Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Side 28
36 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991. Andlát Stefán Karlsson rafvirki, Víði- hvammi 14, Kópavogi, lést á heimili sínu 12. maí. Sveinn Steinsson frá Borgarfirði eystra, andaðist á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund miðvikudaginn 15. maí. Halldór Sæmundsson bóndi, Stóra- Bóli, Hornafirði, andaðist í Land- spítalanum mánudaginn 13. maí. Þorbergur Gíslason, Bragagötu 29a, Reykjavík, andaðist í Landspítalan- um 14. maí. Jarðarfarir Guðni Sigurðsson, Háa-Rima, Þykkvabæ, verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 18. maí kl. 14. Útfór Magneu Danielsdóttur, Helga- magrastræti 38, Akureyri, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu þann 7. maí, fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 17. maí kl. 13.30. Sigurður Ágústsson frá Birtingaholti lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 12. maí sl. Útförin fer fram frá Hrepphóla- kirkju föstudaginn 17. maí kl. 14. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.30. Sigríður Þorgilsdóttir, Eskiholti 10, Garðabæ, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudag- inn 17. maí kl. 10.30. Útför Hilmars Árnasonar, Brekku við Vatnsenda, verður gerð frá Foss- vogskirkju föstudaginn 17. maí kl. 10.30. Guðfmna Lýðsdóttir verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju föstudag-' inn 17. maí kl. 16.30. Helgi Ingólfur Sigurgeirsson, Hóla- götu 39, Njarðvík, verður jarðsung- inn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstu- daginn 17. maí kl. 14. Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir Schram, Sörlaskjóli 1, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 17. maí kl. 13.30. Sigurður Óskar Sigurðsson, Háteigs- vegi 17, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkjuföstudaginn 17. maíkl. 15. Safnadarstarf Samtök um sorg og sorgarviðbrögð hafa opið hús í Breiðholtskirkju í Mjódd- inni í kvöld kl. 20.30. Laugarneskirkja Kyrrðarstund í hádeg- inu í dag. Orgelleikur, fyrirbænir, altaris- ganga. Léttur hádegisverður eftir stund- ina. Tilkyimingar Nýr útibússtjóri Búnaðar- bankans í Stykkishólmi *- Bankaráð Búnaðarbanka íslands ákvað á fundi sínum 7. maí sl. að ráða Kiartan JAPAN VIDEOTÖKUVÉLAR 3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MED ALLRA BESTU MYNDGÆÐUM. - 3 LUX ÞÝÐA ALLRA BESTU UÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM A MARK- AÐNUM f DAG. MÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ TALA UM UNSUOPSTÆRÐ, HELDUR VERÐUR UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. - MACRO LINSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR FOCUS - MYNDLF.ITUN [ BÁÐAR ATTIR - SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING - VINDHUÓÐNEMI - FADER - RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLl- STÝKKI o.H. - VEGUR AÐEINS I.I KG. SÉRTILBQÐ KR. 69.950,- stgr. Rétt verð KR. 90.400,- stgr. 32 Afborgunarskilmálar Qg] VÖNDUÐ VERSLUN HUPÓMCO FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 I Pál Einarsson útibússtjóra við útibú bankans í Stykkishólmi. Hann útskrifað- ist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands 1983 og hefur starfað í Búnaðar- bankanum síðan. Kjartan hefur veriö deildarstjóri í ábyrgðardeild erlendra viðskipta frá uppháfi. Hann hefur starfað mikið að féiagsmálum bankamanna og er nú forstöðumaður Eftirlaunasjóðs starfsmanna Búnaðarbanka íslands. Auk þess hefur hann starfað að íþróttamálum, m.a. sem formaður Blaksambands ís- lands sl. 5 ár. Kjartan Páll er fæddur 16. apríl 1956 í Þórisholti í Mýrdal. Sambýlis- kona hans er Dagný Þórisdóttir og eiga þau eina dóttur. Inferno 5 og Reptilicus áTveim vinum Fimmtudaginn 16. maí heföi heilagur Henry Ford orðið 128 ára heföi hann lif- að. í tiiefni þess gengst listmiðlun Inferno 5 fyrir hátíðardagskrá í orðum, hljóðum og myndum. Dagskráin fer fram á veit- ingahúsinu Tveim vinum við Frakkastíg. Þeir sem koma fram eru hljómsveitin Inferno 5 sem leika mun eigin danstón- list og kynna þrjú spiunkuný lög, hljóm- sveitin Reptiiicus sem er sögð flytja „in- dustriar-tónlist og munu þeir félagar leika eitt nýtt verk. Síðan eru það skáldin Sjón og Þorri sem lesa munu upp úr verk- um sínum. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 22 og er aðgangseyrir kr. 500. Hjónaband Gsfin hafa verið saman í hjónaband í Háteigskirkju af sr. Tómasi Sveinssyni Anna B. Ingadóttir og Páll B. Guðna- son. Heimili þeirra er að Gyðufelli 6, Reykjavík. Ljósm. Nýja Myndastofan, Laugavegi 18, Reykjavík. Prénatal-verslun opnuð Nýlega var undirritaður í París samning- ur milli Prénatal-hlutafélagsins og Hildar Pálsdóttur um að Hildur gerist einkaum- boðsmaður Prénatal á Islandi og opni verslun undir nafninu Prénatal að Vita- stíg 12, Reykjavík. Verslunin verður opn- uð fimmtudaginn 16. maí. Christina Bou- rette frá Prénatal í Frakklandi verður til aðstoðar og ráðgjafar í versluninni dag- ana 24. og 25. maí nk. Prénatal-verslun- arkeðjan hefur frá árinu 1947 starfrækt verslunarkeðju á sviði ýmiss konar barnavarnings fyrir verðandi mæður og börn að átta ára aldri, auk allra fylgi- hluta fyrir börn. Prénatal er eitt þekkt- asta og virtasta fyrirtækið á sínu sviði, enda eru um 600 verslanir í Evrópu und- ir merki Prénatal. ísland verður fyrst af Norðurlöndunum til að opna verslun undir nafni Prénatal. Kvenfélag Kópavogs Gestafundur í Félagsheimilinu fimmtu- daginn 16. maí kl. 20.30. Dagskrá: tísku- sýning, danssýning, happdrætti og kaffi- veitingar. Allar konur í Kópavogi vel- komnar. Vetrarstarf leikskólans Hálsaborgar Vetrarstarfl leikskólans Hálsaborgar við Hálsasel í Seljahverfi lýkur í dag, 16. maí. í leikskólanum eru 90 börn á aidrin- um 1-6 ára. Á því leikskólaári, sem nú er að ljúka, hefur uppeldisstarfið með elstu bömunum aö mestu leyti verið tengt umhverfismennt, m.a. mengun, umhirðu og umgengni við gróður. Af því tilefni mun garðyrkjustjóri Reykjavíkur- borgar alhenda börnunum landsvæði í Seljabotnum til uppgræðslu (neðan við Seljakirkju) í dag, 16. maí. Dagskráin hófst við gróðurreitinn kl. 10.30 í morgun með lúðrablæstri og gróðursetningu. Félag eldri borgara Dansleikur í Risinu í kvöld kl. 20.30. Göngu-Hrólfar verða meö myndakvöld nk. laugardag, kl. 20. Hallgrímskirkja - starf aldr- aðra Miðvikudaginn 29. maí verður farið í Þjóðleikhúsiö aö sjá söngleikinn Söngva- seið. Nokkrir miðar eru eftir hjá Dóm- hildi Jónsdóttur í síma 39965 á kvöldin. Félag eldri borgara í Kópavogi Tombóla Nýlega héldu þessar stúlkur tombólu til styrktar Rauða krossi isiands. Þær heita Þóra Kristín, Árný, Hildigunnur, Ólöf og Ýr. Þær söfnuðu 1.145 krónum. Spilakvöld veröur að Auðbrekku 25 föstudaginn 17. maí og hefst kl. 20.30. Dansað á eftir aö venju. Jón Ingi og félag- ar sjá um fjörið. Aðgangur kr. 450. Allir velkomnir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Þorgilsdóttir, Eskiholti 10, Garðabæ, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i Reykjavík föstudaginn 17. maíkl. 10.30f.h. Agúst Kristmanns Dóra Kristmanns Nína Kristmanns Þorgils Kristmanns Jónina Guðlaugsdóttir James Potash JimmieL. Johns Anne Kristmanns barnabörn og barnabarnabörn Myndgáta dv Málningarþjónusta Reykjavíkur hf. Þann 8. apríl 1991 var hlutafélag stofnað um almenna viðhaldsþjónustu með að- aláherslu á almennri málningarþjón- ustu. Félagiö fékk nafnið Málningar- þjónusta Reykjavíkur hf. í stjórn félag- lagsins eru Arnar Óskarsson málara- meistari, Jón Björnsson málarameistari og Samúel Kárason málari. Málningar- þjónustan tekur aö sér smæm sem stærri verk og gerir tilboö í verk. Áhersla er lögð á utanhússmálun yfir sumartím- ann. Málningarþjónustan býöur upp á sandspörslun og ýmis gólfefni, auk við- haldsþjónustu. Eitt af þvi sem fyrirtækið leggur áherslu á er aö byggja upp þjón- ustu við húsfélög og fyrirtæki. Fyrirtæk- iö er með múrara, smiði, pípulagninga- menn og rafvirkja á sínum snærum svo öll viðhaldsþjónusta er á einni hendi sem er hagræðing_ fyrir viöskiptavininn. Ferðafélag íslands Fimmtudagskvöld 16. maí, kl. 20: Fuglaskoðun og sólarlagsganga á Álftanesi. Létt og ljúf kvöldferð um strönd Álfta- ness. Þeir sem huga að fuglum fara hæg- ar yfir (rútan fylgir hópnum) en hinir lalla um ströndina. Leiðbeinandi í fugla- skoðun verður með. Tilvalið að bjrja í Ferðafélagsferöum með þessari göngu. Brottför frá BSÍ austanmegin. (Stansað á Kópavogshálsi og við Engidal.) Ferðalög Hvítasunnuferðir Ferðafélagsins Um hvítasunnu býður Ferðafélagið upp á lengri og styttri ferðir. Fyrst ber að geta ferðar á Snæfellsnes. í þeirri ferð verður gengiö á Snæfellsjökul og er áætl- að að breyta út af vananum og koma nið- ur af jöklinum hjá Bárðarkistu, en gang- an hefst austan við Stapafellið. Nýjung í þessari ferð verður gönguferð frá Önd- verðarnesi í Beruvík. Á þessarri leið er margt að skoða. Gisting veröur í gisti- heimilinu að Langholti í Staðarsveit. Stutt í sundlaug á Lýsuhóli. Þá verður ferð á Öræfajökul (Hvannadalshnúk), Örugg fararstjórn og kennt verður að nota brodda og ísaxir. Spennandi leið upp virkisjökul. Einnig er boðið upp á göngu- og ökuferð um Öræfasveit. Ný göngubrú á Morsá gerir kleift að ganga í Bæjar- staðaskóg og líta inn í Kjós sem er eitt litríkasta svæðið á þessum slóðum. Ekið verður að Jökulsárlóni. Gist í svefnpoka- plássi á Hofi eða tjöldum. Ferð til Þórs- merkur er einnig í boði. Þar verður gist í Skagfjörðsskála, eins besta gisting í óbyggðum sem völ er á. Hægt er að velja um að fara föstudagskvöld 17. maí eða laugardagsmorgun kl. 0818. maí. Göngu- ferðir við allra hæfi og óvíöa er hægt að njóta útiveru á auðveldari hátt en í Þórs- mörk. Útivistarferðir um hvítasunnu 17.-20. maí Básar - Goðaland. Skipulagðar veröa gönguferðir viö allra hæfi, jafnt fjallageit- ur og þá sem eru að byrja í gönguferðum. M.a. verður gengið í Hamraskóga og að sjálfsögðu á Utigönguhöfða. Gist íÚtivist- arskálunum í Básum. Boðið verður upp á kvöldvökur, kveiktur varðeldur og á laugardagskvöld verður stiginn dans á pallinum. Fararstjóri verður Björn Finnsson. Skaftafell - Öræfasveit. Farið að Jökuls- árlóni og í Múlagljúfur, gengið í Morsár- dal og Bæjarstaðaskóg. Einnig verður boðið upp á gönguferðir um þjóðgarðinn. Gist að Hofgörðum. Fararstjóri Egill Pét- ursson. Öræfajökull Hvannadalshnúkur Gengin verður Sandfellsleið á jökulinn sem er einna greiðfærasta leiðin. Ekkert klifur, enginn sérstakur útbúnaður nauðsynlegur, aðeins góðir gönguskór og hlý föt. Gist að Hofgörðum. Fararstjóri Reynir Sigurðsson. Námskeið Látið draumana hjálpa ykkur Bandaríski sálfræðíngurinn Sarah Biondani heldur námskeið um þaö livernig hægt er að muna drauma og skilja merkingu þeirra, láta þá m.a. hjálpa til í daglegu lífi, auka innsæi og framtíðarsýn og leysa vandamálin. Nám- skeiöið hefst 23.. maí og eru aðeins 9 manns í hópi. Upplýsingar í símum 13076 Og 612127. Tórúeikar Hljómsveit Eddu Borg í Berlín í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 22, mun Hljómsveit Eddu Borg leika og skemmta á veitingastaðnum Berlín. í hljómsveit Eddu Borg eru margir landskunnir tón- listarmenn. Þeir eru Þórir Baidursson, píanó, Bjarni Sveinbj., bassi, Friðrik Karlsson, gítar, Gulli Briem, trommur, og Edda Borg syngur á einstakan hátt lög sem mörg hver hafa aðeins orðið fræg í ílutningi karlmanna. Boðið verður upp á djass, blús og rokkblöndu í Berlín í kvöld. Fyrirlestrar Skordýrarannsóknir í fornleifafræði Breski fornvistfræðingurinn dr. Paul C. Buckland heldur fyrirlestur í dag, 16. maí, kl. 17.15, í Þjóðminjasafni íslands um notkun og niðurstöður skordýra- rannsókna í fornleifafræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.