Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. Útlönd Winnie Mandela og Nelson, eigínmaöur hennar, brostu breitt í gær þegar Winnie fékk leyfi til aó áfrýju f angelsisdómi. Simamynd Reuter Winnie Mandela fékk leyfi til þess i gær að áfrýja sex ára fangelsisdómi fyrir mannrán og samsekt í líkamsárás. Winnie og eiginmaður hennar, Nelson Mandela, forseti Atriska þjóðarráðsins, brostu útundir eyru þegar dómari í Jóhannesarborg tók beiðni Winnie og tveggja annarra til greina. George Bizos, lögfræðingur Mandela, sagði aö liðið gætu átján mánuðir áöur en mál hennar yrði tekið fyrir 1 áfrýjunardómstóli. Saksóknarar voru þvl andvígir að Winnie fengi að áfrýja dómnum þar sem ekki væru likur á að æðri dómstóll mundi hnekkja fyrri dóminum. Dómarinn, sem heimilaði áfrýjunina, reyndar sami dómarinn og kallaði Winnie „óforskammaðan lygara“ áður en hann dæmdi hana fyrir tveim* ur mánuðum, var ekki sama sinnis. Hann sagði ekki útilokað að hægt yrði að sannfæra annan dómstól um að vafi léki á sekt Mandela og tveggja meðsakbominga hennar. Rfthöftmduriitit haldi sig á mottunni Franska ríkisstjórnin hefur varað marokkóskan rithöfund, sem hún vísaði úr landi til Gabons í síðasta mánuði, við og skipað honum að halda sig á mottunni ella verði honum vísaö úr landi á ný. Abdelmoumen Díouri, sem hafði skriíaö bók þar sem fram kom hörð gagnrýni á Hassan Marokkókóng, var leyft að koma aftur til Frakklands í gær eftir aö dómstóll ógilti brottvísun hans. Diouri hefur verið i útlegö í Frakklandi i sautján ár en eftir aö honum var vísað úr landi 20. júní var hann undir lögregluvernd 1 næstum fjórar vikur í Libreville, höfuð- borg Gabons. Franska sfjórnin réttlætti aðgerðir sínar með því að Diouri heföi haft tengsl við Líbýu og írak á meðan hann var i Frakklandi og hefði þvi brotið skilyrði fyrir pólitísku hæli. Mannréttindahópar segja hins vegar að raunverulega ástæðan sé óbirt bók Diouris, „Hver á Marokkó?“ þar sem sagt er frá auöæfum Hassans konungs. Konungur er náinn banda- maöur Frakka. Feitir borgihærri tryggingar Feitt fólk ætti aö borga hærri sjúkratryggingar en fólk af eðlilegri lik- amsþyngd þar sem meiri hætta er á að hinir feitu veikist. Þetta er álit Karstens Vilmars, formanns læknafélags Þýskalands. „Ég fæ ekki séð hvers vegna sumt fólk getur hagað sér óskynsamlega án þess aö hugsa um afleiöingamar og þær byrðar sem það leggur á samfélag- ið,“ sagði hann í útvarpsviötali í gær. Hann stakk upp á þvi að feitt fólk borgaði ákveðið á hvert kiló sem er umfram eðlilega þyngd viðkomandi. Vilmar sagði að menn ættu að leiða hugann að því að skattleggja sælgæti, tóbak og áfengi sérstaklega til þess að draga úr neyslu og til aö borga fyrir afleiðingarnar sem ofneysla þessa varnings hefur í fór með sér. Sendimaður skoðar gosskemmdir Richard Armitage, sérlegur sendimaður Bandarikjastjórnar, flaug til Clarkflugstöðvarinnar og flotastöövarinnar i Subicflóa á Filippseyjum í gær til aö kanna skemmdirnar sem eldgosið í Pinatubofjalli olli. Hann hólt síöan áfram viðræöum sínum riö stjórn- völd Filippseyja um framtíð tveggja stærstu herstöðva Bandaríkjanna í Asíu. Armitage varaði við því í gær að bandarísk stjórnvöld kynnu að yf- irgefa Clarkstöðina fyrir fullt og allt þar sem vafi léki á um framtíð hennar vegna stööugrar eldvirkni í Pinatubo sem er 20 kílómctra fyr- ■ uuiiaiu niiidiayD, öví ir vestan stöðina. maður Bandaríkjasljórnar, virðir Lokaákvörðun um Clarkstöðina fyrir sér skemmdirnar sem urðu á verður hugsanlega tekin í viðræð- Clarkflugstöðinni á Filippseyjum í unum sem fara nú fram í Manila gosínu i Pínatuboeldfjalli. og sagði Armitage að Bandaríkja- simamynd Reuter menn væru fremur svartsýnir á framhaldið. Raul Manglapus, utanríkisráðherra Fiiippseyja, sagði á mánudag að aöilar væru nálægt því að komast að samkomulagi um nýjan herstöðva- samning. Hann sagöi að Bandaríkjamenn mundu borga minna en þær 825 milljónir dollara á ári sem stjórnvöld á Filippseyjum fóru fram á vegna áætlananna um aö fara frá Clark. Saksóknarar mótmæla lausn morðingja Sjö saksóknarar Suður-Afríku hafa sakað stjómvöld um að draga úr trú manna á réttarkerfinu með því aö láta ótínda glæpamenn lausa með pólitískum föngum. Tæplega 60 þúsund fangar haia verið látnir lausir af ýmsum ástæöum frá í desember en færri en tvö þúsund þeirra voru pólitískir fangar. Menn óttast að þessar aðgerðir stjórnvalda hafi orðiö 10 þess að glæpir hafa aldrei verið fleiri en einmitt nú, Rfkissfjómin segist hafa verið aö leysa mikil þrengsli í fangelsum lands- ins og aö hún hafi viljað vera sanngjöm við venjulega glæpamenn þegar verið var að leysa pólitíska misgjörðarmenn úr haldi. Reuter Friðarhorfur auk- ast í Kambódíu Norodom Sihanouk, prins úr Kambódíu, sagði í morgun að hann væri „mjög ánægður" eftir að stríð- andi fylkingar í Kambódíu, sem sitja á fundi í Peking, höfuðborg Kína, komust fljótt að samkomulagi um að halda lífinu í friðaráætlun Samein- uðu þjóðanna. Sihanouk er gestgjafi tveggja daga fundar Þjóðarráðs Kambódíu þar sem eiga sæti fulltrúar stjórnarinnar í Phnom Penh, Rauðu kmerarnir, helstu andstæðingar hennar, og tveir aðrir minni skæruliðahópar. „Ég er mjög ánægður með árangur- inn,“ sagði Sihanouk við fréttamenn þegar hann var spurður hvernig hefði miðað á fyrsta fundardeginum i gær. Þjóðarráðið er þungamiðjan í frið- aráætlun Sameinuðu þjóðanna til að binda enda á tólf ára styrjöld milli stjórnarinnar í Phnom Penh, sem nýtur stuðnings Víetnama, og upp- reisnarmanna sem Rauðu kmeramir fara fyrir, en þeir eru studdir af Kín- Norodom Sihanouk prins var hæst- ánægður eftir fund striðandi fylkinga í Kambódíu í gær. Símamynd Reuter verjum. Samkvæmt áætluninni mundu Sameinuðu þjóðirnar í raun stjórna landinu fram að kosningum og á meðan vopnaðar sveitir legðu niður vopn sín. Þjóðarráðið mundi vera fulltrúi fullveldis Kambódíu. Á fundinum í gær var ákveðið að Þjóðarráðið kæmi formlega saman í Bangkok, höfuðborg Tælands, dag- ana 26.-28. ágúst. Einnig var sam- þykkt að frá nóvembermánuði yrðu allir fundir Þjóðarráðsins haldnir í Phnom Penh. Sihanouk sagði einnig að fylking- arnar hefðu náð samkomulagi um skipan sendinefndar á væntanlegan fund allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Sihanouk mun leiða sendi- nefndina og í henni verða einnig Hun Sen forsætisráðherra, Khieu Samp- an, leiðtogi Rauðu kmeranna, og Son Sann, léiðtogi minnsta skæruliða- hópsins, Frelsisfylkingar kmerþjóð- arinnar. Reuter Vamarmálaráðherra Líbanons: Ásakar PLO um að af henda ekki vopn Vamamálaráðherra Líbanon ásakaði Uðsmenn Frelsissamtaka Palestínu, PLO, í gær um að fela stærsta hluta vopnabirgða sinna í stað þess að láta þau af hendi við yfirvöld í Líbanon. Ráðherrann varaði PLO við og sagði að stjórnarherinn myndi við- halda hörðu eftirliti við flóttamanna- búöir Palestínumanna í Suður- Líbanon þar til skæruliðar aihentu öll vopn sín. „Sannleikurinn er sá að í bækistöðvunum em ennþá bæði þungavopn og milliþung vopn. Þeir (Palestínumenn) hafa ekki látið af hendi helming vopna sinna," sagði varnamálaráðherrann, Michel al- Murr í gær. „Þessi gæsla í kringum flótta- mannabúðirnar er eingöngu til þess aö fá skæruliðana til að afhenda okk- ur vopn sín. Þegar það hefur verið gert þá munum við hætta þessu stranga eftirliti," sagði al-Murr eftir viðræður sínar við sendimann Sam- einuðu þjóðanna, Marrack Goulding, í Beirút í gær. PLO segist þegar hafa afhent yfir- völdum öll þungavopn sín og milli- þung vopn sem voru í flóttamanna- búðunum þremur nálægt hafnar- borginni Tyre. Skæruliðunum leyfist hins vegar að geyma riffla sína og önnur létt vopn inni í flóttamanna- búðunum en þar búa um 40 þúsund flóttamenn. Sendimaður Sameinuðu þjóðanna, Goulding, er í Líbanon til að ræða um endurnýjun umboðs friðar- gæslusveita SÞ sem hafa verið í Suð- ur-Líbanon síðan 1978. ísraelsher, sem heldur um 15 kílómetra öryggis- svæði syðst í Líbanon, hefur komið í veg fyrir að sveitir SÞ næðu að norðurlandamærum ísraels. Reuter Assad Sýrlandsforseti: Kænn raunsæismaður með stóra drauma Hafez al-Assad Sýrlandsforseti hef- ur sýnt það og sannað með samþykki sínu á friðartillögum Bush Banda- ríkjaforseta að hann er kænasti leið- togi Mið-Austurlanda. Assad talaði þvert ofan í það sem hann hafði áður sagt þegar hann kallaði tillögurnar jákvæðar og sanngjarnar í bréfi til Bush um helgina. Með því að falla, að því er virðist, frá fyrri skilyrðum sínum fyrir bein- um viðræðum við ísrael stillti Assad Shamir, forsætisráðherra ísraels, ekki einasta upp við vegg. Hann ávann sér í leiðinni hrós vesturveld- anna sem allt þar til nýlega litu ekki við honum og sökuðu hann um að styðja hryðjuverkamenn. Assad, sem af ýmsum er talinn vera meinlætasamur hugsjónamað- ur, hefur lengi haldið Sýrlandi á lofti sem burðarási arabalandanna. Hann var jafnframt fyrstur leiðtoga Mið- Austurlanda til að skilja þýðingu þeirra breytinga sem steyptu gömlu valdaklíkunum af stóli í Sovétríkjun- um og Austur-Evrópu. í desember 1989 varaði Assad við því að Araba- ríkin yrðu að vera fljót að laga sig að breyttu valdajafnvægi í heimin- um. Á sama tíma og áhrif hefðbundinna stuðningsmanna hans, Sovétmanna, fóru þverrandi hóf Assad aö færa Sýrland varfærnislega nær Vestur- löndum sem var um leiö viðurkenn- ing á mikilvægu hlutverki Banda- Hafez al-Assad Sýrlandsforseti þykir hafa komið ár sinni vel fyrir borð með því að fallast á friðartillögur Bush Bandaríkjaforseta. Teikning Lurie ríkjanna í málefnum Mið-Austur- landa. Þær þreifmgar náðu hámarki þegar Sýrlendingar, ásamt Egyptum, sendu hersveitir til að berjast við hlið bandamanna í Persaflóastríðinu fyrr á þessu ári. Assad náði þrennu fram með þess- ari stefnu sinni. Persaflóastríðið braut upp vald ír- aka sem höfðu lengi verið helstu keppinautar Sýrlands meðal araba- landanna. Assad gat hert tak sitt á Líbanon með samningi sem festi sýrlenskar hersveitir í landinu í sessi. Tengsl Sýrlands við Vesturlönd fengu einnig byr undir báða vængi og urðu til þess að Bush lagði lykkju á leið sína til að hitta Assad í Genf á meðan á Persaflóastríðinu stóð. Það var fyrsti fundur bandarísks forseta með Assad í meira en tíu ár. Heima fyrir hefur vinnuþjarkur- inn Assad, sem hvorki reykir né drekkur, stjórnað með harðri hendi. Hann hefur ekki hikað við að bæla niður andóf með skriðdrek'um eða varpa hundruðum, ef til vill þúsund- um, í fangelsi. Hann hefur staðið af sér efnahagskreppu, valdabaráttu innan stjórnarflokksins og alþjóð- lega einangrun fyrir stuðning sinn við skæruliðahópa. Samt hefur mik- ill stöðugleiki ríkt í Sýrlandi, ólíkt því sem hefur gerst í mörgum öðrum ríkjum á svæðinu, frá því að Assad tók völdin í blóðsúthellingalausri stjórnarbyltingu árið 1970. Assad þykir maður kurteis og harður í samningum og gestir eins og James Baker, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, hafa þurft að hlusta á lærða fyrirlestra um forna frægð lands hans og staðfestu hans að end- urreisa hana. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.