Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1991, Blaðsíða 28
36
FÖfeTUDÁGÚR'l.'NÖVÉ'MÉÖR Í99Í:
Merming
Bíóborgin - Hvað með Bob? ★★ XA
Fjölfælinn með
f isk í bandi
Bob (Bill Murray) er sálræn rúst og þorir varla út
úr húsi af ótta viö gerla, stjórnlaus þvaglát, blótsyröa-
köst og mjög margt annað. Hann er í meðferð en sál-
fræðingur hans hefur gefist upp og sent hann til dr.
Leo Marvin (Richard Dreyfuss) sem er að verða stjarna
á sínu sviði. Bob líst strax vel á Leo, svo vel aö hann
getur ekki hugsað sér að vera án hans. Það er ekki
svo auðvelt því Leo er farinn í sumarfrí með fjölskyld-
unni. Bob eltir, með miklum erfiðismunum og neitar
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
að skilja að dr. Marvin vilji ekki sjá hann. Skemmst
er frá því að segja að hinn þolinmóði og skilningsríki
dr. Marvin er ekki allur þar sem hann er séður og á
Bob eftir að kalla fram það versta í honum.
Formúlugamanmynd, en með frábærum leikurum
og nægum húmor til að gera hana hina bestu skemmt-
un. Dreyfuss og sérstaklega Murray eru í toppformi
og togstreita þeirra er bráðfyndin. Það er til of mikils
ætlast aö þeim takist að halda uppi dampi alla mynd-
Richard Dreyfus og Bill Murray eru i toppformi i gam-
anmyndinni Hvað með Bob?
ina og hvert stefnir er frekar augljóst. Það breytir
ekki því að þetta er með fyndnustu myndunum í ár.
What About Bob? (Band-1991) 99 min.
Saga: Alvin Sargent (Ordinary People) & Laura Ziskin.
Handrit: Tom Schulman (Dead Poet’s Society)
Leikstjórn: Frank Oz (Dirty Rotten Scoundrels).
Leikarar: Bill Murray, Richard Dreyfuss, Juiie Hagerty (Bad
Medecine), Charlie Korsmo (Dick Tracy).
Andlát
Ingólfur Guðmundsson oddviti,
Litla-Kambi, Breiðuvíkurhreppi,
varð bráðkvaddur 30. október.
Guðbjörg Jónsdóttir, Dalbraut 27,
Reykjavík, lést í Landspítalanum að
kvöldi 30. október.
ísak Eyleifsson fisksali, Lyngbrekku
12, Kópavogi, lést 31. október.
Jarðarfarir
Ingimar Finnbjörnsson útgerðar-
maður, Hnífsdal, andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu, ísafirði, 26. okt-
óber sl. Jarðarfórin fer fram frá
Hnífsdalskapellu laugardaginn 2.
nóvember kl. 14.
Aldís Bjarnadóttir, Grænuvöllum 3,
Selfossi, lést í Landspítalanum aö
morgni miðvikudagsins 30. október.
Jarðarfórin fer fram frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 9. nóvember kl.
13.30.
Jóhann Kr. Kristjánsson, Lindargötu
22 c, Siglufirði, verður jarðsunginn
frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
2. nóvember kl. 14.
Guðni Þorvaldsson fiskmatsmaður,
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju laugardaginn 2. nóvember kl.
14.
Tilkynningar
Lionsklúbburinn Engey
heldur sinn árlega flóamarkað sunnu-
daginn 3. nóvember kl. 14 í Lionsheimil-
inu, Sigtúni 9. Mikið úrval góðra muna.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Félag eldri borgara
Vetri fagnað í Risinu í kvöld kl. 19. Pott-
réttur, skemmtiatriði og dans. Göngu-
Hrólfar fara frá Risinu kl. 10 á laugar-
dagsmorgun. Sama dag kl. 15.30 verður
Úölskylduskemmtun í laugardalshöll
undir kjörorðinu „Vinátta '91“.
Prjónablaðið Ýr komið út
Nýkomið er út Prjónablaðiö Ýr með f]öl-
breyttum prjónauppskriftum. Blaðiö
fæst í flestum bóka- og hannyrðaverslun-
um um land allt. Útgefandi er Garnbúðin
Tinna. Áskriftasími 91-54610.
Skátaforingjarfá
vítamínsprautu
Helgina 1.-3. nóvember mun Foringja-
þjálfunarráð Bandalags íslenskra skáta-
gangast fyrir nokkuð sérstæðu nám-
skeiði fyrir skátaforingja. Námskeiðiö
ber yfirskriftina „Vítamín” og er mark-
miðiö aö gefa starfandi skátaforingjum
nýjar og ferskar hugmyndir um ýmislegt
er tengist skátastarfinu. Fariö verður yfir
þætti eins og foreldrasamstarf, leiki,
kvöldvökur, alþjóðasamstarf, almanna-
tengsl og samskipti við fjölmiöla, um-
hverfismál og útilíf, svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess verða kynntir fyrir þátttakend-
um ýmsir starfsrammar. Þátttakendur á
námskeiöinu eru 30 talsins og koma víöa
að frá landinu. Námskeiðið verður haldið
að Úlfljótsvatni og stjórnandi þéSs er
Guðmundur Pálsson, verkefnastjóri
Bandalags íslenskra skáta.
Danskir dagar í verslunum
Miklagarðs og Kaupstað í
Mjódd
Nú standa yfir danskir dagar í öllum
verslunum Miklagarðs og Kaupstað í
Mjódd. Meðan á þeim stendur gefst við-
skiptavinum kostur á að kaupa á annað
hundrað danskra vörutegunda á sér-
stöku kynningarverði. Dönskum dögum
er ætlað að þjóna hag neytenda í sam-
ræmi viö kjörorð daganna: Danskir dagar
- þér í hag. Þeir standa fram á laugardag-
inn 9. nóvember. Margvíslegar uppákom-
ur eru væntanlegar og má m.a. nefna að
hin nýfræga danska fröken Inge Rass-
musen kemur í Miklagarð við Sund og
svipast þar eftir Dengsa. Danskur kjöt-
höggsmaður verður á staðnum og Rósa
Ingólfsdóttir lætur sig dreyma í dönsku
sængurlíni. Ýmislegt verður einnig í boði
fyrir börnin.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðir 3. nóv.:
Kl. 10.30 Skógfellavegur- Stóra-Skóg-
fell-Grindavík.
Aukagönguferð um þessa skemmtilegu
þjóðleið úr Vogum til Grindavíkur.
Kl. 13 Stóra-Skógfell-Gálgaklettur. Lit-
ið fyrst í mynni Hesthellis hjá Grindavík-
urvegi en síðan gengið á eða meðfram
Stóra-Skógfelli að Sundhnúk og Gálga-
kletti. Ganga við allra hæfi. Verð 1.100
kr„ frítt f. börn m. fullorðnum. Brottfór
frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin
(í Hafnarf. v/kirkjug.). Myndakvöld miö-
vikudagskvöldið 6. nóvember kl. 20.30 í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Efni: Rað-
gangan um gosbeltið, miðhálendisferðin
og Grænlandsferöin.
Á hjóli og gangandi í Borgarfirði 9.-10.
nóvember.
Fyrsta hópferð í Víðgemli eftir opnun
hellisins.
Útivistarferðir
Dagsferðir sunnudaginn 3. nóvember
kl. 10.30:
Póstgangan, 22. áfangi:
Hraungerði-Selfoss-Kotferja. í 22. áfanga
póstgöngunnar verður fylgt gömlu leiö-
inni frá Hraungerði að Kotferju eins og
hún lá áður en brúin kom á Ölfusá. Geng-
ið veröur frá Hraungerði um Laugar-
dæla, gamla áningarstaðinn, um Sel-
fossbæina og niöur með Ölfusá fram hjá
Ölduhól og Dýflissu að Kotferju. Fylgdar-
maður verður Páll Lýðsson frá Litlu-
Sandvík. Pósthúsiö á Selfossi verður opn-
aö vegna stimplunar póstgöngukorta.
Kl. 13 Skálafell á Hellisheiði.
Gengið frá Smiðjulaut um Hverahlíð og
síðan á Skálafellið. Þægileg fjallganga og
gott útsýni yfir Flóann. Brottfor í báðar
ferðimar frá BSÍ, bensínsölu. Stansað við
Árbæjarsafn og Fossnesti á Selfossi.
Tónleikar
Tónleikar í Langholtskirkju
Allraheilagramessa er nk. sunnudag en
á þeim degi er minnst þeirra sem látnir
eru. í tilefni dagsins er efnt til tónleika í
Langholtskirkju kl. 17. Kór Langholts-
kirkju syngur tvær kantötur eftir J.S.
Bach, nr. 21, Ich hatte viel Bekummem-
is, og nr. 131, Aus der Tiefen rufe ich,
Herr, zu dir. Flytjendur ásamt kómum
em Harpa Harðardóttir, sópran, Þóra
Einarsdóttir, sópran, Björk Jónsdóttir,
alt, Þorgeir Andrésson, tenór, Ragnar
Davíðsson, bassi, og Kammersveit Lang-
holtskirkju. Stjómandi er Jón Stefáns-
son. Tónleikamir eru haldnir á vegum
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS BJÖRNSSONAR
frá Bragöavöllum,
Borgarlandi 21, Djúpavogi.
tngibjörg Ólafsdóttir
Þórunnborg Jónsdóttir Ragnar Eiösson
Steinunn Jónsdóttir Jón Sigurðsson
og barnabörn
Myndgáta
--------IV/
w
>
Myndgátan hér að ofan
lýsir málshætti.
Lausngátu nr. 169:
Eldtungur
Minningarsjóös Guðlaugar Bjargar Páls-
dóttur. Prestur er séra Flóki Kristinsson.
I lok guðsþjónustunnar og á tónleikunum
veröur tekiö viö framlögum til sjóðsins.
Námskeið
Frítt helgarnámskeið í jóga
og sjálfsvitund
Þessa helgi fhun Sri Chinmoy-setrið
halda námskeið í jóga og hugleiðslu. Á
námskeiðinu verða kenndar margs kon-
ar slökunar- og einbeitingaræfingar jafn-
framt því sem hugleiðsla er kynnt sem
áhrifamikil aðferð til meiri og betri ár-
angurs í starfi og aukinnar fullnægju í
daglegu lífi. Komið verður inn á sam-
hengi andlegrar iðkunar og sköpunar.
Farið í hlutverk íþrótta í andlegri þjálfun
og sýnd kvikmynd í því sambandi. Nám-
skeiðið verður haldið í Árnagarði. Það
er ókeypis og öllum opið. Það er í sex
hlutum og byrjar fyrsti hlutinn í kvöld,
1. nóvember, kl. 20. Frekari upplýsingar
má fá í sima 25676.
Fundir
Ráðsfundur ITC
29. ráðsfundur III. ráðs ITC á íslandi
verður haldinn laugardaginn 2. nóvemb-
er nk. að Hótel Lind. Skráning hefst kl.
10 og byrjar fundurinn kl. 11. Meðal efnis
á fundinum er fræðsla í ræðumennsku
og mannlegum samskiptum. Nánari upp-
lýsingar veitir Gunnhildur Arnardóttir í
síma 36444.
Aðalfundur Sálarrannsóknar-
félagsSuðurlands
verður haldinn i Tryggvaskála á Selfossi
sunnudaginn 3. nóvember kl. 20.
Tapað fundið
Kápur í óskilum á
L.A. Café
Nokkrar kápur eru í óskilum í L.A. Café,
Laugavegi 45, sími 626120.
Leikhús
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Laugard. 2. nóv.
Sunnud. 3. nóv.
Fimmtud. 7. nóv.
Föstud. 8. nóv.
Laugard. 9. nóv.
DÚFNAVEISLAN Allar sýningar hefjast kl. 20.
eftir Halldór Laxness. Lelkhúsgestir, athugiðl
Ekki er hægt aö hleypa inn eftir að
i kvöld. sýning er hafin.
Fimmtud. 7. nóv.
Laugard. 9. nóv. Laugard.16. nóv. Kortagestir, ath. aö panta þarf sér-
Siðustu sýningar. staklega á sýningar á litla sviðiö.
Miðasala opin alla daga frá kl. 14-20
LJÓN í SÍÐBUXUM nema mánudaga frá kl. 13-17. Miða-
eftir Björn Th. Björnsson. pantanir i sima alla virka daga frá kl. 10-12.
Simi680680.
6. sýning laugard. 2. nóv. Græn kort
gilda. Uppselt.
7. sýning miðvikud. 6. nóv. Hvit kort
gilda.
8. sýning föstud. 8. nóv. Brún kort gilda. Fáein sæti laus. LeiklrtÁlínan .9j9jOHai)B
Litla svið: Lelkhúskortln, skemmtileg nýjung, aðeins kr. 1000.
Gjafakortln okkar,
ÞETTING vinsæl tækifærisgjöf.
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Greiöslukortaþjónusta. Lelkfélag Reykjavíkur.
íkvöld. Borgarlelkhús.