Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 26
34
it'ti ,r:ri/ .t«
FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991.
Afmæli
Davíð Ólafsson
Davíð Ólafsson, fyrrv. seðlabanka-
stjóri, Hörgshlíö 26, Reykjavík, varð
sjötíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Davíð fæddist í Bakkagerði í Borg-
arfirði eystra og ólst þar upp til fjög-
urra ára aldurs, bjó á Noröfirði til
níu ára aldurs en flutti þá með for-
eldrum sínum í Viðey þar sem hann
bjó þar til hann fluttist til Reykja-
víkur, 1933. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR1935 og Bac.sc.oec.-
prófi frá háskólanum í Kiel í Þýska-
landi 1939. Davíð var forseti Fiskifé-
lags íslands og fiskimálastjóri
1940-67 og bankastjóri Seðlabanka
íslands 1967-86.
Hann sat í stjóm Fiskimálasjóðs
1954-68 og var formaður 1967-68, í
stjórn Bjargráðasjóðs íslands
1940-67, í bankaráöi Framkvæmda-
banka íslands 1961-66, í stjóm
Framkvæmdasjóðs íslands 1966-67,
í stjóm Iðnþróunarsjóðs EFTA fyrir
Portúgal frá 1977, í stjórn Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum
1962-67, í stjóm Hafrannsóknastofn-
unar 1962-67 og í stjóm Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins 1962-70, í
Rannsóknaráði ríkisins 1962-67, for-
maður stjómar Hlutatryggingasjóðs
bátaútvegsins og síðar Aflatrygg-
ingasjóðs sjávarútvegsins 1949-67,
formaður stjórnar Fiskveiðisjóðs
íslands 1967-86, formaður stjómar
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins
1969-86, formaður stjórnar félagsins
Germaniu 1972-77, forseti Ferðafé-
lags íslands 1977-85, í vísindaráði
Krabbameinsfélags íslands 1985-90,
formaður stjórnar sjóðsins Þjóð-
hátíðargjöf Norðmanna 1976-82, í
stjóm Almenna bókafélagsins frá
1980 og í stjórn Heildverslunarinnar
Heklu frá 1990. Davíö var landskjör-
hm alþingismaður 1963-67.
Hann var ritstjóri tímaritsins
Ægis 1955-67 og hefur skrifað fjölda
greina og álitsgerða um fiskveiði-
og sjávarútvegsmál í innlend og er-
lend dagblöð og tímarit. Hann er
heiðursfélagi Fiskifélags íslands og
Germaniu og í heiðursráði Krabba-
meinsfélags íslands. Hann hefur
verið sæmdur stórriddarakrossi
fálkaorðunnar, auk KDD, KNO,
StkÞV, SHmRK.
Fjölskylda
Davíð kvæntist 31.5.1941 Ágústu
Þuríði Gísladóttur, f. 4.4.1918, hús-
móður, en hún er dóttir Gísla Jóns-
sonar, prests á Mosfelli í Grímsnesi,
og Sigrúnar Kjartansdóttur hús-
móður.
Börn Davíðs og Ágústu Þuríðar
eru Ólafur, f. 4.8.1942, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra iön-
rekenda, og Sigrún, f. 30.10.1955,
cand.mag. og rithöfundur. Ólafur
var fyrst kvæntur Kládíu Róberts-
dóttur leiðsögumanni en þau skildu
og er seinni kona Ólafs Helga Ein-
arsdóttir viðskiptafræðingur en
börn Ólafs em Mikael Róbert, f.
1965, Davíð, f. 1981, og Kjartan, f.
1983. Sigrún var gift Helga Guö-
mundssyni, dósent við HÍ, en börn
þeirra em Davíð, f. 1977, Ingvar, f.
1980, ogAri.f. 1986.
Systkini Davíðs: Margrét, f. 4.11.
1910, d. 1983, skrifstofustjóri; Gísli,
f. 3.1.1912, ritsijóri; Þorbjörg, f.
17.12.1917, húsmóðir; Þórir, f. 23.7.
1920, d. 1940; Hulda, f. 24.4.1922, rit-
ari; Sigrún, f. 17.8.1927, húsmóðir.
Foreldrar Davíðs vora Björn Ólaf-
ur Gíslason, f. 1888, d. 1932, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Kára í Viðey, og Jakobína Davíðs-
dóttir, f. 1882, d. 1966, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var bróðir Magnúsar skrif-
stofustjóra, fóður Gísla píanóleik-
ara. Ólafur var sonur Gísla, b. á
Búöum í Fáskrúðsfirði, Högnason-
ar, jámsmiðs á Skriðu í Breiðdal,
bróður Kristínar, langömmu Sig-
urðar Þórarinssonar jarðfræðings.
Högni var sonur Gunnlaugs, prests
á Hallormsstað, Þórðarsonar, prests
í Kirkjubæ í Tungu, Högnasonar
„prestafoður“ á Breiðabólstað Sig-
urðssonar. Móðir Ólafs var Þor-
björg, systir Eiríks, bókavarðar í
Cambridge, og dóttir Magnúsar,
prests í Heydölum, Bergssonar.
Jakobína var dóttir Davíðs, fram-
kvæmdastjóra Pöntunarfélags Ey-
firðinga, Ketilssonar, bróður Krist-
ins, íoður þeirra Hallgríms, fyrsta
forstjóra SÍS, Siguröar, ráðherra og
forstjóra SÍS, Aðalsteins, fram-
kvæmdastjóra SÍS, og Jakobs, guð-
fræðings og fræðslumálastjóra.
Davíð var einnig bróðir Sigurðar,
föður Aðalbjargar, móður Jónasar
Haralz, fyrrv. bankastjóra Lands-
bankans. Móðir Jakobínu var
Margrét Hallgrímsdóttir Thorlaci-
us, b. á Hálsi í Eyjafirði, bróður
Þorsteins, afa Vilhjálms Þór, for-
stjóra SÍS. Annar bróðir Hallgríms
var Jón Thorlacius, afi Krisfjáns
Thorlacius, fyrrv. formanns BSRB,
Birgis Thorlacius, fyrrv. ráðuneyt-
Davið Ólafsson.
isstjóra, og Sigurðar Thorlacius
skólastjóra, föður Ömólfs, rektors
MH. Þriðji bróðir Hallgríms var
Sigfús, afi Aldísar Einarsdóttur,
elsta núlifandi íslendingsins. Hall-
grímur var sonur Einars Thorlaci-
us, prests að Saurbæ í Eyjafirði, og
Elínar Hallgrímsdóttur Thorlacius,
sýslumanns í Suður-Múlaþingi,
Jónssonar, sýslumanns í Berufirði,
bróður Þórðar, biskups í Skálholti.
Jón var sonur Þorláks, biskups á
Hólum, ættfóður Thorlaciusættar-
innar, Skúlasonar. Móðir Þorláks
var Steinunn Guðbrandsdóttir,
biskups á Hólum, Þorlákssonar.
Móðir Einars prests í Saurbæ var
Ólöf, systir Þorsteins, afa Jónasar
Hallgrímssonar skálds. Móðir Hall-
gríms var Margrét, systir Álfheiðar,
móður Helga Hálfdánarsonar lekt-
ors, föður Jóns biskups.
Rögnvaldur Þorláksson
Rögnvaldur Sveinn Þorláksson,
verkfræðingur og fyrrv. bygginga-
stjóri Landsvirkjunar, til heimilis
að Hörpulundi 7, Garðabæ, er sjötíu
ogfimm áraídag.
Starfsferili
Rögnvaldur fæddist í Vinaminni í
Grjótaþorpinu en ólst upp lengst af
við Laugaveginn. Hann lauk stúd-
entsprófum frá MR1936, sveinsprófi
í trésmíöi 1937 og prófi í bygginga-
verkfræði frá NTH í Þrándheimi
1943.
Rögnvaldur var verkfræðingur
við vega- og járnbrautalagnir í Nor-
egi 1943-44, var aöstoðarverkfræö-
ingur við NTH1944-45, verkfræð-
ingur hjá Sigurði S. Thoroddsen
1945-47, hjá raforkumálastjóra
1947-54, var staðarverkfræðingur
við Laxárvirkjun II1951-53, stofnaði
ásamt öðrum fyrirtækið Verklegar
framkvæmdir hf. 1954 og var annar
framkvæmdastjóri þess til 1962.
Hann var framkvæmdastjóri bygg-
ingaverktaka við Grímsárvirkjun
1955-58, viö riðbreytistöð á Kefla-
víkurflugvelli 1959 og gerði kostnað-
aráætlun um byggingu Kísiliðjunn-
ar 1961.
Rögnvaldur var ráðgefandi verk-
fræðingur frá 1962, vann að verk-
fræðilegum rannsóknum á virkjun-
um í Jökulsá á Fjöllum og frum-
hönnun virkjana í Dettifossi og
Vígabergsfossi og Kljáfossi í Hvítá í
Borgarfirði. Þá var hann samstarfs-
aðili Harza Engineering Co. Inter-
national við rannsóknir á virkjun
Þjórsár við Búrfell og við byggingu
orkuversins þar. Rögnvaldur var
settur aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar seinni hluta ársins
1972 og var byggingastjóri Lands-
virkjunar 1973-84 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Rögnvaldur sat í stjórn Verkfræð-
ingafélags íslands 1951-53, í stjóm
Byggingaverkfræðingafélags ís-
lands 1962-63 og í Lífeyrissjóði Verk-
fræðingafélagsins 1954-73.
Fjölskylda
Rögnvaldurkvæntist 30.10.1943
Thora Margareth, f. 9.7.1915, píanó-
kennara frá Þrándheimi, dóttur
Andreas Holbæk Eriksen verslun-
armanns, ogkonu hans, Maddy
Krogstad húsmóður.
Böm Rögnvalds og Thoru Margar-
eth era Sveinn Birgir, f. 18.1.1946,
BA í ensku og kennari, nú fulltrúi
hjá Landsbankanum, og Guðný
Kristín, f. 12.8.1949, BA og kennari,
gift Hallgrími Snorrasyni hagfræð-
ingi og eiga þau fjögur börn.
Uppeldissystur Rögnvalds eru Sig-
ríður Júlíusdóttir, húsmóðir í Suð-
ur-Afríku, gift Thomas Reel Robson,
og Elín Guðbjörnsdóttir húsmóðir,
gift Birni Halldórssyni rakarameist-
ara.
Foreldrar Rögnvalds voru Þorlák-
ur Kristinn Ófeigsson, f. 22.4.1887,
d. 5.1.1955, byggingameistari í
Reykjavík, og kona hans, Anna
Guðný Sveinsdóttir, f. 2.11.1887, d.
19.10.1957, húsmóðir.
Ætt
Þorlákur var sonur Ófeigs, b. á
Kaldárhöföa, Erlendssonar, b. á
Brjánsstöðum í Grímsnesi, Erlends-
sonar, b. á Brjánsstöðum, Sigurðs-
sonar, b. á Syðra-Apavatni í Gríms-
nesi, Einarssonar á Brjánsstöðum.
Móðir Ófeigs var Gróa Ófeigsdóttir.
Móðir Þorláks var Jónea Kristín,
systir Þorláks, langafa Steingrims
Hermannssonar forsætisráðherra
og Bergsteins Gizurarsonar bruna-
málastjóra. Annar bróðir Jóneu
Rögnvaldur Þorláksson.
Kristínar var Sæmundur, faðir
Bjarna fiskifræðings og langafi Guð-
laugs Þorvaldssonar ríkissáttasemj-
ara. Jónea Kristín var dóttir Jóns,
útvegsb. og dbrm. á Húsatóftum og
ættíoður Húsatóftaættarinnar, Sæ-
mundssonar.
Systir Önnu Guðnýjar var Karó-
lína, móöir Sveins Ásgeirssonar
hagfræðings. Anna Guðný var dótt-
ir Sveins, verkamanns í Reykjavik,
Ólafssonar, b. í Stokkseyrarseli,
Jónssonar. Móðir Sveins var Guðný
Þórðardóttir. Móðir Önnu Guðnýjar
var Sigríður Rögnvaldsdóttir, b.
Eystri-Rein á Akranesi, Jónssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur.
Rögnvaldur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Andlát
Gunnar A. Pálsson
Gunnar Axel Pálsson hæstaréttar-
lögmaöur, Ásvallagötu 17, Reykja-
vík, lést þann 15.4. sl. Jarðarfór hans
fór fram frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í morgun.
Starfsferill
Gunnar fæddist á Eskifirði. Hann
lauk stúdentsprófum frá MR1930
og embættisprófi í lögfræði frá Há-
skólaíslands 1935.
Gunnar var fulltrúi lögmanna í
Reykjavík 1935-45, var skipaður
bæjaríógeti á Neskaupstað 1945 og
gegndi því starfi í tvö ár en sinnti
síöan um skeiö rannsóknum ýmissa
dómsmála á vegum dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins. Hann rak síöan
um árabil eigin málflutningsskrif-
stofu í Reykjavík og stundaði lög-
fræði- og viðskiptastörf.
Sonur Gimnars og Guðrúnar
Jónsdóttur er Kjartan Gunnarsson,
f. 4.10.1951, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, kvæntur Sig-
riði Snævarr sendiherra.
Bræður Gunnars: Ólafur, dó ung-
ur; Bóas, jámsmiður í Reykjavík,
látinn; Friðrik, lögregluþjónn í
Reykjavík, látinn, og Einar, skrif-
stofumaður í Reykjavík, faöir Harð-
ar, framkvæmdastjóra og útgáfu-
stjóra Frjálsrar fjölmiðlunar.
Foreldrar Gunnars vora Páll Bó-
asson, f. 14.5.1881, d. 9.12.1967, verk-
stjóri á Eskifirði og síðar starfsmað-
ur í fjármálaráðuneytinu, og kona
hans, Vilborg Einarsdóttir, f. 8.4.
1886, d. 16.7.1967, húsmóðir.
Ætt
Páll var sonur Bóasar, b. á Sléttu
í Reyðarfirði, Pálssonar, b. á Sléttu,
bróður Guðrúnar, móður Bóelar,
langömmu Geirs Hallgrímssonar
forsætisráöherra og Karls Kvaran
listmálara. Guðrún var einnig móð-
ir Kristrúnar, ömmu Páls Stefáns-
sonar, auglýsingastjóra DV. Páll var
sonur Jóns, silfursmiðs Pálssonar,
hálíbróöur, samfeðra, Sveins Páls-
sonar, náttúrufræðings í Vík í
Mýrdal. Móðir Páls á Sléttu var
Guðný Stefánsdóttir, b. á Sandfelli
og ættfóöur Sandfellsættarinnar,
Magnússonar og Guðrúnar Er-
lendsdóttur, b. á Ásunnarstöðum í
Breiðdal, Bjamasonar. Móðir Bóas-
ar var Sæbjörg Jónsdóttir, b. í Litla-
Sandfelli, bróður Guðnýjar. Móðir
Páls verkstjóra var Rósa Bjama-
dóttir, b. í Fannardal, Þorsteinsson-
ar Illugasonar. Móðir Bjama var
Þuríður Einarsdóttir. Móðir Rósu
var Ingibjörg Oddsdóttir, b. í
Grænanesi, Sveinssonar. Móðir
Gunnar A. Pálsson.
Ingibjargar var Valgerður, systir
Guðríðar, langömmu Karls, föður
Sigfinhs, framkvæmdastjóra Al-
þýðusambands Austfjarða. Valgerð-
ur var dóttir Stefáns, b. í Fannardal
Sigurðssonar og Halldóra Sveins-
dóttur.
Móðir Gunnars, Vilborg, var dótt-
ir Einars, b. á Helgustöðum í Reyð-
arfirði, Þorlákssonar.
Hlhamingjumeð
afmælið 26. apríl
85 ára
Margrét Oddsdóttir,
Jörfa, Haukadalshreppi.
75 ára_____________________
Ásta Linddal Stefánsdóttir,
Vestri-Grund 1 Stokkseyri.
70 ára
Hermann Torfason,
Höföagrand 12, Akranesi.
Herbert Jónsson,
Þórunnarstræti 128, Akureyri.
60 ára
Kristján Bruun,
Fannborg 1, Kópavogi.
Guðlaug Ólafsdóttir,
Grýtubakka 22, Reykjavík.
50ára
Sigurður V. Sigurðsson,
Miðgarði 9, Keflavík.
Bryndís Brynjúlfsdóttir,
Lyngbrekku 21, Kópavogi.
Böðvar Sigvaldason,
Barði, Ytri-Torfustaðahreppi.
Guðjón Axelsson,
Engjavegi 57, Selfossi.
40 ára
Eiríkur Arnar Nilssen,
Borgarvegi 9, Njarövíkum.
Gyða Minny Nilssen,
Hraunholti2, Garði.
Sigurður Gunnlaugsson,
Gunnarsbraut 6, Búðardal.
Þorsteinn Gunnarsson,
Heiðargerði 63, Reykjavík.
Halla Rögnvaldsdóttir,
Skagfirðingabr. ll, Sauðárkróki.
Unnur Guðný Björnsdóttir,
Raftahlíö 50, Sauðárkróki.
Smári Jónsson,
Raufarseli 1, Reykjavík. Hann
tekur á móti gestum að heimili
sinu eftir kl. 20 á afmælisdaginn.
Vernharður Gunnarsson,
Reynihlið 11, Reykjavík.
Sjá einnig
afinælisgreinar
ábls.39