Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Blaðsíða 9
••* :3t
FMMTUDA'GUR 16.’ MJtí*í331‘. ‘'
Útlönd
Nýr forsætisráðherra í Frakklandi:
Steff nir á Evrópumálin
Stríðið búið
Frá og meö miðnætti í gær hófst
formlegt vopnahlé í Angola eftir aö
hin vinstri sinnaða ríkisstjórn lands-
ins og róttækir uppreisnarmenn
samþykktu skilmála friöarsamnings
sem binda myndi enda á 16 ára borg-
arastyrjöld í landinu.
Samkvæmt heimildum innan utan-
ríkisráðuneytisins í Portúgal sam-
þykktu æöstu menn frá hvorri hlið
alla skilmála samningsins sem hafist
var handa viö aö útbúa þann 1. maí
síðastliðinn eftir margra ára friðar-
umræður deiluaðila.
Það eru stjórnvöldin í Portúgal sem
hafa stjórnað þessum friðarviðræð-
um en Angola var áður portúgölsk
nýlenda. Reuter
Ershad, fyrrum forseti Bangladesh.
Forsætisráðherra hans, Ahmed, var
handtekinn i morgun.
Símamynd Reuter
Bangladesh:
Fyrrum
forsætisráð
herra
handtekinn
Lögregla handtók í morgun fyrrum
forsætisráðherra -Bangladesh, Kazi
Zafar Ahmed, sem verið hefur í fel-
um síðan Hossain Mohammad Ers-
had hrökklaðist frá völdum í des-
ember síðastliðnum.
Ahmed, sem kjörinn var á þing í
kosningunum í febrúar, var hand-
tekinn er hann reyndi að læðast inn
í þinghúsið, að sögn embættismanna.
Hann verður í gæsluvarðhaldi á
meðan rannsókn fer fram vegna
ásakana á hendur honum um mis-
beitingu valds í starfi.
Ahmed gegndi embætti forsætis-
ráðherra í tvö ár undir Ershad og fór
í felur ásamt sex samstarfsmönnum
fljótlega eftir að forsetinn var settur
af í uppreisn.
Eignir sjö fyrrum ráðherra voru
gerðar upptækar eftir að þeir höfðu
virt að vettugi boð um að gefa sig
fram. Þrír hafa síðan gefið sig fram
við lögreglu. Þeir verða allir ákærðir
fyrir spillingu. Reuter
Sovéskir
kaþólikkar til
Póllands?
Stjórnvöld í Póllandi hafa boðist til
að aðstoða sovéska kaþólikka við að
komast til Póllands í júní svo að þeir
geti hitt Jóhannes Pál páfa þegar
hann heimsækir landið.
Páfinn, sem fæddur er í Póllandi,
ætlar að vera við útimessu í fimm
bæjum í Póllandi sem liggja nálægt
landamærum Sovétríkjanna.
Páfinn er nýkominn frá Portúgal
þar sem hann heimsótti borgina Fat-
ímu en sagan segir að þar hafi María
mey birst þremur stúlkum árið 1917.
Systir Lucia de Jesus dos Santos,
• sem nú er 84 ára gömul, var ein þess-
ara stúlkna og sú eina sem enn lifir.
Hún fór með páfa til staðarins þar
sem María mey birtist henni en Luc-
ia hefur enn engum sagt frá svoköll-
uðu þriðja leyndarmáh Fatímu sem
er síðasti spádómur Maríu meyjar
þennan örlagaríka dag.
Sá spádómur, sem er hvað mest
þekktur, er spáin um fall kommún-
ismanns. Reuter
„Innri markaður Evrópubanda-
lagsins, sem verða á að veruleika
1993, er það sem máli skiptir. Þess
vegna þarf Frakkland nýja stjóm
og forsætisráðherra sem getur tek-
ist á við verkefnið." Þetta sagði
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti í sjónvarpsræðu í gær-
kvöldi.
Ástæðuna til þess að hann bað
fyrrum forsætisráðherra landsins,
Michel Rocard, um að biðjast
lausnar og útnefndi í staðinn Edith
Cresson sagði Mitterrand vera þá
að Frakkland þyrfti að taka betur
á ýmsum málum. Aðeins öflugur
iðnaður gæti tryggt atvinnu og
varðveitt það sem hefði áunnist í
nýrri Evrópu. Stefnan væri sett á
1993. Frakkland yrði að búa sig
undir það sem þá gerðist. Frakk-
landsforseti kvaðst sannfærður um
að Edith Cresson væri best til þess
faliin að leiða Frakka inn í innri
markað Evrópubandalagsins.
Cresson hefur áður gegnt ráð-
Afsögn Michels Rocard kom ekki
á óvart. Hann hafði að undanförnu
sætt gagnrýni Mitterrands Frakk-
landsforseta. Talið er að Rocard
stefni nú að framboði í forseta-
kosningunum 1995.
herraembættum, meðal annars
embætti Evrópumálaráðherra
Edith Cresson, hinn nýi forsætis-
ráðherra Frakklands. Mitterrand
telur hana best fallna til að leiða
Frakka inn i innri markað Evrópu-
bandalagsins.
Simamyndir Reuter
Frakklands. Hún sagði af sér í fyrra
vegna deilna við stjórn Rocards um
stefnuna í Evrópumálum. Hún var
einnig óánægð með það sem hún
sagði vera ófullnægjandi hags-
munagæslu varðandi franskan út-
flutning.
Gert er ráð fyrir að Cresson
myndi stjórn þegar í dag. Sósíalist-
ar virðast vera ánægðir með valið
á nýja forsætisráðherranum og
kommúnistar búast við meiri
vinstri sveiflu. Stjórnarandstaðan
veltir því hins vegar fyrir sér hvort
Cresson verði Thatcher Frakk-
lands þó vinstri sinnuð sé. Eða
hvort hér sé komin ný frú
Pompadour en hún var ástkona
Lúðvíks fimmtánda.
Franskar kvenréttindakonur
fógnuðu ákaft í gær þegar ljóst var
hver tæki við af Mitterrand en frá
Japan bárust þær fregnir í morgun
aö þar væru menn taugaóstyrkir.
Japanir vita að Edith Cresson er
andvíg fjárfestingum Japana í Evr-
ópu.
Reuter, TT
MU
og meira ti I_
Ef þú hefur ekki þegar gert þér ferð í gjörbreytta
verslun okkar í Austurstræti er komínn tími á það.
Bjóðum mikla og góða þjónustu og leggjum
áherslu á :
- Tónlistarmyndbönd
- Sígildar kvikmyndir
- Plaköt
- Ýmsa fylgihluti
- Dagatöl
og eins og tíðkast í öllum músíkverslunum Steina
TOPP TÓNLIST Á BOTN VERÐI!
Ótrúlegt úrval -
ekki bara diskar
Kassettur frá kr. 490.-
Plötur frá kr. 490.-
Geisladiskar frá kr. 590.-
Vinsælt efni:
Rolling Stones - Flashpoint
Roaohford - Get Ready
Bob Dylan - Bootleg Series
Michael Bolton - Time. Love. Tenderness
Leikfélag MH - Rocky Horror
Ýmsir - Bandalög 3
Alison Moyet - Hoodoo
Doors - Best Of
Doors - Úr mynd
REM - Out Of Time
Enuff'z'Enuff - Strength
White Lion - Main Attraction
Rod Stewart - My Vagabond Heart
C3C Music Factory - Gonna Make You..
Bee Gees - High Civilization
Rembrants - Rembrants
(0 I Við bjóðum þeim sem kaupa hjá
&■ I A I okkur plötuna sem inniheldur
s tónlistina úr Doors myndinni á
þessa frábæru mynd sem enginn
|ö i i má missa af.
Þar sem músíkin fæst!
u s I K
*SðððWmðSSðð S.C:
hljómplötuverslanir
AUSTURSTRÆTI 22 s: 28319, RAUÐARARSTIGUR 16 s: 11620 ■ GLÆSIBÆR s: 33528 • LAUGAVEGUR 24
s: 18670 • STRANDGATA 37 s: 53762 • ÁLFABAKKA 14 MJÓDD s: 74848 • LAUGAVEGUR 91 s: 29290