Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað ( DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar ergætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjalst, ohaö dagblaö MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1991. Mengunarslysið: Hefekkert við kæruna að athuga - segir Páll Hjartarson „Ég hef ekkert við kæruna að at- huga, hún byggist á þeirri einfóldu staðreynd að bændumir eru að leita sér að hugsanlegum skaðabótum ef æðarvarpið mistekst," sagði Páll Hjartarson, settur siglingamála- stjóri. Pétur Guðmundsson í Ófeigsfirði hefur krafist opinberrar rannsóknar á menguninni og orsökum hennar og vísar því á bug að tilkynning um slysið hafi borist of seint. I skýrslu sem Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins sendi frá sér í gær kom fram að talið er aö grúturinn sé lýsi, ekki olíublandað lýsi. Þó er ekki vitað enn hvers konar lýsi um er að ræða. „Þessar vangaveltur um að líklega sé um loðnulýsi að ræða eru úr lausu lofti gripnar. Það stendur ekkert um það í skýrslunni," sagði Páll. Aðspurður um hvort hugsanlegt væri að lýsið bærist af landi, frá ein- hverri verksmiðju, taldi Páll það afar ósennilegt. „Við vitum ekki til þess að það séu slíkar verksmiðjur þarna, enda dreifist þetta yfir stórt svæði og sést langt úti á hafi og því er þaö tahð afar ólíklegt. -ingo Þjófurinnflúðiog misstifullan poka afsígarettum Brotist var inn í sjoppu við Hamra- borg 14 í Kópavogi í fyrrinótt. Vegfar- andi kom að þar sem einn maður hafði farið inn um glugga en tveir aðrir biðu í bíl fyrir utan. Þegar maðurinn varð vegfarandans var hljóp hann í burtu og í eltingaleikn- um missti hann ránsfenginn sem var fullur poki af sígarettum. Bíllinn brunaði burtu en fannst síðar í grenndinni. Eigandinn hefur verið yfirheyrður en engin játning Uggur fyrir.Máliðerírannsókn. -pj Vestmannaeyjar: Bifhjólamenn teknirfyrir hraðakstur Tveir mótorhjólaökumenn um tví- tugt voru teknir fyrir of hraðan akst- ur á Hamarsveginum í Vestmanna- eyjum í gærkvöldi. Annar var á 99 og hinn á 100 kílómetra hraða en hámarkshraði þama er 60. Lögreglan segir að hjólum hafi fjölgað talsvert ívorogskapihættuíbænum. -pj LOKI Ætli Davíð hafi gleymt að blessa þennan dreng? Skipt um lyftur r 9 Átta ára drengur, sem var eins síns liðs, lokaðist inni í annarri af tveimur lyftum Perlunnar um klukkan hálftíu í fyrrakvöld. Em hlutaðeigandi aöilar mjögáhyggju- fullir vegna tíöra bilana í lyftunum. Ef ekki tekst að finna orsök bilun- arinnar fljótlega kemur til greina að skipta um lyftur. „Drengurinn var þarna í 3-4 mín- Starfsmenn em að vinna að því að finna orsakir bilananna. „Það er búin er aö standa yfir athugun á þessu síðan þetta gerðist fýrst,“ sagði Jóhannes Zoega verk- efnastjóri. „Einhver bilun er í lyft- unum sem íraraleiöendur eru ekki klárir á hveijar eru en þaö er verið að gera gangskör að því að finna þetta. Það verður gert allt sem útur og áttaði sig ekki á þvi að ýta mögulegt er til að finna þetta sem á neyöarhnapp því hann varö að fyrst og ráða bót þar á. Ef viðgerð vonum hræddur. Þaö var talaö við ekki tekst gæti þaö komið til greína hann og hann róaðist. Síöan náðum að skipta um lyftur en þaö stendur viö honum út og keyrðum hann ekki til að svo stöddu og mér sýnist heira en hann jafnaði sig fljótlega," ekkert benda til þess ennþá.“ sagöi Bjami Ingvar Árnason veit- „Okkurþykirþettaafarleiðinlegt ingamaður í samtali við DV. en af okkar hálfu höfum við reynt að hafa öryggið sem mest,“ sagði Bjami. Lyftumar, sem em frá Bræðmn- um Ormsson, eru vaktaðar allan timann sem veitingastaöurinn er opinn. Hefur Bjarni séð um aö sem best verði að því staðið með þvi að staðsetja tvo af sínum starfsmönn- um við þær. Er þeim kappsmál að úr verði bætt - jafnvel með nýjum lyftum. Endanlegt eföriit meö viðhaldi og virkni lyftanna er hins vegar í höndum umboðsaðila framleið- enda. Ekki náöist í forsvarsmenn fyrirtækisins áður en blaðíð fór í prentun. -tlt Veðriðámorgun: Norðlæg eða austlæg átt A morgun verður hæg norðlæg eða austlæg átt. Skýjað verður um mestallt land og Útils háttar rigning eða súld víða á Noröaust- urlandi. Hiti verður á bilinu 8-17 stig, hlýjast sunnanlands. Niðurskurðaráform: Jóhanna á að i skeraum2-3 milljarða Niðurskurðaráform ríkisstjómar- innar eru að skýrast. Jóhanna Sig- urðardóttir á samkvæmt tilmælum fjármálaráðuneytisins að skera nið- ur útgjöld í félagsmálaráðuneytinu um 2-3 milljarða. Ólafur G. Einars- son á einnig að skera í menntamála- ráðuneytinu fyrir 2-3 mihjarða. Jóhanna er í fríi. Hún var ekki á ríkisstjómarfundi þegar þetta var ákveðið. Hún var ekki heldur komin úr leyfi þegar ríkisstjórnarfundur var haldinn um málið í gær. Sumir ráðherrar telja að hún verði erfið viðfangs í þessum áformum. Af hennar póstum mun meginnið- urskurðurinn eiga að vera hjá Bygg- ingarsjóði. Fundur verður í Hús- næðismálastjóm í dag þar sem ræða á vanda Byggingarsjóðs. Ráðuneytin hafa fengið tilmæU frá fjármálaráðuneytinu um niðurskurð hvert hjá sér. Þetta em ekki fyrir- skipanir, heldur vinnur hvert ráðu- neyti síðan úr þessum tillögum og leggur fram á ríkisstjómarfundi um mánaðamótin hve mikið einstakir ráðherrar ætla að taka á sig. Máhð verður svo afgreitt af ríkisstjóminni í heild. Vandinn, sem við er að fást, er tal- inn 23,7 milljarðar á næsta ári sam- kvæmt útreikningum fjármálaráðu- neytisins. Reyndar mætti bæta tveimur milljörðum þar viö, sem tal- ið er verða tekjutap ríkisins á næsta ári vegna minni veltu í þjóðfélaginu, þegar afli minnkar. Vandinn yrði samkvæmt því metinn á 25,7 millj- arða. Ætlunin er að ná nú fram niður- skurði og spamaði í ráðuneytunum sem nemi 14,5-15 miHjörðum. -HH TriUu var saknað: Hétt á loftnetinu oglétvitaafsér Akureyringum og þeim sem eiga leið um bæinn gefst nú kostur á að veiða lax og bleikju í Leirutjörn sem er svo gott sem i hjarta bæjarins. í tjörnina hafa verið settar 500 bleikjur sem eru 2-4 pund að stærð. Og f gær, er myndin var tekin, gekk mikið á er nokkrum tugum laxa, sem eru á bilinu 12-20 pund, var sleppt í tjörnina. Fólk getur svo keypt sér veiðileyfi í Leirunesti gegn vægu gjaldi og er ekki að efa að margir munu grípa til veiðistangar sinnar á næstunni og hugsa sér gott til glóðarinnar. DV-mynd gk Fróni KE 135, sem saknað var í nótt, fannst um tvöleytið í nótt, 28 sjómílur vestur af Öndverðamesi. Tækin í bátnum og talstöðin voru biluð og þegar sjómaðurinn náði loks í gegn í nótt hélt hann á brotnu loft- netinu í hendinni. Þá var búið að sakna hans frá því í gær. Sjómaðurinn ætlaði að reyna að komast í Rif og var reiknað með að hann kæmi þangað um níuleytið í morgun. Maðurinn sem er um þrít- ugt lagði að stað frá Keflavík um þrjú síðdegis á mánudag og ætlaði beint til Patreksfjarðar. -pj II Laugardaga 10—17 Sunnudaga 14-17 * « « i i i TMHUSGÖGN « « SIÐUMÚLA 30 SIMÍ 686822

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.