Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. Útlönd Herbergi 19: Leynilegar heila- rannsóknir í Moskvu Leynileg sovésk rannsóknarstofa rannsakar heila kommúnistaleiö- toga og annarra samkvæmt vís- indaáætlun sem Jósef Stalín kom á fót til að sanna aö þeir tilheyrðu flokki afburða gáfumanna, að því er bandaríska sjónvarpsstöðin CBS sagði frá í gær. Eftir dauða Stalíns var einnig farið með heila hans í ranhsókn. Heili andófsmannsins Andreis Sakharovs sem var í mörg ár í útlegð í heimalandi sínu áður en hann lést var einnig færður í rannsóknarstof- una. Sovéskur fréttamaður sem vann fyrir fréttaþáttinn „60 mínútur" skýrði frá því að farið heföi verið með hann inn í eitt helgasta vé kommúnista, herbergi 19 í heila- stofnuninni. Þar fann hann heila sovéskra stjómmálaleiötoga á borð við Stalín, Lenín, Sakharovs og listamanna á borð við kvikmyndaleikstjórann Eis- enstein og tónskáldið Tsjækovskíj. Heilamir höfðu verið skornir í þunnar sneiðar af starfsmönnum stofnunarinnar. „Það er engin leið að skilja óttann og leyndarhjúpijm sem gagntekur herbergi 19 nema maður skilji brjál- semi og illsku mannsins sem stofnaði heilastofnunina, Jósefs Stalíns," sagði fréttamaðurinn, Artjom Boro- vik. „Fyrirmæli Stalíns til stofnunar- innar voru að sanna að Lenín og aðrir merkir frumkvöðlar kommún- ismans hefðu verið andleg ofur- menni.“ Borovik sagði að fyrsti heilinn sem hann hefði séð hefði verið heili Len- íns en honum var ekki leyft að kvik- mynda hann. Síðar kom í ljós að þetta var vaxheili. En Borovik og sjónvarpsáhorfend- ur fengu aö sjá myndir af nokkrar af þeim 30 þúsund sneiðum sem heili Leníns var skorinn í. Niðurstöður rannsóknanna á heila Lepíns voru leyndarmál. Reuter Hvaba kröfur gerir þú til nvrrar þvottavélar ? Væntanlega þær, ab hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin á orku, vatn og sápu. Ab hún sé aubveld í notkun, nljóblát og falleg. Síbast en ekki síst, ab hún endist vel án sífelldra bilana, og ab varahluta- og vibgerbaþjónusta seljandans sé gób. Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASKO stenst þær allar og meira til, |>ví þab fást ekki vandabari né sparneytnari vélar. Og þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur. Verbib svíkur enpan, því nú um sinn bjóbum vib ASKO þvottavélarnar, bæbi framhlabnar og topphlabnar, á sérstöku kynningarverði: ASKO 10003 framhl. 1000 sn.vinding KR. 71.500 (67.920 stgr.) ASKO 11003 framhl. 900/1300 snún. KR. 79.900 (75.900 stgr.) ASK0 12003 íramhl. 900/1300 snún. KR. 86.900 (82.550 stgr.) ASKO 20003 framhl. 600-1500 snún. KR. 105.200 (99.940 stgr.) ASK016003 topphl. 900/1300 snún. KR. 78.900 (74.950 stgr.) Góðir greiösluskilmálar: 5% staðg reiösl uafslá ttu r (sjá ab ofan) og 5% ab auki séu keypt 2 stór tæki samtímis (magnafsláttur). VISA, EURO og SAMKORT rabgreibslur til allt ab 12mán. ,án útborgunar. ÞVOTTAVÉLAR 6 GERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR UPPÞVOTTAVELAR 5 GERÐIR V. /FQniX HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420 J Simamynd Reuter Þjóðernissinnaðir Aserar mótmæla forsetakosningum sem fram fóru í Aserbajdsjan í gær. Aserbajdsjan: Þjóðernissinnar mótmæla kosningum Tugþúsundir þjóðemissinna efndu til mótmælaaðgerða í Sovétlýðveld- inu Aserbajdsjan í gær þegar Aserar gengu til forsetakosninga þar sem aðeins einn var í framboöi. Stjórnar- andstaðan lýsti því yfir að kosning- amar væru sýndarmennska. Ajaz Mutahbov, fráfarandi forseti, var einn í framboði til embættisins. Hann er fyrrum kommúnisti og and- stæðingar hans sögðu að hann hefði stutt valdaránstilraunina gegn Gorbatsjov forseta í síðasta mánuði. Helsti andstæðingur hans, jafnaðar- maðurinn Zardusht Alí-Zade, dró framboð sitt til baka og sagði að fresta ætti kosningunum. Á fjöldafundi á Sjálfstæðistorginu í Bakú gagnrýndu leiðtogar hinnar þjóðemissinnuðu Alþýðufylkingar Aserbajdsjans Mutilabov og hvöttu Asera til að sniðganga kosningamar. „Þetta em ólýðræðislegu kosning- arnar okkar,“ sagði Ebulfez Elcibej, leiðtogi fylkingarinnar, á útifundin- um sem fimmtíu þúsund manns sóttu. „Viö verðum að fá eftirlitsmenn frá lýðræðisríkjum. Við þurfum kosn- ingar til nýs þings. Aðeins þá getum við efnt tii lýðræðislegra forseta- kosninga." Embættismenn sögöu að síðla dags hefðu tæp 80 prósent kjósenda neytt atkvæðisréttar síns. Leiötogar þjóð- emissinna höfðu sagt fyrir kosning- arnar að ríkisstjórnin mundi falsa tölur um kjörsókn og spáðu að aðeins um fimmtán prósent kjósenda mundu fara á kjörstað. Aserbajdsjan, sem er olíuauðugt lýðveldi við Kaspíahafið, lýsti yfir sjálfstæði sínu skömmu eftir að valdaránstilraunin var gerö í Moskvu og er eitt af tíu lýðveldum sem er að semja um ný Sovétríki sem laustengt samband fullvalda ríkja. Þingmaður frá Eistlandi sagði mannfjöldanum að Aserar ættu að fylgja fordæmi Eista og berjast fyrir sjálfstæði sínu. „Frelsi verður aðeins náð með lýð- ræði. Kommúnisminn er búinn að vera,“ sagði Rein Tamme við fundar- menn sem svöruðu honum með því að kyrja „frelsi, frelsi" og héldu svörtum kjörseðlum á lofti. Fánar Aserbajdsjans og Eistlands voru dregnir að húni á fundinum, ásamt svörtum fánum til að minnast nærri tvö hundruð manna sem létust í nokkurra daga götubardögum í jan- úar 1990. Þeir létu lífið þegar sovésk- ir skriðdrekar ruddust yfir götuvígi til að koma aftur á röð og reglu í borginni eftir skærur milli Asera og Armena. Reuter Eduard Shevardnadse: Varar við einræði í Sovétríkjunum Eduard Shevardnadse, fyrrum ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, var- ar við að hætta á einræði vofi enn yfir landi sínu. Hann sagði í viðtali við franska sjónvarpsstöð í gær að lítil ástæða væri til að vera bjartsýnn á framtíðina í Sovétríkjunum vegna óstöðugleikans sem þar ríkir. Hann lagði einnig áherslu á að órói í Sovétríkjunum væri ógnun við heimsfriöinn þótt engir aðilar þar hefðu beinlínis. í hótunum. She- vardnadse sagði að þótt komið heföi verið í veg fyrir valdarán harðlínu- manna væri hættan enn fyrir hendi. Hann sagði aö mesta hættan nú væri vegna fjöldauppþota því fólk væri orðið langþreytt á stöðugt versnandi lífskjörum og fýndi áþreif- anlega fyrir því að skortur væri á nauðsynjum. Shevardnadse sagði að enginn gæti vitað hverjir tækju völdin ef til upp- reisnar kæmi. Hann sagði aðeins að ábyrgðarleysi væri að útiloka mögu- leikann á uppþotum en ómögulegt væri að segja hvort frjálslynd öfl eða harðlínumenn næðu völdum í kjölfar almennrar uppreisnar. Shevardnadse sagði að kjósa ætti forseta Sovétríkjanna beinni kosn- ingu og hann einn ætti að ráða yfir Eduard Shevardnadse, fyrrum utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, varar við að einræði geti aftur komist á i Sovétríkjunum. Teikning Lurie þeim kjamavopnum sem nú eru á sovésku landi. Hann sagði að hætta gæti verið í því fólgin ef einstök lýð- veldi héldu eftir kjarnavopnum. Reuter kjarnavopn James Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, heldur til Moskvu á morgun þar sem hann mun ræða tengsl Bandaríkjanna við hin nýju ríki sem eru að rísa ur ösku kommúnismans. Þetta veröur fyrsta ferð Bakers til Moskvu eftir að valdaránstilraun harðlínumanna mistókst 1 síðasta mánuðí. Baker mun ræða áhyggjur Bandaríkjastjómar af kjarna- vopnum Sovétríkjanna viö leið- toga lýðveldanna og við embætt- ismenn míðsijórnarvaldsins í Moskvu. „Við ætlum að ræða þessi mál á breiðum grundvelli," sagði háttsettur bandarískur embætt- ismaður sem ekki vildi láta nafns síns getið. Baker mun hitta Gorbatsjov Sovótforscta, Borís Jeltsin, for- seta Rússlands, Vadím Bakatin, nýjan yíirmann KGB, og Jevgeníj Sjaposjníkov varnarmálaráð- herra. Baker mun einnig fara í fyrstu heimsóknsina til Eystrasaltsríkj- anna þriggja og til Kazakhstans. Bush liandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að hann hafi fulla trú á því að kjarnavopn Sovétmanna séu undir styrkri stjórn. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.