Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991.
9
Utlönd
Jo van der Valk, yfirmaður eftirlitssveita Evrópubandalagsins í Júgóslavíu, ræddi við Lojze Peterle, forsætisráð-
herra Slóveníu, í gær. Símamynd Reuter
__ Júgóslavía:
Friðarvonir
f ara dvínandi
Vonir manna um að koma í veg
fyrir borgarastyrjöld í Júgóslavíu
dvínuðu enn frekar í gær eftir að
tveir króatískir lögregluþjónar til
viðbótar voru drepnir í hörðum árás-
um serbneskra þjóðernissinna og til-
raunir til að halda friðarviðræður
fóru út um þúfur.
Þungvopnaðar sveitir Serba réðust
á fjórar lögreglustöðvar í Króatíu
með sprengjuvörpum, vélbyssum og
rifílum í gær og er það þriðji dagur-
inn í röð sem bardagar brjótast út.
Einn liðsmaöur króatíska þjóðvarð-
liðsins og einn óbreyttur lögreglu-
þjónn voru drepnir og níu aðrir
særðust. Franskur fréttamaður var
skotinn í kjálkann og fluttur á
sjúkrahús eftir að ókunnir menn
hófu skothríð á bifreið hans.
Leiðtogar Júgóslavíu hættu við
fund um neyðarástandið á eyjunni
Brioni þegar aðeins þrjú af lýðveld-
unum sex sendu fulltrúa til fundar-
ins og hinir héldu annan fund í
Belgrad, höfuðborg landsins og Serb-
íu.
„Fundurinn fer ekki fram hér,“
sagði Vasil Tupurkovski, sem sæti á
í forsætisráði landsins eftir að hann
hafði flogið til Brioni til að reyna að
sannfæra lýðveldin Slóveníu og
Króatíu, sem lýstu yfir sjálfstæði
sínu í júní, til að samþykkja tillögu
Serbíu um að hittast annars staðar.
Tupurkovski mistókst ætlunar-
verk sitt og Stipe Mesic, forseti Júgó-
slavíu, svaraði með því að boða til
annars fundar á Brioni í dag.
Friðareftirlitsmenn Evrópubanda-
lagsins í Júgóslavíu sögðu í gær að
þeir mundu fylgjast með því að sam-
bandsherinn sneri aftur til búða
sinna í Króatíu. Þeir höfðu áður sagt
að þeir mundu ekki starfa í lýðveld-
inu. Eftirlitsmennirnir munu þó
forðast verstu átakasvæðin. Ekki er
ljóst hvernig þeir geti með því móti
fylgst með því að herinn fari aftur
til síns heima. Evrópubandalagið
hefur einnig gert það ljóst að eftirlits-
mennimir muni hverfa á braut verði
Júgóslavar ekki samvinnuþýðir.
Vopnahléö hefur verið virt í Slóv-
eníu en yfirvöld í Zagreb, höfuðborg
Króatíu, segja að herinn brjóti sam-
komulagið með því að neita að hverfa
aftur í búöir sínar. Þau saka herinn
um að hjálpa serbneskum skæruhö-
um við að hertaka lýðveldið smám
saman. Branko Salaj, ráðgjafiforseta
Króatíu, sagði að án hersins yrðu
Króatar ekki í vandræðum með að
fást við hryðjuverkamenn.
Evrópubandalagið er með tuttugu
eftirlitsmenn í Júgóslavíu og á
fimmtudag bætast við þrjátíu til við-
bótar.
Reuter
Enginn her til varnar Kúveit
Kúveit og þau sjö arabalönd sem
studdu landið í Persaflóastríðinu
mistókst í gær að mynda sameigin-
legan herafla til að vernda fursta-
dæmið fyrir nágranna sínum í
norðri, írak.
Utanríkisráðherrar landanna
sögðu í gær eftir tveggja daga fund
sinn að enginn sameiginlegur her
yrði sendur frá þeim til Kúveit eða
Persaflóasvæðisins. Einstök lönd
gætu í staðinn leitað eftir hjálp frá
bandamönnum sínum á hættutím-
um.
í mars höfðu arabalöndin ákveðið
að koma á fót, í varnarskyni, sameig-
inlegum herafla 26 þúsund her-
manna frá löndum Arabíuskagans
auk liðsauka frá Egyptalandi og Sýr-
landi.
Deilur risu hins-vegar strax um
stærð, útbúnað og kostnað þessa her-
afla sem taka átti við hlutverki hins
vestræna hers. Áætlað er að síðustu
bresku og bandarísku hermennirnir
fari burtu af svæðinu í lok ágúst.
„Það er ekki nauðsynlegt að hafa
her stöðugt á svæðinu. Liðsafli verð-
ur einfaldlega sendur þegar á honum
er þörf. Við erum ánægðir með aö
hafa komist að þessari lokaniður-
stöðu um öryggismál þessa svæðis,“
sagði utanríkisráðherra Sýrlands,
Faouk al-Shara.
Reuter
Norskur eftirlaunaþegi, Sigrid Sandvold, náði taki á þjófi sem var 50
árum yngrí en hún sjálf og gerði sér htiö fyrir og fór meö hann í lest th
lögreglunnar.
„Ég er vön að bjarga mér sjálf þegar eitthvað þarf að gera og sit því
ekki og bíð eftir hjálp,“ sagði hin 76 ára gamla Sigrid. Hún notar staf til
að ganga við en veigraði sér ekki við því að grípa 26 ára gamla konu sem
hún sá vera aö brjótast inn í hús nágrannans um síðustu helgi.
Þjófurinn hljóp tvisvar í burtu frá Sigrid og faldi sig en sú gamla fann
hann alltaf og hélt áfram ferð sinni á lögreglustöðina. í þriðja skiptið
stökk þjófurinn inn í leigubíl en Sigrid náði að stökkva á eftir og skipaði
leigubílsstjóranum að keyra beinustu leið til löggunnar.
í beinni útsendingu
Slagsmál brutusl út í sjónvarpsþætti i Ástraliu þegar verlð var að ræða
hvort landið ætti að gerast lýðveldi. Símamynd Reuter
Slagsmál brutust út mihi gesta í sjónvarpsþætti í beinni útsendingu i
Ástralíu í gær. Gestir þáttarins fjölluöu um spuminguna hvort Ástralía
ætti að verða lýðveldi þar sem æðsti maður ríkisins er þjóðkjörinn eða
halda núverandi stjórnarfyrirkomulagi sem er lýðræðisleg þingstjóm þar
sem æðsti maður ríkisins er Elisabet Bretlandsdrottning.
Leikaranum og poppsöngvaranum Normie Rowe, sem studdi tengsl
Ástrahu við breska konungsveldið, lenti saman víð útvarpsmanninn Ron
Casey sem taldi að Ástralía ætti að verða lýðveldi. Mennirnir tveir urðu
mjög æstir í skoðanaskiptum sínum og stóðu upp úr stólunum. Rowe
kahaði Casey rottu og hrinti honum við svo búiö ofan í stólinn sinn.
Casey tók þessu iha og gaf Rowe kjaftshögg. Reuter
TILBOÐSDAGAR
hefjast á morgun
fimmtudag 18. júlí
30-50% afsláttur
af öllum vörum í búðinni.
Lokað í dag, miðvikudag.
Opið laugard. kl. ÍO00 - 1600
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
X & z
BARNAFATAVERSLUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6B, SÍMI 621682
Opnum sumarmarkaö í Kringlunni 3. hæó
Mikið úrval af hljómplötum,
geisladiskum og kassettum
á ótrúlegu verði
Verð frá kr. 99,-
Nótur fyrir öll hljóðfæri
á stórlækkuðu verði
Kassettutöskur
Verð frá kr. 599,-
Geymsla fyrir 24 CD
Verð kr. 499,-
Hljóðfæri og fylgihlutir,
t.d. hljómborð, gítarar,
skinn o.fl.
Selt með miklum afslætti.
S-K-l-F-A-N
[•lílsíc
R EYKJAVI KUR