Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991. 5 Fréttir Flugfélag Norðurlands: Ferðum fækkað og aðrar sameinaðar - í kjölfar reglna um að tveir flugmenn skuli vera í öllu farþegaflugi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við erum búnir að taka ákvörðun um það að frá og með áramótum fækkum við um eina ferð í viku til Kópaskers, Raufarhafnar og Þórs- hafnar, auk þess sem við munum sameina flug til Þórshafnar og Vopnafjarðar sem hafa verið aðskilin til þessa,“ segir Sigurður Aðalsteins- son, framkvæmdastjóri Flugfélags Norðurlands. Ástæða þessara breytinga eru regl- ur sem taka gildi um áramót en sam- kvæmt þeim er skylt að tveir flug- menn séu í öllu farþegaflugi innan- lands. „Þetta íþyngir rekstri okkar í heild mjög mikið því mjög mikið af okkar flugi er flogið á vélum með einum flugmanni eftir sem áður. Við munum hins vegar trúlega smátt og smátt hætta rekstri þeirra véla, það mun ekki gerast alveg strax en breyt- ingin leiöir til þess á einhverju tíma- bili. Og með þessum vélum fara ákveðin verkefni vegna þess að þeim er óhagkvæmt að sinna með stærri vélum. Þótt þær ráðstafanir, sem við höfum ákveðið á Norðausturland- inu, eigi að gilda til vorsins þá er ekki þar með sagt að þær séu loka- ráðstafanir okkar í þessu máli,“ sagði Sigurður. Flugfélag Norðurlands á eina Metro Fairchild vél og þrjár Twin Otter vélar. Þessar vélar taka allar tæplega 20 farþega og á þeim fljúga tveir flugmenn. Þá er félagið með 9 sæta vélar af gerðinni Piper Chief- tain sem eru mikið notaðar. Þeim flýgur einn flugmaður og þetta eru þær vélar sem Sigurður segir að fé- lagið muni smátt og smátt hætta rekstri á. Akureyri: Vörsegirupp ( öllumstarfs- mönnum sínum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við lifum ekki lengi verkefnalaus- ir og höfum þess vegna gripið til þess ráðs að segja upp öllum starfsmönn- um fyrirtækisins, 20-30 talsins," seg- ir Hallgrímur Skaptason, fram- kvæmdastjóri Varar. „Það er nóg að gera í augnablikinu en eftir áramót og seinni hluta vetrar eru nákvæmlega engin verkefni fyr- irséð, bara ekkert. Ég get ekki séð að það sé neitt af þeim verkefnum að fara í gang sem menn voru að vonast til að geta bitist um í vetur. Auðvitað lifir maður þó í voninni að úr þessu rætist en við verðum að hafa vaðið fyrir neðan okkur samt sem áður. Vör hf. starfar á byggingamark- aðnum en fyrirtækið sinnir einnig > viðgerðum á bátum. „Sá þáttur fer " minnkandi því útgerðarmenn láta lítið framkvæma af viðgerðum. Smá- k bátaeigendur, sem voru búnir að ' ræða við okkur í fyrravetur og fyrra- vor fullir bjartsýni á að láta vinna fyrir sig, draga það allir vegna þess ástands sem er í fiskimálunum. Menn eru uggandi og þó er samdrátt- urinn vegna minnkandi sjávarafla ekkert farinn að koma fram ennþá. Við eigum eftir að fá hann yfir okkur þegar kemur fram á næsta ár og þótt maður sé bjartsýnismaður að eðlis- fari er útlitið dökkt,“ sagði Hallgrímur. Stöðvun SVK: ísamráði viðyfirmenn Vagnstjóri hjá Strætisvögnum | Kópavogs, SVK, vildi vekja athygli á að vagnstjórar þar á bæ hefðu ekki haldið sérstakan fund út af saltleys- * inu og þeirri hálku sem varð í kjöl- farið á götum Kópavogs um síðustu helgi. Hann sagði ástandið vegna hálkunnar vissulega hafa verið orðiö slæmt. Ef götumar væru ekki saltað- ar væri sá háttur hins vegar hafður á að samband væri haft við yflrmenn SVK og þeir látnir vita að ekki væri hægt að aka vögnunum. Væri um það að ræða að óska eftir viðeigandi út- búnaði á vagninn eða hætta akstri. í samráði við yfirmenn SVK varð úr að akstri var hætt innan Kópavogs en ferðum til og frá Reykjavík haldið uppi. ,hlh Kópavogur: Sættirtókust „Fundurinn var mjög góður. Hafi I verið væringar milli Breiöabliks og bæjarstjómar fyrir fundinn þá er þeim nú lokið. I sameiningu ákváð- um við að kanna til þrautar hvort Kópavogsbær treystir sér til að byggja íþróttahöll sem nýst gæti í heimsmeistaramótinu. Okkur skilst að Alþjóða handknattleikssamband- ið sé jafnvel til viðræðu um að slík höll þurfi ekki að taka 7 þúsund manns í sæti eins og áður hefur ver- ið rætt um,“ segir Jón Ingi Ragnars- son, varaformaður Breiðabliks. -kaa NÚ HJÁLPAST ALLIR AÐ í FJÖLSKYLDUNNI SKILAFRESTUR ER TIL 21. NÓVEMBER FARKC3RT FIFj Rifjaðu sumarleyfisferðina upp með von um fríaferð nœst fyrir alla fjölskylduna! SPRELLLIFANDIMINNINGAR LENGI LIFI! ...þœr lifi — i myndum, tónum og orðum! í fyrra gáfum við farþegum okkar kost á að taka þátt í stórskemmtilegri verðlaunasamkeppni, SPRELLLIFANDI MINNING- UM. Fólk var beðið um að senda til okkar minningarbrot úr sumarfríinu klædd í listrænan búning. Ekki þarf að fjölyrða um að viðtökurnar voru frábærar og inn barst fjöidinn allur af firna góðum verkum. í Ijósi þessara undirtekta er leikurinn endurtekinn og auglýsum við nú eftir uppskeru sumarsins - minningarbrotum í formi Ijósmynda, teikninga, myndbanda, Ijóða, laga, frásagna o.s.frv. í boði eru sem fyrr vegleg verðlaun - 10 utanlandsferðir fyrir alla fjölskylduna og 3 myndbandstökuvélarfrá Hitachi! Merkið allt efni með nafni, aldri, síma og heimilisfangi á efnið sjálft, helst með límmiðum, ekki á fylgiblöðum. Hljóðsnældur og myndbönd verða auk þess að hafa merkingu sem segir til um staðsetningu efnisins á bandinu. Allt efni verður endursent þegar keppnin er yfirstaðin, en Samvinnuferðir - Landsýn áskilur sér rétt til að nýta innsent efni í þágu ferðaskrifstofunnar án endurgjalds. í slíkum tilvikum verður haldið eftir afriti af verkinu. Allt efni verður að sjálfsögðu handleikið af mestu varúð en ekki verður hægt að taka ábyrgð á því ef hlutir glatast í pósti eða skemmast. SamviinnilerúírLaiidsýii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 • Hótel Sógu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 39 80 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195 Viðfangsejhið er bráðskemmtilegt: Það sem hefur gerst (eða gerðist næstum því...) í ferðum ykkar á vegum Samvinnuferða - Landsýnar á undanförnum árum. Eitt lítið Ijóð, Ijósmynd, teikning, myndbandsupptaka, smásaga... allt getur þetta orðið farseðill i ógleymanlegt sumarleyfi fyrir alla fjölskylduna (...og hver veit nema teikningin eftir litla bróður eða frásögnin hennar mömmu birtist í næsta ferðabæklingi eða í sjónvarpinu?)! Allit geta unnið ghesileg verðlaun! Við veljum 7 athyglisveröustu verkin sem þið sendið okkur og þeir sem þau gerðu fá að launum utanlandsferð fyrir alla fjölskylduna! Við drögum síðan úr stóra pottinum, þ.e. nöfnum allra þeirra sem sendu okkur efni, 6 aukavinningshafa. 3 þeirra fá líka utanlands- ferð fyrir alla fjölskylduna og 3 fá myndbandstökuvélar frá Hitachi. Utanáskriftin er: Samvinnuferðir -Landsýn „ SPRELLLIFANDIMINNINGAR “ Austurstrteti 12, 101 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.