Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. Fréttir Guðmundur Ami Stefánsson eftir flokksstj ómarfund krata: Jón Baldvin hef ur verið á öðrum f undi en ég - flestir ræðumanna gagnrýndu fLokksforustuna vegna flárlagagerðarinnar „Ég er mjög ánægður með þennan fund þar sem fram komu skýr skila- boð til forustu flokksins um hvernig hún ætti að standa að stefnumótun og úrvinnslu þeirra mála og varð- andi vinnubrögð viö fjárlagagerð. Það gefur augaleið að við ætlumst til þess að forystan fari alveg eftir þeirri leiðréttingu á kúrs flokksins sem þarna var samþykkt. Ég hef hins vegar áhyggjur af því ef formaður flokksins skynjar og skilur þennan flokksstjórnarfund á þann veg að flokksmenn hafi verið, séu og verði hæstánægðir með vinnubrögðin við fjárlagagerðina. Ef Jón Baldvin held- ur að stuðningur við flokksforystuna hafi staðið upp úr á fundinum hefur hann verið á öðrum fundi en ég,“ sagði Guðmundur Árni Stefánsson um 130 manna flokksstjómarfund Alþýðuflokksins sem haldinn var á föstudagskvöld. Guðmundur Ámi segir að á fundin- um hafi verið samþykktar ályktanir, bornar fram af honum og fleirum, sem snúist um stefnu Alþýðuflokks- ins og áhersluatriði hans í núverandi stjórnarsamstarfi. Þar sé hnykkt á því að frá grundvallaratriðum vel- ferðarinnar megi aldrei víkja varð- andi heilsugæslu og læknishjálp og menntun. „Þá segir einnig að flokkurinn eigi aö skattleggja fjármagnstekjur, taka gjald fyrir aðgang aö sameiginlegum auölindum og kerfisbreyta í atvinnu- vegum. Þessar auknu tekjur eigi svo að nota til að jafna aðstöðu og tekjur í samfélaginu, svo sem með hækkun skattleysismarka, húsaleigubótum og réttlátara lífeyriskerfi." Guðmundur segir aö um tillögur af tvennum toga hafi verið að ræða. „í annarri er það sem formaöur flokksins telur eitthvert aðalatriði að flokksstjórnin lýsi yfir stuöningi viö ráðherra og þingflokk við störf að fjárlagagerð. Það stóð aldrei til af minni hálfu eða nokkurs annars að lýsa yfir vantrausti á forystu flokks- ins. Málið snýst fyrst og fremst um það fyrir hvað Alþýðuflokkurinn stendur og hvemig hann ætlar að haga sínum vinnubrögðum. Á fund- inum var ég ekki uggandi um að for- ystan hlýðnaðist flokksstjórnarfund- inum en það sem á eftir hefur farið vekur mér ugg.“ Guðmundur Árni sagði ekkert launungarmál að tillagan um stefnu- mál flokksins og vinnubrögð hefði verið flutt að gefnu tilefni. „Tillagan var flutt til aö skerpa á línunum varðandi fjárlagadæmiö. 17 af 22 ræðumönnum gagnrýndu að áhersluatriða flokksins gætti ekki nægilega í þeim fjárlagaramma sem liggur fyrir." Guömundur segir að annars vegar hafi verið samþykkt ályktun þar sem gagnrýnt var að forsvarsmenn flokksins töluðu' óhugsuðu máli og kastað væri upp hugmyndum, eins og um sjúkrahúsgjöld, sem væru fjarri stefnugrundvelii flokksins. „Það kemur annar flokksstjórnar- fundur eftir þennan. Umræðan á liðnum dögum sýnir þó og sannar að grasrótin í Álþýðuflokknum er lifandi og sterk og ætlar sér ekki aðeins að fylgjast með úr fjarska heldur láta til sín taka við stefnu- mörkun." -hlh Mikill mannfjöldi var í miðbæ Reykjavikur um helgina en þó var helgin róleg að sögn lögreglu. Minna var um ölvun en undanlarnar helgar og virtist tónleikahald lítil áhrif hafa þar á. Þó var galsi í fólki eins og myndin sýnir vel. DV-mynd Hanna Amar Sigurmundsson, Samtökum fiskvinnslustöðva: Bannað verði að flytja út ferska ýsu og þorsk Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að samtökin leggi til að bannað verði að flytja út ýsu og þorsk sem óunninn ísfisk vegna minnkandi kvóta. Hann segir að best væri að ekki þyrfti að beita boðum og bönnum en núver- andi aflasamdráttur krefjist þess aö gripið verði í taumana og sem mest af afla flotans verði seldur hér innan- lands á mörkuðum. „Viö leggjum til að það verði tak- markaður frekar útflutningur á ferskum fiski og aö það verði tekið fyrir útflutning á ferskum þorski og ýsu við þær aðstæður sem viö búum við, stórfelldan aflasamdrátt vegna minni kvóta.“ segir Arnar. Samtök fiskvinnslustöðva telja að miðað við 13,5 prósent tekjusamdrátt fiskvinnslunnar vegna minni afla og við óbreytt hráefnisverö sé frysting- in núna rekin með tæplega 6 prósent halla og söltunin rúmlega 8 prósent halla. Heildarfiskvinnslan í landinu sé hins vegar rekin með um 6,9 pró- sent halla að jafnaði. Arnar segir að verö á þorski á Ðsk- mörkuöum hérlendis sé fyliilega sambærilegt við þaö verð sem fengist hefur á breska markaðnum. „Sem betur fer hefur þegar orðið mikill samráttur á sölu á ferskum þorski og ýsu á árinu, eða um 40 prósent. Sem betur fer hefur þetta gerst með því að útgerðarmenn og sjómenn hafa séð sér hag í að landa hér heima á fiskmörkuðunum." Amar segist ennfremur vera á þeirri skoðun að þessum málum verði í framtíðinn best borgið með þeim hætti að allur isfiskur verði seldur á fiskmörkuðum hér innanlands og að útlendingar geti þá boðiö í fiskinn hér heima en í samkeppni við inn- lendarfiskvinnslustöðvar. -JGH Eiður Sveinsson, skipstjóri á Sunnutindi um bann við ferskfiskútflutningi: Ekki fáránlegt heldur beinlínis hlægilegt - leggur tfi að Kristján Ragnarsson verði rekinn frá LÍÚ Eiður Sveinsson, skipstjóri á tog- aranum Sunnutindi frá Djúpavogi, segir tillögu Samtaka fiskvinnslu- stöðva, um að útflutningur á ferskum þorski og ýsu verði bannaður, ekki aðeins fáránlega heldur beinlínis hlægilega. Þá telur Eiður að formaöur Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, Kristján Ragnarsson, vinni gegn hagsmunum frjálsra útgerðarmanna og að best sé að reka hann. „Verslanir í Bretlandi greiða um 400 krónur fyrir kílóið af ferskum flökum en aðeins um 250 krónur eft- ir að þessum flökum hefur verið mokað í gegnum fiskvinnslustöðv- amar hér heima og þau talin unnin. Þetta er svona einfalt mál. Það er því ekkert vit í þessari tillögu," segir Eiöur. „Auk þess er þaö einfaldlega þann- ig aö sumir vilja bara kaupa ferskan fisk en ekki frystan. Það er bara þannig. Þú vilt fara út í fiskbúð og kaupa nýjan fisk. Þú verður að hafa tækifæri til þess. Það er ekki hægt aö skikka fólk til að kaupa frosinn fisk ef það vill það ekki. Þess vegna verðum við aö útvega þessum mark- aði líka ferskan fisk, alveg eins og frosinn." Eiður segir að skilaverð fyrir ísað- an fisk til Bretlands á haustmánuð- um í fyrra hafi verið um 120 krónur kílóið. Á sama tíma hafi fengist um 85 krónur á fiskmörkuöum fyrir sunnan. Frá því hefði hins vegar dregist um 15 krónur í flutnings- kostnað að austan svo og 4 prósent uppboðskostnaður. „Útgerðir úti á landi sitja einfald- lega ekki við sama borð og útgerðir á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er langbest að við flytjum fiskinn beint út.“ - Nú gagnrýndi Kristján Ragnars- son í fjölmiðlum um helgina þau skip sem hann segir háð erlendum fisk- kaupendum, sérstaklega í Hull, og telur að banna eigi þessum skipum aö flytja út ferskan fisk. „Þetta er ekki svaravert. Kristján er orðinn einhvers konar guðfaðir og farinn að stjórna þeim sem hann á aö vinna fyrir. Hann er búinn að snúa dæminu við. Hann er í þjónustu okkar og hann á að vinna sem slík- ur. Ef ég myndi tala svona gegn því fyrirtæki sem ég vinn hjá þá yrði ég rekinn umsvifalaust. Og það er það sem ætti að gera við Kristján Ragn- arsson í dag. Þaö á hiklaust að reka hann. Hann er eingöngu að vinna Tyrir fiskvinnslustöðvar en ekki út- geröarmenn sem eru sjálfstæðir.“ -JGH Vikuhátíðarhöldum á Self ossi lokið Að loknum ræðuhöldum gekk Vigdís Finnbogadóttir ásamt gestum yfir Ölfus- árbrú og gróöursetti tré í Brúarlundinum sem er norðan og austan við brúna. DV-mynd Kristján Kiistján Einarsson, DV, Selfosst Hátíðarhöldum, sem staöið hafa á Selfossi sl. viku í tilefni þess að 100 ár eru liöin frá því að brú yfir Ölfusá var vígö, lauk í gærkvöldi með mik- illi flugeldasýningu viö brúar- endann. Dagurinn í gær ^ar aðalhátíðisdag- urinn því þennan dag fyrir 100 árum vígði landshöfðinginn, Magnús Stephensen, brúna að viöstöddum 1800-2000 gestum. Svipaður fjöldi gesta var viðstaddur þegar Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, flutti ávarp á þeim stað þar sem gamla brúin stóð. Að loknum ræðuhöldum gekk Vigdís ásamt gestum yfir Ölfus- árbrú og gróðursetti tré í Brúarlund- inum sem er noröan og austan viö brúna. Ölfusárbrú var lokuð allri bílaumferð í u.þ.b. hálftíma á meðan hátíðargestir gengu yfir hana aö Brú- arlundinum. Giskað er á að 4-5 hundruð bílar hafi þurft að bíða á meðan. Fulltrúar vinabæja Selfoss á Norðurlöndum fóru aö dæmi Vigdís- ar og gróðursettu einnig tré í lundin- um. Klukkan þrjú var nýtt bæjar- og héraðsbókasafn vigt að viðstöddum forseta og menntamálaráöherra. í grunnskólanum var boðið til köku- áts, Guðnabakarí hafði bakað brúar- köku sem var 1,6 metrar á breidd og 3,0 metrar á lengd. Bæjarstjómar- menn skáru kökuna fyrir hátíðar- gesti. Fyrir. flugeldasýninguna var skemmtidagskrá í íþróttahúsinu og hátíðarkvöldverður í Hótel Selfossi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.