Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1991. 13 Merming Hugleiðingaljóð Þessi litla bók er aö hálfu leyti ljóð, tuttugu talsins, þriðjimgur þeirra er þýðingar á ljóðum sænsk-finnsku skáldkonunnar Ed- ith Södergran og Portúgalans Pessoa. Auk þess eru fimm stuttar greinar um skáld, aðallega rúss- nesk. Þetta eru einkum ferðapistlar höfundar, og síst merkilegri en sambærilegar greinar í dagblöðum. Ekki mynda þeir heldur neina heild þótt víða sé í þeim vikið að því hvernig stjórnvöld ofsæki skáld. Þetta er bara upptalning á ýmsu sem fyrir augu ber og í hug- ann kemur á ferðalagi. Þessir pistl- ar eiga ekki erindi í bók, til þess er þeir of veikir og óunnir. En hið sama verður því miður hka að segja um ljóðin. Þar ber mest á af- strakt hugleiðingum, oft á hátíð- legu orðalagi, en að sama skapi ht- ið um skáldlegar myndir. Lítum á dæmi: Brú yfir Nevu Sú löngun er ein og á sér iðandi flöt að vini, afmörkun, andvarans ónumda þey, borg, á, bakka, hin stöku tré, ótal myndir sem streyma í eina átt og eru eitt meðal ljósa, skimandi skugga. Sérhver heimur er verðug hugmynd heil og ný, sem birtist, nálgast, snarráð speglun er rýfur ákvarðaða einingu forms... haldin, heft, bundin hvörfum og leitar í sífehu enduróms, lifir lit sinn, visnar og hverfur. Mælandi ljóðsins stendur væntanlega á brúnni og horfir í iðandi vatns- flötinn. Hann talar um ótal myndir, sem þar speglast, en í rauninni sjáum við enga þeirra. í staðinn er sagt frá hverfulleika þeirra. Ætla má að þær tákni hugmyndir og heildarkerfi þeirra, „reynsluheim". En þessi hugleið- ing er ekki sett fram á annan hátt en í ritgerð, fyrir utan hnuskiptingu. Sjálft orðalagið er upphafið ritmál, líkt og í ritgerðum. Jafnvel þegar höfundur stöðvast við einstakt atvik er einnig það í formi hugleiðingar. í rauninni birtist umrætt atvik okkur ekki, við skynjum ekki „heim“ konunnar né barnsins, heldur fáum bara afstrakt hugsanir höfundar um atvikið. Útkoman verður heldur loftkennd og fátækleg. Nýrtenór Hvert sæti var skipað og rúmlega það, þegar ungur tenór að nafni Kolbeinn'J. Ketilsson og Jónas Ingi- mundarson píanóleikari efndu til ljóðasöngstónleika í Norræna húsinu mánudaginn 14. júlí sl. Eflaust hefur útbreidd forvitni um „nýjar raddir" ásamt óvefengjan- legum vinsældum ljóðasöngsins (ekki sízt þegar ást- kæru ylhýru íslenzku lögin eru meðal viöfangsefna) ráðið einhveiju um þessa góðu aðsókn. Nú, og svo svíkur Jónas auðvitað engan; hann er tvímælalaust meðal fremstu píanista landsins í dag. Efnisskráin var fjölbreytt (að því undanskildu, að engin módemísk 20. aldar verk voru til staðar) og að því leyti vel saman sett, að flest var ekki aðeins þekkt og vinsæl verk, heldur einnig góð músík, er spannaði þrjár aldir, frá Ahessandro Scarlatti til Jóns Þórarins- sonar. Segja má, að Kolbeinn hafi sungið sig upp frá byrjun til enda, frá dáhtið óstyrkri raddbeitingu upp í hetju- tenór. Hann stundar framhaldsnám í Vínarborg, og voru þetta fyrstu opinberu tónleikar hans hér á landi. Það var því ekki nema eðlilegt, hvað maður varð stundum var við svolitla ófestu í intónasjón og radd- beitingu hér og þar og eiginlega merkilega htið miðað við ekki lengri reynslu. Ljóst er, að hér er góður efni- viður á ferð, sem á væntanlega eftir að jafnast og styrkjast, ef Kolbeinn heldur utan um framhaldið eins og um þessa tónleika: með stöðugri, markvissri upp- byggingu, þar sem ekki er tekizt á við neitt umfram getu hvers stigs. Eitt sérkenni viö rödd Kolbeins sló mann strax, og það var hiö öra, smágerða víbrató. Ógerlegt er að spá um, hvert það muni þróast. Vonandi verður það hæg- ara og fjölbreyttara; í versta falh gæti það orðið að eins konar hneggjandi jarmi. Sem betur fer virtist söngvarinn þegar hafa nokkurt vald á þessu htaorgeli raddbandanna, því að merkja mátti nokkra viðleitni til að breyta um stærð þess og jafnvel hraða. Bezt er náttúrlega, ef súbstansinn bak við víbratóið reynist það góður, að röddin njóti sín í hvers konar umbúð- um, frá misterioso upp í agitato. Um það vita söng- kennarar betur en undirritaður, en allt lofar þetta góðu. Ekki var annað að heyra, en að þéttsetinn salurinn kynni vel að meta þessa „nýju rödd“, því að undirtekt- ir mótuðust af ákefð og örlæti, og jukust enn meir, er á leið. Textaframburður Kolbeins var áberandi beztur í ít- ölskunni og jafnvel skýrari en á móðurmáhnu, þýzkan var hins vegar frekar slöpp. Einstaka mjög háir tónar Kolbeinn Jón Ketilsson, tenór og Jónas Ingiumundar- son, píanóleikari. Tónlist Ríkarður Ö. Pálsson voru nokkuð klemmdir, og er það þjálfunaratriði fyrir næstu misseri að ráða bót á þeim. Ekki sízt í íslenzku lögunum sýndi Kolbeinn góöa heildartúlkun, svo sem í Gígjunni, í Sáuð þið hana systur mína, er kyrjuð var með sigurbrosi á vör og með góðri mýkt í íslenzku vögguljóði á hörpu Jóns Þórarinssonar. Aukalög urðu þrjú, síðast dúett úr Kátu ekkju Lehárs, þar sem miða- salinn og tilvonandi eiginkona Kolbeins, Unnur Vil- helmsdóttir, reis upp af áheyrendabekk og tók undir við mikinn fógnuð viðstaddra. Það kom víst engum á óvart, að Jónas Ingimundar- son lék undir eins og engih, nema hvað honum fipað- ist nokkuð á hendinganótunum í aríu úr Rigoletto, sem greinUega hafði verið ákveðin á síðustu stundu í stað aríu úr Maddömmu Butterfly. En ég held, að ílestir hafi verið ánægðir. Götumynd - við Vetrarhölhna í úrhelli Tómas R. Einarsson - íslandsför: Kona með grátandi barn í fangi biöur ekki um leyfi hennar heimur er ekki husið hátt og hlýtt heldur kjökrið við brjóstið Þýðingar eru, eins og áður segir, á verkum frægra skálda. Ekki tókst mér saman- burður við verk Pessoa, nema hvað ég fann eitt ljóðanna í enskri þýð- ingu. Munurinn var verulegur á 3. erindi „Þetta“. í þýðingunum á ljóðum Edith Södergran var ýmislegt vel gert. En „Þetta" er of ónákvæmt. „Land- ið sem ekki er tíl“ hefst á þessum línum: Ég þrái landið sem ekki ér til, veröldin sem er, heillar mig ekki. En 2.1. er of óljós, í frumtexta segir: „ty allting som ár, ár jag trött att begára", þ.e. mælandi hefur gefist upp á að girnast það sem er til, væntan- lega af því aö hún fær það aldrei. Of afstrakt er orðalagið: „landinu þar sem fjötrar manneskjunnar bresta", ætti að vera: „þar sem hlekkir okkar bresta". Of hátíðlegt er: En eitt hef ég fundið og til einnar umbunar hefur önn mín sannarlega unnið, leiðarinnar til landsins sem ekki er til. Á sænsku er þarna einfalt orðalag, þar sem raunar er klifað með rími: Men ett har jag funnit och ett har jag verkligen vunnit - vágen till landet som icke ár. I frumtextanum er tvítekið „Vem ár min álskade?" og þýðandi hefur hlaupið á miUi, svo tvær línur hafa faUið niður: Vem ár min álskade? Natten er mörk och stjárnorna dallra till svar. Skömmu síðar hefur vissa orðið að spum, línan: Men ett mánnisko- barn ár ingenting annat án visshet er þýdd: „En manneskjan er ekkert annaö en spum“ Svona klaufaviUur hefði mátt forðast ef einhver annar en þýðandi hefði lesið þetta yfir fyrir útgáfu. En á heUdina Utið sýnist mér þessi þriðja bók- Þorvarðs af sama tagi og fyrsta bók hans, ekki skáldskapur að marki. Og mér finnst að menn verði að gera harðari kröfur tU sjálfra sín áður en þeir gefa út bækur. Þorvarður HJálmarsson Útjaðrar og meginlönd Höfundaútgáfan, Rvík 1991, 59 bls. Islenskur gæðadjass - með alþjóðlegum blæ Tómas R. Einarsson er sá djassmaður íslenskur sem mest hefur fengist við að kompónera djasslög og koma þeim á framfæri. Eftir hann Uggja tvær eldri djassplöt- ur, Hinsegin blús og Nýr tónn. Það nýjasta frá Tóm- asi er geisladiskurinn Islandsfór og sem fyrr eru öll lögin, níu að tölu, samin af honum og leikin af hljóm- sveit hans. Hinsegin blús var tilvUjunarkenndari en Nýr tónn sem er mun heilsteyptari og voru framfarir Tómasar sem kompónista miklar. Þar kom hann fram sem full- mótaður djasshöfundur á plötu sem var mjög góð hvemig sem á hana var litið. Sami gæðastimpilhnn er yfir íslandsfór þótt tónhstin sé eUítið vUltari og sjálfsagt er ein ástæðan að í stað danska trompetleikarans Jens Winthers er bandaríski básúnuleikarinn Frank Lacy með Tómasi og sveit hans á íslandsfór og setur hann mikinn svip á lögin bæði með leik sínum á básúnu og flygelhorn og eins með söng sínum í einstökum lögum. Að öðru leyti eru sömu menn-með Tómasi á íslandsfór og voru með honum á Nýr tónn, þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Sigurður Flosason á saxófón og Pétur Östlund á trommur. Ásamt Tómasi á bassa mynda þeir þétta djasssveit sem er öllum vanda vaxin. Djassinn á íslandsfór er góður í heUd og sérlega áheyrilegur. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi hjá Tómasi að þessu sinni og þótt segja megi að blúsinn standi honum ávaUt nærri er metnaðurinn meiri en svo hjá honum að hann einskorði sig við blúsinn, heldur er á íslandsfór að finna helstu gerðir nútímadjass í lögum sem eru sérlega melódísk og meðtækUeg. Það er erfitt að taka eitt lag fram yfir önnur, en kannski má segja að mest spennandi verkin séu ís- landsfarimar tvær og Vorregn í Njarðvíkum. íslands- farimar eru byggðar á ljóöi eftir W.H. Auden, með smáimpróvíseringu í seinni hlutanum, í orðum frá Frank Lacy. Eiginlega er hægt að tala um tvö sjálfstæð verk þegar fjallað er um íslandsfarimar. Lögin tengj- ast aðeins í nafni og texta. Hið hugljúfa Vorregn í Njarðvíkum er sérlega vel samið lag við ljóð Guðbergs Bergssonar. EUen Kristjánsdóttir syngur lagið af mik- iUi fágun eins og henni er lagið. Þótt þessi lög séu tekin út þá er það kannski helst Tómas R. Einarsson, bassaleikari og tónskáld. Hljómplötiir Hilmar Karlsson vegna sérstöðu þeirra en ekki vegna þess að þau séu nokkuð betri en önnur. Það sem helst má finna að einstöku lagi á íslandsfor er að Vaski, vaski, vaskir menn er fuUlangt, Persónulega held ég að í styttri út- gáfu hefði það verið betra. Það er að bera í bakkafuUan lækinn að fara að hrósa hverjum einstökum spUara. Fimmmenningamir fara létt í gegnum tónsmíðar Tómasar og á milU heyrast ljóðræn og undurfógur sóló sem og kraftmikU og spennandi, sem lyfta lögunum upp í þann háa gæða- flokk sem þau em í. Frank Lacy er kannski þekktast- ur fimmmenninganna og svo sannarlega er hann fjöl- hæfastur þeirra og um leið góður spUari, en íslending- amir fjórir eru ekkert síðri djassmenn og djass á borð við þann sem íslandsfór býður upp á gerist varla betri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.