Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Page 11
11 MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. •• .'1 í iTi>r ' ? Útlönd , '; ■/<? Michele Cassone öðlaðist heimsfrægð þegar hún sagði frá því sem gerðist í húsi Edwards Kennedy um siðustu páska. Hún hefur nú kiknað undan álaginu. Simamynd Reuter Nauögunarmáliö gegn Kennedy Smith: Aðalvitnið úr leik vegna taugaáf alls - dvelur nú á geösjúkrahúsi í Flórída Aðalvitnið í nauðgunarmálinu gegn William Kennedy Smith kikn- aði um helgina undan álagi síðustu vikna og dvelur nú á geðsjúkrahúsi. Hún hafði áöur lýst fyrir saksóknara áhyggjum sínum vegna hefnda af hálfu Kennedyfjölskyldunnar. Kon- an, sem heitir Michele Cassone, sagði þá að hún teldi sig og dóttur sína í hættu vegna þess að hún hefði valdið Kennedyfjölskyldunni óbætanlegu tjóni. Cassone var í fór með Patrick Kennedy í húsi Edwards Kennedy öldungardeildarþingmenns þegar þeir frændur efndu þar til mikils gleðskapar í húsi þingmannsins á Flórída um síðustu páska. Hún segist hafa séð William Kennedy Smith nauðga fylgikonu sinni auk þess hef- ur hún hefur gefið skrautlegar lýs- ingar á lifnaöinum í húsinu. Akæruvaldið byggir málflutning sinn gegn William að verulegu leyti á framburði Cassone. Ekkki er þó talin veruleg hætta á að máhð ónýt- ist vegna veikinda hennar því réttar- hald hefst ekki fyrr en 13. janúar og hún ætti að hafa náð heilsu þá. í Bandaríkjunum eru margir sem halda því fram að ekkert verði úr máhnu gegn Whham því Kennedy- fjölskyldan sé svo áhrifanúkh að hún geti þaggað það niður. í aht sumar hefur þó umtalið verið það mikið að ekki verður hjá því komist að dæma í málinu. Hins vegar er vafasamt að svo sterkar sannanir séu gegn Whl- iam að það nægi til að hann verði sakfelldur. Reuter Tilbrigði viö norsku kosningamar: Beitti hótunum til að koma drukknum f lokksmanni í hús Norðmenn hafa getað skemmt sér við það í heldur dauflegum sveitar- stjómarkosningum að einn borgar- fuhtrúa Hægri flokksins í Björgvin er í vondum málum. Sérstök rann- sóknamefnd hefur komist að því að hann hafi misnotaö vald sitt við fjár- veitingar á vegum borgarinnar th aö koma dauðadrukknum flokksfélaga sínum inn á Hótel Noreg. Það var í apríl í vor að nokkrir fé- lagar í Hægri flokknum gerðu sér glaöan dag. í lok gleðskaparins þurftu þeir endhega að koma einum félaga sinna inn á hótel þvi hann var ekki ferðafær. Þeir fóra á Hótel Nor- eg en starfsfólk þar neitaði að taka við manninum. Þá á borgarfuhtrú- inn, Bjöm Knudsen að nafni, að hafa beitt hótunum í krafti þess að hann var valdamikhl og í borgarstjóminni með þeim árangri að sá drukkni fékk inni. Með í fór voru þrír aðrir áhrifa- menn úr flokkntnn en rannsóknar- nefndin sá ekki ástæðu th að gagn- rýna framgöngu þeirra. Mál þetta hefur verið rifiað upp í kosningabar- áttunni og tókst andstæðingum Knudsen að fá sérstaka rannsóknar nefnd skipaða. Þótt niðurstaðan væri sú að hann hefði farið út fyrir vald- svið sitt og breytt ranglega með því aö hafa í hótunum á hótelinu þá er framganga hans ekki talin refsiverð. NTB MADEIN JAPAN HQ myndbandstæki 28 daga, 8 stöðva upptökuminni, þráðlaus fjarstýring, 21 pinna „Euro Scart“ samtengi, sjálfvirk- ur stöðvaleitari, klukka + telj- ari, íslenskur leiðarvísir. Sumartilboð 20.950,- stgr. 3 Aíborgunarskilmálar (M) VÖNDUÐ VERSLUN FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 /■aar.rs-Tjsr-T-." ■ =r/ ....og góðir búmenn byrgja sig upp fyrir veturinn <§$Fngor dönsku frystikisturnar hafa verið á markaðnum í áratugi og stað- ið sig með mikilli prýði. í þeim eru innbyggð hraðfrystihólf sem reynst hafa sérlega vel til að hraðfrysta ný- meti. Einnig má breyta kistunni í hraðfrystitæki með því að þrýsta á hnapp. FJÓRAR STÆRÐIR • HAGSTÆTT VERÐ (Bauknecht frystiskápar. Há- þróuð þýsk gæðavara sem íslending- um er að góðu kunn eftir áratuga reynslu. Einföld og falleg hönnun. Mikið úrval, við allra hæfi. LITLIR SKÁPAR, STÓRIR SKÁPAR OG ALLT ÞAR Á MILLI. KitchenAid hrærivélar. Þessar frábæru bandarísku vélar þekkja allir enda hafa þær verið ómissandi á íslenskum heimilum í tæpa hálfa öld. Fylgihlutir: HAKKAVÉL • PYLSUSTÚTUR HVEITIBRAUT • GRÆNMETIS- KVÖRN • ÁVAXTASAFAPRESSA HLÍFÐARKÁPA • DÓSAOPNARI PASTAGERÐARVÉL • SÍTRÓNU- PRESSA • SMÁKÖKUMÓT ffiffff 0SAMBANDSINS KAUPFÉLÖGIN MIKLAGARÐI SÍMAR 692090-692000 UM LANDALLT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.