Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Page 3
3
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1991.
Fréttir
Gerði upp íbúð fyrir milljón en fyrri eigendur töpuðu henni á uppboði:
„Mér f innst lífið vera
orðið svo vonlaust“
„Ég er orðin svo lífsleið. Um dag-
inn fékk ég rukkun um fasteigna-
gjöld og hótun um lögtak. Bara
svona, og ég skammast mín ekkert
fyrir það, það getur bara hreinlega
sett mig í þannig stöðu að ég bara
hef svo mikla sjálfsmorðstilfinn-
ingu. Mér finnst líflð orðið svo von-
laust aö geta ekki gert neitt, ég
þori ekki að kaupa neitt inn í hús-
ið, laga það eða neitt, og ef ég fer
eitthvað út þá er ég búin að tapa
öllu því sem ég er búin að gera
þannig að ég veit ekkert hvernig
ég á að snúa mér í þessu."
Kolbrún H. Jónsdóttir gerði í
apríl 1989 leigusamning við fyrri
eigendur fasteignarinnar að Víkur-
braut 15 í Grindavík. Að tveimur
árum liðnum, eða í apríl á næsta
ári, átti hún svo að eignast húsið
sem var algerlega óíbúðarhæft. í
millitíðinni fóru eigendurnir á
hausinn og Búnaðarbankinn tók
eignina upp í veðkröfur á uppboði
sl. sumar. Milljón króna endurbæt-
ur Kolbrúnar virðast því vera tap-
að fé.
- áttiaðeignastíbúðinaenlendirágötunni
„Húsið lekur í rigningu og það
blæs í gegnum það. Eg lagaði húsið
bara þannig að ég gæti flutt inn því
að ég missti húsið sem ég var í
áður. Þetta er allt að eyðileggjast
vegna þess að ég geri náttúrlega
ekki meira eins og komið er. Af því
að það er rigning núna þarf ég að
hafa fötin inni á stofugólfi. Þeir
vilja ekkert gera viö húsið og ég
má ekkert gera nema það sé alger-
lega á minn kostnað en þeir eru að
bíða eftir að geta hent mér út í apríl
á næsta ári. Ég bara hef ekki í ann-
að hús að venda, ég er ein með
þrjá krakka þannig að þetta er voða
erfitt. Ég er heimavinnandi í
augnablikinu því það er enga vinnu
að fá.
Þegar þeir komu hérna til þess
að gera uppboð spurði ég þá hvort
þeir mundu ekki endurgreiða mér,
þó ekki væri nema bara nótumar.
Lögfræðingurinn sagði að bankan-
um kæmi ekkert við.hvernig húsið
var þegar ég tók við því. Það væri
bara svona þegar þeir tækju við
því. Þetta finnst manni náttúrlega
Svona leit ibúðin út áður en Kol-
brún flutti inn. Húsið var algerlega
óíbúðarhæft.
svolítið sárt. Að endurheimta þessa
milljón af þessum gaurum, sem ég
gerði leigusamning við, virðist vera
alveg lokað dæmi.“
Endurbætur Kolbrúnar upp á millj-
ón krónur eru hins vegar tapað fé.
Friöjón Örn Friðjónsson hdl. seg-
ir að Kolbrún haldi réttindum sín-
um sem leigutaki og sé í íbúðinni
sem slíkur.
„Sá samningur, sem hún gerir við
fyrri eigendur, er ekki samningur
við Búnaðarbankann og það er
náttúrlega ljóst að sá samningur
er ekki bindandi fyrir Búnaðar-
bankann. Við höfum boðið Kol-
brúnu eignina til kaups með þeim
hætti að falla frá kröfum að vissu
marki og að hún yfirtaki skuld-
breyttar skuldbindingar til ákveð-
ins tíma.
Mergurinn málsins er náttúrlega
sá að þeir aðilar, sem áttu þessa
eign, hafa komið fram gagnvart
Kolbrúnu með blekkingum og þar
liggur vandinn grafinn. Þeir hafa
ekki upplýst hana nægilega um
þær veðskuldbindingar sem á eign-
inni voru og hún hefur ekki gætt
þess að kanna veðbókarvottorð á
eigninni áður en hún gerði þennan
kaupleigusamning, eða hvað sem
við eigum að kalla hann. Þannig
að þetta er út af fyrir sig erfið staða
sem við erum að reyna að finna
einhverja lausn á.“
-PÍ
l»ú færð hvergi jafn
öfluga tölvu ffyrir eins
GOTTVERÐ!
Verðsamanburður hefur sannfært tölvunotendur um að
erfitt er að gera betri kaup en einmitt í Acrotech
tölvunum, þar sem saman fara gæði, góð vinnslugeta
og makalaust verð.
bað er einnig alkunna að nýja 20MHz Acrotech 286AT
er hraðvirkasta AT tölvan á markaðinum.
bess vegna kunna tölvunotendur að meta Acrotech
tölvurnar. Nú átt þú auðvelt með að bætast í hóp
Acrotech eigenda, því verðið er hreint með ólíkindum.
Acrotech 286AT 20MHz kostar kr. 117.800,-
Acrotech 386SX 16MHz kostar kr. 139.614,-
Innifalið í verði: VSK, Super VGA litaskjár, 1 Mb innra
minni, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4,01.
ms
Ótrúlegt verð fyrir óviðjafnanlega tölvu.
Opið laugardag frá kl. 10:00 til 16:00.
-----=BALTI hf.
ÁRMÚLA 1 SÍMI (91) 8 25 55
SÍMI (91)812555