Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
7
Fréttir
Alþýðuflokkurinn:
Allur fiskur
seldur heima
„Þaö er alveg ljóst aö grípa þarf til
sérstakra aðgerða vegna þess alvar-
lega ástands sem ríkir hér á fisk-
mörkuðunum. Þar fæst enginn fisk-
ur dag eftir dag og fólk býr við at-
vinnuleysi á sama tíma sem hundruð
tonna eru flutt út í gámum eða skip
sigla með aflann," sagði Karl Steinar
Guðnason alþingismaður í samtali
við DV.
Hann og fleiri þingmenn krata nnd-
irbúa nú að þrýsta á það innan ríkis-
stjórnarinnar að ákveðið verði að
allur fiskur, veiddur á íslandsmið-
um, verði seldur á íslenskum flsk-
mörkuðum.
„Þar með myndu íslenskir fisk-
kaupendur sitja við sama borð og
þeir erlendu við að kaupa fiskinn.
Ég þykist vita að fyrirstaða verði hjá
hagsmunaaðilum vegna þessa. Það
er hins vegar ekki hægt að horfa upp
á það að íslenskt verkafólk búi við
atvinnuleysi vegna þess að fiskurinn
er fluttur til fiskvinnslunnar í Bret-
landi eða Þýskalandi," sagði Karl
Steinar.
Þetta mál er þegar komið á dagskrá
hjá þingflokki Alþýðuflokksins en
hefur ekki enn verið afgreitt.
-S.dór
Yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri:
Þrír læknar í Svíþjóð
sækja um stöðuna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
Af sex umsækjendum um stöðu
yfirlæknis við handlækningadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
eru þrír sem eru starfandi við sænsk
sjúkrahús.
Þeir þrír læknar, sem starfa í Sví-
þjóð og sækja um stöðuna, eru ailir
sérfræðingar í almennum skurð-
lækningum en þeir eru Guöjón Har-
aldsson og Hörður F. Bjamason, en
þeir eru báðir starfandi yfirlæknar,
og Ingvar Kjartansson. Hinir þrír
umsækjendumir em starfandi hér
heima og eru einnig allir sérfræðing-
ar í skurðlækningum. Þeir era
Gunnar Rafn Jónsson, yfirlæknir á
Húsavík, Haraldur Hauksson, sem
starfar á handlækningadeild sjúkra-
hússins á Akureyri, og Shreekrishna
S. Datye sem er starfandi yfirlæknir
handlækningadeildarinnar á Akur-
eyri þar til ráðið hefur verið í stöð-
una.
SYNING LAUGARDAG KL. 13.00-16.00
V.S.K. BÍLrL FRÁ FIAT - LYKILLINN AÐ LÆGRI ÚTGJÖLDUM
Hvers vegna ættirðu að slíta einkabflnum þegar þú getur fengið ódýran,
þægileganogskemmtileganbfl í atvinnureksturinn.
Rekstrarkostnaður er að fullu frádráttarbær, virðisaukinn sömuleiðis.
ítalska verslunarfélagið hf.
SKEIFUNNI17 • 108 REVKJAVlK • SlMI 91 688 850
VERÐ: UN0 45 514.000 KR. - FI0RIN0 629.000 KR.
FYRIR15 ÁRUM OPNUÐUM VIÐ FYRSTU HLJÓMPLÖTUVERSLUN SKÍFUNNAR
♦
í DAG OPNUM VIÐ STÆRSTU
HUÓMPLÓTUVERSLUN
LANDSINS
MEIRI HÁTTAR OPNUNARTILBOÐ ALLA HELGINA
ÓVÆNTAR UPPÁKOMUR • LÚÐRABLÁSTUR
OPIÐ ALLA HELGINA
LAUGARDAG 10-16
SUNNUDAG 11-17
S ‘ K' I ’ FTVN
^mtmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmammmmm