Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. 3 Fréttir Um 90 manns voru viðstaddir vígslu Útivistarskálans á Fimmvörðuhálsi. Fimmvöröuháls: Útivistarskálinn vígður án „Já, við vígðum skálann og það gekk alveg ljómandi vel þrátt fyrir ákaflega leiðinlegt veður, rigningu og rok,“ sagði Jóhanna Boeskov, formaður Útivistar. Um er að ræða hinn umdeilda skála á Fimmvörðuhálsi, sem endurbyggð- ur var í óþökk hreppsnefndar Aust- ur-Eyjaíjallahrepps og meintra lan- deigenda. Deilur hafa staðið um hver eigi landið, sem skáhnn stendur á, og var á sínum tíma farið fram á lög- bann á byggingu skálans sem síðar var hafnað. „Það voru um 90 manns viðstaddir vigsluna og sem betur fer var fólk neðan úr sveitinni þeirra á meðal. Eins og málin standa þótti okkur einna vænst um það, því það kom svo greinilega í ljós að það eru ekki allir á móti byggingu skálans," sagði Jó- mótmæla hanna. „Þarna voru líka Útivistarfélagar og öll stjóm félagsins, gamlir fjalla- menn og afkomendur þeirra og ýms- ir aðrir gestir. Skálinn var formlega afhentur, haldin hátíðleg helgistund, Eiður Guðnason umhverfisráðherra flutti okkur ámaðaróskir, tekið var á móti mörgum góðum gjöfum og að lokum vom svo bornar fram veiting- ar,“ sagði Jóhanna. Aðspurð sagðist Jóhanna ekki eiga von á frekari mótmælum bænda. „Nei, alls ekki, frá okkar hlið er þetta mál búið fyrir löngu. Þó að þeir hafi leyft sér að vefengja það og farið fram á lögbann var því hafnað. Ef það verður eitthvert áframhald á þessu er það algjörlega af þeirra hálfu, en auðvitað verðum við að svara fyrir okkur. “ -ingo Ýtt yfir grenitré efst í skógræktinni. DV-mynd Kolbeinn Gróðurskemmdir við vegargerð Kolbeinn Guiuiaisson, DV, BMudal í srnnar hafa staðið yfir vegavinnu- framkvæmdir á fjaílinu Hálfdáni, það er á veginum milli Tálknafjarðar og Bíldudals. Unnið verður fyrir 31 milljón króna að þessu sinni. Aðalframkvæmdimar hafa verið í svokölluðu Tagli og upp með gömlu skógræktargirðingunni. Þar hefur vegurinn verið hækkaður og breikk- aður og hefur farið fyrir brjóstið á mörgum sú mikla gróðureyðing sem af þessum framkvæmdum hefur hlotist. Land, sem áður var kjarri vaxið, er nú moldarflag. Einnig var ýtt yfir 20 ára gömul grenitré sem stóðu efst í skógræktinni. Eflaust hefði mátt færa trén til svo þau yrðu ekki undir vegarstæðinu en það er von manna að sem fyrst verði sáð í sárin áður en meiri skemmdir verða á gróðri. Kirkjan með leikmannaskóla Vísir að leikmannaskóla verður á vegum Þjóðkirkjunnar í vetur. Kennt verður í tveimur tíu vikna önnum, fjórar kennslustundir í viku. Guðfræðideild Háskóla íslands ann- ast kennsluna, en auk þess verður dvalist í Skálholti er vorar í nokkra daga. Námskeið þetta er ætlað fyrir starfsmenn safnaöa og aðra áhuga- menn um kirkjulegt starf og hefst í lok þessa mánaðar. Skólagjald er ekkert. Það eru fulltrúar guðfræöideildar, fræðsludeildar Biskupsstofu og Skál- holtsskóla sem hafa annast undir- búning námskeiðsins. trárc’ isiiJ iijí! r:iijxjjír!),ri Sorpa fær lítið fyrir notaðan pappír: Ovönduð f lokkun pappírs ástæðan - segir framkvæmdastióri Sorpu „Ástæðan fyrir því að við fáum svona lítið fyrir þann pappír, sem við höfum sent út til Danmerkur, er sú að flokkunin hjá okkur er alltof óvönduð. Það er of mikið af aðskota- hlutum í pappírnum," sagði Ög- mundur Einarsson, framkvæmda- stjóri sorpeyðingarstöðvar höfuð- borgarsvæðisins, í samtali við DV. Sorpa er nú að gera tilraun til þess að taka á móti notuðum pappír og flytja hann út til Danmerkur og selja. „Við erum búnir að flytja um 490 tonn út en höfum ekki fengið neina greiðslu fyrir það ennþá. Það er ekki búið aö meta nema brot af því, kannski fjörutíu tonn, en við sjáum nú samt varla fram á að fá fyrir flutn- ingskostnaði," sagði Ögmundur. „Við vissum alltaf að þetta yrði ekkert gróðafyrirtæki, ef menn halda það er það algjör misskilningur." Aðspurður um þessa aðskotahluti nefndi Ögmundur sem dæmi að þeir væru strax komnir í vandræði ef fólk skilaði inn pappír í plastpokum því plastið væri aðskotahlutur. „Einnig skiptir máli hvort um er að ræða dagblaðapappír eða annan pappír, hvort tímarit eru með límd- um eða heftum kih og svo framvegis. Til þess að gera þetta að einhverju verðmæti verður flokkunin að vera mjög vönduð." Ögmundur sagði að í raun mættu þeir þakka fyrir að losna við pappír- inn, Evrópa væri yfirfull af úrgangs- pappír sem lítið fengist fyrir. „Við fórum af stað með þessa papp- írsmóttöku sem sérstaka tilraun og ætlum að halda henni áfram í að minnsta kosti tólf mánuði. Svo met- um við stöðuna," sagði Ögmundur. -ingo R(® 0G REGLA BÚ.DSHÖKÐA 20 - 112 RKVKJAVÍK - SÍMI91-681199 - KAX 91-6735! I Víð eígum allar stærðír af fallegum fataskápum og verðíð slær engínn út. §1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.