Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Page 32
F R ETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
w
i
i
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
Við erum heimsmeistarar
feak Öm Siguröason, DV, Yokohania:
„Viö erum heimsmeistarar,“
hrópaði Björn Eysteinsson, fyrir-
hði islensku sveitarinnar, þegar
úrslit lágu fyrir í þriðja síðasta spil-
inu - af 160 - í úrslitaleik íslands
og Póllands um heimsmeistaratitil-
inn og mikill fógnuður hraust út
meðal íslendinganna á keppnis-
staðnum í Yokohama í Japan. Með-
al þeirra voru 50 íslendingar sem
komnir voru frá Filippseyjum til
að fylgjast með lokaspiiunum.
Íslendíngar unnu glæsilegan sig-
ur á Pólverjum með 415 impum
gegn 376. Þegar síðasti keppnisdag-
urinn hófst voru íslendingar með
80 impa forystu og leit allt út fyrir
auðveldan sigur íslendinga.
Niunda lotan var í jafnvægi en hún
fór 44-37 fyrir Pólverjana. íslend-
ingar byrjuðu 10. og síðustu lotuna
ágætlega, Pólverjamir gáfu út 29
impa fljótlega í leiknum og flestir
voru farnir að bóka yfirburðasigur
hðsins. En svo komu 8 hræðileg
spil þar sem Íslendíngar töpuðu 62
impum. Munurinn var samt sem
áður svo mikili að íslenska liðið
mátti enn við áfólium. En það gerði
betur á lokasprettinum. Síðustu
imparnir féllu Islendingum í skaut
og sigur vannst með 39 impa mun.
Sá munur þykir þó ekki mikill í 160
spila leík.
Er úrsiitin voru ljós var fógnuður
íslendinga mikill. Eftir því var tek-
iö að allir virtust samfanga íslend-
ingum nema Pólverjarnir. Það var
greinilegt á áhorfendum með
hverjum þeir héldu. íslendingum
var vel fagnað af 48 manna hópi
fslendinga sem kom á spílastað
þegar örfá spil voru eftir af síðustu
lotunni.
Atímabili leið
mér ekki vel
Aðalsteinn Jörgensen var inni á
í síðustu lotunni. Hann var spurður
að því hvernig síöasta lotan hefði
þóast:
„Á tímabiii þegar Pólverjarnir
voru að fá sveiflur í sínar áttir, var
ég orðhm mjög hræddur, svo mað-
ur kveði ekki sterkar að oröi,“
sagði Aðalsteinn, „Lotan byrjaði
örn Arnþórsson undirbýr sig við
morgunverðarborðið fyrir lokaó-
tökln við Pólverja. DV-slmamynd ísak
vel fyrir okkur en síðan vorum við
Jón settir upp við vegg í einhverj-
um stöðum sem við vorum ekki
alveg vissir á. Það v'oru mjög tvísýn
spil sem komu upp á tímabíh og
ílestar sveiflur virtust faila til
þeirra. Við gerðum okkur náttúr-
lega ekki grein fyrir iiver munur- ‘
inn var því við sáum ekki saman-
burðinn eins og áhorfendurnir. í
ljós kom að á þessum slæma kafla
töpuðum við 62 impum í 8 spilum.
Pólverjarnir settu upp sín sagna-
kerfi gegn okkur þannig að þeír
blekkisegðu aldrei við borðið. En
fyrir síðustu lotuna drógu þeir
þessa reglu til baka og sögðust
myndu bregða á ieik í kerfinu. Það
var sennilega með tilliti til stöð-
unnar því þeir þurftu að skora heil-
mikið til að brúa bihð. Stærsta tap
okkar í leiknum, eitt grand re-
doblað, sem vannst með yfxrslag,
kom upp úr þannig stöðu. Annar
þeirra brá á leik og passaði með 11
punkta. Pass í þeirra kerfi er opnun
og lofar a.m.k. punktum. Til allrar
hamingju nægðu sveiflurnar ekki
tii. Við spiluðum gegn Balicki-
Zmudzinski i lokin. Zmudzinski er
ágætis náungi en Balicki er erfið-
ur. Það var erfitt að fá hann til að
gefa upplýsingar um sagnir við
borðið.
Eigum stórart hóp
sterkra spilara
Það er margt sem hjálpaðist að
til að við næðum þessum árangri
núna. Hitt er alveg ljóst að við eig-
um orðið nokkuð marga toppspil-
ara á íslandi. Við eigum mannskap
i tvær virkilega góðar sveitir sem
gætu báðar klórað í mót sem þetta.
Hvað varðar árangurínn núna vor-
um við á réttu róli á þessu móti.
Við vorum reyndar búnir að fara
yfir þetta allt saman í huganum
fyrir mótið, að við myndum fara
alla leið í úrsiitaleikinn og vinna
hann. Það var Gunnar Einarsson
handknattleiksþjálfari sem inn-
prentaði okkur þennan hugsunar-
hátt. Hann sá um líkamsræktina
fyrir hðiö. Það átti sinn þátt í því
að við trúðum því að þetta væri
hægt,“ sagði Aðalsteinn.
Hálkan varasöm:
Fimm á slysadeild
eftirárekstur
Árekstur varð milli tveggja fólks-
bíla um þrjúleytið í nótt þar sem
aðrein frá Miklubraut tengist
Reykjanesbraut. Áreksturinn var
harður og voru fimm flutt á slysa-
deild. Meiðsl þeira voru ekki talin
alvarleg. Hálka hafði skyndilega
myndast á köflum á götum borgar-
innar og er hún talin hafa valdið
'þessum árekstri.
Hálka olh einnig tveimur bílveltum
á Grindavíkurvegi í morgun en slys
á mönnum voru ekki teljandi. Þá var
einnig flughált á Hehisheiði í morg-
un. -hlh
Stjómin frestar fundi:
Erlend is eða veikir
Fundi ríkisstjórnarinnar, sem vera
átti í dag, hefur verið frestað vegna
fjarvista eða veikinda ráðherra. Þeir
Olafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra, Friðrik Sophusson íjár-
málaráöherra og Jón Sigurðsson iðn-
aðarráðherra eru staddir erlendis.
á hafa veikindi herjað á suma
þeirraráðherrasemheimaeru. -JSS
ísal gengur úr
Verslunarráðinu
Mikil gleði og fögnuður var ríkjandi í félagsheimili Bridgesambands íslands snemma í morgun eftir að Ijóst varð
að íslendingar væru orðnir heimsmeistarar í bridge. Var þéttsetinn bekkurinn og mikil spenna ríkjandi fram að
síðustu spilunum gegn Pólverjum. Á myndinni, vinstra megin fyrir miðju, má sjá Guðmund Kr. Sigurðsson, 89
ára gamla bridgekempu. Fyrir allmörgum árum gaf hann Bridgesambandinu íbúðina sína en hún varð síðar grunn-
urinn að félagsheimilinu í Sigtúni. Sjá viðtal við framkvæmdastjóra Bridgesambandsins á bls. 2. DV-mynd GVA
Islenska Álfélagið hefur sagt sig úr
Verslunarráði íslands.
„Mér þykir þetta miður en hér er
um ákvörðun framkvæmdastjórnar
að ræða. Það er verið að bregðast við
erfiðum rekstraraðstæðum sem nú
eru í áliðnaði. Enda þótt það sé ekki
há upphæð sem greidd er til Verslun-
arráðsins, eða um 300 þúsund krónur
á ári, þá er þetta bara einn liðurinn
af mörgum í sparnaðarráðstöfunum
hjá fyrirtækinu,“ sagði Ragnar S.
Halldórsson, stjórnarformaður ísal
hf., en hann var um árabil formaður
Verslunarráðsins.
„Þetta veldur okkur vonbrigðum
því við teljum að ísal eigi fullt erindi
í Verslunarráðið: En við munum lifa
þetta af,“ sagði Vilhjálmur Egilsson,
alþingismaður og framkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands.
Vilhjálmur sagði að ísal gæfi upp
sem ástæðu fyrir þessu sparnað á
öllum sviðum. Og enda þótt eftirsjá
væri af ísal úr ráðinu þá skipti það
ekki miklu íjárhagslega. Áætlaðar
tekjur af félagsgjöldum næsta árs
væru 30 milljónir króna en ísal hefði
greitt300þúsund. -S.dór
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
norðan-og „
austanlands
Á morgun er spáð hægri vest-
lægri átt. Smáskúrir eða slydduél
verða á stöku stað vestanlands
en þurrt og víða léttskýjað norð-
austan- og austanlands. Hiti á bil-
inu 0-5 stig.
0RUGGIR-ALV0RU
mm
PENINGASKAPAR
VARI - ÖRYGGISVÓRUR
Íxt í 91-29399
æmm Allan sólarhringinn
Öryggisþjónusta
VARI sföan 1 QóQ