Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. íþróttir_____________________ Sport- stúfar Fimm leilúr fóru fram í 2. deild kvenna um síðustu helgi. í C-riðli sigraði Austri Ein- herja, 5-0, Jónína Guðjónsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Austra, Nanna Tómasdóttir, Sylvía Dav- iðsdóttir og Lilja Andrésdóttir skoruðu eitt mark hver. Einherji tapaði einníg fyrir Sindra, 0-3, í Vopnaíirði, Jakobína Jónsdóttir skoraði öll mörk Sindra. Sindri sigraði Hött i toppslag C-riðils, 1-0, í hörkuleik á Homafirði. Vé- dís Ármannsdóttir skoraði sigur- markið fyrir Sindra, Tveir leikir fóru fram í A-riðli. Afturelding sigraöi Reyni, Sand- geröi, 2-0. Amdís Sævarsdóttir skoraði úr vítaspyrnu en annað mark Aftureldingar var sjálfs- mark Reynisstúlkna. Stjaman hélt uppteknum hætti er liðið sigraði Stokkseyri, 1-12. Mörk Stjörnunnar skoruðu Rósa Dögg Jónsdóthr 4, Anna Sigurðardóttir 3, Hrund Grétarsdóttir 2, Klara Hallgrímsdóttir 2 og Ragna Lóa Stefánsdóttir 1. Þórunn Björns- dóttir skoraöí mark Stokkseyrar. -ih íslandsmótið í þríþraut í Reykjavík og Hrafnagili íslandsmótið í þríþraut í lengri vegalengd verður haldið í Reykjavík sunnudaginn 28. júlí, Keppt verður í 1500 metra sundi, 40 km hjólreiöum og 10 km hlaupi. ÞátttÖkutilkynningar þurfa að berast til Guðmundar i síma 24256 og Stefáns í síma 19856 á kvöldin. Um næstu helgi verður íslandsmótið í styttri vegalengd haldið i Hrafnagili 'í Eyjafirði. Mótið verður 21. júlí og verður keppt í karla-, kvenna-unglinga- og öldungaflokki, 40 ára og eldri. Hjólaöir verða 20 km, 750 m í sundi og hlaupnir 5 km. Ungling- ar synda 300 m, hjóla 10 km og hlaupa 3 km. Skráning fer fram i síma 96-27541. Reikrtistofan vann bankamótið Landsmót sambands íslenskra banka- manna í golfi fór fram í Ólafsvík um síöustu helgi. Þátttakendur voru 63 og var keppt i blíðskaparveðri. Sveit Reiknistofu bankanna sigraði í sveitakeppninni, í öðru sæti varð kvennasveit íslandsbanka og Búnaðarbanki Islands varð i þriðja sæti. I einstaklingskeppni án forgjafar sigraði Valdimar Einarsson, Landsbanka, í öðru sæti hafnaöi Hinrik Hansen, Reiknistofu bankanna, og þriðji varö Hjörvar Jensson, Lands- banka. I keppni með forgjöf varö Hinrik Hansen hlutskarpastur, annar varð Aðalheiður Alfreðs- dóttir, íslandsbanka og í þriðja sæti varö Valdimar Einarsson. Unglingalandslið í körfuknattleik Unglingalandslið ís- lands í körfuknattleik tekur þátt í undan- keppni Evrópumóts unglingalandsliða í Portúgala 7.-11. ágúst. ísland leikur þar í riöh með Portúgal, Svíþjóð, Eng- landí og Hollandi. Torfi Magnús- son, þjálfari hösins, hefúr valiö liöið sem tekur þátt í mótinu og er það þannig skipað: Pétur V. Sigurösson.Tindastóli Bergur Hinriksson....UMFG BragiMagnúson.......Haukum GíshHallsson............ÍR Krigtján Guðlaugsson...ÍBK JónB.Stefánsson........ÍBK Sigfús Gizurarson...Haukum Bergur Eövarðsson......UMFG Björgvin Reynisson...UMFT Brynjar Ólafsson......Haukar Brynjar Sigurösson.....Val HahdórKristmundsson....ÍR Sigurvegarar á stórmóti Víkings í tennis. Tennis: Hraf nhildur og Einar sigruðu Stórmót Víkings í tennis fór fram á tennisvöllum félagsins dagana 10.—14. júlí. Keppt var í 15 flokkum jg voru keppendur á mótinu 82 tals- ins. í karlaflokki sigraði Einar Sigur- geirsson, Víkingi, Atla Þorbjörnsson, Þrótti, 6-4 og 6-3. í kvennaflokki sigraði Hrafnhildur Hannesdóttir, Fjölni, Oddnýju Guð- mundsdóttur, Víkingi, 6-2 og 6-2. í tvíhðaleik karla sigruðu Gunnar Stefánsson og Jónas Bjömsson og var sigur þeirra mjög óvæntur. í tvíliðaleik kvenna sigruðu Guð- rún Steindórsdóttir og Halla Þór- hallsdóttir úr Þrótti. í tvenndarleik sigruðu Stefán Páls- son, Víkingi, og Hrafnhildur Hannes- dóttir, Þrótti. í einliðaleik öðlinga sigraði Kristján Baldvinsson, Þrótti. Hjá konunum í öðlingaflokki sigraði Dröfn Guðmundsdóttir. I tvhiðaleik öðlinga sigruðu Stefán Björnsson og Sigurður Ásgeirsson, báðir úr Víkingi. í snáöaflokki sigraði Arnar Sigurðs- son, TFK. í hnokkaflokki sigraði Hjörtur Hann- esson, Fjölni. I sveinaflokki sigraði Sigurður Andr- ésson, TFK. • í drengjaflokki sigraði Bjami Benjamínsson, TFK. Hrafnhildur Hannesdóttir úr Fjölni sigraði í Meyjaflokki. í hnátuflokki sigraði Iris Staub, Þrótti. Halla Þórhallsdóttir, Þrótti, sigraði í stelpnaflokki. -GH Körfuknattleikur: Brad Casy þjálf ar Þór Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þórsarar hafa nú ráðiö sér þjálfara til aö sjá um úrvalsdeildarlið sitt í körfuknattleik en í gær var endan- lega gengið frá því að Bandaríkja- maðurinn Brad Casy mun þjálfa liðið næsta vetur. Brad Casy er ekki alveg ókunnugur íslenskum körfuknattleik því hann þjálfaði lið UMFG fyrir nokkrum ámm og eitthvað kom hann nærri þjálfun unglingalandsliðs okkar. Casy er væntanlegur til landsins í næsta mánuði, og er gert ráð fyrir að hann muni hafa hingað til lands með sér hávaxinn leikmann sem verður miöherji Þórsliðsins næsta keppnistfmabil. Ekki er annað vitað en Þór haldi sínum innlendu leikmönnum frá síðsta vetri að undanskildum Jóni Erni Guðmundssyni sem er fluttur suður og leikur að öllum líkindum með Haukum. Þá hefur Njarðvíking- urinn Gunnar Örlygsson gengið í raðir Þórsara eins og fram hefur komiö. íþróttir fatlaðra: Góður árangur í Þýskalandi Mjög góður árangur náðist á al- þjóölega frjálsíþróttamótinu á Rottwiel í Þýskalandi um helgina, en þar tóku þátt tveir fatlaðir frjáls- íþróttamenn, þeir Haukur Gunnars- son og Geir Sverrisson. Geir, sem hefur veriö með sterkustu fótluðu sundmönnum íslands síðastliðin ár, reyndi nú í fyrsta skipti fyrir sér í frjálsíþróttakeppni erlendis en hann hefur æft markvisst undir stjórn Stefáns Jóhannssonar, þjálfara hjá Ármanni, 1 vetur eins og Haukur Gunnarsson. Frammistaða Geirs bendir til þess aö íþróttasamband fatlaðra hafi eignast nýjan afreksmann í frjálsum íþróttum en Haukur Gunnarsson hefur verið einmana á toppnum sem frjálsíþróttamaður í mörg ár. Geir keppti í þremur greinum og sigraði í þeim öllum. Hann hljóp 100 m á 11,78 sekúndum. í 200 m hlaupi fékk hann tímann 24,38 sekúndur og í 400 m hlaupi á 54,22 sekúndum. Þetta eru allt ný íslandsmet. Haukur sigraði í sínum flokki í 100 m hlaupi á tímanum 13,58 sekúndur. Þá vann Haukur sigur í 200 m hlaupi á 61,25 sekúndur. í 200 m hlaupi varð Haukur í 2. sæti á 28,35 sekúndum og þá vann Haukur silfurverðlaun í kúluvarpi. -GH DV íslendingar mæta Tyrkjum í „Berjunu - segir Bo Johansson landsliðsþjálfari íslendingar mæta Tyrkjum í vináttu- landsleik í knattspyrnu á Laugardals- velhnum í kvöld klukkan 20. Islenska landsliðiö varð fyrir enn einu áfalh í gærdag þegar Friðrik Friðriksson mark- vörður meiddist á æfingu liðsins í Borg- amesi. Tahð var að Friðrik hefði nef- brotnað en meiðsli hans voru ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið og því jafn- vel líklegt að hann verði með í kvöld. Það er eins og einhver álög séu á lands- liðsmarkvörðum íslands því um síðustu helgi meiddust þeir Ólafur Gottskálks- son og Birkir Kristinsson. „Það er mikið áfall að missa þrjá mark- verði í einu en ekki er enn ljóst með Friðrik. Ef hann getur ekki leikið mun ég ræða við Bjarna Sigurðsson og reyna að fá hann til að leika með okkur þó að hann hafi lýst yfir að hann væri hætt- ur. Það er enginn annar markvörður í myndinni en eins og staðan er nú er Kristján Finnbogason sá eini sem er fullkomlega heill. Að öðru leyti er allt í sómanum og hópurinn afslappaður og til í leikinn. Ég ht á þennan leik sem mikhvægan þátt í undirbúningi okkar fyrir Evrópuleikina í haust. Þrátt fyrir að þetta sé vináttuleikur þá munum við leika af fullum krafti og beijast til sig- urs því allir landsleikir eru mikilvæg- ir,“ sagði Bo Johanson, þjálfari íslenska landshðsins í knattspymu, í samtali við DV í Borgarnesi í gær. Létt var yfir mannskapnum í gær og leikmennirnir „Mjög gott að fá sv< - segir Atli Eðvaldsson, fyrirliði ísle „Þaö er mjög gott fyrir landsliðið að koma saman og leika vináttulandsleiki á milli stórleikja. Svona leikir halda okkur við efnið og mynda um leið góða stemningu í liðinu. Vináttulandsleikir skha sér alveg tvímælalaust þegar út í stórleiki er komið,“ sagði Atli Eðvalds- son, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspymu, í samtali við DV eftir morgunæfmgu hðsins í Borgarnesi í gær. En eins kunnugt er leika íslending- ar vináttulandsleik gegn Tyrkjum á • Bræður skipa landsliðshópinn að þessu sinni. Til vinstri er Sigurður Grétars- son hjá Grasshoppers og Arnar Grétarsson hjá 1. deidar liði Breiðabliks. í Evrópu Á stórmóti KFA á Akureyri á dögunum náði Hjalti Árnason þeim árangri að vera sterkasti kraftlyftingamaður Evrópu nú um stundir þegar hann lyfti sam- anlagt 117,5 kg í +125 kg flokki. Á íslandi hafa eftirtaldir lyft mestri þyngd í samanlögðu: 1. Hjalti Amason ............1017,5 kgí +125 kg fl. 2. Magnús V. Magnús 1015 kgí 125 kgfl, 3. Jón Páli Sigmarsson ................970kgíl25kgfl. 4. Torfl Ólafsson .............912,5 kg í +125 kg fl. 5. Guðni Sigmjónsson ................900kgíU0 kgfl. • Bæði Hjalti og Magnús eru í efstu sætum í sínum flokki i Evr- ópu í dag. Undanfarin ár hafa 5-6 menn farið yfir 1000 kíló í flokkum þeirra en ljóst er að nýir menn munu innan skamms breyta þess- um hsta, ♦GH • Finnur Jóhannsson hefur átt góða leiki me ar allir leikmenn liðsins. Finnur skoraði tvö mö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.