Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991. Útlönd Sovésku lýðveldunum boðinn efnahagssamningur Gorbatsjov Sovétforseti vonast ettir stuöningi lýðveldanna við neyðaráætlun í efnahagsmálum og hefur boðið þeim að gera eigin áætlanir með vissum takmörkunum. Símamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét- ríkjanna, hefur boðið sovéskum lýð- veldunum samning í efnahagsmál- um í þeirri von að geta komið í gegn áætlun til að bjarga efnahag lands- ins. Óljóst er þó hversu mikinn stuðning hann fær. Drög að endurskoðaðri neyðará- ætlun, þar sem aðallega er gert ráð fyrir einkavæðingu og niðurfellingu niðurgreiöslna ríkisins, voru kynnt helstu leiðtogum lýðveldanna og for- ystumönnum iðnaðarins í gær. Ljóst var að yfirvöld í Kreml voru að kynna lýðveldunum samning þar sem kveðið var á um aðgerðir yfir- valda um leið og reynt var að bjóða upp á eitthvað hvetjandi. Aðstoðar- forsætisráðherra Sovétríkjanna, Vladimir Shcherbakov, sagði að lýð- veldunum væri frjálst að gera eigin áætlanir innan viss ramma. Hvert lýðveldi myndi fylgja eigin stefnu í einkavæðingu. Fulltrúar þrettán af sovésku lýðveldunum fimmtán sátu fundinn í Kreml í gær. Fulltrúar Eistlands og Georgíu voru fjarver- andi. Samkvæmt neyðaráætluninni á að reyna að koma í veg fyrir frekara framleiðsluhrun auk þess sem draga á úr eyðslu seinni hluta þessa árs. Gert er ráö fyrir banni við verkfóll- um á þessu ári. í neyðaráætluninni er einni ákvæði um að náttúru- auðæfum verði skipt milli lýðveld- anna. Fulltrúar lýðveldanna virtust ekki ýkja hrifnir. Forsætisráöherra Rúss- lands, Ivan Silayev, sem barist hefur fyrir áætlun Rússlands sjálfs um einkavæðingu, viöurkenndi þó að fundurinn hefði borið vissan árang- ur. Hins vegar fæli neyðaráætlunin mest í sér aðgerðir sovéskra yfir- valda til að leysa kreppuna. Nauðsyn væri á aö lýðveldin gætu sjálf gert eigin ráðstafanir. Sovéskir ráðherrar lögðu á það áherslu að síðar yrðu kynntar áætl- anir sem draga ættu úr áhrifum verðhækkana og atvinnuleysis sem myndi fylgja minnkun niður- greiðslna. Reuter Róstur í Sovétríkjunum: Sévardnadze vill íhlutun SÞ Fyrrum utanríkisráðherra Sov- étríkjanna, Eduard Sévardnadze, kvaðst í gær vera þeirrar skoðun- ar aö Sameinuðu þjóðirnir ættu að beita sér fyrir því að stöðva óeirðirnar í Sovétríkjunum. Sé- vardnadze lýsti þessu yfir á fundi með fréttamönnum í Bandaríkj- unum þar sem hann er í þriggja vikna fyrirlestrarferð. Sagðist hann gera sér grein fyr- ir að þetta gæti orðið erfltt í fram- kvæmd en brýn þörf væri á nýj- um aðferðum til að binda enda á þjóðemisrósturnar. Sévardnadze benti á að for- dæmi væri fyrir íhlutun erlendra aðila í málefni Sovétríkjanna eins og til dæmis eftirlit Bandaríkja- manna með vopnabúnaði og framtíðarheimsóknir fulltrúa 22 Evrópuþjóða sem fylgjast eiga með eyðingu ýmissa hefðbund- innavopna. Reuter Albanía: Verkfall boðað Hin óháðu verkalýðssamtök í Al- baníu hafa boðað allsherjarverkfall í öllum helstu bæjum landsins í dag til að krefjast hærri launa. „Albanir vilja þetta verkfall og þeir munu taka þátt í því,“ er haft eftir leiðtoga samtakanna, Gizin Shima, sem sagðist búast við að helstu stuöningsmenn þess væru kola- námumenn nálægt Tirana, höfuð- borg landsins, og bílstjórar sem sjá um samgöngur í höfuðborginni. Reuter Réttarhöld yfir Manuel Noriega hefj- ast í júlí og er búist við að þá komi ýmislegt misjafnt upp á yfirborðið hvað varðar Bush og Reagan. Simamynd Reuter Noriega starfs- maður CIA Manuel Noriega, fyrrum einræðis- herra í Panama, segist hafa verið milliliður bandarísku leyniþjón- ustunnar, CIA, við að koma hundr- uðum þúsunda dollara til kontra- skæruliða í Nigaragua. Þetta kemur fram í dómskjölum sem verjandi Noriega hefur útbúið fyrir réttarhöldin, þar sem Noriega er sakaður um eiturlyfjasölu og um að hafa hvítþvegið peninga. Skjölin voru birt í fyrsta sinn í gær eftir að embættismenn innan banda- rísku ríkisstjórnarinnar höfðu farið yfir þau og strikaö út þá hluta sem þeim fundust heyra undir trúnaðar- mál. Þar kemur einnig fram að Noriega hafi unnið fyrir CIA i nær þrjá ára- tugi, á sama tíma og hann vann fyrir leyniþjónustu Panama. Á þessum tíma á hann að hafa þegið um ellefu milljónir dollara frá CIA fyrir störf sín. Réttarhöldin yfir Noriega hefjast svo þann 22. júlí, en búist er við að þá kunni ýmislegt óvænt að koma fram á sjónvarsviðið sem e.t.v. gæti komiö Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, illa og einnig Ge- orge Bush sem þá var varaforseti Reagans. Reuter l\/l N I algjört t>íó... Einfaldur samanburður sýnir ótvíræð þægindi þess að sjá kvikmyndir heimafyrir í ró og næði. Svo er það líka ódýrara! AU/nEGFRABÆRULeðUmSa9' m,n^*ana sPennumynd. Þar sem myndirnar fást! Ettir me/siara sPennusagnanna Slephen King 21- maí.9æÖarnynd sem kemur út £MYNDIR myndbandaleigur KRINGLAN 4, S: 679015 REYKJAVÍKURVEGI 64, S: 651425 ÁLFABAKKA 14, MJÓDD, S: 79050 SKIPHOLT 9, S: 626171

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.