Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991.
Afmæli
Ragnar Guðmundsson
Ragnar Guömundsson, fyrrv. bóndi
frá Grænumýrartungu, Bogahlíö 10,
Reykjavík, er áttræöur í dag.
Starfsferill
Ragnar fæddist aö Háreksstööum
í Norðurárdal í Mýrasýslu en flutti
þaðan tveggja ára meö foreldrum
sínum að Gilhaga í Hrútafirði þar
sem hann ólst upp til fermingarald-
urs. Á unglingsárunum vann hann
á ýmsum stöðum öll algeng sveita-
störf og var auk þess á vertíð á vetr-
um, m.a. í Höfnum og Keflavík og
þrjár vertíðir í Viðey hjá Kárafélag-
inu.
Ragnar lauk búfræðiprófi frá Hól-
um í Hjaltadal vorið 1937. Hann
byrjaði búskap í Grænumýrartungu
í Hrútafirði 1937 og bjó þar til 1966
er hann brá búi og flutti til Reykja-
víkur. Þar gerðist hann starfsmaður
Reykjavikurborgar og starfaði hjá
borginni til 1975 er hann réöst til
Afurðasölu Sambandsins þar sem
hann vann til 1984. Ragnar er nú
húsvörður í verslunarhúsinu Suð-
urveri viö Stigahlíð.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 25.12.1937 Sigríði
Gunnarsdóttur í Grænumýrar-
tungu og byrjaði þar búskap sama
ár. Sigríður er dóttir Gunnars Þórð-
arsonar og Ingveldar Björnsdóttur
frá Grænumýrartungu.
Börn Ragnars og Sigríðar eru Þór-
unn Nanna, f. 13.4.1940, húsmóðir,
gift Jóhanni Hólmgrímssyni, b. í
Vogi við Raufarhöfn og eiga þau
fimm börn, Sigríði, Hólmgrím,
Svanhvíti, Ragnar Axel og Ingvald;
Ingunn, f. 27.4.1944, húsmóðir og
læknaritari, gift Má Óskari Óskars-
syni, vörubifreiðastjóra hjá Þrótti,
en þau eru búsett í Reykjavík og
eiga þrjú börn, Rögnu Heiöbjörtu,
Hörpu Sólbjörtu og Ingimar Óskar;
Gunnar, f. 4.11.1949, starfsmaður
Mjólkursamlagsins á Patreksfiröi,
kvæntur Ásthildi Ágústsdóttur,
húsmóður og skrifstofukonu, en þau
búa á Patreksfirði og eiga þrjú böm,
Ragnar Axel, Ágúst og Sigríði; Heið-
ar, f. 31.1.1956, vélsmiður hjá Véla-
miðstöð Reykjavíkur, kvæntur
Sigrúnu Guðjónsdóttur, húsmóður
og skrifstofukonu, en þau búa í
Reykjavík og eiga tvær dætur,
Ragnhildi og Huldu. Barnabörn
Ragnars og Sigríðar eru sex.
Ragnar átti níu systkini en af þeim
eru sjö á lífi. Systkini hans: Jón Stef-
án, f. 4.7.1907, b. og smiður, kvænt-
ur Sigrúnu Sigurbjörnsdóttur og
eru þau bæði látin en eignuðust eina
dóttur; Sigurrós, f. 16.11.1914, hús-
móðir í Reykjavík, gift Hermanni
Daníelssyni smið og eiga þau fiögur
börn; Fanney, f. 28.10.1916, gift
Þórði Eyjólfssyni, b. á Goddastöðum
í Dalasýslu og eru þau bæði láfin
en þau eignuðust fimm börn; Þórð-
ur, f. 8.1.1919, skrifstofustjóri hjá
Tækni hfi, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Isgerði Kristjánsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Jóhann Valdi-
mar, f. 22.4.1921, vagnstjóri hjá SVR,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Sig-
ríði Pálsdóttur og eiga þau sex börn;
Þórir, f. 14.1.1926, vagnstjóri hjá
SVR, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Hönnu Halldórsdóttur og eiga þau
þrjú böm; Gunnar, f. 14.1.1926,
starfsmaður hjá Reykjavíkurborg,
búsettur í Reykjavík og á hann tvö
börn; Bergur, f. 5.1.1928, bifreiða-
smiður hjá SVR, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Önnu Eyjólfsdóttur og
eiga þau þijú börn; Óskar, f. 4.9.
1931, bifreiðasmiður, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Jóhönnu Sig-
þórsdóttur og eiga þau fimm börn.
ForeldrarRagnars: Guðmundur
Þórðarson, f. 22.11.1882, d. 29.3.1962,
smiður og b. í Gilhaga og á Borðeyri
Ragnar Guðmundsson.
við Hrútafiörð (bróðir Gunnars
Þórðarsonar í Grænumýrartungu)
og Ragnheiður Sigurðardóttir, f.
28.10.1885, d. 2.11.1945, frá Hlíð í
Selvogi.
Guðmundur og Ragnheiður
bjuggu í Gilhaga frá 1913 og síðar á
Borðeyri. Eftir aö Ragnheiður lést
bjó Guðmundur á heimili Ragnars
sonar síns í Grænumýrartungu.
Ragnar verður að heiman á af-
mælisdaginn og dvelja þau hjón á
þessum merkisdegi á heimili dóttur-
dóttur sinnar að Laugum í Þingeyj-
arsýslu.
o Til hamingju meó af- mælið 17. júlí
90 ár^
Kjartan J. Einarsson, Túngötu 64, Eyrarbakka.
80 ára
Jóhann Þorsteinsson, Sólvallagötu 54, Reykjavík. Kári Valsson, Austurvegi 10, Hrísey. Ingvar Friðriksson, Steinholti 1, Egilsstöðum. Freyja Bjarnadóttir, Egilsgötu 17, Borgarnesi. Hún veröur að heiman.
75 ára
Óli A. Guðiaug.sson. Ásvegi 13, Akureyri. Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, Hjálmstöðum II, Laugardalshreppi. Jensina Óskarsdóttir, Dúfnahólum 4, Reykjavik. Hún verður að heiman. Óli Pálmi H. Þorbergsson, Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavík. Sigríður Gisladóttir, Einilundi 6B, Akureyri.
70 ára
Magnþóra Magnúsdóttir, Sogavegi 132, Reykjavík. Bóas Jónsson, Bakka, Reyöarfiröi, Malmfreð -íónas Árnason, Strandgötu 63, Eskiftrði,
60 ára
Halldóra Óskarsdóttir, Hjarðartúni 12, Ólafsvík. Sigþór Guðmundsson, Hlíöartúni 27, Höfh í Hornafírði. Þóra Jóhanna Jónsdóttir, Engihjalla 11, Kópavogi Auður Birna Hauksdóttir, Austurgerði 1, Reykjavík. Gissur Kristinsson, Hjallabrekku 13, Kópavogi. ólafur Stefánsson, Gnoðarvogi 54, Reykjavík. Hjaltalína Agnarsdóttir, Faxabraut 30, Keflavík. Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Grettisgötu 12, Reykjavik. Kristin Gunnarsdóttir, Brekkugötu 50, Þingeyri
50 ára
Gerður Elíasdóttir, Túngötu 20,'isafiröi Soffia Kragan Sigurðardóttir, Teigaseli 5, Reykjavík. Pétur Bjarnoson, Strandaseli 7, Reykiavík.
40 ára
Halldór Arnarson, Drekahlið 5, Sauðárkróki. Hólmfriður Halldórsdótfir, Akurgerði 11, Öxarfjaröarhreppi. Sœdís Magnúsdóttir, Túngötu 48, Tálknafirði. Jóhannes Kristleifsson, Sturiureykjnm II, Reykholtsdals- hreppi Björn Brynjólfsson, Fjarðarstræti 4, ísafirði.
Guðlaug Guðmundsdóttir.
Guðlaug
Guðmunds-
dóttir
Guðlaug Guðmundsdóttir, hús-
móðir og kaupmaöur, til heimilis að
Hömrum í Eyrarsveit, verður sex-
tugámorgun, 18.7.
Maður hennar er Hörður Pálsson
bóndi. Þau taka á móti gestum laug-
ardaginn 20.7. að heimili sínu eftir
klukkan 18.00.
Rúnar Guðmundsson
Rúnar Guðmundsson bifreiðastjóri,
Skólavörðustíg 25, Reykjavík, er fer-
tugurídag.
Starfsferill
Rúnar fæddist á Egilsstöðum og
ólst upp á Fljótsdalshéraði og á
Seyðisfirði. Hann var í barnaskóla
Egilsstaða og í heimanámi í Sleð-
brjótsseli í Jökulsárhlíð. Þá stund-
aði hann síðar nám við íþróttaskól-
ann í Haukadal í Biskupstungum
og við öldungadeild MH.
Rúnar byrjaði ungur til sjós á síld
við Austfirði og var á netabátum frá
Vestmannaeyjum 1967. Rúnar var
síðan verkstjóri hjá Vinnslustöðinni
í Eyjum fram að gosi 1973. Hann
vann síðan ýmis störf, stundaði m.a.
fóðurframleiðslu við heyköggla-
verksmiðju á Stórólfsvöllum við
Hvolsvöll og bjó þar til 1975 en hefur
stundað vörubílaakstur og unnið
við þungavinnuvélar nær óslitið frá
1976.
Fjölskyida
Fyrri kona Rúnars er Sigurveig
Andersen frá Vestmannaeyjum.
Eignuðust þau þijú börn: Ingvald,
f. 7.2.1970, d. 30.12.1974; Björgvin
Þór, f. 15.12.1971; Kolbrúnu Onnu,
f. 14.8.1974. Rúnar og Sigurveig slitu
samvistum 1975.
Rúnar hóf sambúð 1978 með Sig-
rúnu Lilju Jónasdóttur, f. 28.2.1959,
kennara en hún er dóttir Jónasar
Aöalsteinssonar og Önnu G. Jó-
hannsdóttur að Brúarlandi í Þistil-
firði.
Rúnar og Sigrún eiga eina dóttur
saman, Svanhvíti Helgu, f. 16.5.1982.
Systkini Rúnars eru Guðríður
Birna, f. 3.9.1952, verslunarstjóri á
Reyðarfirði, gift Þorvaldi Aðal-
steinssyni framkvæmdastjóra og
eiga þau tvo syni; Stefán Árni, f. 3.8.
1954, húsasmiður á Reyðarfiröi,
kvæntur Hugrúnu Aðalsteinsdóttur
og eiga þau tvö börn; Hannes Sig-
urður, f. 30.8.1958, starfsmaður
Skeljungs í Reykjavík; Björgvin Þór,
f. 26.9.1957, búsettur í Reykjavík;
Hilma Lind, f. 13.10.1963, húsmóðir
á Egilsstöðum, gift Jónasi Jóhanns-
syni bifvélavirkja og eiga þau tvö
börn; Sólveig Dögg, f. 6.5.1965, hús-
móðir í Fellabæ, gift Hlyni Braga-
syni bílstjóra og eiga þau eitt bam.
Hálfsystir Rúnars er Vilborg Helga-
dóttir, f. í janúar 1970.
Foreldrar Rúnars: Guðmundur
Björgvinsson, f. 1.5.1925, vélstjóri á
Reyðarfirði, og Svanhvít Hannes-
dóttir, f. 17.1.1928, húsmóðir á Hellu
á Rangárvöllum.
Rúnar Guðmundsson.
Guðmundur er sonur Björgvins,
b. á Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð,
Vigfússonar, b. á Fjaröarseli í Seyð-
isfirði, Ólafssonar, b. þar, Sigurðs-
sonar. Móðir Vigfúsar var Guðný
Tómasdóttir. Móðir Björgvins var
Elísabet Ólafsdóttir frá Mjóanesi.
Móðir Guðmundar var Stefanía
Stefánsdóttir, prests í Hofteigi og
Dvergasteini, Halldórssonar, prests,
Sigfússonar. Móðir Stefáns var Þór-
unn Pálsdóttir, sýslumanns, Guð-
mundssonar. Móðir Stefaníu var
Jónína Sesselja Bjömsdóttir frá
Stóra-Bakka.
Svanhvít er dóttir Hannesar
ívarssonar og Árnýjar Þórðardótt-
ur.
Andlát
Gunnar Ásgeirsson
Gunnar Ásgeirssor. stórkaupmað-
ur, Efstaleiti 14, Reykjavík, lést á
sjúkrahúsi í Reykjavík sunnudag-
inn 7.7. sl. en hann var jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í gær klukkan 15.
Starfsferill
Gunnar fæddist á Flateyri við
Önundarfiörð 7.6.1917. Hann lauk
prófi frá VÍ1936, starfaði við versl-
unina Glasgow í Reykjavík 1935-37,
hjá Skúla Jóhannssyni og Co
1937-38, hjá Jóhanni Ólafssyni og
Co 1938-40, var forstjóri og meðeig-
andi heildverslunarinnar Sveinn
Björnsson og Ásgeirsson 1940-60,
stofnaði fyrirtækið Gunnar Ásgeirs-
son og Co 1960, var forstjóri þess og
rak það til 1989 er hann seldi það,
stofnaöi fyrirtækiö Veltir hf. 1968
og var stjómarformaður þess. Þá
stofnaði hann eða átti aðild að fleiri
verslunarfyrirtækjum, eins ogt.d.
Akurvík hf. og Bifreiðum og land-
búnaðarvélum hf.
Gunnar var kennari í vörufræði
við VÍ1945, ’52 og ’54. Hann sat í
skólanefnd VÍ1946-51,1956-79 og
var formaður hennar 1965-70. Hann
sat í stjórn og framkvæmdastjóm
Verslunarráðs íslands í fiölda ára
frá 1952, var einn af stofnendum
Félags bifreiðainnflytjenda og fyrsti
formaður félagsins 1954 og síöar
Bílgreinasambandsins til 1975, skip-
aður í nefnd er samdi lög og reglu-
gerð um tollvörugeymslu 1959, einn
af stofnendum Tollvörugeymslunn-
ar hf. Hann sat í stjóm Önfirðingafé-
lagsins í Reykjavík frá stofnun og í
fiölda ára, sat í stjórn Oddfellow-
stúkunnar Ingólfs 1955-57, einn af
stofnendum stúkunnar Skúla fógeta
og starfaði mikið á vegum reglunn-
ar, var einn af stofnendum Lions-
klúbbsins Ægis 1957, formaður
klúbbsins um skeið, var um tíma
útbreiðslustjóri Lionshreyfingar-
innar á íslandi, beitti sér fyrir stofn-
un fiölda Lionsklúbba víða um land
og var um skeið yfirmaður Lions-
umdæmis Reykjavíkur, Reykjaness,
Suðurlands og Áusturlands.
Gunnar var í fararbroddi Lions-
manna í uppbyggingu þeirra að Sól-
heimum í Grímsnesi og er eini mað-
urinn sem hefur verið sæmdur
nafnbótinni Heimilisvinur Sól-
heima. Hann var aðalræðismaður
Perú frá 1974, var sæmdur gull-
merki danska bílgreinasambands-
ins, var heiðursfélagi Bílgreinasam-
bandsins frá 1977 og riddari fálka-
orðunnar frá 1978.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 12.8.1939 eftirlif-
andi konu sinni, Valgerði Stefáns-
dóttur, f. 23.9.1919, en hún er dóttir
Stefáns Ólafssonar, vatnsveitu-
stjóra á Akureyri, og konu hans,
Bjarnþóru Benediktsdóttur.
Gunnar og Valgerður eignuðust
sex börn og eru fimm þeirra á lífi.
Börn þeirra: Stefán, f. 20.12.1939,
flugstjóri, kvæntur Öglu Mörtu
Marteinsdóttur; Ásgeir, f. 12.11.
1941, d. 1990, framkvæmdastjóri, var
kvæntur Guðlaugu Konráösdóttur;
Þórhildur, f. 30.7.1943, kaupmaður,
gift Magnúsi Jónssyni; Gunnar, f.
28.8.1946, íþróttakennari, var
kvæntur Helgu Kemp en þau slitu
samvistum; Valgerður, f. 11.10.1951,
verslunarmaöur, gift Stefáni Ólafs-
syni; Árni, f. 8.10.1961, verkfræðing-
ur, kvæntur Elínu Þórðardóttur.
Af sy stkinum Gunnars komust sjö
á legg. Systkini hans: Guðni, f. 1914,
d. 1966; Hörður, f. 1915, d. 1982; Sig-
ríður, f. 1919; Eiríkur, f. 1921, d. 1983;
Ebenezer, f. 1923; Erla, f. 1928; Snæ-
björn, f. 1931.
Foreldrar Gunnars: Ásgeir
Guðnason, f. 15.8.1884, d. 1973, kaup-
maður og útgerðarmaður á Flateyri
við Önundarfiörð, og kona hans,
Guðjóna Jensína Hildur Eiríksdótt-
ir,f. 18.3.1887,11.2.1947, húsmóðir.
Ásgeir var sonur Guöna, skipa-
smiðs og sjómanns á Eiði við Hest-
fiörð, Bjarnasonar, b. á Brekku í
Langadal, Magnússonar, b. á Arn-
gerðareyri, Þórðarsonar. Móðir Ás-
geirs var Þorbjörg Ásgeirsdóttir, b.
Gunnar Ásgeirsson.
í Heydal, Jónssonar, b. í Kollabúð-
um og Heydal, Jónssonar, læknis í
Ármúla, Einarssonar. Móðir Þor-
bjargar var Guðrún Jónsdóttir.
Móðir Guðrúnar var Þorbjörg, syst-
ir Jónasar á Bakka, langafa prófess-
oranna Jónasar og Halldórs og Þor-
valds skólastjóra Elíassona. Þor-
björg var dóttir Þorvarðar, b. á
Bakka í Hnífsdal, Sigurðssonar, í ,
Eyrardal og ættfóður Eyrardalsætt-
arinnar, Þorvarðarsonar.
Systir Jensínu Hildar var Ragn-
heiður, móðir bræðranna Ragnars
læknis, Ásgeirs lyfiafræöings og
Önundar, forsfióra Olís, Ásgeirs-
sona. Jensína Hildur var dóttir Ei-
ríks, b. á Hrauni á Ingjaldssandi,
Sigmundssonar, b. þar Sveinssonar,
b. á Alviðru í Dýrafirði, Sigmunds-
sonar.