Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991. Fréttir Málefni árásarmannsins 1 Þverholti: Neita að trúa því að hann verði látinn fara á götuna - segir séra Ólafur Jens Sigurðsson fangaprestur „Ég neita aö trúa því að þessi maö- ur veröi látinn fara út á götu á mánu- daginn kemur. Ég neita að trúa því að það verði ekki leyst úr vistunar- málum hans því það þarf ekki nema gripsvit til þess að sjá hvaða voði er þama á feröinni," sagði séra Ólafur Jens Sigurðsson fangaprestur er DV ræddi við hann um málefni manns- ins sem réðst á stúlku í Þverholti fyrir rúmlega tíu árum. Maðurinn er ekki tahnn heill á geðsmunum og mun hafa lýst því yfir að hann hygg- ist, eins og DV greindi frá í gær, halda áfram ofbeldisverkum þegar hann losnar úr fangelsi á mánudaginn. Enn hefur ekki fundist viðunandi lausn á vistun fyrir manninn. „Ég vil taka það fram að umræddur maður er skjólstæðingur minn. Ég hygg aö allir sem um mál hans fjalla séu á einu máli um að hann sé ekki heill heilsu og hafi ekki verið það í tíu ár. Það er engin ástæöa til þess að ætla að hann sé við betri heilsu nú en hann var fyrir tíu árum þegar honum var hent inn á Litla-Hraun. Ég vil taka þaö fram aö það er ekki einungis vegna samfélagsins heldur ekki síöur vegna þessa skjólstæðings míns sem ég er reiðubúinn að tjá mig um þetta opinberlega." „Þetta mál er í sjálfu sér algjör hneisa fyrir samfélagið, þá á ég sér- staklega við geðheilbrigðiskerfiö í þessu landi. Þau ár, sem ég hef sinnt þessu starfi, hafa fangelsislæknar, í samráði við fangelsisyfirvöld, linnu- laust beðið um aðstoð til handa þess- um manni. En þau tilmæli hafa verið gjörsamlega hunsuð. Þeir læknar, sem sinnt hafa fangelsunum, eru engir geðlæknar. Þeir hafa þó orðið að glíma við þetta upp á eigin spýt- ur. Vitaskuld er þetta ekki eins og þetta á að vera. Manninum hefur með öðrum orðum verið synjað og hann hefur ekki notið þeirra réttinda innan heilbrigðiskerfisins sem hon- um ber að njóta samkvæmt Evrópu- sáttmála um fangelsismál vegna þess að hann er fangi. Hann er þungavigt- artilvik á þessu sviði. Hann er geymdur í heilan áratug i þessu ástandi á Litla-Hrauni. Það er alveg sama hver hefur reynt, hvort það hafa verið forstjóri Fangelsis- málastofnunar, starfsmenn dóms- málaráðuneytisins eða fangelsis- læknar, - allt kemur fyrir ekki. Kerf- ið er honum lokað. Ég kann aöeins eitt ráð til að leysa þetta mál. Það er það aö sá hluti heil- brigðiskerfisins, sem átti aö sinna honum og hefur átt að gera það þann áratug sem hann hefur veriö geymd- ur á Litla-Hrauni, verði vakinn svo rækilega upp að hann hunskist til þess að hafa sig aö verki.“ -JSS HMíbridge: Forsetinn stórhrifinn afDV ísak Öin Sigurössan, DV, Yokohama: „Það kom mér verulega á óvart hvernig Pólverjarnir komu fram við spilaborðið, þessir þrautreyndu spilarar virtust beinlínis viðvaningsleg- ir í hegöun. Það var alltaf hægt * aö lesa út úr svip sagnhafa hvort hann var í erfiðleikum eða ekki og það hjá mönnum sem hafa gíftirlega reynslu á stórmótum,“ sagði einn af heimsmeisturum íslands, Örn Amþórsson, elsti og reynslu- mesti spilari heimsmeistar- anna, í morgun. „Þaö er stórkostlegur sigur fyrir bridgeíþróttina í heimin- um að ísland skyidi vinna. Það sýnir aö fúlltrúar smáþjóða geta einnig sigrað á alþjóðamót- um þó þar spili menn frá ijöl- mennustu þjóðum heims. ís- land braut þarna ísinn eftir að örfáar stórþjóðir, Bandaríkin, ítalía, Brasilía, Frakkland og Bretland, hafa nær undantekn- ingalaust sigrað í heimsmeist- arakeppninni,“ sagði forseti heimssambandsins í bridge, Brasilíumaðurínn Emesto DOÞrsi. Hann var yfir sig hrifinn þeg- ar hann sá hvemig DV sló upp fréttum af mótinu - sagði að gaman væri að sjá dagblaö sem setti bridgefrétt sem aðalfrétt á forsíðu. Davíð Oddsson forsætisráöherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í gær- kveldi. Prúðbúnir þingmenn, alvarlegir á svip, fylgjast með ræðunni en á myndinni eru Stefán Guðmundsson, Kristinn H. Gunnarsson, Sigurbjörn Gunnarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Jóhann Ársælsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Vilhjálmur Egilsson og Steingrímur Hermannsson. DV-mynd GVA Elín Bjamadóttir framkvæmdastjóri: Mig skortir nógu hástemmd lýsingarorð „Þetta er svo ótrúleg tilfmning að mig skortir nógu hástemmd lýsing- arorð til að lýsa henni. Ég er orð- laus,“ sagöi Elín Bjarnadóttir, fram- kvæmdastjóri Bridgesambands ís- lands og eiginkona Jóns Baldursson- ar heimsmeistara, í samtali við DV í bítið í morgun. Elín hefur stjórnað opnu húsi í húsnæði Bridgesambandsins frá því á sunnudag. Klukkan sjö í morgun voru menn að tínast út eftir spenn- andi nótt. Þar var fylgst með öllum leiknum viö Svía og svo úrslitaleikn- um við Pólverjana. Elín sagði að á tímabilr í nótt hefði hún verið farin að óttst að strákarnir myndu missa af lestinni. „Maður var orðinn skíthræddur. Meðan hlutirnir geta gerst tölulega er maður aldrei viss. Ég veit hvað er hægt í þessu og taldi spilin sem voru eftir. Ég var ekki viss um að titillinn væri í höfn fyrr en tvö spil voru eftir. En það er nú einu sinni spennan sem gerir þetta svona skemmtilegt og maður á aldrei að bóka sigurinn fyrr en búið er að spila síðasta spil.“ Elínu sagðist ekki hafa órað fyrir að keppnin endaöi svona þegar landsliðið hélt utan á dögunum og fáir eða enginn hafi þorað að hugsa svo langt. - Hverju má þakka þennan stór- kostlega árangur? „Mörgu, en fyrst og fremst vinnu þeirra sjálfra og frábærum eiginkon- um sem þeir eiga. Þær voru allar úti til að styðja við bakið á þeim svo þeir gætu einbeitt sér fullkomlega að því að spila. Ég átti reyndar ekki heimangengt. Þá er landsliðseinvald- urinn og fyrirhöinn alveg frábær maður.“ -hlh Keiluhöllin doblaði Málningu Víkingurinn Stefán Guðjohnsen, forstjóri Málningar hf„ sem oftast allra hefur orðið íslandsmeistari í bridge, hét á Bridgesamband íslands, þegar úrslitaleikurinn á HM við Pól- verja hófst. Áheitið var 500 krónur fyrir hvert stig sem ísland yrði yfir í úrslitaleiknum. Annar kunnur íslandsmeistari í bridge, KR-ingurinn Jón Hjaltason í Keiluhöllinni, doblaði áheit Stefáns. Hét 1000 krónum fyrir hvert stig yfir í leiknum en 500 krónum á stig ef Pólverjar sigruðu. Bridgesamband íslands hefur und- anfarna daga borist margar góðar gjafir og áheit. -hsím Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra: Ólafw Ragnar biðlar til alþýðuf lokksmanna Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni í gærkvöldi að horfið yrði frá fátækrastefnu fyrri stjómar. Millifærslusjóðir, sem voru stofnsettir af þeirri ríkisstjóm, hefðu leitt af sér gjaldþrotastefnu. Fjár- munimir hefðu verið notaðir sem deyfilyf. Þeim hefði bara verið haldið á floti sem nutu velvildar stjórnar- herranna. Pálmi Jónsson (S) sagði að þegar hefðu tapast vegna gjaldþrota 500 milljón krónur af því sem fyrrnefnd- ir sjóðir hefðu átt útistandandi. Á næsta ári gjaldféllu'svo enn tveir miiljarðar króna af slíku fé. Nú væri verið að draga undan teppunum skuldbindingar fyrri stjórnar. Ólafur Ragnar Grímsson (AB) sagði að nú ætti að mynda nýja stjórn. Hann beindi þeim orðum til alþýðuflokksmanna. Ólafur Ragnar skaut því að Össuri Skarphéðins- syni, sem hann kallaði „fóstra", að hann ætti fremur að koma í hinn raunverulega jafnaðarmannaflokk, Alþýðubandalagiö. Össur talaði í umræðunum fyrir Alþýðuflokkinn og sagöi aö jafnaöarmenn höfnuðu sjúklingaskatti og hann mundi aldrei greiða atkvæöi með skólagjöldum. Steingrímur Hermannsson (F) sagði að kostnaður þjóðarinnar hefði orðið margfalt meiri hefðu opinberir sjóðir ekki verið stofnsettir til að hjálpa atvinnuvegunum. Núverandi stjórn ætlaði hins vegar að afneita ábyrgð sem henni bæri, svo sem af kjarasamningunum nú. Steingrímur sagði að Evrópubandalagið væru einhver harðsvíruðustu sérhags- munasamtök í heimi. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra sagði aö 3-4 af hveijum 5 launþegum í landinu vildu áfram- haldandi þjóðarsátt, Hann sagði að velferð, sem byggð hefði verið á er- lendum lánum, hefði ekki veriö sú velferð á varanlegum grunni sem núverandi ríkisstjórn stefndi að. Hann sagði að menn ættu ekki að gera mikið úr hækkun þjónustu- gjalda nú. Hún næmi aöeins 836 krónum á mánuði fyrir 4ra'manna fjölskyldu í landinu. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráöherra sagði að lyfjakostnaður hefði minnk- að um 300 milljónir í sumar vegna aðgerða hans. Hann sagði að stefna sín hefði veriö afílutt. Velferð væri ekki að allir fengju allt fyrir ekki neitt. Páll Pétursson (F) sagði aö ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar væri að skemma þjóðfélagið. Svavar Gests- son (AB) sagði aö ríkisstjórnin hugs- aöi bara um velferð „fjölskyldnanna 14“, hinna ríku. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (K) sagði að ríkisstjórnin hefði ekki stað- ist fyrsta prófiö. Ekki mætti láta launakjör drabbast niöur. Slíkt leiddi til virðingarleysis gagnvart vinnu og verðmætasköpun. og megnrar óánægju þjóðarinnar. Kristín Ást- geirsdóttir (K) sagði að sjálfstæöis- menn væru eins og hinir flekkaðir af stjómarfari síöustu ára og bæru ábyrgð á miðstýringu. -HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.