Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
Kvikmyndahátíð í Reykjavik
Kvikmyndahátíð: Lóla: ★ ★
Einum of raunsætt
Fyrst leiðrétting: í þriðjudagsblaðinu varð stjörnu-
hrap. Franska myndin Á heljarþröm (Hors la Vie) átti
ekki aö fá eina og hálfa stjörnu heldur tvær og hálfa,
enda með betri myndum á hátíðinni enn sem komið
er. En snúum okkur að Lólu. Myndin er um sama sem
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
einstæðu móðurina Lólu og fimm ára dóttur hennar
sem búa í Mexíkóborg hálfhruninni. Lóla selur fót á
götunum og á í losaralegu sambandi við barnsfööur
sinn. Hún elskar dóttur sína en lætur stundum reka
á reiöanum með hana. Það er fleira að hjá henni því
Lóla er stefnulaus ung stúlka og óánægð með tilver-
una.
Sagan er allt of róleg og nær ekki tökum á neinu
sérstöku fyrr en undir það síðasta. Þaö sem fleytir
henni áfram eru mæðgurnar en þær hafa svo lítið að
gera að þaö er sorglegt, en á rangan hátt, þ.e. sagan
Lóla í baði.
er ekki sorgleg heldur sóunin á góðum leikurum. Sér-
staklega er htla stelpan skemmtileg. Mikil tónlist er
vel notuð í myndinni til áherslu og ekki veitir af því.
Sagan er kvikmynduð af raunsæi, en ekki raunsæi
sem er spennandi og grípandi heldur frekar lang-
dregnu og kraftlausu raunsæi. Myndin er samt aldrei
leiðinleg og það er alltaf gaman aö heimsækja nýjar
slóðir. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans og það verður
að taka viljann fyrir verkið.
Lola (Mexikönsk 1990, enskur texti.) Handrit: María No-
varo.Beatriz Novaro. Leikstjórn: María Novaro.
Myndgáta
Fréttir
Athugasemdir við tölvublað:
Undrandi á aðdróttunum
Ég varð undrandi yfir að sjá í
tölvublaði DV á miðvikudaginn
aðdróttanir í garð IBM hvað varðar
söluaðila okkar á PC/PS.
Ottó A. Michelsen, hinn ágæti
forveri minn í starfi, seldi í október
1987 GJJ fyrirtæki sitt, Skrifstofu-
vélar hf., sem þá voru í fullum
rekstri.
Tölvusalan var undir 25% af
veltu hins nýja fyrirtækis og er þar
af leiðandi augljóst að gjaldþrot
.GJJ/Skrifstofuvéla verður ekki
rakið til söluumboðs þeirra fyrir
IBM PC/PS tölvur.
Breytingar á rekstri Örtölvu-
tækni læt ég aðra um að skýra.
Frá því á miðju síðásta ári hefur
Sameind hf. selt PS/2 vél- og hug-
búnað. í stað þess að kasta hnútum
í það fyrirtæki fyrir að geta boðið
eldri gerðir PS/2 á góðu verði þá
teldi ég að slíkt væri frekar fagnað-
arefni.
Að lokum vil ég benda höfundi
pistilsins á að skoða fjölbreytt úr-
val nýjunga sem Sameind hefur á
boðstólum á einkar hagstæðu verði
í stað þess að vera með dylgjur sem
engan rétt eiga á sér.
Gunnar M. Hansson
forstjóri IBM á íslandi
Leiðrétting frá Hewlett-Packard
I frétt um Hewlett-Packard undir
fyrirsögninni „Breyting hjá HP á
íslandi" á bls. 29 í DV 9. október
er um nokkrar villur að ræða.
Eftirfarandi leiðréttingum er hér
með komið á framfæri:
1. Skrifstofa Hewlett-Packard á ís-
landi var ekki rekin sem dóttur-
fyrirtæki heldur útibú frá al-
þjóðafyrirtækinu.
2. Starfsmenn eiga ekki meirihluta
í HP á íslandi hf., sem nú rekur
skrifstofuna. Hlutaféö, sem alls
er tæpar 40 milljónir, skiptist í
nokkurn veginn þrjá jafnstóra
hluta milli Hewlett-Packard,
nokkurra endursöluaðila Hew-
lett-Packard-vara á íslandi og
starfsmanna.
3. Friðþjófur Johnson var ekki
íjármálastjóri heldur sölustjóri.
Hann hætti til að taka við stjórn-
unarstörfum hjá fyrirtækjum í
eigu fjölskyldu sinnar.
4. Fjármálastjóri fyrirtækisins
heitir ekki Bjarni Sigurðsson
heldur Birgir Sigurðsson.
5. Hvorki Ragnar Marteinsson né
Gylfi Árnason hættu hjá Hew-
lett-Packard. Þeir fluttust til inn-
an fyrirtækisins og er möguleik-
inn á slíku á allan hátt talinn
mikill kostur af bæði starfs-
mönnum og fyrirtækinu.
Með vinsemd og virðingu,
f.h. HP á íslandi hf.
Birgir Sigurðsson
ERFISDRYKKJUR
í þægilegum og
rúmgóöum salar-
kynnum okkar.
iAifllfli
Álfheimum 74,
sími 686220
Andlát
AUSTURLENSKjJR MATUR
ogæyintyrfra:
JAPAN, FILIPPSIjYJUM
INDONESIU 0G VIETNAM
I hádeginu: Tilbúnir réttir
á Asíuvagninum;. Kr. 750.-
Á kvöldin:
. r Matseðill hússins.
j|o *Frí heimsendinga-
Ca þjónusta af sér
•jtEYKJAVIK
KOPAVOGUR
SELTJARNARNES
LAUGAVEG110 - SÍMI 626210
Laufey Einarsdóttir frá Bjargi,
Grindavík, Hólmgaröi 42, Reykjavík,
lést 9. þessa mánaðar.
Svanhvít Sigurjónsdóttir, Sólvalla-
götu 28, Keflavík, andaðist í Sjúkra-
húsinu í Keflavík mánudaginn 7.
október.
Jóhannes Guðmundsson, Heiðarási
10, Reykjavík, andaðist á heimili sínu
9. október.
Finnur Magnússon, fyrrverandi
kennari, Bólstaðarhlíð 25, andaðist
þann 29. september. Bálför hefur far-
ið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Kjartan Jónsson, Hraunbæ 60, lést
3. október. Jarðarförin hefur farið
fram.
Karl Ó. Jónsson, fyrrv. útgerðarmað-
ur, andaðist aðfaranótt miðviku-
dagsins 9. október.
Kristín I. Kristinsdóttir frá Bæ,
Höföaströnd, andaðist á sjúkrahúsi
Sauðárkróks 9. október.
Sigurjón Jónsson, Vestmannaeyjum
(Sjonni frá Engey), andaðist í sjúkra-
húsi Vestmannaeyja aðfaranótt 8.
október._____________________
Jarðarfarir
Útför Ingibjargar E. Kristinsdóttur,
Hlemmiskeiði, verður gerð frá Ólafs-
vallakirkju 15. október.
Elfar Skarphéðinsson, Bústaðavegi
Tapað fimdið
Hjól tapaðist úr Norðurmýri
Grænblátt Trek Jazz Voltage tjallahjól
tapaðist úr Norðurmýri. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 13373. Fundar-
laun.
Fundir
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands
Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands
verður haldinn í dag, 11. október, kl. 16
í Borgartúni 6. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa verður rætt um ýmis brýn hags-
munamál samtakanna. Laugardaginn 12.
okt. efna svo Giktarfélag Islands og Or-
yrkjabandalag íslands til ráðstefnu um
málefni giktsjúkra og hefst hún kl. 9.15 á
sama stað. Þar munu fjölmargir fyrirles-
arar reifa málefnið hver frá sínu sjónar-
homi. Ráðstefnan er opin öllu áhuga-
fólki.
Tónleikar Kammerhljóm-
sveitarinnar
Kammerhljómsveit Akureyrar efnir til
fyrstu tónleika sinna á þessum vetri í
Akureyrarkirkju sunnudaginn 13. októb-
er kl. 17. Á fyrstu tónleikunum verða
fluttir norrænir og suðrænir hljómsveit-
ardansar undir stjórn Roars Kvam. Einar
Kfistján Einarsson einleikari leikur í
fyrsta sinn með Kammerhljómsveitinni.
Hljómsveitin er skipuð 30 hljóðfæraleik-
urum að þessu sinni. Aðgöngumiðasala
er við innganginn og hefst hálftíma fyrir
tónleikana.
73, verð.ur jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í 'Reykjavík mánudaginn 14.
október kl. 13.30.
Séra Bjarni Sigurðsson frá Mosfelli
verður jarðsunginn frá Mosfells-
kirkju laugardaginn 12. október kl.
14.00.
Guðni Gestsson, Kirkjuvegi 11,
Keflavík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 12.
október kl. 14.00.
Aðalheiður I. Jónsdóttir frá Mora-
stöðum, Kjós, Hjarðarhaga 60,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju, mánudaginn 14.
október kl. 15.00.
Tilkyimingar
Haustferð í fjöruna
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands fer
vettvangsferð laugardaginn 12. október í
fjöru á Kjalamesi. Tilgangur ferðarinnar
er að vekja athygli á þvi hvemig lífverur
fjörunnar bregðast við minnkandi birtu
og lækkandi hitastigi í lofti og sjó á haust- .
in. Um þetta verður íjaliað í ferðinni um
leið og gengið verður um fjöruna og líf-
verumar skoðaðar og greindar. Einnig
verður verkefnið „Fjaran mín“ kynnt í
leiðinni. Fólk er beðið um að mæta við
Brautarholt á Kjalamesi kl. 13.30 en það-
an verður gengið niður í fjöru. Vettvangs-
ferðin tekur um tvær klst.
Félag eldri borgara
Dansleikur í Risinu, Hverfisögu 105, ld.
20 í kvöld. Gestur kvöldsins, Jón Kr. Ól-
afsson, tekur lagið. Göngu-Hrólfar fara
af stað frá Risinu kl. 10 á langardags-
morgun.-....................
Leikhús
LEIKFELAG
REYKIAVÍKUR
$
DUFNAVEISLAN
ettir Halldór Laxness.
9. sýning laugard. 12. okt.
10 sýn. þriðjud. 15. okt.
11. sýn. fimmtud. 17. okt.
ÁÉG HVERGIHEIMA?
eftir Alexander Galín.
Leikstjóri. Maria Kristjánsdótt-
ir.
Föstud. 11. okt.
Föstud. 18. okt.
Litla sviö:
Þétting
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Leikmynd: Jón Þórisson.
Búnlngar: Jón Þórisson og
Aðalheiður Alfreðsdóttir.
Lýsing: Ögmundur Þór Jóhann-
esson.
Tónllst: Svelnbjörn I. Baldvlns-
son og Stefán S. Stefánsson.
Leikstjórl: Hallmar Slgurðsson.
Lelkarar: Ása Hlín Svavarsdótt-
Ir, Jón Júllusson, Krlstján
Franklin Magnús, Pétur Einars-
son, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sigrún Waage, Sofffa Jakobs-
dóttlr, Sverrir örn Arnarson og
Theodór Júlíusson.
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Leikhúsgestir, athugið!
Ekki er hægt að hleypa inn eftir
aðsýning er hafin.
Föstud. 11. okt. Fáein sæti
laus.
Laugard. 12. okt. Fáein sæti
laus.
Sunnud. 13. okt. Fáein sæti
laus.
Kortagestir, ath. aö panta þarf
sérstaklega á sýningar á litla
sviðið.
Miðasala opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir i sima alla
virka daga frá kl. 10-12.
Simi 680680.
i/siinan
1
Leikhúskortin, skemmtileg nýj-
ung, aðeinskr. 1000.
Gjafakortin okkar,
vinsæl tækifærisgjöf.
Grelðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarleikhús.