri; Þorbjörg, f. 17.12.1917, húsmóðir; Þórir, f. 23.7. 1920, d. 1940; Hulda, f. 24.4.1922, rit- ari; Sigrún, f. 17.8.1927, húsmóðir. Foreldrar Davíðs vora Björn Ólaf- ur Gíslason, f. 1888, d. 1932, fram- kvæmdastjóri útgerðarfélagsins Kára í Viðey, og Jakobína Davíðs- dóttir, f. 1882, d. 1966, húsmóðir. Ætt Ólafur var bróðir Magnúsar skrif- stofustjóra, fóður Gísla píanóleik- ara. Ólafur var sonur Gísla, b. á Búöum í Fáskrúðsfirði, Högnason- ar, jámsmiðs á Skriðu í Breiðdal, bróður Kristínar, langömmu Sig- urðar Þórarinssonar jarðfræðings. Högni var sonur Gunnlaugs, prests á Hallormsstað, Þórðarsonar, prests í Kirkjubæ í Tungu, Högnasonar „prestafoður“ á Breiðabólstað Sig- urðssonar. Móðir Ólafs var Þor- björg, systir Eiríks, bókavarðar í Cambridge, og dóttir Magnúsar, prests í Heydölum, Bergssonar. Jakobína var dóttir Davíðs, fram- kvæmdastjóra Pöntunarfélags Ey- firðinga, Ketilssonar, bróður Krist- ins, íoður þeirra Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS, Siguröar, ráðherra og forstjóra SÍS, Aðalsteins, fram- kvæmdastjóra SÍS, og Jakobs, guð- fræðings og fræðslumálastjóra. Davíð var einnig bróðir Sigurðar, föður Aðalbjargar, móður Jónasar Haralz, fyrrv. bankastjóra Lands- bankans. Móðir Jakobínu var Margrét Hallgrímsdóttir Thorlaci- us, b. á Hálsi í Eyjafirði, bróður Þorsteins, afa Vilhjálms Þór, for- stjóra SÍS. Annar bróðir Hallgríms var Jón Thorlacius, afi Krisfjáns Thorlacius, fyrrv. formanns BSRB, Birgis Thorlacius, fyrrv. ráðuneyt- Davið Ólafsson. isstjóra, og Sigurðar Thorlacius skólastjóra, föður Ömólfs, rektors MH. Þriðji bróðir Hallgríms var Sigfús, afi Aldísar Einarsdóttur, elsta núlifandi íslendingsins. Hall- grímur var sonur Einars Thorlaci- us, prests að Saurbæ í Eyjafirði, og Elínar Hallgrímsdóttur Thorlacius, sýslumanns í Suður-Múlaþingi, Jónssonar, sýslumanns í Berufirði, bróður Þórðar, biskups í Skálholti. Jón var sonur Þorláks, biskups á Hólum, ættfóður Thorlaciusættar- innar, Skúlasonar. Móðir Þorláks var Steinunn Guðbrandsdóttir, biskups á Hólum, Þorlákssonar. Móðir Einars prests í Saurbæ var Ólöf, systir Þorsteins, afa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Móðir Hall- gríms var Margrét, systir Álfheiðar, móður Helga Hálfdánarsonar lekt- ors, föður Jóns biskups. Rögnvaldur Þorláksson Rögnvaldur Sveinn Þorláksson, verkfræðingur og fyrrv. bygginga- stjóri Landsvirkjunar, til heimilis að Hörpulundi 7, Garðabæ, er sjötíu ogfimm áraídag. Starfsferili Rögnvaldur fæddist í Vinaminni í Grjótaþorpinu en ólst upp lengst af við Laugaveginn. Hann lauk stúd- entsprófum frá MR1936, sveinsprófi í trésmíöi 1937 og prófi í bygginga- verkfræði frá NTH í Þrándheimi 1943. Rögnvaldur var verkfræðingur við vega- og járnbrautalagnir í Nor- egi 1943-44, var aöstoðarverkfræö- ingur við NTH1944-45, verkfræð- ingur hjá Sigurði S. Thoroddsen 1945-47, hjá raforkumálastjóra 1947-54, var staðarverkfræðingur við Laxárvirkjun II1951-53, stofnaði ásamt öðrum fyrirtækið Verklegar framkvæmdir hf. 1954 og var annar framkvæmdastjóri þess til 1962. Hann var framkvæmdastjóri bygg- ingaverktaka við Grímsárvirkjun 1955-58, viö riðbreytistöð á Kefla- víkurflugvelli 1959 og gerði kostnað- aráætlun um byggingu Kísiliðjunn- ar 1961. Rögnvaldur var ráðgefandi verk- fræðingur frá 1962, vann að verk- fræðilegum rannsóknum á virkjun- um í Jökulsá á Fjöllum og frum- hönnun virkjana í Dettifossi og Vígabergsfossi og Kljáfossi í Hvítá í Borgarfirði. Þá var hann samstarfs- aðili Harza Engineering Co. Inter- national við rannsóknir á virkjun Þjórsár við Búrfell og við byggingu orkuversins þar. Rögnvaldur var settur aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar seinni hluta ársins 1972 og var byggingastjóri Lands- virkjunar 1973-84 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Rögnvaldur sat í stjórn Verkfræð- ingafélags íslands 1951-53, í stjóm Byggingaverkfræðingafélags ís- lands 1962-63 og í Lífeyrissjóði Verk- fræðingafélagsins 1954-73. Fjölskylda Rögnvaldurkvæntist 30.10.1943 Thora Margareth, f. 9.7.1915, píanó- kennara frá Þrándheimi, dóttur Andreas Holbæk Eriksen verslun- armanns, ogkonu hans, Maddy Krogstad húsmóður. Böm Rögnvalds og Thoru Margar- eth era Sveinn Birgir, f. 18.1.1946, BA í ensku og kennari, nú fulltrúi hjá Landsbankanum, og Guðný Kristín, f. 12.8.1949, BA og kennari, gift Hallgrími Snorrasyni hagfræð- ingi og eiga þau fjögur börn. Uppeldissystur Rögnvalds eru Sig- ríður Júlíusdóttir, húsmóðir í Suð- ur-Afríku, gift Thomas Reel Robson, og Elín Guðbjörnsdóttir húsmóðir, gift Birni Halldórssyni rakarameist- ara. Foreldrar Rögnvalds voru Þorlák- ur Kristinn Ófeigsson, f. 22.4.1887, d. 5.1.1955, byggingameistari í Reykjavík, og kona hans, Anna Guðný Sveinsdóttir, f. 2.11.1887, d. 19.10.1957, húsmóðir. Ætt Þorlákur var sonur Ófeigs, b. á Kaldárhöföa, Erlendssonar, b. á Brjánsstöðum í Grímsnesi, Erlends- sonar, b. á Brjánsstöðum, Sigurðs- sonar, b. á Syðra-Apavatni í Gríms- nesi, Einarssonar á Brjánsstöðum. Móðir Ófeigs var Gróa Ófeigsdóttir. Móðir Þorláks var Jónea Kristín, systir Þorláks, langafa Steingrims Hermannssonar forsætisráðherra og Bergsteins Gizurarsonar bruna- málastjóra. Annar bróðir Jóneu Rögnvaldur Þorláksson. Kristínar var Sæmundur, faðir Bjarna fiskifræðings og langafi Guð- laugs Þorvaldssonar ríkissáttasemj- ara. Jónea Kristín var dóttir Jóns, útvegsb. og dbrm. á Húsatóftum og ættíoður Húsatóftaættarinnar, Sæ- mundssonar. Systir Önnu Guðnýjar var Karó- lína, móöir Sveins Ásgeirssonar hagfræðings. Anna Guðný var dótt- ir Sveins, verkamanns í Reykjavik, Ólafssonar, b. í Stokkseyrarseli, Jónssonar. Móðir Sveins var Guðný Þórðardóttir. Móðir Önnu Guðnýjar var Sigríður Rögnvaldsdóttir, b. Eystri-Rein á Akranesi, Jónssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Rögnvaldur verður að heiman á afmælisdaginn. Andlát Gunnar A. Pálsson Gunnar Axel Pálsson hæstaréttar- lögmaöur, Ásvallagötu 17, Reykja- vík, lést þann 15.4. sl. Jarðarfór hans fór fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík í morgun. Starfsferill Gunnar fæddist á Eskifirði. Hann lauk stúdentsprófum frá MR1930 og embættisprófi í lögfræði frá Há- skólaíslands 1935. Gunnar var fulltrúi lögmanna í Reykjavík 1935-45, var skipaður bæjaríógeti á Neskaupstað 1945 og gegndi því starfi í tvö ár en sinnti síöan um skeiö rannsóknum ýmissa dómsmála á vegum dóms- og kirkju- málaráðuneytisins. Hann rak síöan um árabil eigin málflutningsskrif- stofu í Reykjavík og stundaði lög- fræði- og viðskiptastörf. Sonur Gimnars og Guðrúnar Jónsdóttur er Kjartan Gunnarsson, f. 4.10.1951, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, kvæntur Sig- riði Snævarr sendiherra. Bræður Gunnars: Ólafur, dó ung- ur; Bóas, jámsmiður í Reykjavík, látinn; Friðrik, lögregluþjónn í Reykjavík, látinn, og Einar, skrif- stofumaður í Reykjavík, faöir Harð- ar, framkvæmdastjóra og útgáfu- stjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. Foreldrar Gunnars vora Páll Bó- asson, f. 14.5.1881, d. 9.12.1967, verk- stjóri á Eskifirði og síðar starfsmað- ur í fjármálaráðuneytinu, og kona hans, Vilborg Einarsdóttir, f. 8.4. 1886, d. 16.7.1967, húsmóðir. Ætt Páll var sonur Bóasar, b. á Sléttu í Reyðarfirði, Pálssonar, b. á Sléttu, bróður Guðrúnar, móður Bóelar, langömmu Geirs Hallgrímssonar forsætisráöherra og Karls Kvaran listmálara. Guðrún var einnig móð- ir Kristrúnar, ömmu Páls Stefáns- sonar, auglýsingastjóra DV. Páll var sonur Jóns, silfursmiðs Pálssonar, hálíbróöur, samfeðra, Sveins Páls- sonar, náttúrufræðings í Vík í Mýrdal. Móðir Páls á Sléttu var Guðný Stefánsdóttir, b. á Sandfelli og ættfóöur Sandfellsættarinnar, Magnússonar og Guðrúnar Er- lendsdóttur, b. á Ásunnarstöðum í Breiðdal, Bjamasonar. Móðir Bóas- ar var Sæbjörg Jónsdóttir, b. í Litla- Sandfelli, bróður Guðnýjar. Móðir Páls verkstjóra var Rósa Bjama- dóttir, b. í Fannardal, Þorsteinsson- ar Illugasonar. Móðir Bjama var Þuríður Einarsdóttir. Móðir Rósu var Ingibjörg Oddsdóttir, b. í Grænanesi, Sveinssonar. Móðir Gunnar A. Pálsson. Ingibjargar var Valgerður, systir Guðríðar, langömmu Karls, föður Sigfinhs, framkvæmdastjóra Al- þýðusambands Austfjarða. Valgerð- ur var dóttir Stefáns, b. í Fannardal Sigurðssonar og Halldóra Sveins- dóttur. Móðir Gunnars, Vilborg, var dótt- ir Einars, b. á Helgustöðum í Reyð- arfirði, Þorlákssonar. Hlhamingjumeð afmælið 26. apríl 85 ára Margrét Oddsdóttir, Jörfa, Haukadalshreppi. 75 ára_____________________ Ásta Linddal Stefánsdóttir, Vestri-Grund 1 Stokkseyri. 70 ára Hermann Torfason, Höföagrand 12, Akranesi. Herbert Jónsson, Þórunnarstræti 128, Akureyri. 60 ára Kristján Bruun, Fannborg 1, Kópavogi. Guðlaug Ólafsdóttir, Grýtubakka 22, Reykjavík. 50ára Sigurður V. Sigurðsson, Miðgarði 9, Keflavík. Bryndís Brynjúlfsdóttir, Lyngbrekku 21, Kópavogi. Böðvar Sigvaldason, Barði, Ytri-Torfustaðahreppi. Guðjón Axelsson, Engjavegi 57, Selfossi. 40 ára Eiríkur Arnar Nilssen, Borgarvegi 9, Njarövíkum. Gyða Minny Nilssen, Hraunholti2, Garði. Sigurður Gunnlaugsson, Gunnarsbraut 6, Búðardal. Þorsteinn Gunnarsson, Heiðargerði 63, Reykjavík. Halla Rögnvaldsdóttir, Skagfirðingabr. ll, Sauðárkróki. Unnur Guðný Björnsdóttir, Raftahlíö 50, Sauðárkróki. Smári Jónsson, Raufarseli 1, Reykjavík. Hann tekur á móti gestum að heimili sinu eftir kl. 20 á afmælisdaginn. Vernharður Gunnarsson, Reynihlið 11, Reykjavík. Sjá einnig afinælisgreinar ábls.39

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.