Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Síða 25
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991. 33 dv Fólk í fréttum Jón Hjaltalín Magnússon Jón Hjaltalín Magnússon, verk- fræðingur og formaður Handknatt- leikssambands íslands, hefur verið í fréttum DV vegna umræðu um handboltahöll fyrir heimsmeistara- keppnina í handbolta. Starfsferill Jón fæddist í Reykjavík 2.4.1948 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1968 og prófi í rafeindaverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1973. Auk þess hefur hann setið fjöl- mörg námskeið á sviði verkfræði, verkefnastjómunar og markaðs- mála. Jón var verkfræðingur hjá Kock- ums Mekaniska Verstad AB í Malmö 1973-75, hjá Kockums Au- tomation AB1975-79 og hjá íslenska járnblendifélaginuhf. 1979-82. Hann hefur verið framkvæmdastjóri eigin verkfræðistofu, JHM, frá 1982 og stjórnarformaður Norrænnar Verk- tæknihf.frál991. Jón var ráðgjafi Atvinnumála- nefndar Reykjavíkur og HÍ um efl- ingu hátækniiðnaðar og samskipta HI og atvinnulífsins 1983-86, stunda- kennari við rafmagnsverkfræði- deild HÍ1983-88, varaformaður Fé- lagsins Verkefnastjómun 1985-89 og talsmaður Verkfræðingafélags ís- lands um iðnaðarmál frá 1991. Hann keppti með meistaraflokki Víkings í handbolta og síðan með Lugi í Lundi 1969-78 en þeir urðu Svíþjóðarmeistarar 1975. Þá lék Jón fimmtíu og íjóra landsleiki með ís- lenska landsliðinu, tók þátt í heims- meistarakeppninni í handbolta í Frakklandi 1970 og keppti á ólymp- íuleikunum í Múnchen 1972. Hann er formaður Handknattleikssam- bands íslands frá 1984 og sat í fram- kvæmdanefnd Ólympíunefndar ís- lands 1984-89. Jón hefur skrifað greinar um at- vinnumál og iðnaðarmál, einkum um sjálfvirkni í iðnaði. Hann hann- aði fyrsta íslenska vélmennið fyrir álver sem sett var upp hjá ísal 1987 auk þess sem hann hefur þróað tölvuforrit fyrir tjáskipti fatlaðra. Hann var sæmdur gullmerki ISI 1987 og gullmerki Víkings 1991. Fjölskylda Jón kvæntist 16.8.1969 Guðrúnu Sonju Guðmundsdóttur, f. 1.4.1947, skrifstofustúlku. Hún er dóttir Guð- mundar Jónassonar, bifvélavirkja ogframkvæmdastjóra, og Svövu Jónsdóttur húsmóður. Börn Jóns og Guðrúnar Sonju eru Magnús Hjaltalín, f. 29.7.1973, versl- unarskólanemi; Ólafur Örn, f. 16.2. 1975, verslunarskólanemi; Svava Jónsdóttir, f. 28.12.1978, nemi. Dótt- ir Jóns frá því fyrir hjónaband er Guðlaug Jónsdóttir, f. 1.11.1968, nemi í arkitektúr í Bandaríkjunum en móðir hennar er Guðlaug Jóns- dóttir. Systkini Jóns: Karl Georg, f. 5.10. 1949, húsasmíðameistari; Hilmar Þór, f. 21.7.1951, d. 10.8.1966, há- seti; Þórdís, f. 19.7.1954, hjúkunar- fræðingur; Stefán, f. 21.7.1959, odd- viti Reykhólahrepps. Hálfsystir Jóns, sammæðra, er Bergþóra Berg- þórsdóttir, 7.11.1944, skrifstofu- stúlka. Foreldrar Jóns: Magnús Jónsson, f. 27.11.1918, vélvirkjameistari og yfirverkstjóri í Reykjavík, og Guð- laugBergþórsdóttir, f. 16.11.1927, matreiðslukona. Ætt Magnús er sonur Jóns Hjaltalíns, b. á Kambi í Reykhólasveit, Brands- sonar, bróður Daníelu, ömmu Kristjáns Loftssonar, framkvæmda- stjóra Hvals hf. Móðir Magnúsar var Sesselja Stefánsdóttir, bróður Snæbjörns, hreppstjóra í Hergilsey, afa Snæbjörns Jónassonar vega- málastjóra. Stefán var sonur Kristj- áns, b. í Hergilsey, Jónssonar, hreppstjóra á Kleifum, Ormssonar, b. í Fremri-Langey og ættfoður Ormsættarinnar, Sigurðssonar. Guðlaug er dóttir Bergþórs, bif- reiðastjóra í Reykjavík, bróður Hannesar, fyrrv. forstjóra Hampiðj- unnar. Bergþór var sonur Páls, skipstjóra í Gufunesi, Hafliðasonar, og Guðlaugar Ágústu Lúðvíksdótt- ur. Móðir Guölaugar er Þórdís, syst- Jón Hjaltalin Magnússon. ir Jónínu, móður Jóhannesar Helga rithöfundar. Þórdís er dóttir Jó- hannesar, trésmiðs í Reykjavík, bróður Guðrúnar, ömmu Magnúsar Gestssonar, rithöfundar og kenn- ara, en bróðir Jóhannesar var Jón, afi Jóns Reykdal hstmálara. Jó- hannes var sonur Jóns, b. á Indriða- stöðum, Jónssonar, b. á Sámsstöö- um, Jónssonar, hreppstjóra, dbrm. og ættfóður Deildartunguættarinn- ar, Þorvcddssonar. Móðir Þórdísar var Helga Vigfúsdóttir, óðalsb. á Sólheimum í Mýrdal, Þórarinssonar og Þórdísar Berentsdóttur. Afmæli Ámi Bjamason Ámi Bjarnason, hreppstjóri á Upp- sölum í Akrahreppi, er sextugur í dag. Starfsferill Ámi fæddist á Uppsölum og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann kynntist þar ungur öllum almenn- um sveitastörfum og starfaði á búi foreldra sinna en var auk þess í vegavinnu á unglingsárunum. Hann stundaði nám viö Héraðsskól- ann að Laugum í Þingeyjarsýslu og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Ámi hóf búskap á Uppsölum 1953, fyrst í félagi við föður sinn og tók síðan við öllu búinu. Ámi hefur setið í hreppsnefnd 1966-78 og situr í henni nú frá 1990. Hann er nú hreppstjóri Akrahrepps. Hann hefur setið í stjóm Ung- mennafélags Akrahrepps, Verka- mannafélags Akrahrepps, Búnaðar- félagsins, Búnaðarsambands Skaga- fjarðar og Kaupfélags Skagfirðinga. Þá var hann fulltrúi hjá Stéttarsam- bandi bænda 1984-90. Hann situr í stjórn Karlakórsins Heimis og í stjórn Veiðifélags Skagaíjarðar. Fjölskylda Ámi kvæntist 1953 Sólveigu Áma- dóttur, f. 13.3.1925, húsfreyju. Hún er dóttir Áma Jakobssonar, b. í Skógarseli í Suður-Þingeyjarsýslu, og konu hans, Elínar Jónsdóttur húsfreyju. Ámi og Sólveig eiga fjögur böm. Þau em Eyþór, f. 1954, leikari og starfsmaður Stöðvar 2, en sambýlis- kona hans er Sigríður Gunnarsdótt- ir prófarkalesari og eiga þau tvö böm; Elín Sigurlaug, f. 1956, banka- starfsmaður á Akureyri, en sambýl- ismaður hennar er Rúnar Jónsson, starfsmaður hjá Vegagerðinni og eiga þau tvær dætur; Drífa, f. 1959, húsmóðir og starfsmaður Kaupfé- lagsins á Sauðárkróki, gift Vigfúsi Þorsteinssyni, starfsmanni hjá SteinuUarverksmiðjunni og eiga þau þrjú börn; Anna Sólveig, f. 1962, kennari á Seltjamarnesi, gift Stein- ari Magnússyni söngnema og eiga þaueina dóttur. Árni á sex systkini sem öll eru á lífi. Þau eru Halldór, starfsmaður hjá Meitlinum í Þorlákshöfn; Krist- ín, húsmóðir á Sauðárkróki; Jónas, rennismiður á Akureyri; Egill, ráðunautur á Sauðárkróki; Gísli, kennari í Laugargerðisskóla; Helga, kennari, búsett í Varmahlið. Foreldrar Áma voru Bjarni HaU- dórsson, f. 25.1.1898, b. á Uppsölum, og kona hans, Sigurlaug Jónasdótt- ir, f. 8.7.1892, húsfreyja. Ætt Bjarni var sonur Halldórs, b. á ípishóli, bróður Indriða rithöfund- ar, langafa Katrínar Fjeldsted borg- arfulltrúa. Halldór var sonur Ein- ars, b. á Krossanesi, Magnússonar, bróður Ingibjargar, langömmu Magnúsar Jónssonar ráðherra og Ingibjargar, móður Sigurgeirs Sig- urðssonar, bæjarstjóra á Seltjarnar- Árni Bjarnason. nesi. Móðir Einars var Sigríður Halldórsdóttir, systir Benedikts Vídalíns, langafa Einars Benedikts- sonar skálds og Bjargar, langömmu Sigurðar, föður Jóhannesar Nor- dals. Móðir Halldórs var Efemía Gísladóttir sagnfræðings Konráðs- sonar, föður Konráðs Fjölnismanns. Móðir Bjama var Helga Sölvadótt- ir, b. í Hvammkoti á Skaga, Sölva- sonar, bróður Salbjargar, ömmu Jakobs Benediktssonar, fyrrv. orða- bókarritstjóra. Sigurlaug var dóttir Jónasar, b. á Völlum í Vallhólmi, Egilssonar og Önnu Jónsdóttur, b. í Skinþúfu, Stefánssonar, bróður Ólafs, afa Andrésar Björnssonar, fýrrv. út- varpsstjóra, og Sigurlínu, móöur Pálma Jónssonar í Hagkaupi. Árni verður með opið hús í Héð- insminni í kvöld, föstudaginn 8.11. Hlhamingjumeð aímælið8.nóvember 85 ára Guðbjörg Kristjánsdóttir, Bleiksárhlið 56, Eskifirði. 70 ára Sigurður V. Jóhannesson, Framnesvegi 10, Keflavík. 60 ára Sveinbj örg Jónsdóttir, Akurbraut 17, Njarðvík. Marta Svavarsdóttir, Víðidal, SeyluhreppL Björg Aðalheiður Eiríksdóttir, Grensásvegi 56, Reykjavík. 50ára Ingibjörg Bjarnadóttir, Háholti8,Keflavík. Kristin Árnadóttir, Hvannhólma 10, Kópavogi. Bjarni Þ. Jónsson, Bjargi 3, Seltjarnarnesi. Guðmundur Gaukur Vigfiisson, Tjamarbóli 12, Seltjamarnesi. Jóhanna Maria Þórðardóttir, Fagurgerði 10, Selfossi. Hún verður að heiman. 40ára Gunnar Þ. Júliusson, Hjallabraut 3, Hafnarfirði. Ólafía Einarsdóttir, Miöstræti 8a, Neskaupstað. Helgi Snorrason, Garðhúsum 55, Réykjavík. Ása Björk Snorradóttir, Austurgötu 41, Hafnarfirði. Sigurður Guðjónsson, Lækjarási 7, Reykjavík. Gerður Guðnadóttir, Efstahrauni 6, Grindavík. Emilía Guðrún Jónsdóttir, Bröndukvísl 20, Reykjavík. Stefanía Sigurðardóttir, Merkurgötu 10, Hafnarfirði. Kolbrún Kristinsdóttir, Sunnuvegi 4, Hafnarfirði. Guðbj örn Gisli Egilsson, Reykjavíkurvegi 16, Hafnarfirði. Ámi Einarsson Brúðkaup á næst- unni Sigurey Valdís Eiríksdóttir og Stefán Torfi Sigurðsson, til heimil- is að Hörgshlíð 24 (kjallara), Reykjavík, verða gefin saman í Hallgrímskirkju laugardaginn 9.11. kl. 14 af sr. Grími Grímssyni. Sigurey er dóttir Margrétar Ei- ríksdóttur og Eiríks G. Þorvalds- sonar. Stefán er sonur Ragnheiðar Torfadóttur og Siguröar Kr. Finnssonar. Árni Einarsson kaupmaður, Hjarð- arhaga 15, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Árni er fæddur í Kaldárholti í Holtahreppi, Rangárvallasýslu, og ólst þar upp. Hann fékkst við þau störf sem til féllu í sveitinni en 15 ára gamaU fluttist hann til Selfoss með foreldram sínum þegar þau hættu búskap. Ámi gekk í Laugar- vatnsskóla og síðar Samvinnuskól- ann og brautskráðist þaðan 1950. Árni starfaði við verslunarstörf hjá Kaupfélagi Ámesinga um 8-9 ára skeið en fluttist til Reykjavíkur 1957 og vann hjá Egilskjöri á Lauga- vegi 116 í nokkur ár. Hann hóf eigin verslunarrekstur 1963 þegar hann setti á fót nýlenduvöruverslun sem hann starfrækti í 28 ár. Ámi tók virkan þátt í íþróttum á yngri árum og stundaði ftjálsar íþróttir með Ungmennafélaginu á Selfossi. Fjölskylda Ámi kvæntist 16.61957 Guðrúnu Lillý Ásgeirsdóttur, f. 29.1.1933, for- stjóra. Foreldrar Guðrúnar: Ásgeir Guðmundsson, prentari í Reykja- vík, og Guðríður D. Kristjánsdóttir, en þau eru bæði látin. Börn Áma og Guðrúnar: Ásgeir Heiöar, f. 20.11.1951, leiðsögumaður við laxveiðar, maki Oddný Eiríks- dóttir, starfsm. á bamaheimili, Ás- geir á eitt bam; Inga, f. 27.2.1958, verslunarmaður, hún á tvö böm; Danía, f. 27.2.1958, dagmóðir, maki Eyþór Hjartarson, verkstjóri, þau eiga íjögur böm; Bryndís, f. 10.9. 1962, húsmóðir, maki Vicente Ro- stell Rodriquez, verslunarmaður, Bryndís á eitt barn; Danfríður Krist- ín, f. 7.12.1963, verslunarmaður, maki HaUdór Ólafsson, þau eiga eitt barn; Margrét LiUý, f. 20.5.1965, húsmóðir, maki Ásgeir Ásgeirsson sölufuUtrúi, þau eiga tvö böm. Systur Áma: Unnur, f. 24.10.1933, skrifstofum., maki Gunnar Á. Jóns- son, skrifstofustjóri Kaupfélags Ár- nesinga, þau eiga fjögur böm; Jóna, f. 11.5.1936, maki Jón Helgi HáUdán- arson bifreiöarstjóri, þau eiga tvö Árni Einarsson. börn. Foreldrar Árna; Einar Jónsson, f. 11.7.1895, d. 28.3.1981, b. í Kaldár- holti, ættaður frá Holtsmúla í Land- sveit, og Ingiríður Ámadóttur, f. 5.5. 1894, d. 14.2.1984, ættuð frá Látalæti (nú MúU) í sömu sveit. Þau bjuggu í Kaldárholti og síðar á Selfossi. Ámi verður að heiman á afmæhs- daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.