Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 14
Í4 FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Burt með hrakspárnar Það fer í vöxt að alls kyns samtök og stofnanir sendi frá sér þjóðhagsspár um ástand og horfur í efnahagsmál- um. Þjóðhagsstofnun, Verslunarráðið, Seðlabankinn, hagfræðingar Alþýðusambands og íjárfestingarfyrir- tækja, Byggðastofnunar og banka leggjasi í spádóma og nú síðast hefur Vinnuveitendasambandið sent frá sér spá um horfur í atvinnu- og efnahagsmálum. Allir eru þessir spádómar byggðir á getgátum og allir með þeim formerkjum að spáin leiði til þeirrar niður- stöðu sem viðkomandi spámenn telja heppilegasta fyrir sinn málstað. Með þessu er ekki verið að segja að vinnu- veitendur óski þjóðinni þeirrar kreppu sem spá þeirra gerir ráð fyrir. En þó er ljóst að svartsýni einkennir forsendur spárinnar og með því að draga upp nógu dökka mynd af efnahagshorfum á næsta ári eru vinnu- veitendur að sjálfsögðu að leiða að því rök að ekki sé svigrúm til kauphækkana. Nú fara viðræður um kjara- samninga í hönd og þá er það gott veganesti fyrir at- vinnurekendur að veifa svartri skýrslu framan í við- semjendur sína og reka hræðsluáróður um framtíðina. Hrakspá Vinnuveitendasambandsins verður að skoða í þessu ljósi og með þessum fyrirvara. Auðvitað er ástæða til að hafa áhyggjur af mörgu því sem fram undan er. Svartsýnin er ekki út í bláinn. Botn- fiskafli mun dragast saman á næsta ári. Loðnuveiðar eru í óvissu. Álsamningarnir hafa ekki verið undirritað- ir. Nýir vaxtarbroddar í framleiðslugreinunum eru ekki í sjónmáh. Atvinnuhorfur eru þar af leiðandi slæmar. Ríkisstjórnin hefur ekki dregið úr ríkisumsvifum sem skyldi og þenslan ög eftirspurnin eftir íjármagni til að standa undir ríkissjóði heldur vöxtum háum. Sú vaxta- byrði getur reynst atvinnurekstrinum ofviða. Stað- reyndin er sú að það hafa verið vextir og íjármagns- kostnaður sem hafa shgað allan rekstur langt umfram kostnað af launagreiðslum. Linkind stjórnvalda til að skera niður í ríkisumsvifum er versti óvinur atvinnu- lífsins en ekki óbilgirni launþega. Fjárlagafrumvarpið gengur hvergi of langt í þeim niðurskurði og veldur mestum vonbrigðum. Þar með er ekki öll sagan sögð. Ef vinnuveitendur hræðast áframhaldandi kreppu og sjá ekki fram á að atvinnureksturinn standi undir kaup- hækkunum eða kaupmáttaraukningu eiga þeir með vaxandi þunga að beina spjótum sínum að ríkisvaldinu og ríkisstjórninni og taka þar höndum saman við laun- þegahreyfmguna. Það er hagsmunamál beggja þessara aðila að ríkið skapi skilyrði th sóknar í atvinnulífi. Það er ekkert náttúrulögmál sem ræður því hvort hér ríki efnahagskreppa á næsta ári. Við getum vel lifað af afla- samdrátt í eitt ár án þess að aht fari á hausinn. Við getum hæglega aukið hagvöxt og kaupmátt ef þjóðar- sátt skapast um raunhæfa og skynsama efnahagsstjórn. Hrakspár eru slæmar að því leyti að þær draga kjark úr þjóðinni. Þær breiða út svartsýnina. TU þess kjósum við flokka og ríkisstjórnir að við vilj- um að hin póhtíska forysta leiði okkur út úr ógöngum og geri hrakspárnar að engu. Mikilvægasta hlutverk nýrrar ríkisstjómar er að skapa þá tiltrú og traust meðal almennings um að betri tíð sé fram undan. Það gera ráðherrarnir ekki með því að leggjast í ferðalög eða taka undir barlóminn. Nú hafa þeir tækifæri til að sanna að hrakspárnar eigi ekki við rök að styðjast. Þeir eiga leikinn. Ellert B. Schram List hins mögulega Þaö er gamall vísdómur, eignaður ýmsum skörungum fyrri tíma, aö pólitík sé list hins jnögulega. Víst er það aö pólitíkusar geta ekki komiö ööru fram en þeir hafa möguleika á aö láta aðra sam- þykkja en listin er fólgin í fleiru en athöfnum. Hún er ekki síður fólgin í því aö búa sér til ímynd í huga kjósenda og stór þáttur í þeirri list er aö eigna sér verk ann- arra, þar sem það er mögulegt, sem er ótrúlega víða. Oftast eru þessi „listaverk" stjórnmálamanna lítil- fjörleg í sniðum en stundum ber metnaðurinn „listamanninn" of- urliði. Svo er nú um nokkur stór- mál í utanríkismálum að undan- fórnu, þar sem utanríkisráðherra vor, sem var einn þeirra sem mest taia um list hins mögulega, hefur aukið mjög orðstír sinn meðal kjós- enda með því að eigna sér og þar með íslensku þjóðinni stórt hlut- verk í þeim stórfelldu breytingum sem orðið hafa á sviði heimsmál- anna undanfama mánuði. Það kitl- ar hégómagirnd íslendinga að ímynda sér að þeir sú leikendur á stóra sviðinu, enda þótt staðreynd- in sé sú að við erum þar ekki ann- að en statistar sem sjaldan eða aldrei er getið um í leikdómum. En þótt það sé ekki mögulegt fyrir ís- lendinga að leika stórt hfutverk er mögulegt að láta íslenskan almenn- ing halda að viö gerum það og þar með efla þjóðarstoltið og auka hróður statistans á stóra sviðinu. Afvopnun Nú er það allt í einu stórsigur fyrir utanríkisstefnu íslendinga og baráttu íslenskra stjórnvalda síð- ustu ár fyrir afvopnun á höfunum að Bandaríkjamenn hafa einhliða ákveðið að draga stórkostlega úr kjarnorkuvígbúnaði sínum. Þetta gera þeir án þess að því fylgi nokk- ur stefnubreyting. Bandaríkja- menn neita og hafa alla tíð neitað að ræða við Sovétmenn á jafnréttis- grundvelli um vígbúnað á höfun- um og þessi afvopnun nær heldur ekki til þeirra kjarnavopna sem máli skipta í norðurhöfum, kjarn- orkukafbáta. Samt er almenningur látinn halda að utanríkisstefna ís- lendinga hafi þarna fengið þann hljómgrunn sem um munar. Sovét- menn hafa tilkynnt ennþá stór- felldari kjarnorkuafvopnun en Bandaríkjamenn en sú afvopnun nær heldur ekki til hafanna. Það er hrein fólsun að tala um stefnu- breytingu risaveldanna á þessu sviði, hvað þá að tala um sigur fyr- ir íslendinga. Þetta eru eingöngu einhliða ákvarðanir risaveldanna, hvorki óskir né stefna íslendinga hafa minnstu áhrif til eða frá þótt þetta sé vitanlega okkur í hag. Eystrasaltsríkin Islendingar hafa gert Eystrasalts- þjóðirnar að sérstökum skjólstæð- ingum sínum og geta verið stoltir af þeirri tilviljun að hafa verið fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Litháens. En íslensk utanríkis- stefna skipti engu máli í því sam- bandi. Það voru eingöngu umbylt- ingamar heima fyrir í Sovétríkjun- um sem urðu til þess að Litháen fékk sjálfstæðiskröfu sinni fram- gengt einhhða. En þótt íslendingar hafi ekkert raunverlegt hlutverk leikið í þessu máli, enda ekki í neinni aðstöðu til þess, er mögulegt að láta líta svo út sem stuðningur íslands hafi skipt sköpum. í því er fólgin hst hins mögulega. Stuðning- ur íslands við Eystrasaltsríkin á sér reyndar langa sögu og ekki að öllu leyti óeigingjarna. Þegar deil- umar risu sem hæst um aðild ís- Kjallarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður lands að Atlantshafsbandalaginu fyrir 40 árum voru þaö örlög Eystrasaltsþjóðanna sem fylgis- menn Nato vitnuðu stöðugt til, inn- limun Sovétmanna á þessum ríkj- um varð ein helsta röksemdin fyrir aðild að Nato. Stuðningurinn við Eystrasaltsríkin á rætur aö rekja til íslenskra innanríkisdeilna fram- ar öllu öðru. Úr því að Rússar tóku þessi ríki gætu þeir tekið okkur líka. Sjálfur man ég eftir Bjarna heitnum Benediktssyni á fundi í Heimdalli fyrir rúmum 30 árum þar sem allir fundarmenn hörm- uðu örlög Eystrasaltsríkjanna og óttuðust mjög um framtíð íslands ef ekki væri Nato. Svo vill til að ég var og er fylgismaður Nato en samt hef ég aldrei samþykkt þessa rök- semd, aðstæöur á þessum slóðum eru svo gjörólíkar. Mér kæmi ekki á óvart þótt stórnarfarið í vinaríki okkar Litháen eigi eftir að valda okkur vonbrigðum. Efta - EB En með því að ganga fram fyrir skjöldu i málum Litháens komst ísland um stundarsakir upp á stóra sviðið í alþjóðamálum og utanríkis- ráðherrann reis í áhti, enda maður upplitsdjarfur og skorinorður. ís- land gegndi hka um hríð raunveru- legu hutverki undir hans forsæti í viðræðum EFTA og EB en þar mis- tókst list hins mögulega. Engar, nákvæmlega engar, tilslakanir í fiskveiðimálum eru mögulegar fyr- ir íslenska kjósendur til að komast inn í efnahagssvæðið. Án þeirrar inngöngu eru framtíðarhagsmunir íslands sem sjálfstæðs velmegun- arríkis í stórhættu. ísland getur ekki þrifist án náinna tengsla við Evrópu, það er hörmulegt að allt virðist str-anda á tilslökunum frá íslandi sem ekki þyrftu að vera nema á yfirborðinu. Króatía Enn á ný, eftir „stórsigra" íslend- inga í afvopnunarmálum og málum Litháens, er nú komið upp annað Litháen og miklu illvígara, sjálf- stæði Króatíu. Nú vilja margir end- urtaka leikinn, samifærðir um að þar sem viðurkenning íslands hafi skipt sköpum í Litháen muni við- urkenning hafa sömu áhrif í Króa- tíu. En íslendingar verða að gæta sín á að gera sig ekki að viðundri með þessari viðurkenningagleði. Viðurkenning á Króatíu er að sönnu réttlætismál og það sem koma skal en íslendingar ættu ekki að ætla sér þá dul að æða fyrstir upp á stóra sviðið. íslendingum ber aö viðurkenna Króatíu og Slóveníu en þar eru allt aðrar forsendur en í Eystrasaltsríkjunum. Það er ein- faldlega ómögulegt fyrir ísland að hafa minnstu áhrif nema í samfloti við sum ríki Nato og Norðurlönd. Eftir slíku samstarfi ætti að leita en ekki láta „sigurinn" í Litháen- máhnu stíga okkur til höfuðs. Gunnar Eyþórsson „Sovétmenn hafa tilkynnt ennþá stórfelldari kjarnorkuafvopnun en Bandarikjamenn en sú afvopnun nær heldur ekki til hafanna." „Enn á ný, eftir „stórsigra“ íslendinga 1 afvopnunarmálum og málum Lithá- ens, er nú komið upp annað Litháen og miklu illvígara, sjálfstæði Króatíu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.