Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. 25 LífsstíU Borgaði 14.556 krónur úr eigin vasa fyrir lyf: Hægt að fá ódýrara lyf - lyfjafræðingar blanda sér ekki í útgáfuvenjur lækna, segir apótekari í DV á föstudag var sagt frá konu sem fór í apótek til aö kaupa sýklalyf fyrir manninn sinn vegna sýkingar í blöðruhálskirtli. Lyfiö kostaöi 14.556 krónur sem konan þurfti að greiða úr eigin vasa. Hún spurði um ódýrara lyf en var sagt að það væri ekki til. Lyfiö Taridiv hefur liins vegar sömu verkun og Ciproxin en er ódýr- ara. í útboði spítalanna er gert ráð fyrir að lyfin „geti komið hver í stað- inn fyrir hin“ og í sérlyflaskránni eru þau gefin upp með nákvæmlega sömu ábendingar. „Það er nú viðtekin venja hjá lyfja- fræðingum í starfi að blanda sér ekki í útgáfuvenjur lækna,“ sagði Krist- ján P. Guðmundsson, apótekari í Vesturbæjarapóteki. Hann sagði að þessi lyf væru ekki samheitalyf en væru náskyld og alls ekki ósennilegt að nota mætti ódýrara lyfið. Hann sagði að þetta lyf hefði verið notað eitthvað inni á sjúkrahúsum en sagð- ist aldrei hafa séð ávísun á það. „Það var ekki að við vildum svæla þessu í hana af því að þetta væri dýrara, þaö var ekki málið," sagöi apótekarinn. -pj Dýra lyfíd Ciproxin: Ellilífeyrir- inn fer í lyfjakostnað „Ég sé ekkert athugavert við að penísillíni og því var Ciproxin eina opinberir aðilar leití. leiða til aö lyfið sem bakterían var næm fyrir. spara í heilbrigðiskerfinu en það má ekki koma niöur á þeim sem síst skyldi,“ sagði Jóhann Len- harðsson, lyljafræðingur í Austur- bæjarapóteki. Ellilífeyrisþegi þurfti að nota Primasol sem er ódýrt sýklalyf vegna blöðrubólgu. Konan keypti Lyfjaskaramtur ellilífeyrisþegans þetta Primasol, fór með þaö heim var því 7 þúsund krónur en ekki og át það í tvo daga. Þá kemur í nokkurhundruðkrónur.Ellilífeyr- íjós að hún er með ofnæmi fyrir irinn er 12.123 á mánuði og því var lyfinu og þolir ekki að taka þaö. lítiö eftir þennan mánuðinn. Hún er einnig meö ofnæmi fyrir -pj Neytendur Lyfið Ciproxin er fokdýrt og notendur þurfa að grelða það úr elgln vasa. Kona, sem OV greindi Irá á föstudag, þurfti að greiða tæplega 15 þús- und krónur úr eigln vasa og ellilifeyrisþegi, sem segir frá hér, fór með bróðurpartinn af lífeyrinum i kaup á lyfinu, ekki var um annað að ræða fyrir hann. DV-mynd GVA Halldór Hermannsson I verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Hann telur að Skagstrendingar kaupi 60 - 70 prósent af nauðsynjavörum á heimaslóðum. DV-mynd gk g—~ ■ -'J! m m m ... í m Útibússtjóri KH segir heimamenn kaupa inn í Reykjavík: Skagstrendingar versla stundum ódýrt í Bónus - meirihluti nauðsynjavara þó keyptar í heimabyggð Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „í sjálfu sér held ég að það sé allur gangur á því hvar fólkið, sem hér býr, gerir sín innkaup. Það veit í rauninni enginn hversu mikill hluti verslunarinnar er hér og hversu mikiö fólkið verslar annars staðar. Min tilfinning er hins vegar sú að á milli 60 og 70 prósent af versluninni sé hér á staðnum," segir Halldór Hermannsson, útibússtjóri Kaupfé- lags Húnvetninga á Skagaströnd. Halldór tók við starfinu árið 1987 en hjá útibúinu á Skagaströnd starfa 5-6 manns. Líkt og gjaman er í versl- unum á smærri stöðum eins og á Skagaströnd þarf að hafa fjölbreytt vöruúrval þótt verslunin sé ekki mikil því fólk hefur oft ekkert annað að leita. „Auðvitað er mér kunnugt um að þegar fólk héðan er á ferðinni í Reykjavík þá verslar það til dæmis í Bónusi og staðgreiöir til að fá hag- stæðara verð og það er þá að kaupa vörur sem hægt er að geyma. Neyslu- venjur fólks hér eru líka þannig að það borðar mikinn fisk og þar sem sjómennimir hér fá að taka með sér fisk í land þá bitnar það að sjálfsögðu á versluninni hér. Einnig er þetta bæjarfélag opnara en mörg önnur fyrir því aö menn geta verslað utan þess, sjómennirnir á togurunum hér fara oft í frí og þá versla þeir út um allt.“ Halldór sagðist vera sáttur við starf sitt á Skagaströnd og fyrir sitt leyti vildi hann miklu fremur búa á slík- um staö en í stærri bæ eða borg. „Verðlag er hærra á svona litlum stöðum en þaö er svo margt annað sem kemur á móti og vegur það upp,“ sagði Halldór.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.