Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Page 25
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
33
Fólk í fréttum
, - - - — ■ ■
Þorlákur Jónsson
Þorlákur Jónsson verkfræðingur
er í landsliöi íslands sem tryggði sér
heimsmeistaratitilinn í bridge í
Yokohama nú í morgun.
Starfsferill
Þorlákur fæddist í Kaupmanna-
höfn 13.7.1956 en ólst upp í Reykja-
vík til 1960 og síðan í Kópavogi.
Hann lauk stúdentsprófi frá MK
1976, verkfræðiprófi frá HÍ1981 og
MA-prófi frá University of Californ-
iaíLos Angelesl984.
Þorlákur starfaði í Bandaríkjun-
um 1984-85. Hann kom síðan heim
og starfaði fyrst hjá Verkfræðistofu
Guðmundar og Kristjáns en hóf síð-
an störf hjá Almennu verkfræðistof-
unni þar sem hann starfar enn.
Þorlákur spilaði bridge með skóla-
hði MK og tók um þær mundir þátt
í Norðurlandamótum og Evrópu-
mótum í yngri flokkum. Hann var
landsliösmaður er íslendingar urðu
Norðurlandameistarar 1988, varð ís-
landsmeistari í sveitakeppni 1982 og
1989, í tvímenningskeppni 1986 og í
parakeppni ásamt konu sinni 1988.
Fjölskylda
Kona Þorláks er Jacqui McGreal,
f: 26.3.1957, ritari hjá Flugleiðum.
Hún er fædd í San Francisco.
Böm Þorláks og Jacqui era Gwen-
dohn Nicole, f. 5.3.1982, Konráð
James, f. 13.4.1984 og Daníel, f. 22.12.
1987.
Systkini Þorláks eru Brynjólfur,
f. 1954, bæklunarskurðlæknir við
Borgarspítalann, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Dagnýju Guðnadóttur,
og eiga þau þrjú böm; Þorgerður,
f. 1957, framhaldsskólakennari, bú-
sett í Gautaborg, gift Eiriari Stefáni
Bjömssyni lækni og eiga þau þrjú
börn; Guðrún Ragnheiður, f. 1960,
skrifstofustjóri hjá Verdandi í Sví-
þjóð, og er unnusti hennar Haraldur
Ólafsson veðurfræðingur; Jón Erl-
ingur, f. 1965, BA í heimspeki og
starfsmaður við Siðfræðistofnun HÍ;
Þuríður, f. 1967, í tónlistarnámi í
Bologna á ítahu, gift Atla Ingólfs-
synitónskáldi.
Foreldrar Þorláks eru Jón Erling-
ur Þorláksson, f. 27.10.1926, trygg-
ingafræðingur í Kópavogi, og kona
hans, Sigrún Brynjólfsdóttir, f. 2.6.
1928,fuhtrúiviðHÍ.
Ætt
Jón Erlingur er sonur Þorláks,
hreppstjóra á Svalbarði í Þistilfirði,
Stefánssonar, b. í Dal, Þórarinsson-
ar. Móðir Þorláks var Guðrún Guð-
munda Þorláksdóttir.
Móðir-Jóns Erlings var Þuríður,
systir Aðalbjargar, móðurömmu
Steingríms J. Sigfússonar, fyrrv.
ráðherra. Þuríður var dóttir Vil-
hjálms, b. á Skálum og í Ytri-Brekk-
um á Langanesi, Guðmundssonar.
Móðir Þuríðar var Sigríður, systir
Árna, langafa Björns Teitssonar,
skólameistara á ísafirði, og Árna
Harðarsonarsöngstjóra. Sigríður
var dóttir Davíðs, b. á Heiði í Sauða-
neshreppi, Jónssonar og Þuríðar,
systur Jóns á Skútustöðum, langafa
Þórs Vilhjálmssonar hæstaréttar-
dómara, Jónasar Jónssonar búnað-
armálastjóra og Hjálmars Ragnars-
sonar tónskálds. Þuríður var dóttir
Árna, b. á Sveinsströnd í Mývatns-
sveit, bróður Kristjönu, móður Jóns
Sigurðssonar, alþingismanns á
Gautlöndum, ættföður Gautlands-
ættarinnar.
Sigrún er dóttir Brynjólfs, kenn-
ara að Ytra-Krossanesi við Akureyri
Sigtryggssonar, b. að Hólkoti í Hörg-
árdal, Sigurðssonar. Móðir Brynj-
ólfs var Guðrún Emelía ljósmóðir,
systir Sigríðar, langömmu Stefáns
Baldursson þjóðleikhússtjóra. Guð-
rún var dóttir Jóns, hreppstjóra að
Laugalandi í Þelamörk, Einarsson-
ar, hreppstjóra þar, Ólafssonar,
bróður Jóns á Barká, langafa Magn-
úsar ráðherra og Halldórs Þormars,
sýslumanns frá Mel.
Móðir Sigrúnar var Guðrún Rós-
inkarsdóttir, b. í Kjarna í Eyjafirði,
bróður Jakobs, afa Kristjáns Ragn-
arssonar hjá LÍÚ. Rósinkar var son-
ur Guðmundar, b. og hreppstjóra í
Æðey í Djúpi, Rósinkarssonar, b. í
Æðey, Árnasonar, umboðsmanns í
Vatnsfirði, Jónssonar, sýslumanns
í Reykjarfirði, Arnórssonar, bróður
Sigríðar, móður Arnórs, prófasts i
Vatnsfirði, langafa Hannibals Valdi-
marssonar, en Arnór var einnig for-
Þorlákur Jónsson.
faðir Jóns Baldvinssonar alþingis-
manns og og Auðar Auðuns, fyrrv.
ráðherra. Móðir Guðmundar í
Æðey var Elísabet Rósinkar Guð-
mundsdóttir, b. og hreppstjóra í
Arnardal í ísafjaröardjúpi, Bárðar-
sonar, ættfóður Arnardalsættarinn-
ar Illugasonar. Móðir Guðrúnar
Rósinkarsdóttur var Septína Þor-
gerður Sigurðardóttir, b. á Kjarna í
Arnarneshreppi, Konráðssonar, b. í
Grenivík, Jóhannessonar.
Afrnæli
Jón Þorsteinsson
Jón Þorsteinsson söngvari, til
heimilis í Amsterdam í Hollandi, er
fertugurídag.
Starfsferill
Jón fæddist á Ólafsfirði og ólst þar
upp. Hann gerðist félagi í Pólýfón-
kómum í Reykjavík tvítugur að
aldri. Jón hóf söngnám í Ósló 1974
hjá Marit Isene, einum virtasta
söngkennara Norðmanna, og hélt
síðan náminu áfram við Den Norske
Musikhoghskole. Eftir þriggja ára
dvöl í Ósló hélt Jón til Árósa og nam
þar söng í þrj ú ár við Det Jyske
Musikkonservatorium. Þaðan hélt
hann til Modena á Ítalíu þar sem
hann stundaði nám hjá hinum
heimsfræga söngkennara, Maestro
Arrigo Pola.
Um tveggja ára skeið söng Jón,
fyrstur íslendinga, í óperakór
Wagner-tónlistarhátíðarinnar í
Bayreuth í Þýskalandi. Hann flutti
síðan til Hollands þar sem hann
réðst til Ríkisóperunnar í Amster-
dam en þar hefur hann sungið yfir
fimmtíu hlutverk. Þá hefur hann
sungið einsöng á óperusviði og með
kóram í flestum löndum Evrópu og
í Bandaríkjunum. Hann hefur iðu-
lega komið fram með íslenskum
kórum, með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og íslensku hljómsveitinni.
Jón vann fyrstu verðlaun í kirkju-
tónlistarkeppni Konunglega kirkju-
tónlistarsambandsins í Hollandi og
hefur á síðustu árum getið sér
frægðarorð á meginlandi Evrópu
fyrir snjalla túlkun á sígildri kirkju-
tónlist og nútímatónlist.
Fjölskylda
Systkini Jóns era Bergþóra Þor-
steinsdóttir, f. 20.9.1949, sérkennari,
gift Jóhanni Runólfssyni banka-
starfsmanni og er sonur hennar
Þorsteinn Kristjánsson; Þorsteinn
Jakob Þorsteinsson, f. 17.1.1953,
skrifstofustjóri, kvæntur Sigríöi H.
Þórðardóttur og eru synir þeirra
Jón Steindór, Páll Arnar og Þórður
Þorsteinssynir; Þyri Emma Þor-
steinsdóttir, f. 6.8.1957, sölustjóri,
gift Karli Geirssyni og er dóttir
þeirra Arnhildur Lilly Karlsdóttir;
Ragnhildur Fanney Þorsteinsdóttir,
f. 14.3.1961, kennari; Kristín Þor-
steinsdóttir, f. 20.8.1962, ritari, og
er sambýlismaður hennar Pálmar
Magnússon en dóttir þeirra er
Hólmfríður Hulda Pálmarsdóttir;
Arnheiður Sólveig Þorsteinsdóttir,
f. 6.2.1965, afgreiðslustúlka.
Foreldrar Jóns eru Þorsteinn
Jónsson, f. 13.5.1928, forstjóri, og
Hólmfríður Jakobsdóttir, f. 20.11.
1929, húsmóðir.
Ætt
Þorsteinn er sonur Jóns Steind-
órs, járnsmiðs í Ólafsfirði, Frí-
mannssonar, b. á Þverá í Ólafsfirði,
Steinssonar, b. í Tungu í Stíflu,
Jónssonar. Móðir Frímanns var
Guðrún Sveinsdóttir, b. á Hring í
Stíflu, Jónssonar. Móðir Sveins var
Halldórá Steingrímsdóttir, b. í
Hring, Jónssonar, b. í Tungu í Stíflu,
Jónssonar, smiðs á Melum í Svarf-
aðardal, Jónssonar, fóður Péturs,
afa Baldvins Einarssonar og lang-
afa Guðmundar, langafa Önnu,
móður Matthíasar Johannessen
skálds.
Móðir Þorsteins er Emma Jóns-
dóttir, járnsmiðs í Ólafsfirði, Þor-
steinssonar, b. á Stóra-Brekku í
Fljótum, Jónssonar, b. á Tjörn í
Svarfaðardal, Sigurðssonar, b. á
Sauðanesi, Pálssonar, bróður Gott-
skálks, langafa Benedikts, fóður
Jón Þorsteinsson.
Bjarna forsætisráðherra. Móðir
Jóns á Tjöm var Guðrún Guð-
mundsdóttir, systir Stefáns, afa
Stephans G. Stephanssonar.
Hólmfríður er dóttir Jakobs
bólstrarameistari Einarssonar á
Finnastöðum á Látraströnd Þor-
valdssonar.
Móðir Hólmfríðar er Þórunn El-
ísabet, leikkona Sveinsdóttir, verka-
manns á Þingeyri, Akureyri og í
Reykjavík, Bergssonar, sjómanns í
Pálshúsum og Bergskoti, Pálssonar,
sjómanns, Magnússonar.
Móðir Bergs var Helga Bergsdótt-
ir. Móðir Sveins Bergssonar var
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, b. á
Efri-Mýrum í Refasveit, Jónssonar
og Ingibjargar Skúladóttur.
Móðir Þórunnar Elísabetar, móð-
ur Hólmfríöar, var Ingibjörg Jóns-
dóttir, b. í Skálmardal í Múlasveit,
Jónssonar, b. á Litlanesi í Múla-
sveit, Einarssonar.
Móðir Ingibjargar var Björg Guð-
mundsdóttir, b. á Kleifarstöðum í
Gufudalssveit, Böðvarssonar.
Til hamingju með afmælið 11. október
Jón Sigurðsson, Lundi, Vahahreppi. Pétur Einarsson,
85 ára
Engilbert Þorvaldsson, Heiðarvegi 57, Vestmannaeyjum. Vatnsstíg 11, Reykjavík.
Guðbj ört Guðbj artsdóttir, Kleppsvegi 32, Reykjavík. 50ára
Anna Salóme Ingólfsdóttir, Hofgerði 2, Vogum, Vatnsleysu- strönd.
75 ára
Jón Páll Ingibergsson, Álfatúni 13, Kópavogi. Sigrún Oddsdóttlr, Nýjalandi, Garöi. HalldórGislason, Ráöhússtig8, Akureyri. Elin Þorvaldsdóttir, Valhúsabraut 15, Seltjamamesi. Birna Júlíusdóttir, Laugateigi42, Reykjavík. Arnaldur Árnason, Holtsbúð 97, Garðabæ. Helga Gunnarsdóttir, Brautarási 1, Reykjavík.
70 ára Jóhannes Þór Ellertsson, Þórðargötu 30, Borgarnesi. Björn Teitsson, ísafirði.
Ingibjörg Antoníusdóttir, Borgarlandi 5, Djúpavogi. Guðni V. Björnsson,
Heiðvangi 12,Hafnarfirði. Jón Ámundason, 40ára
Hjallavegi 9, Flateyri. Friðrik Valdimarsson, Tunguvegi4, Njarðvíkum. ÁstþórGíslason, Birkihvammi 13, Kópavogi. Leifur Hauksson, Háteigsvegi 14, Reykjavik.
60ára örn B. Magnusson, Stóragerði 22, Reykjavík. GarðarMýrdal, Drápuhhð 5, Reykjavík. Guðbjörg Ósk Hauksdóttir, Áshamri 69, Vestmannaeyjum. Valgerður Gunnarsdóttir, Hofgörðum 3, Seltjarnamesi. Carlos Pallé Balboa, Fögrukinn 15, Hafnarfirði.
Guðmundur Einarsson, Brekkugerði 32, Reykjavík. Steindór Árnason, Þinghólsbraut 31, Kópavogi. FjóIaEiðsdóttir, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Ásgrimur Gunnarsson, Einholti 10E, Akureyri.
Guðfinna Eugenía Magnúsdóttir
Guðfinna Eugenía Magnúsdóttir,
nú vistmaöur á Hrafnistu í Hafnar-
firði,ersjötugídag.
Starfsferill
Guðfinna fæddist í Ytri-Njarðvík
og ólst þar upp og í Skeijafirðinum.
Hún lauk gagnfræðaprófi og stund-
aði síðan nám við Kvennaskólann á
Blönduósi. Auk húsmóðurstarf-
anna hefur Guðfinna stundað skrif-
stofustörf og hótelstjórn.
Fjölskylda
Guðfinna giftist 1.11.1948 Sigurði
Normann Júlíussyni, f. 14.7.1918,
hótelstjóra. Foreldrar hans voru
Júlíus Sigurðsson, prentari á
ísafirði, í Vestmannaeyjum og í Vík-
ingsprent í Reykjavík, og Sigurbjörg
Eiríksdóttir húsmóðir.
Börn Guðfinnu og Sigurðar eru
Magnea Áslaug Sigurðardóttir, f.
23.2.1947, starfskona á dagheimili,
búsett í Hafnarfirði, gift Siguröi
Bjarnasyni húsasmíðameistara og
eiga þau þrjú börn; Erhng Jóhann
Sigurðsson, f. 10.6.1948, viðgerðar-
maður hjá Pfaff-umboðinu, búsettur
í Reykjavík, kvæntur Þórunni Ein-
arsdóttur kennara og eiga þau fimm
börn; Sigurbjörg Siguröardóttir, f.
26.1.1950, búsett á Seltjarnarnesi,
gift Kristni Hrauníjörð og eiga þau
fiögur börn; Gunnar Þór Sigurðs-
son, f. 15.10.1956, verslunarmaöur,
búsettur í Hveragerði, kvæntur Kol-
brúnu Þorgeirsdóttur og eiga þau
saman tvö böm auk þess sem hún
á eitt barn frá því áður.
Foreldrar Guðfinnu: Júlíus Magn-
ús Magnússon, f. 10.7.1896, og Þor-
björg Sigurfinnsdóttir, f. 27.6.1881.
Guðfinna mun taka á móti gestum
á 5. hæð að Hrafnistu í Hafnarfirði,
laugardaginn 12.10. milh klukkan
15.00 og 17.00.
Guðfinna Eugenia Magnúsdóttir.