Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1991, Side 23
22
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991.
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991.
35
Uppreisnarmenn í Eyjum segja kvótalögum stríð á hendur:
100 þúsund
tonnum hent
- Kristján Óskarsson skipstjóri segir skoðun sína
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Fjölmiölar stóðu á öndinni þegar
Kristján Óskarsson, skipstjóri og út-
gerðarmaður í Vestmannaeyjum,
hélt því fram í útvarpsviðtali að ís-
lenskir sjómenn hentu 100 þúsund
tonnum af fiski í sjóinn á hverju ári.
Stjórnmálamenn heimta rannsókn
og það eru nánast einu viðbrögðin
við þessari' stóryrtu fullyrðingu
Kristjáns. En Kristján er ekkert á því
að draga í land, segir þessa tölu vægt
áætlaða.
Sjóhundur og aflakló
Kristján Óskarsson er skipstjóri á
Emmu VE, um 100 tonna togbát sem
hann á í félagi við Arnór Pál Valdi-
marsson vélstjóra. Kristján er sonur
Óskars Matthíassonar sem er gamali
sjóhundur og aflakló. Hann reri
lengst af á Leó VE 400 og er ennþá
kenndur við hann. Þeir eru fjórir
bræðumir, Matthias, skipstjóri og
útgerðarmaður á Bylgju VE, Leó,
skipstjóri og útgerðarmaður á
Haukafelh VE, og Siguijón, skip-
stjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE,
sem er einn aflasælasti skipstjóri
landsins og hefur bjargað fleiri
mönnum úr sjávarháska en aðrir.
Sjórí
móðurmjólkinni
Sjór, sjómennska, fiskur og fisk-
veiðar var eitthvað sem þeir bræður
drukku í sig með móðurmjólkinni.
Sjórinn og allt sem honum viðkemur
er þeirra líf og þegar hann ber á góma
er ekki komið að tómum kofunum.
Þeir byggja á eigin reynslu af sjónum
og hafa það umfram marga aðra að
hlusta á það sem gamhr kveða. Allir
hafa þeir sínar skoðanir á hlutunum
og eru ekkert að liggja á þeim og oft
hefur það sýnt sig að þeir hafa rétt
fyrir sér þó ekki falli það í kramið
hjá öhum.
Þó ekki sé nema rúm vika síðan
því var fyrst slegið upp að Kristján
héldi þessu fram með 100 þúsund
tonnin er þetta engin ný bóla hjá
honum. Hann er á móti núgildandi
lögum um stjómun fiskveiða sem
hann segir að sé að fara með okkur
beinustu leið til helvítis og gangi
þvert á megintilgang laganna að
vemda fiskstofna við ísland. Hann
gefur hka skít í hagræðinguna.
„Er það hagræðing þegar þú ert
búinn með eina tegund aö þurfa að
rasskeha um allan sjó, eins og ég
þarf að gera núna, í leit að ýsu sem
ekki finnst?“
Uppreisn í Eyjum
Kristján hefur lagt mikla vifinu í
að rökstyðja skoðanir sínar og er
hann einn aðalforsprakkinn í tíu til
tólf manna vinnuhópi í Vestmanna-
eyjum sem er að fara ofan í saumana
á fiskveiðistefnunni. AUt reyndir
skipstjórar í Eyjum og sumir hverjir
með gott aflamark. í fyrstu átti
Kristján sér fáa fylgjendur en þeim
íjölgar og þeir sem vinna með honum
í dag vom flestir á öndverðum meiði
við hann í upphafi. Ári áður en nú-
ghdandi lög um stjómun fiskveiöa
vora samþykkt skrifaði Kristján
grein sem hann kallaði: „Er ekki mál
að leikaraskapnum linni?" Þar segir
hann m.a.: „Verði aflamark ofan á
getur það orðið til þess í framtíðinni
að þeir sem eru búnir að kaupa sér
mikinn kvóta, samanber Guðbjörgu
ÍS og fleiri, fái kvótahtil skip til að
veiða kvótann fyrir sig með því skil-
yrði að þeir landi aflanum t.d. í
frystihús á ísafirði." Þetta hefur
gengið eftir því fjölmargir bátar
veiða kvóta annarra og fá fast verð
fyrir. Verð sem er langt undir því
sem er á hverjum tíma.
100 þúsund tonnum
hent vegna kvótans
í þessari sömu grein heldur Kristj-
án því fram að 100 þúsund tonnum
verði hent ef aflamark verður ofan
á, smáfiski sem ekki borgar sig aö
koma með í land vegna þess að því
dýrari sem kvótinn verður þarf dýr-
ari fisk til að standa undir kostnaði.
„Ef þeir bæru gæfu th að láta koma
með allan þennan smáfisk í land, sem
ég held að séu 100 þúsund lonn, og
við mundum senda hann ahan út
kemur meira af stórfiskinum til
vinnslu í landi. En það er ekki nóg
að koma með smáfiskinn í land. Það
verður líka að koma með tveggja og
þriggja nátta fiskinn í land, netafisk-
inn,“ segir Kristján.
Ruglið í
Morgunblaðinu
„Þá fyrst getum við farið að tala
um fiskveiðistjómun þegar við vit-
um hve mikið aflast hér við land.
Mér finnst þetta rugl, eins og Morg-
unblaðið setur þetta upp,“ segir hann
og vitnar th fundar sem hann átti
með Agnesi Bragadóttur blaðamanni
og Styrmi Gunnarssyni ritstjóra. En
Morgunblaðið hefur eins og kunnugt
er gerst málsvari hagræðingar í sjáv-
arútvegi og veiðheyfagjalds, sem
gengur þvert á skoðanir Kristjáns.
„Ég er alfarið á móti veiðileyfagjald-
inu. Ég sagöi við þau að ef þaö kæm-
ist á myndi ég hætta þessu helvíti.
Og af því að verið er að tala um hag-
ræðingu, smáfisk og útflutning á
ferskum fiski þá er ég viss um aö ef
það kæmist á að við fengjum að flytja
smáa fiskinn út og dauöblóðgaði fisk-
urinn kæmi í land þyrftu Árni Bene-
diktsson og Amar Sigurmundsson
ekki að vera með þennan áróður
gegn útflutningi á ferskum fiski. Þá
þurfa þeir að snúa sér að öðm vanda-
máh, að fá fólk til að vinna í frysti-
húsunum. Það geta þeir ekki gert
nema hækka kaupið við fiskverkun-
arfólk og það er ekki minna mikil-
vægt en við sjómennirnir. Það á al-
veg jafnmikinn þátt í verðmætasköp-
uninni og við.
Útlendingar
í frystihúsunum
Ef við lítum inn í frystihúsin í dag
þá sjáum við þar fjölda útlendinga.
Og hvernig verður þetta éftir nokkur
ár? Þá vih enginn hta við þessu! Þetta
verða orðnir eintómir Pólveriar,
Austur-Þjóðverjar, Portúgahr og
jafnvel iitháar. Ég var að heyra að
þar væri kaupið 800 krónur á mán-
uði,“ segir Kristján og hlær. „Svo
má ekki gleyma því að frystihúsin
eiga 80% af heildarkvótanum og
flytja mest út af ferskum fiski sjáh.
Mogginn vill sameina frystihús í
Eyjum og á Snæfellsnesi, þar sem á
að keyra fólk á mihi staða. Væri ekki
nær að flytja fiskinn og þá gætu
frystihúsin skipst á að vinna hveija
tegund, t.d. ufsa í einn mánuð og
þorsk þann næsta? Þetta sparaði
mikið og tryggði þessu fólki vinnu í
sinni heimabyggð. Þetta á við fleiri
staði á landinu, t.d. Árborgarsvæðið.
Fiskvinnslufólk á landsbyggðinni á
ekki að þurfa að sæta hreppaflutn-
ingum í lok 20. aldarinnar þó Mogg-
anum finnist það sjálfsagt."
„Við erum á hraðri leið til helvítis,"
segir Kristján.
Ekki mikið álit á
fiskifræðingum
Kristján hefur ekki ýkja mikið álit
á fiskifræðingum og gefur htið fyrir
þeirra fræði. „Ég hef spurt nokkra
þeirra hvort það hafi eitthvað að
segja að kreista þorskinn yfir hrygn-
ingartímann og blanda saman
hrognum og svhum og henda í sjó-
inn. Þeir segja allir nei og aftur nei.
Svo var það í fréttum nýlega að Dan-
ir hefðu verið aðkreista þorsk í þess-
um thgangi á landi og látið hann
vaxa upp í kemm áður en þeir
slepptu seiðunum. En íslenskir fiski-
fræðingar segja að þetta hafi ekkert
að segja. Ég á viðtöl, sem ég tók sjálf-
ur, við gamla skipstjóra, aha komna
yfir áttrætt. Þeir segja að það hafi
tíðkast á bátum frá Eyjum í upphafi
aldarinnar að kreista hrogn og svh
úr þorski sem þeir fengu áður en
fiskurinn var blóðgaður. Þessir karl-
ar höfðu trú á þessu og hefðu ekki
gert það annars. Ef það er hugur í
okkur sjómönnum th að styrkja og
vemda fiskistofnana, af hverju á þá
ekki að virkja okkur, gera okkur
meðvitaður um að þetta sé hægt en
ekki svara út í hött, eins og fiskifræð-
ingar hafa gert þegar ég spyr þá?“
Hann nefnir eina undantekningu og
segir að fiskifræðingur hafi reynt
þetta á bát frá Eyjum. Setti hann
svh og hrogn í fötu sem náði að klekj-
ast en ekkert framhald varð á því.
Tilviljun látin ráða
Friðanir heyra hka að einhverju
leyti undir fiskifræðinga og þar segir
Kristján að víða sé pottur brotinn.
„Fiskiskip í dag geta flest hver verið
svo htið á sjó að manni er spurn; af
hveiju er ekki stærri svæðum lokað
yfir hrygningartímann? Þá kæmi til
kasta fiskifræðinga að segja th hve-
nær fiskurinn í raun og veru hrygh-
ir en ekki thvhjun látin ráða eins og
manni finnst í dag. Það þýðir náttúr-
lega að þeir verða að fara á sjó, grey-
in, til að sjá með eigin augum hvenær
fiskurinn raunverulega hrygnir og
þá eiga þeir hiklaust að loka stórum
svæðum.
Auðvitað er það misjafnt eftir
svæðum hvenær hann hrygnir en
með því að vera á miðunum geta
þeir séð það.
Þessum sem eru meðmæltir núver-
andi kvótakerfi vh ég bara benda á
ágæta mynd í sjónvarpi um veiðar í
Winnipeg-vatni sem var að verða
steindautt vegna ofveiði. Þar var
leyft að veiða þrjá daga í viku en
vegna minnkandi veiði var þeim
íjölgað í fjóra og hvað gerðist þá?
Fiskistofnarnir náðu sér upp og
veiðidögum vár fjölgað."
Ertu sannfærður?
Ertu alveg sannfærður um að það
sé thfehið að íslenskir sjómenn hendi
100 þúsund tonnum í sjóinn á ári?
„Já, það er ég. Ég skai lýsa því fyr-
ir þér hvernig ég reikna þetta út. Við
skulum bara taka þennan bát sem
ég er á. Við tökum að meðaltali sex
höl á sólarhring og við skulum segja
að úr hverju þeirra fari tvær körfur,
samtals 50 kg, aftur í sjóinn, sem
gerir um 300 kg á sólarhring. Ef ég
geri hann út í 210 daga á ári eru þetta
63 tonn. Og 927 vélbátar henda sam-
kvæmt þessu 58.401 tonni á ári. Ég
held að það sé ekki of áætlað að hver
togari hendi 1,3 tonnum á dag og 118
togarar, sem gerðir eru út í 270 daga,
henda því 41.418 tonnum á ári og
samanlagt eru þetta 99.819 tonn. Og
mér finnst skrýtið að það mótmæhr
þessu enginn en kannski er það ekk-
ert skrýtið."
Það fer ekki mikið fyrir 1300 kg í
afla togara sem veiðir kannski 12 til
15 tonn á sólarhring. „Ef menn trúa
þessu, ekki, af hveiju setur Þorsteinn
þá ekki bara reglugerð sem leyfir að
allur smáfiskur næsta ár verði utan
kvóta. Þá vantar allan netafiskinn
sem er hent í þetta dæmi hjá mér og
kolann."
Smáfiskurinn
verðmætur
Kristján fullyrðir að í smáfiskinum
sem hent er liggi mikh verðmæti,
næg th að stoppa í mörg fjárlagagöt.
„Við höfum verið að senda út smá-
fisk og fá allt upp í 124 krónur fyrir
kólóið af honum ferskum. Það gerir
um 90 til 95 krónur í skilaverð en ég
vh vera heldur lægri og miöa við 85
krónur í skilaverð og þá gera þetta
samtals átta og hálfan mihjarð, ef það
eru 100 þúsund tonn sem við hend-
um. Svo standa stjómmálamenn á
gati yfir einhveiju fjármálagati á
meðan við hendum fiski fyrir átta
og hálfan mhljarð. Ja, hvaö á maður
að segja? Ég veit það ekki og skh enn
síður.
En erum við ekki að tapa enn
stærri upphæðum því að einhvern
tímann hefði þessi smái fiskur orðið
stór?
Djöfulsins
glás í sjóinn
Mér finnst bera mest á þessu hjá
mér þegar við lendum í krafta-
fiskirh. Þá lokast pokinn alveg og
ekkert sleppur út af smáfiski. En ég
get sagt þér að það sem kveikti á
perunni hjá mér varðandi smáfisk-
inn var þegar ég fór út til Englands
1987, til Huh. Við komum í frystihús
þar sem var verið að flaka þorsk úr
Barentshafinu sem hauslaus var
ekki meira en 15 sm. Þá hugsaði ég
með mér: Mikh djöfulsins glás fer í
sjóinn á íslandi og þá sá maður hætt-
una sem felst í því að stýra veiðum
eftir aflamarki. Því það er staðreynd
að skammtaður afh verður til þess
að menn henda þeim fiski sem
minnst fæst fyrir og því meira sem
borgað er fyrir kvóta, langtíma- eða
skammtímakvóta, því meim er hent.
Þetta er það sem hagfræðingarnir
gleyma eða vhja ekki vita af. Og ef
við fáum veiðileyfisgjald á þetta eftir
að versna, það er nóg aö þurfa að
borga í Verðjöfnunarsjóð, sem er
hrein og klár eignaupptaka. Fyrir
kosningar ætlaði íhaldið að leggja
þennan sjóð niður en ekkert hefur
enn gerst og nú vhja sumir stjórnar-
hðar koma á veiðileyfagjaldi. En þar
hefur Þorsteinn staðið á móti, þökk
sé honum.
Fæðastmeð
silfurskeið
Þú ert þá algjörlega á móti núver-
andi kerfi, aflamarkinu?
„Já, það er ég, og get sagt þér út
af hveiju. Þeir menn á íslandi í dag,
sem fæðast með silfurskeið í kjaftin-
um fá í arf einhver tonn af óveiddum
fiski sem þeir geta síðan selt. Ég get
ekki séð neitt réttlæti í þessu. Ef þetta
er réttlátt hlýt ég að geta tekið hluta
af kostnaði við Þjóðleikhúsið og
reiknað það til gjalda hjá mínu fyrir-
tæki. Þá væmm við ekki að borga
tæpar 8 mhljónir í gjöld. Þjóðleikhús-
ið er sameign okkar eins og fiskurinn
í sjónum sem útvaldir menn geta
selt eins og þeim sýnist. Ég get líka
nefnt annað dæmi sem stendur mér
nærri. Nú eiga pabbi og Sigurjón
bróðir Þómnni Sveinsdóttur sem er
með gott aflamark. Væri eitthvert
réttlæti í því ef pabbi féhi frá að við
systkinin fæmm að selja kvóta Þór-
unnar? Þetta eru aflaheimhdir sem
Sigurjón hefur unnið th og ef th ó-
sættis kæmi vegna arfs gæti hann
staðið uppi með svo gott sem kvóta-
laust skip. Það hljóta ahir að sjá vit-
leysuna í þessu."
Aflamarkið
er helstefna
Tvö meginmarkmið núverandi
stefnu í stjómun Ðskveiða eru vernd-
un fiskistofna og aukin hagræðing.
Finnst þér það hafa tekist þegar við
fáum svarta skýrslu um ástand
Kristján Óskarsson, foringi uppreisnarmanna í Eyjum, í brúnni. DV-myndir Ómar Garðarsson
þorsksins þegar kvótinn er bráðum
sjö ára?
„Þessi skýrsla sannar að aflamark-
ið er hrein og klár helstefna. Fyrsta
skhyrðið til að geta stjórnað þessu
af einhverju viti er að vita hvað mik-
ið við veiðum og þeir verða að viður-
kenna að þeir völdu vitlausustu leið-
ina, þessir sérfræðingar.
Ég var búinn að benda Kristjáni
Ragnarssyni hjá LÍÚ á þetta. Ég
sýndi honum skýrslur úr frystihús-
inu hjá mér yfir humarvinnslu. Á
mihi áranna 1985 og 1986, sem var
síðasta úthaldið mitt á humar, vill
svo einkennhega th að humarinn hjá
mér stækkar um 22% eða réttara
sagt að 22% meira fer í efsta stærðar-
flokk. Ég veit skýringuna og sagði
Kristjáni hana. Það var vegna þess
að við hentum smáa humrinum.
Áður var hehdarkvóti 2100 tonn og
hver reyndi að veiða eins og hann
gat en eftir að Halldór Ásgrímsson
breytti þessu og hver bátur fékk
ákveðinn kvóta þá aht í einu stækk-
aði humarinn hjá þeim bátum sem
voru með htinn kvóta.
Ég sagði Kristjáni að þetta yrði
nákvæmlega eins með bolfiskinn en
mér var ekki trúað frekar en vant
er.“
Komnirfram
úr skaparanum
Þú vhlt sóknarmark?
„Já, mér finnst það réttasta leiöin
th að ná upp fiskistofnunum, ég sé
enga hagræðingu í því að þegar bátar
eru búnir með eina sort séu þeir að
leita að annarri sem ekki finnst. Nú
er ég sjálfur keyrandi út um allan
sjó, leitandi að þessari helvítis ýsu
og eyðandi ohu í þetta helvíti. Það
er engin hagræðing í þessu.“
Kristján varar við fækkun skipa.
„Þá þarf hvert skip að sækja meiri
afla og því fylgir meiri slysahætta
þegar menn sækja í verri veðrum.
Skaparinn hefur komið upp ágætis-
kerfi th að vernda fiskstofnana með
bræludögum þegar ekki er hægt að
róa. Nú höfum við farið fram úr hon-
um með okkarhugviti og getum veitt
í verri veðmm en áður. Það sem við
þurfum að gera núna er að fara að
eins og hann og búa til okkar eigin
bræludaga með sóknarmarki. Við
vitum að þessi auðlind okkar er ekki
óþijótandi og samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem við höfum um afkasta-
getu fiskiskipaflotans á að vera auð-
velt að ákveða þann fjölda daga sem
hver bátur má róa á ári. Ef fræðingar
geta það ekki er ég thbúinn að gera
það fyrir þá. Forsendurnar eru til í
Útvegi.
Vinnuhópurinn, sem ég er í, leggur
th að vélarstærð verði látin ráða
dagafjölda hvers skips af því það er
raunhæfari viðmiðun um afkasta-
getu en lengd en ef menn vhja láta
lengdina ráða sættum við okkur við
það.“
Þettavilja
uppreisnarmenn
Vinnuhópurinn leggur til eftirfar-
andi stefnu sem hann kallar iðnaðar-
fiskveiðistefnu.
Hann leggur th að árinu verði
skipti í þrjú tímabil. Minni bátar fái
flesta daga yfir sumartímann af ör-
yggisástæðum en öfugt hjá stærri
bátum. „Og stærstu togararnir gætu
verið á úthafskarfa, sem er utan
kvóta, yfir sumarið. Eina stjórnunin
að mínu áhti á að vera ákveðinn
dagafjöldi á ári, að öðm leyti eiga
stjórnvöld ekki að skipta sér af veið-
unum. Ef einhver fiskstofn er htih
er einfaldlega of dýrt aö sækja í hann
og hann fær frið th að vaxa. Fiski-
fræðingar segja að hthl stofn geti
gefið af sér stóran.
Hvorki Þröstur
né Magnús hafa
verið til sjós
Kristján vhl fleiri svona vinnuhópa
og að starfandi sjómenn fái að láta
th sín heyra og hafa áhrif.
„Mér lýst ekkert á þessa tvo menn
sem Þorsteinn er búinn að skipa sem
formenn nefndar sem á að endur-
skoða lögin. Hvorugur þeirra, Þröst-
ur Ólafsson eða Magnús Gunnars-
son, hafa verið th sjós, svo ég viti
th, og örugglega hafa þeir aldrei unn-
ið undir kvótastjórn. Ég held að þetta
fari í sama farið og áður. Ég var aht-
af að gagnrýna þennan 24 manna hóp
sem bjó til þessi lög yfir okkur núna.
Þar var ekki nema hálfur sjómaður,
Addi á Páli Pálssyni. Ég er hræddur
um að þetta fari í sama farið aftur,
að menn sem ekkert vit hafa á þessu
og skrifstofublækur verði látnar
ráða, menn sem aldrei hafa migið í
saltan sjó. Menn geta sest niður við
tölvur og fengið út það sem þeir vilja
með röngum forsendum. Það get ég
líka gert.“
Kerfið býður
upp á svindl
Hvað segir þú um kvótasvindl?
„Ég skal ekkert fullyröa um það
en núverandi kerfi býður upp á
svindl."
Hvemig á að koma í veg fyrir
svindl á sóknarmarki?
„Við setjum bara upp stimph-
klukkur í öllum verstöðvum á land-
inu. Hver bátur fær sitt kort sem
skipstjórinn sækir þegar hann fer á
sjó og afhendir þegar hann kemur í
land. Þetta kort geta skipstjórar sýnt
þegar eftirhtsmenn koma um borð.
Svo era líka komin gervitunglakerfi
sem sýna hvar hver bátur er þannig
að hægt er að sjá hvenær þeir eru á
sjó og hvenær ekki.“
Fer aldrei út í pólitík
Hefur þér aldrei dottið í hug að fara
í póhtík?
„Nei,“ og nú hlær Kristján. „Það
hefur mér aldrei dottið í hug en það
sem okkur vantar í dag em fleiri
röggsamir stjómmálamenn eins og
Davíð Oddsson. Og það á hiklaust að
láta stjómmálamenn og embættis-
menn fjúka sem verða uppvísir að
annarri eins vitleysu eins og nú er
að kom upp á borðið með sjóöina.
Nei, út í póhtík fer ég aldrei. Ég er
fyrst og fremst að þessu af því að
mér stendur ekki á sama hvernig fer
fyrir þessari þjóö í framtíðinni. Ég
er hræddur um að bömin okkar hafi
lítið að bíta og brenna af fiskstofn-
arnir hverfa. Þá verður víða þröngt
í búi og í dag erum við á hraðri leið
til helvítis."
Safnar myndböndum
í frístundum
Þó að Kristján eyði miklum tíma í
þetta em áhugamáhn fleiri fyrir utan
útgerðina. Hann gerir mikið af því
að taka videomyndir og á meðal ann-
ars mikið safn af viðtölum við eldri
menn sem lýsa atvinnuháttum og
fleiru frá sínum yngri árum og aldrei
sleppir hann tækifæri tíl að fá sér
snúning.
Hann hefur ekkert á móti því að
þetta komi fram en að lokum vill
hann segja þetta: „Ég skora á skip-
stjóra, sem eru tilbúnir að fá tvo eft-
irlitsmenn um borð til sín, að hafa
samband við mig. Með því skilyrði
að þeir fái alla þjónustu um borð, kör
ogís, til að ganga frá öllum smáfiski í.
Ég segi þetta með fyrirvara um að
ég fái leyfi hjá Þorsteini Páls til að
þessi smái fiskur verði utan kvóta
og að Aflamiðlun leyfi að flytja hann
út og eftirhtsmennirnir fái allan
þann pening sem fyrir hann fáist í
eigin vasa, það yrðu góð laun.
Ef þetta gengur eftir finnst mér að
Magnús Gunnarsson geti fylgst með
þessu í Þýskalandi, að ekki komi
stærri fiskur en 50 sm upp úr körun-
um og Þröstur gæti verið í Englandi.
Ég ætla ekki að koma með fleiri
ábendingar að sinni en þeir sem hafa
áhuga geta hringt í síma 98-11664
eftir klukkan 7 á kvöldin,“ sagði
Kristján að lokum.