Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
11
dv_________________Útlönd
Liz vill ættleiða barn
„Væri það ekki indælt?“ sagði Elísabet Taylor, sem nú vill láta kalla sig frú
Fortensky, þegar hún var spurð hvort hún og maður hennar gætu hugsað
sér að ættleiða barn. Elísabet kom fram í gær i fyrsta sinn opinberlega
eftir að hún gekk í hjónaband i áttunda sinn un síðustu helgi. Hún lítur nú
fádæmavel út og segist halda sér í formi með heilbrigðu liferni og ströngu
aðhaldi við matborðið. Simamynd Reuter
Aukin bjart-
sýni um EES
Skriður virðist nú kominn á samn-
ingaviðræður Evrópubandalagsins
og EFTA um evrópskt efnahags-
svæði, EES. Eftir fund samninga-
manna bandalaganna tveggja í gær
hafa líkurnar á samkomulagi aukist
nokkuð.
Samningafundurinn í gær var sá
síðasti í röð funda háttsettra embætt-
ismanna áður en utanríkis- og við-
skiptaráðherrar bandalaganna koma
saman í Lúxemborg þann 21. októb-
er.
„Það er léttara yfir viðræðunum,"
sagði stjórnarerindreki frá EFTA-
ríkjunum í fundarhléi í gær.
Hin nýja bjartsýni stafar af því að
loksins virðist hilla undir lausn í
samningum um ferðir fjutningabíla
um Austurríki og Sviss. í fyrri samn-
ingaviðræðum reyndist það mál
mönnum einna erfiöast.
Einnig ríkir hóíleg bjartsýni í við-
ræðunum um fiskveiðimál milli Nor-
egs og EB þótt enn sé breitt bil milli
aðila. Það eykur svo á vandann að
löndin innan EB eru ekki á einu
máh um marga liði.
Samningaviðræður Noregs og EB
halda væntanlega áfram um helgina.
Málið er komið svo langt að á þriðju-
dag verður hægt að kynna sendiherr-
um EB í Brussel drög að lausn þess.
NTB
Vikurkenning á lýöveldum Júgóslaviu:
Leysa verður
deiluna fyrst
- segir Carrington lávarður
Carrington lávarður, sérlegur full-
trúi Efnahagsbandalagsins í friðar-
umleitunum þess í Júgóslavíu, segir
að ríki bandaiagsins geti ekki viður-
kennt sjálfstæði einstakra lýðvelda
Júgóslavíu fyrr en heildarlausn er
fundin á deilunum þar.
Carrington hafði áður rætt við
Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, um máhð. De
Cuehar lýsti yfir stuðningi við
ákvarðanir Evrópubandalagsins
enda hafa Sameinuðu þjóöimar áður
staðið við bakið á bandalaginu í
stefnu þess gagnvart Júgóslavíu.
Tiltölulega kyrrt hefur verið í
Júgóslavíu frá því vopnahlé komst á
nú í vikunni. Þó hafa skærur brotist
út á nokkrum stöðum en vopnahléð
hefur haldið betur en þau sem fyrr
hafa verið samin.
Friðargæslulið verður ekki sent til
Júgóslavíu í bráð en Evrópubanda-
lagið hefur þar nú óvopnaða sendi-
nefnd til að fylgjast með aö vopna-
hléð sé virt. Þá eru samningaviðræð-
ur hafnar á ný í Haag í Hohandi með
aðhd forseta Serbíu og Króatíu.
Reuter
eða hvað!
VIÐHJA U HUSGOGN
HÖFUM HAFIÐ SAMSTARF VIÐ DÖNSKU
HÚSBÚNAÐAR KEÐJUNA DEN LYSER0DE fBV?
ELEFANT "BLEIKA FÍLINN" OG NÚ HÖFUM VIÐ ~ J ^
TEKIÐ UPP FYRSTU SENDINGUNA.
VERSLUN OKKAR Á SMIÐJUVEGI 6 ER FULL AF NÝJUM VÖRUM
Á ÓTRÚLEGU VERÐI.
4ST0LAR OG BORÐ
SOFI, 2 STOLAR OG 1 BORÐ
LEÐUR HUSBONDASTOLL
MEÐ SKAMMEL
19.900-
STAKIR LEÐVRSÓFAR 2 OG 3 SÆTA
VERÐ FRÁ KR. 65.550- .__
HUSGOGN • SMIDJUVEGI 6 • KOPAVOGI • S 44S44
ATH! ÞETTA ER EKKIFILABRANDARI
MEÐAL ANNARS:
20 Stykkja matarstell (F.4) kr. 2,610- 5 stykkja ferðatöskusett
Hnífaparasett á standi (F.6) kr. 990- Fatastandar (króm)
kr. 4.900-
kr. 2.670-
Hitakönnur 4 litir
Flautukatlar (króm)
12 stykkja coctailsett
Fondue sett (króm)
Coctail hristarar (króm)
kr. 890- Ávaxtagrindur og
kr. 2.580- vínrekka á frábæru verði.
kr. 1.710- (króm) Verð frá
kr. 2.590- Mikið úrval borð og stand-
kr. 1.140- lampa verð frá
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF REYRHÚS-
GÖGNUM
kr. 870-
kr. 990-
\xr-~