Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1991.
3
Fréttir
Kristinn Bjömsson, forstjóri Skeljungs:
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36
Umboðsmaðurinn hefur dreg-
ið sér verulegar upphæðir
„Þaö eru verulegar peningaupp-
hæðir sem umboðsmaðurinn hefur
dregið sér undanfarna mánuði. Við
höfum þann háttinn á að við gerum
fyrirvaralausar kannanir á útsölu-
stöðum okkar hér og þar um landið.
Síðast fór slík könnun fram í Nes-
kaupstað fyrir 5 mánuðum. Þá kom
ekkert óeðlilegt í ljós við rekstur
söluskálans. Fjárdrátturinn hefur
því átt sér stað á undanförnum fimm
mánuðum," segir Kristinn Bjöms-
son, forstjóri Skeljungs.
Maðurinn, sem liggur undir grun
um fjárdrátt, hefur verið umboðs-
maður Skeljungs á Neskaupstað
undanfarin fimm ár en honum hefur
nú verið sagt upp störfum hjá fyrir-
tækinu. Starfsmenn Skeljungs fóru
austur í síðustu viku og hafa þeir
farið í gegnum bókhald söluskálans
auk pess sem vorutaimng netur veno
framkvæmd.
„Við teljum að rannsókn málsins
af okkar hálfu sé lokið. Það er allt
komið í ljós sem við vildum sjá,“ seg-
ir Kristinn.
Samkvæmt því sem hann segir
hefur komið í ljós við könnun að
veruleg eignamyndun hefur orðið
hjá hinum grunaða á þvi tímabili
sem fjárdrátturinn hefur átt sér stað,
meðal annars hefur hann fest kaup
á einu glæsilegasta einbýlishúsinu í
Neskaupstað.
Málið hafði ekki verið kært til fóg-
eta eða lögreglu í gær.
-J.Mar/ÓTT
Söluskáli Skeljungs. Fyrrverandi umboðsmaður fyrirtækisins er sakaður um fjárdrátt.
DV-mynd Hjörvar
Akureyri:
Safnaðfyrir
nýrnavél handa
Finni Eydal
Gyffi Kristjánsson, DVáAkureyri:
Félagasamtök og stofnanir á Akur-
eyri og í Reykjavík hafa ákveðið að
hrinda af stað söfnun til kaupa á
nýrnavél fyrir Finn Eydal, hinn
landskunna tónlistarmann á Akur-
eyn.
Finnur er nýmasjúklingur sem
þarf að nota nýmavél þrisvar í viku
en slík vél er aðeins til á Landspít-
alanum í Reykjavík. Vegna þessa
hefur Finnur ekki getað stundað
vinnu sína við Tónlistarskólann á
Akureyri og ekki annað fyrirsjáan-
legt en að fjölskylda hans þurfl að
flytja suður vegna þessara veikinda
Finns.
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna á
Akureyri, Tónhstarskólinn á Akur-
eyri, Tónlistarskóli Eyjafjarðar,
Lúðrasveit Akureyrar, Jassklúbbur
Akureyrar og Jazzvakning í Reykja-
vík hafa því ákveðið að gangast fyrir
söfnun á nýrnavél sem yrði staðsett
á heimili Finns á Akureyri en sér-
fræðingar hans hafa mælt með slíkri
ráðstöfun. Slík vél kostar á bilinu
1-1,5 milljónir króna.
Jazzvakning í Reykjavík efnir til
styrktartónleika þar 5. desember og
aðrir slíkir tónleikar verða haldnir í
Sjallanum daginn eftir. Á tónleikun-
um á Akureyri koma fram m.a. Þor-
valdur Halldórsson, Hljómsveit Ingi-
mars Eydal, Hljómsveit Finns Eydal,
Hermann Gunnarsson, Ómar Ragn-
arsson, Big Band og fleiri aðilar.
FJÖLSKYLDUBÍLL Á FÍNU VERÐI
Lada Samara er ódýr og sparneytinn 5 manna
fjölskyldubíll sem hentar vel bæði innanbæjar og í
ferðalagið. Hann er léttur í stýri og þýður í akstri.
Farangursrýmið má stækka til muna efaftursæti er
velt fram. Lada Samara er framhjóladrifinn og er
fáanlegur bæði með 1300 cm3 og 1500 cm3 vél.
Hægt er að velja um 3 eða 5 dyra bíl.
2 LAOA SAMARA
DREGIÐ Á MORGUN
20BIUR 30 MIUJONIR
HAPPDRÆTTI
OLYMPIUNEFNDAR ÍSLANDS