Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 9, SEPTEMBER 1991.
Veiðivon
47
Flókadalsá í Borgarfirði:
Miklu betri veiði en
Upptaka neta í Hvitá í Borgarfirði
þýðir aö allar ámar á svæðinu bæta
verulega við sig löxum frá síðasta
sumri. Fleiri laxar hafa komið í ám-
ar fyrir vikið og bestu ámar, eins og
Þverá og Kjarrá, bæta við sig hundr-
uðum laxa.
Ein af þeim veiðiám sem nýtur
góðs af þessu er Flókadalsá í Borgar-
firði og em komnir á land 320 laxar
á þessari stundu. Allt sumarið í fyrra
veiddust 241 lax. Ennþá em eftir
nokkir veiðidagar í ánni.
„Veiðin í Flóku er sæmileg þessa
dagana og eru komnir 320 laxar,
hann er ennþá stærstur laxinn hans
Haralds Stefánssonar. Það var fjór-
tán og hálfs punds lax,“ sagði Ingvar
Ingvarsson á Múlastöðum í gær er
við spurðum frétta.
„Það eru ennþá nýir laxar að koma
í ána og síðasta holl veiddi 11 laxa.
Flugan hefur ekki gefið nógu marga
laxa hérna en það gæti batnað þegar
líður á. Silver Blue gaf mér lax fyrir
skömmu, 12 punda fisk. Við bætum
við okkur héma í Flókadalsánni frá
síðasta sumri, þá veiddist 241 lax,“
sagði Ingvar ennfremur.
17 punda lax veiddist
í Hörðudalsá á maðk
„Veiðin í Hörðudalsá er í lagi og
eru komnir á miUi 60 og 70 laxar.
Hellingur hefur líka veiöst af
bleikju," sagði okkar maður á ár-
bakkanum um helgina er við spurö-
um fréttá.
„Vilhjálmur Garðarsson, leigutaki
-17 punda lax veiddist í Hörðudalsá
Ingvar Ingvarsson á Múlastöðum hefur veitt nokkra laxa i Flókadalsá i
sumar en áin hafði gefið 320 laxa í gær.
ífyrra
árinnar, veiddi þann stærsta fyrir
fáum dögum, 17 punda lax á maðk,“
sagði tíðindamaðurinn í lokin.
Leirvogsá sprengir
400 laxa múrinn
innantíðar
„Það era komnir 386 laxar og það
er í góðu lagi, í ánni er aö finna tölu-
vert af laxi,“ sagði Skúli Skarphéð-
insson, veiðivörður í Leirvogsá, í gær
og bætti við: „Þessa dagana er mikið
vatn og fiskurinn liggur djúpt, enda
erfitt að finna þá í mörgum hyljun-
um. Veiðimenn hafa verið að fá þetta
8 til 12 laxa á dag. Hann er ennþá
tólf og hálfs punds sá stærsti, £kki
hefur sést neinn verulega vænn
sveima um ána. Nýir laxar hafa kom-
ið síðustu daga en ekki í miklum
mæh,“ sagði Skúli ennfremur.
Rangárnar eru komn-
aryfir410laxa
„Þetta hefur verið reytingsveiði hjá
mér og eru komnir 60 laxar, hann
er 10 punda sá stærsti," sagði Lúövík
Gizurarson í gær er viö spurðum
frétta. En Rangárnar eru að skríða
yfir 410 laxa á þessari stundu með
veiöinni hjá Lúðvík.
„Tveggja ára laxinn skilar sér ekki
nógu vel hjá okkur og þetta em eitt-
hvað yfir 400 laxar," sagði Lúðvík.
-G.Bender
Leirvogsáin hefur gefið 386 laxa og á myndinni eru þeir Jón Þ. Jónsson
og Jón Einarsson með 12 punda lax úr ánni.
Listamaðurinn Erró var við veiðar á Iðunni i vikunni og veiddi þrjá laxa. Á
myndinni dregur hann færið inn. DV-myndir G. Bender og fleiri
Fréttir
Gagnfræðaskólinn á Selfossi fullbyggður
Kristján Einaisson, DV, SeBossi:
Byggingaframkvæmdum við þriðja
og síðasta áfanga Gagnfræðaskóla
Selfoss er lokið. Byggingarfyrirtækið
G-Verk á Selfossi annaðist fram-
kvæmdir frá upphafi til loka verks-
ins.
Um er að ræða 1316 m2 hús á einni
hæð sem skipt er í 12 kennslustofur
og stórt miðrými. Mikil þörf var á
stærra húsnæði fyrir skólann og
mun þetta hús bæta aha kennsluað-
stöðu til muna.
Tveir grunnskólar em á Selfossi,
barnaskóh og gagnfræðaskóh, sem
nú hafa fengið ný nöfn, Sandvíkur-
skóh og Sólvallaskóli. Framtíðar-
stefna í skólamálum í bænum er að
tveir sjálfstæðir grunnskólar starfi
þar með bekkjardeildum frá 1. til 10.
bekkjar.
Verktakarnir tveir, Guðmundur Oskarsson, tll vinstri, og Guömundur Kr.
Ingvarsson með formann byggingarnefndar, Guðmund Kr. Jónsson, á milli
sin við afhendingu hússins til bæjaryfirvalda. DV-Kristján
BINGÖI
Hcfst kl 19.30 í kvöld
Aðalvinningur að vcrðmæti
__________100 bús. kr.________
Heildarverðmæti vinninga um
I
300 bús. kr.
TEMPLARAHÖLLIN
Eiriksgötu 5 — S. 20010
r
SklphoH 37. Ilmt 37570
ELDBAKAÐAR
cPIZZURj>
tílboö!
12”og 0L
V kt880j
Veður
Sunnan til á landinu verður vestan- og norðvestan-
gola eða kaldi með dálitilli súld í fyrstu en gengur i
norðankalda og léttir til þegar liður á morguninn.
Annars staðar verður austan- og norðaustankaldi eða
stinningskaldi og rigning i fyrstu en gengur í norðan-
átt með skúrum þegar liður á daginn. Hiti 4-12 stig.
Akureyri rigning 6
Egilsstaðir þoka 5
Keflavikurflugvöllur úrkoma 7
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 8
Raufarhöfn rigning 5
Reykjavik skýjað 7
Vestmannaeyjar skúr 7
Bergen léttskýjað 8
Helsinki skýjað 8
Kaupmannahöfn hálfskýjaö 12
Úsló skýjað 10
Stokkhólmur hálfskýjað 9
Þórshöfn alskýjaö 12
Amsterdam skýjað 14
Barcelona þokumóða 18
Berlin skýjað 14
Chicago alskýjað 24
Feneyjar léttskýjað 14
Frankfurt léttskýjað 9
Glasgow þoka 6
Hamborg skýjað 11
London mistur 12
LosAngeles léttskýjað 16
Lúxemborg léttskýjað 11
Madrid heiðskírt 16
Malaga heiðskírt 20
Mallorca léttskýjað 18
Montreal léttskýjað 13
New York léttskýjað 23
Nuuk alskýjað 6
Róm léttskýjað 19
Valencia þokumóða 21
Vin skýjað 12
Winnipeg súld 18
Gengið
Gengisskráning nr. 170. - 9. sept. 1991 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 60,160 60,320 61,670
Pund 103,899 104,176 103,350
Kan. dollar 52,830 52,970 54,028
Dönsk kr. 9,1422 9,1665 9,1127
Norsk kr. 9,0317 9,0557 8,9944
Sænsk kr. 9,7205 9,7463 9,6889
Fi. mark 14,5016 14,5402 14,4207
Fra. franki 10,3769 10,4045 10,3473
Belg.franki 1,7149 1,7195 1,7074
Sviss. franki 40,1870 40,2939 40,3864
Holl. gyllini 31,3309 31,4142 31,1772
Þýskt mark 35,2948 35,3887 35,1126
ít. lira 0,04724 0,04737 0,04711
Aust. sch. 5,0186 5,0319 4,9895
Port. escudo 0,4121 0,4132 0,4105
Spá. peseti 0,5653 0,5668 0,5646
Jap.yen 0,44547 0,44665 0,44997
Irskt pund 94,331 94,582 93,893
SDR 81,3044 81,5207 82,1599
ECU 72,4356 72,6283 72,1940
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900