Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991. Almálið í alvarlegri hættu? Því miður getur brugðið til beggja vona - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra Ummæli forsætisráðherra um að afturkippur sé kominn i álmálið vekja vissulega mikla athygli. Þaö er ekki bara að Davíð Oddsson sé forsætisráðherra, hann hefur verið einn af þremur aðalsamningamönn- um Landsvirkjunar í þessu máli og gerþekkir það. „Eg vildi svo sannarlega að þessir samningar um álver á Keilisnesi lendi réttum megin við strikið. En því miður þá sýnist mér að það geti Met- þorskur úr Beru- fjarðarál Ægir Kristinsson, DV, Fáskxúðsfirði: Gríðarlegur golþorskur veiddist í síðustu veiðiferð skuttogarans Hof- fells SU en togarinn landaði á mánudag, 13. maí, 80 tonnum af fiski hér. Þorskurinn veiddist í Berufjarðarál og reyndist 167 sm langur og var um 46 kg slægður. Ætla má að hann hafi verið tæpum 10 kg þyngri óslægður. Að sögn starfsmanna Hafrann- sóknastofnunar hefur ekki lengri þorskur veiðst við ísland svo vitað sé. Einn jafnlangur hefur áður veiðst í Skjálfandaflóa en áhöld um þyngdina, þar sem þorskurinn úr Berufjarðarálnum var ekki vigtað- ur óslægður. brugðið til beggja vona. Ég veit hins vegar að málið hefur verið vel unnið af iðnaðarráðherra og hef því trú á að þetta gangi allt saman upp. En menn verða að gera sér grein fyrir því að í svona stóru máli er kálið ekki sopið þótt í ausuna sé komið, eins og máltækið segir,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í samtali við DV í gær um þetta mál. Jón Sigurösson iðnaöarráðherra sagði í samtali viö DV að hann vildi ekki tala um afturkipp í álmálinu. Aftur á móti væri það staðreynd að erfiðleikar hefðu verið í því í vetur. Jón sagði ennfremur að á þeim samningafundi sem hefst á morgun, 17. maí, verði menn að svara því hvort þeir vilji eða vilji ekki reisa álver. Eins og DV skýrði fyrst fjölmiðla frá í vetur stafar þessi afturkippur af nokkrum atriðum. Þar er fyrst að nefna að kostnaður við byggingu ál- versins er orðin miklu meiri en áætl- að var í upphafi. Auk þess sjá þeir Atlantsálmenn ýmsa aðra vankanta á byggingu álversins. Þeir vilja fá að flytja inn erlent vinnuafl. Þeir efast um getu íslenskra verktaka til að byggja álverið. Þá er mengunarþátt- urinn ófrágenginn en hann er erf- iður. Og síðast en ekki síst er það svo raforkuverðið sjálft sem ósamið er um og verður ekki auðvelt. Það versta er þó að vegna þess að Mjög forvitnilegt fyrirtæki, ís- lenska heilsufélagið hf., verður stofnað í dag. Tilgangur félagsins verður að kanna til hlítar möguleika á gjaldeyrisskapandi heilbrigðis- þjónustu. Einn helsti hvatamaðurinn að stofnun fyrirtækisins er Grímur Sæmundsen læknir. Hann verður jafnframt framkvæmdastjóri þess. Hluthafar eru Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Vífilfell hf. og heilsu- fyrirtækið Máttur hf„ auk nokkurra einstakhnga. Hlutafé fyrirtækisins verður til að byrja með á bilinu 8 til 10 milljónir. Þá mun félagið njóta markaðsstuðnings frá Flugleiðum. Grímur segist telja möguleika ís- lendinga á sviði gjaldeyrisskapandi heilbrigðisþjónustu mikla. Hér á landi sé hágæða læknisþjónusta og góöar aðstæður frá náttúrunnar hendi til að reka heilsuhæli sem not- erlendu álfyrirtækin þrjú gangast ekki í ábyrgð fyrir þeim lánum sem taka þarf til byggingar álversins heldur ætla að láta dótturfyrirtækið og álverið sjálft annast þaö mál er mjög erfitt að fá lán erlendis á viðun- andi kjörum. Þegar allt þetta kemur saman eru orð forsætisráðherra skiljanleg. -S.dór ið gætu alþjóðlegrar viðurkenningar ef rétt væri að málum staðið. „Það skref, sem nú er veriö að stíga, er auðvitað fyrst og fremst að stofna félag um þetta verkefni og fmna út hvar vænlegast sé aö bera niður er- lendis við sölu á íslenskri heilbrigðis- þjónustu." Grímur segir að sér virðist þrjár leiðir helst koma til greina við út- flutning á íslenskri heilsuþjónustu: í fyrsta lagi aö bjóða upp á almennar heilsuferðir til íslands þar sem út- lendingar gætu notið slökunar og hressingar. í öðru lagi að reka hér fullkomin heilsuhæli. í þriðja lagi að bjóða upp á sérhæfðar skurðaðgerðir fyrir útlendinga. Ljóst er að íslensk ferðaþjónusta kemur til með að njóta mjög góðs af verði útflutningur á íslenskri heil- brigðisþjónustu að veruleika. -JGH íslenska heilsufélagið hf. stofnað í dag: Útf lutningur á bættri heilsu í dag mælir Dagfari Vandræði með vanda Ríkisstjórnin hefur upplýst að vandi ríkissjóös sé mikill. Hún seg- ir sjálf að vandinn nemi tíu mill- jörðum króna en fyrrverandi fjár- málaráðherra hefur blásið á þenn- an vanda og segir að í rauninni sé þetta enginn vandi í ljósi þess að vandinn hafi alltaf verið til staðar og sé ekki nærri eins stór og ríkis- stjórnin lætur í veðri vaka. Menn deila sem sagt um stærð vandans og eiginlega er það synd að Ólafur Ragnar skuli ekki vera fjármála- ráðherra áfram því þá hefði vand- inn haldið áfram að vera lítill og enginn þurft að hafa áhyggjur. Nú eru því miöur komnir nýir menn með nýjan vanda eða allavega með stærri vanda en Ólafur hafði og það getur orðið þjóðinni dýrt spaug. Ríkisstjórnin er ákveðin í taka á þessum vanda. Vandinn er hins vegar sá hvemig á að taka á vand- anum og bakar það nokkur vand- ræði. Stjórnin hélt langan fund á laugardaginn var til að ræða vand- ann og þar var ákveðið að ræða vandann við fulltrúa vinnumark- aðarins, því ríkisstjómin er ákveð- in í því að leysa ekki þennan vanda með því að búa til nýjan vanda. Þess vegna hefur vandinn verið ræddur við aðila vinnumarkaöar- ins og þeir segja aö enginn lausn og engar tillögur hafi verið ræddar á þeim fundum, heldur hafi ríkis- stjórnin gert grein fyrir þeim vanda sem hún stendur frammi fyrir. Vandinn við að hafa vanda af þessu tagi er sá að það skapar vandamál að hafa vanda sem geng- ur út á það að leysa vanda án þess að búa til ný vandamál. Ríkis- stjórnin er öll af vilja gerð og hefur ekki hugsað sér að styggja þjóðina með nýjum vandamálum, eftir öll vandamálin sem gamla stjórnin skapaöi. I kosningunum var tekist á um það hvort þjóðin ætti áfram að búa við gamla vandann eða kalla yfir sig nýjan vanda og fyrrverandi stjórnarandstaða lagöi einmitt áherslu á það aö koma þyrfti gömlu stjórninni frá til aö leysa þann vanda sem hún hafði búiö til. Aldr- ei var hins vegar tekiö fram að vandamálin yrðu leyst með nýjum vandamálum og þar liggur hund- urinn einmitt grafinn. Vandinn er sem sagt sá að leysa vandann án þess að búa til ný vandamál. Dagfari telur skynsamlegast að fara að eins og ríkisstjórnin hefur einmitt fariö að. Vandamálin hlaupa ekki frá neinum og með því að halda fundi og hefja viðræöur við aöila vinnumarkaöarins má fresta vandanum og þeim vanda sem fylgir því að leysa vandann. Ríkisstjórnin á með öðrum orðum að ræða vandamálið sín í milli og leggja það síðan fyrir aðra án þess að gera tillögur um lausn vandans og halda síðan annan fund i stjórn- arráðinu til að segja frá því að hún hafi sagt öðrum frá vandanum og ákveða síöan aö halda aftur fund með aðilum vinnumarkaðarins til að segja þeim frá því að stjórnin hafi rætt vandann og vilji segja frá því sem sagt var á fundi ríkisstjórn- arinnar. Svo má aftur halda fund til að segja frá því sem sagt var að sagt hefði veriö á fyrri fundum og með- an enginn ákvörðun er tekin um vandann, skapast ekki nýr vandi á meðan og allt situr viö það sama og þegar nær dregur kosningum, verður ríkisstjórnin að halda því fram að vandinn hafi minnkað og sé miklu minni en sá vandi sem skapast ef ný ríkisstjórn tekur við. Það veröur aö minnsta kosti eng- inn leikur fyrir Ólaf Ragnar og stjórnarandstööuna að halda því fram að vandinn sé stærri en hann er, þegar Ólafur er búinn aö halda því fram að vandinn sé minni en hann er. Af því sem að framan er sagt, á ríkisstjórnin ekki að hafa teljandi áhyggjur af vandamálum sínum. Tíu milljaröar eru aö vísu stór vandi, en geta orðið miklu stærri vandi ef menn vilja leysa þann vanda, vegna þess að önnur vanda- mál verða til þegar tekið er á þeim vanda sem fyrir er. Ólafur Ragnar hefur líka sagt að vandinn sé alls ekki til staðar og þaö er í sjálfu sér hægt að taka mark á Ólafi þangað til annað kemur í ljós. Vandi ríkis- stjórnarinnar er í rauninni sá einn að ýta vandanum á undan sér vegna þess aö það getur verið vandi að hafa vanda sem menn eru að horfast í augu við. Vonandi er rík- isstjórnin þeim vanda vaxin að leysa þennan vanda. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.