Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 7
FIMMTUDAGUR 1€. MAÍ’ 1991. 7 Fréttir Yngvi Örn Kristinsson, formaður Húsnæðismálastofmmar: Vaxtahækkun nauðsynleg - til að koma 1 veg fyrir rekstrarhalla Byggingarsjóðs ríkisins „Ég tel mjög nauðsynlegt að af vaxtahækkun í gamla húsnæðis- kerfmu verði. Það er ekki réttlæt- anlegt að fjármagna rekstrarhalla Byggingarsjóðs ríkisins með því að íþyngja hinum almenna skattborg- ara með tveggja til fjögurra millj- arða auknum tekjuskatti á næstu árum. Það er mun eðlilegri leið að láta lántakenduma sjálfa greiða hærri vexti,“ segir Yngvi Örn Kristinsson, formaður stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins. í greinargerð, sem ríkisstjórnin óskaði eftir frá Seðlabankanum fyrir skömmu, kemur fram sú skoðun að hækka verði vexti á eldri lánum úr Byggingarsjóði ríkisins upp í allt að 6 prósent. í dag eru þeir á bilinu 3,5 til 4,5 prósent. Fari ríkisstjórnin að þessum tilmælum Seðlabankans mun því hækkunin nema allt að 70 prósentum. Yngvi Örn segist telja að innan stjórnar Húsnæðisstofnunar sé meirihlutavilji fyrir því að vextirn- ir verði hækkaðir. Hann segir þó engar slíkar samþykktir hafa verið gerðar en væntanlega komi þetta mál á borð stjórnar innan tíðar, enda geti ríkisstjórnin ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun í hús- næðiskerfmu án þess að umsögn liggi fyrir frá Húsnæðisstofnun. Aðspurður kvaðst Yngvi Örn ekki óttast aukna greiðsluerfið- leika meðal lántakenda þó að vext- ir hækki á eldri lánum Byggingar- sjóðs ríkisins en útilokaði það þó ekki. Að hans mati þarf hugsanlega að endurskoða almenna vaxtabóta- kerflð til að koma til móts við þá húsnæðiskaupendur sem mest skulda og minnstar tekjur hafa. „Ég gæti nú trúað að tillögur Seðlabankans um vaxtahækkun í almenna kerfmu séu í hærri kant- inum. En þó að vextirnir hækki eitthvað þá yrði hún sjálfkrafa bætt í gegnum vaxtabótakerfið hjá lágtekjufólki og þeim sem hafa miðlungstekjur. Þessar bætur myndu einfaldlega hækka eftir því sem vaxtagreiðslurnar yrðu meiri.“ Yng-A Örn segir að enn sé verið að vinna tölulegar upplýsingar um hvaða áhrif vaxtahækkun í al- menna húsnæðiskerfinu hafi á af- komu Byggingarsjóðs ríkisins og útgjöld ríkissjóðs í formi vaxtabóta. Hann segir þessa útreikninga mjög flókna, enda verði að taka tillit til margbreytilegra þátta. DV hefur hins vegar fyrir því heimildir að vaxtahækkun upp í fimm prósent á öllum útlánum sjóðsins frá 1984 skili sjóðnum ein- ungis um 600 milljónum í auknar tekjur á ári. Áætlaður rekstrarhalli sjóðsins á þessu ári er hins vegar áætlaður um einn milljarður. Sam- kvæmt þessu yrði því áfram veru- legur halli á sjóðnum þrátt fyrir vaxtahækkun. Fyrir ríkissjóð myndi hækkun vaxta upp í flmm prósent auka út- gjöld ríkissjóðs verulega vegna greiðslu vaxtabóta. í fjármálaráðu- neytinu er verið aö kanna hversu mikið útgjöldin kunni að aukast og er búist við að niðurstaða liggi fyr- ir á næstu vikum. Heimildir DV herma þó að samkvæmt bráða- birgðaútreikningum sé gert ráð fyrir að hækkun vaxta upp í fimm prósent feli sjálfkrafa í sér minnst 200 millj ónir í auknar vaxtabætur. -kaa K/ELI 06 A TILB00I! ■ Rúmgóðir ■ Auðveldir íþrifum ■ Sparneytnir ■ Góð ending ■ Margra ára reynsla Wf' Við hjá Rönning bjóðum nú hina vinsælu io?o9' Snowcap kæli og frystiskápa á sérstöku vortilboði meðan birgðir endast. Notaðu þetta einstaka tækifærið og fáðu þér einn ískaldann Snowcap fyrir sumarið Söluaðilar: KEA Akureyri, Póllinn ísafirði, Árvirkinn Selfossi, Neisti Vestm.eyjum mr RONNING Sundaborg 15 Sími: 68 58 68 Úrval er troðfullt af áhugaverðu efni, sjáðu bara Nú er annað hefti ársins komið út, -troðfullt af vönduðu efni til fróðleiks og skemmtunar fyrir aila. Eins og þú sérð er allt efnisyfirlitið á forsíðunni, sem auðveldar þér að skoða innihaldið., Úrval er 160 síður að stærð og kemur út annan hvern mánuð. Áskrift að Úrvali kostar krónur 2.125- fyrir allt árið 1991, alls 6 hefti. Pantir þú áskrift núna, færðu 6 eldri hefti að gjöf, og send með fyrsta heftinu. Tekið er við áskrift frá kl.9 til 20 alla virka daga Pantaðu áskrift ísíma 626010 út af Frjálsri Fjölmiðlun sem einnig gefur út DV og Urvalsbækur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.