Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Síða 32
T A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem þirtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Þýðingarmiklar
álviðræðurhafn-
ar í Sviss
í dag hefjast þýðingarmestu við-
ræður til þessa um byggingu álvers
á Keilisnesi. Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra sagði i samtali við DV í gær
að nú væri komið aö þeim punkti að
menn yrðu að gera það upp við sig
hvort þeir vildu eöa vildu ekki byggja
álver á Keilisnesi.
Jóhannes Nordal, formaður álvið-
ræðunefndar íslands, og Halldór
Kristinsson frá iðnaðarráðuneytinu
taka þátt í viðræðunum en þær snú-
ast um fjármögnunarþáttinn og
ábyrgðir honum tengdar. Þá er
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, einnig í Sviss. Hans
hlutverk er raforkuverðið.
Menn eru allt annað en bjartsýnir
á að samningar um byggingu álvers
takist. Forsætisráðherra, Davíð
Oddsson, tekur undir með forstjóra
Alumax um að ekki séu nema helm-
ingslíkur á að svo sé. Iðnaðarráð-
herra segir mikla erfiðleika hafa ver-
ið við að glíma í álmálinu í allan
vetur. -S.dór
Utanríkismálanefnd:
Eyjólfur Konráð
verðurformaður
Eyjólfur Konráð Jónsson verður
formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis sem kjörin verður í dag. Hann
sigraði Björn Bjarnason í kjöri innan
þingflokks Sjálfstæðisflokksins um
það hvor þeirra yrði formaður nefnd-
arinnar. Eyjólfur hlaut 15 atkvæði
en Björn 11.
Davíð Oddsson lagði mikla áherslu
á að Björn yrði kjörinn en meirihluti
þingflokksins var á öðru máli. Eyjólf-
ur hefur á annan áratug verið for-
maður eða varaformaður utanríkis-
málanefndar þegar Sjálfstæöisflokk-
urinn hefur átt aðild að ríkisstjórn.
-S.dór
Uppsögn
Guðjóns kærð
Ríkissaksóknara hefur borist kæra
vegna uppsagnar Guðjóns Andrés-
sonar sem forstöðumanns Bifreiða-
prófa ríkisins. Jón Oddsson, lögmað-
ur Guðjóns, fer fram á opinbera
rannsókn á málinu og áskilur sér
rétt, fyrir hönd skjólstæðings síns,
að leggja fram skaðabótakröfur. í
erindi Jóns er því haldið fram að
Guðjón hafi orðið fyrir ærumeiðandi
aðdróttunum og röngum sakargift-
um í kjölfar brottvikningarinnar.
Jón kærir tilgreinda embættismenn
og krefst þess að þeir verði látnir
sæta refsingum lögum samkvæmt.
Hernaðarlegt mikilvægi
kann að ráða úrslitum
- í lokasamningum um evrópska efnahagssvæðið
Jón Baldvin Hannibalsson utan- Atlantshafsbandalagsins,“ sagði vík. hver verði þróun mála í Sovétríkj-
ríkisráðherra segir að hann telji að Jón Baldvin við DV í morgun. „Hann lagði á það áherslu aö þrjú unum. Verður hún jákvæð cða fer
hernaöarlegt mikilvægi íslands „Nú eru miklar breytingar fram- evrópsk ríki væru út frá sjónar- þar allt á verri veg og hversu lengi
fyrir Evrópu kunni að ráða úrslit- undan á þessum áratug. Það sem miðum þeirra eftirsóknarverð í muni Bandaríkjamemi hafa þolin-
um um að Evrópubandalagið veití er að gerast er fyrst og fremst mik- samstarfínu í Vestur-Evrópu- mæði og fjármuni til aö halda úti
okkur tollaívilnanir á sjávarafurð- il styrking evrópska þáttarins í því bandalaginu; Tyrkland, Noregur vamarliði í Evrópu."
um í Evrópu á lokaspretti samn- öryggissamstarfi. Það gerist utan og ísland. Hugsunin er auðvitað að - Hvaðalikurtelurþúáþvínúna
ingaviðræðnanna um evrópskt um svokallað Western European suður og noröur vængurinn verði að ísland verði ekki með í evrópska
efnahagssvæði. Union, Vestur-Evrópubandalagið einnig innan Vestur-Evrópubanda- samstarfinu, detti út á lokasprett-
„Að sjálfsögöu hefur þetta ekki sem er að verða Evrópubandalags- lagsins.“ inum vegna flsksins?
komið fram við samningaborðið stofnun í varnar- og öryggismál- Þá segir Jón að hann hafi orðið „Égtelnúlikumaráþviaöísland
enda Uggur það ekki þar á borðum um.“ þess varíviðræðumviðþjóðarleið- verði aöili að evrópska efnhags-
manna sem neitt skilgreinanlegt Jón segir aö einn maður hafi toga sem ekki hafi komið að þessu svæði meiri heldm- en minni en
mál. Ég hef hins vegar lýst þessu raunar hreyft þessu sjónarmiði og samningaborði i Brussel að hugsmr neita því ekki að ég byggi það meira
mati minu áður og styðst þar við reifað það við sig, Giamn De Mic- þeirrasnúistekkifisk.matvælieða á pólitískum viðhorfum heldur en
samstarf Evrópubandalagsríkja, helis, utanríkisráðherra ítalíu, í tolla. bjartsýniásamningsstöðunaísjáv-
Bandaríkjanna og Kanada innan tvíhliða viðræðum þeirra í Reykja- „Hugsun þeirra snýst meira um arútvegsmálum.“ -JGH
Eiður flutti landgræðsluræðuna
Þeir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra og Eiður Guðnason umhverfisráðherra mættu báðir á blaðamannafund
I húsakynnum ÁTVR i gær þar sem bandariska fyrirtækið Anhauser-Busch, sem framleiðir meðal annars Bud-
weiser, gaf Landgræðslunni fyrsta hlutann af 9 milljóna króna gjöf til landgræðslumála á íslandi. Halldór tók ekki
til máls en Eiður flutti þakkarávarp. Spurningin er samt ennþá sú hvort landgræðslumál heyra undir Halldór eða
Eið. Best hefði auðvitað verið að þeir Eiður og Halldór hefðu báðir talað samtímis i gær og þakkað fyrir gjöfina.
DV-mynd Brynjar Gauti
Engin ákvörðun
um eftirmann
Daviðs
„Það hefði verið æskilegast að
leysa þetta mál á fundinum. Mönn-
um fannst hins vegar að þeir væru
þrúgaðir af tímaleysi og þeirri hörku
sem óneitanlega var komin í slaginn
um borgarstjórastólinn. Við trúum
því að vinda lægi þegar menn fara
að tala betur saman,“ segir Magnús
L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar.
Engin ákvörðun var tekin um eftir-
mann Davíðs Oddssonar sem borgar-
stjóra á fundi borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokks í gær. Ákveðið var,
án andmæla, að fresta slíkri ákvörð-
un um nokkurra vikna skeið eða þar
til Davíð Oddsson hefur tekið út or-
lofsdaga sína. Því mun Jón G. Tóm-
asson borgarritari, sem jafnframt
gegnir stöðu aðstoðarborgarstjóra,
leysa Davíð af út júnímánuð. Engar
formlegar tillögur voru bornar upp
á fundinum né atkvæði greidd.
Eftir fundinn í gær sagði Davíð
Oddsson að tímaleysi og ónóg um-
ræöa væru helsta ástæðan fyrir því
að fresta þessari ákvörðun. Þeir
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks,
sem DV hefur rætt við eftir fundinn,
virðast mjög sáttir við þessa niður-
stöðu.
Ljóst er að undir niðri kraumar
ágreiningurinn meðal borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. Flestir virðast
þeir á þeirri skoðun að verið sé að
frestaóþægileguvandamáli. -kaa
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
LOKI
Heiðursmenn sem hvergi slóra
handsala í nýjum stíl.
Út um land mun elta Dóra
Eiður á sínum gamla bíl.
Veðrið á morgun:
Vætusamt
vestanlands
Á morgun veröur suðvestanátt,
gola eöa kaldi, skúrir um vestan-
vert landið en víða léttskýjaö
austantil. Fremur svalt verður í
veðri, hitinn 3-8 stig, heitast á
Austurlandi.