Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991.
U
Sviðsljós
S. Gualano, til vinstri, ásamt Ólafi Tómassyni, póst- og simamálastjóra við
nýju tækin.
Nýr búnaður hjá
Pósti og síma
Póstur og sími hefur komið sér upp
búnaði í símstööinni í Múla sem
skiptir sjálfkrafa yfir á varaleiðir ef
bilun verður einhvers staðar á flutn-
ingsleiðum símans í miðbænum.
Nýju tækin eru frá ítalska framleið-
andanum Marconi. Á næstunni verð-
ur settur upp sams konar búnaður á
fleiri stöðum í Reykjavík og ná-
grenni.
Með uppsetningu á þessum tækjum
er reynt að koma í veg fyrir að trufl-
anir verði á símaumferð þótt bilun
verði á einhverjum einum stað í
símakerfinu. Sífellt er unnið að því
að kom á varaleiðum fyrir símann.
Nýi búnaðurinn skiptir sjálfkrafa
yfir á varaleiðir ef nauðsyn krefur
og tekur skiptingin ekki nema tvær
til þrjár sekúndur. Tækin í Múla
geta flutt átta þúsund símtöl yfir á
aðrar leiðir og ætti það að duga und-
ir öllum venjulegum kringumstæð-
um.
Aðalframkvæmdastjóri Marconi fyr-
irtækisins á Ítalíu, S. Gualano, kom
hingað til lands til að vera viðstaddur
þegar búnaöurinn var formlega tek-
inn í notkun.
Ungir sem aldnir hafa mikinn áhuga á að skoða RC-skutluna og á Seyðis-
firði mynduðu börnin langar biðraðir til þess að fá að setjast undir stýri á
farartækinu.
RC á feröinni
Undanfarnar vikur hafa starfs-
menn frá Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar verið á ferð um landið og geng-
ur ferðin undir yfirskriftinni „RC á
ferðinni". Þegar hafa tuttugu og þrír
bæir og kaupstaðir verið heimsóttir
á Austur- og Norðurlandi og á næstu
tveimur vikum munu fimmtán þétt-
býlisstaðir til viðbótar verða heim-
sóttir á Vestfjörðum og Vesturlandi.
Hvarvetna sem RC hefur verið á
ferð hefur safnast saman mikill
mannfjöldi og hefur ríkt almenn
ánægja með þetta uppátæki starfs-
manna Ölgerðarinnar, einkum með-
al yngri kynslóðarinnar. Á flestum
stöðum hefur RC-risadós verið blásin
upp, torfærubíll og rallbíll hafa veriö
til sýnis, farið hefur verið í leiki með
börnin og fólki gefinn kostur á að
bragöa á RC.
A Egilsstöðum þyrptist fólk að þegar gefiö var gos í hitanum
Áslaug Friðriksdóttir,
fyrrverandi skólastjóri
Ölduselsskóla, varð sjötug
13. júlí sl. Hún er einnig
vel þekkt fyrir störf sín á
vegum skátahreyfingar-
ínnar á íslandi og var
meðal annars formaður
Skátasambands Reykja-
víkur í nokkur ár.
Hún og maður hennar,
Sophus Auðunn Guð-
mundsson, buðu til veislu
á heimih sínu í tilefni af-
mæhsins. Fjöldi gesta,
fjölskylda, vinir og ætt-
ingjar, sóttu þau heim á
þessum merkisdegi og
voru fluttar ræður og
heillaóskir th heiðurs af-
mælisbaminu.
Afmælisbarnið ásamt manni sinum og sonum. Frá vinstri, Friðrik Sophusson, Sophus
Guðmundsson, afmælisbarnið Áslaug og Guðmundur Sophusson.
Friðrik Sophusson og eiginkona hans, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, ræða hér við foreldra hennar, Sigriði Júliusdótt-
ur, sem stendur við hlið dóttur sinnar, og Kristmund E. Jóns-
son.
Þrjár af bestu vinkonum Áslaugar og samherjar
i skátahreyfingunni. Frá vinstri, Borghildur Fen-
ger, Auður Garðarsdóttir og Sigurveig Mýrdal.
DV-myndir S
Fjöldi bílasala, bíla-
umboða og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval
bíla af ölluni geröum og
í öllum veróflokkum með
góðum árangri í DV-BÍLAR
á laugardögum.
Athugið að auglýsingar í
DV-BÍLAR þurfa að berast
í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er
hins vegar opin alla daga
frá kl. 09.001iI 22.00 nema
laugardaga frá kl. 09.00 ti I
14.00 og sunnudaga frá
kl. 18.00til 22.00.
Smáauglýsing í
HELGARBLAÐ verður að
berast fyrir kl. 17.00
á föstudögum.
Auglýsingadeild