Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR L NÓVEMBÉR 1991.'
Byrjunarörðugleikar við Blönduvirkjun:
Fréttir
Eins og skrattinn fari
á rassinum niður gilið
—t--------- annað slagið undanfarið. Þetta er svona mishátt er í ánni og mikil sást t.d. um daginn til fjögurra kinda úr aftutv sagði Sigurður Ingvi
r ur un n, ,Nor .vestra: bölvanlegt gagnvart skepnum þegar hætta á að þær fari sér að voða. Það sem fóru í ána, þrjár skiluðu sér upp Björnsson, jóndi á Guðlaugsstöðum.
Daginn áður en fyrsta aflvél
Blönduvirkjunar var ræst, eða 4.
október, var yfirfall Gilsárstíílu próf-
að og hleypt yfir allmiklu vatns-
magni. Vatnsflaumurinn greip með
sér jarðveg og grjót úr Gilsárgili og
var krafturinn svo mikill að botn
ræsis í gegnum nýja veginn hreins-
aðist burtu.
Efnið úr gilinu, hátt í 35 þúsund
rúmmetrar, safnaöist í stóran haug
í frárennslisskurðinum frá virkjun-
inni. Þetta hefur skapað bakþrýsting
á vélarnar viö raforkuframleiðsluna
og þurft hefur að grípa þar til ýmissa
ráðstafana. Farið var með jarðýtu og
gröfu niður að frárennslisskurðinum
og gerður farvegur til bráðabirgða
fyrir frárennslið frá vélum virkjun-
arinnar til að minnka bakþrýsting.
Að sögn Ólafs Jenssonar staðar-
verkfræðings veröur að hreinsa efn-
ið úr frárennslisskurðinum bráö-
lega. Menn hafa uppi ákveðnar hug-
myndir um heftingu framburðar úr
Gilsárgilinu, en ekki liggi eins mikið
á með það því sárasjaldan eigi að
vera þörf á að hleypa vatni um yfir-
fallið í Gilsárstíflunni, aðeins þegar
sérstakar aðstæður skapist.
Má þar nefna t.d. ef raforkufram-
leiðsla stöðvast um tíma og afsetja
þarf vatn úr lóninu. Það var vegna
slíkra prófana sem vatni var hleypt
yfir Gilsárstífluna 4. október.
„Við vorum búnir að vara þá við
þessu. Gihð er þröngt og vitað var
að jarðvegur er laus þarna. Þetta var
hroðaleg aðkoma, eins og skrattinn
hefði rennt sér á rassinum niður gil-
iö. Vatnsflaumurinn hefur dýpkað
það á annan metra víða. Þeir hafa
verið að hleypa þarna vatni í gegn
Jólabónusinn
verður
greiddur í ár
„Jólabónus sá sem greiddur var í
desembermánuði í fyrra er inni í
kjarasamningunum. Við lítum því
svo á að hann verði einnig greiddur
í ár. Kjarasamningarnir, sem runnu
út í september, eru í gildi þar til nýir
kjarasamningar hafa verið gerðir,“
sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, í samtali við DV.
Margir voru hræddir um að jóla-
bónusinn kæmi ekki til útborgunar
í ár þar eð kjarasamningarnir eru
útrunnir og nær öruggt að nýir
samningar verða ekki tilbúnir fyrir
jól.
Þessi bónusgreiðsla er mishá eftir
verkalýðsfélögum, eöa frá um 10 þús-
und krónum og upp í 25 þúsund
krónur.
-S.dór
Uppsagnir
hjá Flugleiðum
Flugleiðir hafa ákveðið að segja
upp 64 starfsmönnum. Margir hafa
þegar fengiö uppsagnarbréf en aðrir
eiga von á þeim um mánaðamótin.
28 starfsmönum er sagt upp í ýmsum
deildum vegan sparnaöar og aðhalds
í rekstri. 36 er sagt upp í farþegaaf-
greiðslu á Keflavíkurflugvelli vegna
endurskipulagningar.
IT’S TIME FOR A NEW KIND OF MAGIC.
ÞESSI FRÁBÆRA MYND ER KOMIN ÚT Á MYNDBANDI
OG ER EIN AF ÓTRÚLEGA MÖRGUM NÝJUM MYNDUM
SEM PRÝÐA HILLUR OKKAR í VIDEOHÖLLINNI.
-hlh