Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Qupperneq 9
9 MÁNUDA'Gtm 9. SEPTEMBER1991. Útlönd Carlos Menem, forseti Argentinu, og perónistaflokkur hans sigruðu i kosn- ingum sem fram fóru í gær. Símamynd Reuter Perónistar sigruðu í Argentínu: Menem for- seti hraðar umbótum Carlos Menem, forseti Argentínu, hét því í morgun að hraða umbótum í átt til markaðshagkerfis í landinu eftir að perónistaflokkur hans sigr- aði í kosningum sem fram fóru í gær. „Þessi úrslit eru virkilega ánægju- leg,“ sagði Menem við fréttamenn í stjómarráðinu. „Þetta var ekki þjóð- aratkvæðagreiösla heldur traustsyf- irlýsing á efnahagslega, póhtíska og félagslega stefnu ríkisstjómarinnar. Við ætlum að hraða umbótunum og koma á jafnvægi fyrir fullt og allt.“ Stjórnarflokkurinn hafði for- ustuna í þeim átta héraðum af þrett- án þar sem kosið var í gær. Eduardo Duhalde varaforsetí vann auðveld- lega kosninguna um embætti fylkis- stjóra í Buenos Aires, flölmennasta og auðugasta héraði landsins. Frambjóöendur stjórnarandstöðu- flokksins unnu m.a. í Cordobahéraði þar sem Eduardo Angeloz, fyrrum forsetaframbjóðandi, var kjörinn fylkisstjóri þriðja skiptíð í röð frá 1983. Perónistar höfðu þegar unnið í tveimur af þremur hémðum þar sem gengið var til kosninga þann 11. ág- úst. Kosningar verða haldnar í hin- um hémðunum átta seint í næsta mánuði. Perónistar fengu miklu fleiri at- kvæði í kosningunum í gær en þeim hafði verið spáð í skoðanakönnunum og fóru fram úr vonum Menems sjálfs. í júlí bjóst Menem við að flokk- ur hans mundi tapa í að minnsta kostí sjö af þeim sautján héruðum þar sem þeir hafa farið með völd frá 1987. Oháðar skoðanakannanir spáðu þeim jafnvel enn meira af- hroði. Stjórnmálaskýrendur þökkuðu efnahagsráðherra Menems fyrir vel- gengninaíkosningunum. Reuter Geimskutlan í ósonrannsóknir Haraldur Noregskonungur í siglingakeppni: Konunqur sigraði á síðasta degi Haraldur Norergskonungur sigr- aði í gær á síðasta degi opna siglinga- mótsins við Asker. Sigurinn kom þó of seint því konungi haíði gengið fremur illa flóra fyrri daga keppn- innar og varð hann í sjötta sæti á mótinu. Haraldur er skirújóri á skútu sem nefnist Fram XI. Hann er reyndur siglingakappi eins og reyndar Olafur heitinn faðir hans var. í keppninni í gær byijað konungur mjög vel en varð síðan að slaka á klónni og var orðinn sá flórði í fyrstu beygju. Eftir það fékk Haraldur þó góðan byr og það hlýtur að ráða. Hann skaust fram úr keppinautun- um einum af öðmm og á lokakaflan- um var aðeins skútan Zúrich frá Danmörku á undan. Sjóhetjumar þar um borð kollsigldu þá fleyi sínu meðan Haraldur lét vaða á súðum og sigraði. NTB >„HEYRÐU“ s z LEIKFIMI: MÁNUD/MIÐVIKUD. KL. 13.30 MÁNUD/MIÐVIKUD. KL. 20.15 ÞRIÐJUD/FIMMTUD. KL. 19.15 LAUGARD. KL. 11.00 EROBIKK: MÁNUD/MIÐVIKUD. KL. 19.15 ÞRIÐJUD/FIMMTUD. KL.20.15 LAUGARD. KL. 11.00 LEIKFIMI kvenna ^ EROBIKK fýrir alla. UÓSABEKKIR, nýjar perur. Opið: Mánudag-miðvikudag kl. 13-22 Þriðjudag-fímmtudag kl. 16-22 Laugardag kl. 11-15 Sunnudag kl. 14-17 Meðlimur I DSl & Dl & ICBD DAG- OG KVÖLDTÍMAR Dagný Björk danskennari Smiðjuvegi 1, sími 64-25-35 gilarski ára.^ GAUKS Gítarskóli Olafs Gauks er 15 ára um þessar mundir. I til- efni afmælisins hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á námsefni, bæði til að gera það mun skemmtilegra og árangursríkara um leið: • Námsefni fyrir byrjendur, eldri sem yngri, hefur verið endur- skoðað, bætt og aukið, meðal annars með æfingakassettum sem fylgja námsefninu og auðvelda mjög byrjunina. • Námsefni á öðrum þrepum hefur verið endurskoðað, aukið og bætt. • Boðiðeruppá nýnámsþrep: Innritun hefst mánudaginn 9. september og fer fram í skólanum, Stórholti 16, alla virka daga kl. 14-17. Síminn er 27015. Kennsla hefst 30. september. Bandarísku geimskutlunni Disco- very verður skotið á loft í vikunni og um borð verður gervihnöttur sem á aö rannsaka vemdarhjúp jarðar- innar, einkum holuna í ósonlaginu. Gervihnötturinn mun framkvæma fyrstu viðamiklu rannsóknina á efri lögum andrúmslofts jarðar sem veija hana gegn banvænni geislun frá sól- inni. Rannsóknin á að standa yfir í tvö ár og er henni ætlað að ganga úr skugga um hvaða áhrif iðnaðar- mengun hefur á efnasamsetningu andrúmsloftsins. Eitt helsta viðfangsefni gervihnatt- arins verður að rannsaka vaxandi holu í ósonlaginu yfir Suðurskauts- landinu sem uppgötvaðist 1985. Ósonlagið er í 15 tU 48 kílómetra hæð yfir jörðu og drekkur í sig útflólubláa geislun sem getur valdið húðkrabba- meini og skemmdum á uppskem. Vísindamenn vita nú þegar að ákveðin efnasambönd, eins og koldí- oxíð, em að eyðileggja ósonlagið og stuöla þar með að hækkandi hitastigi á jörðu niðri. Reuter ÆTLAR ÞÚ AÐ LEGGJA SNJÓBRÆDSLU FYRIR VETURINN? Nú er tækifærið Hagstætt verð og greiðsluskilmálar Faglegar ráðleggingar Útvegum menn til starfans ef með þarf VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.