Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1991. Fréttir Verður aflakvótinn aukinn í kjölfar álversáfallsins?: Ekki komist hjá því að leyfa aukinn kvóta - segirMatthíasBjamasonalþingismaður Þeir eru ekki á sama máii um hvort leyfa eigi aukinn kvóta, Matthías Bjama- son og Davíð Oddsson forsætisráðherra. DV-mynd GVA Ymsir eru famir að velta því fyrir sér hvort hægt sé að komast hjá því að auka aflakvótann eitthvað á yfir- standandi kvótaári í ljósi þess áfalls sem frestun álversframkvæmda er fyrir þjóðarbúið. Menn benda á að oft áður hafi verið leyft að veiða umtalsvert magn umfram það sem fiskifræðingar hafi lagt til. DV innti nokkra af forystumönnum þjóðar- innar álits á þessum hugmyndum. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra „Ákvarðanir um kvóta byggjast alfarið á ástandi fiskistofnanna og engu öðru. Það er ekkert annað sem getur ráðið þeirri niðurstöðu." - Það hefur oft verið leyft að veiða mun meira en fiskifræðingar hafa lagt til, telur þú það koma til greina nú? „Einmitt vegna þess erum við ef til vill í þessari erfiðu stöðu í dag. Við höfum tekið of mikla áhættu." - Þannig að þú telur það ekki koma til greina að auka kvótann? „Þaö eina sem ég segi er aö ákvörð- un um kvóta byggist hvorki á skulda- stöðu Landsbankans né álsamning- um. Hún byggist á mati á ástandi fiskistofhanna,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Matthías Bjarnason alþingismaður „Ég er auðvitað þeirrar skoðunar að við verðum að fara varlega í kringum fiskistofnana. Hins vegar tel ég aö við svona aðstæður og þenn- an sífellda samdrátt árum saman verði ekki komist hjá því að leyfa aukinn kvóta að einhveiju leyti. Ég held að það fari ekki á milli mála að við verðum að taka einhverja áhættu. Við verðum líka að líta á það hvað kvótinn er í reynd. Hve miklum afla er kastað í sjóinn? Er ekki geng- ið á fiskistofnana með því? Er ekki líka gengið á fiskistofnana með frið- un stærstu skepna sjávarins, hvala og sela? Má bara draga úr þvi sem maðurinn má veiða til að lifa á?“ spurði Matthías Bjamason. Davíð Oddsson forsætisráðherra „Ég held að það sé ekki tímabært að blanda saman aflakvóta og stór- iðju. Menn verða að horfa á þetta hvort í sínu lagi. Ég geri mér grein fyrir erfiðleikunum en tel ekki rétt að láta undan þeirri freistingu að tala um aukinn kvóta við þessar að- stæður og tel ótrúlegt að það verði rættí alvöru,“ sagði Davið Oddsson. Steingrímur Hermannsson al- þingismaður „Ég vil fara varlega í það. Ég tel að spá fiskifræðinganna sé á miklum rökum reist. Því tel ég að við verðum að gæta okkar þar vel. Ég myndi ekki mæla með því nema eftir frek- ari rannsóknir sem þá leiddu í ljós að óhætt væri að auka kvótann eitt- hvað. Hitt er annað mál að ástandið hjá okkur er svo alvarlegt að það jafnast á við það sem var í kreppunni 1967. Því ber ríkisstjóminni að grípa til ráðstafana. Þú nefnir aö auka afla. Það gæti fleira komið til eins og til að mynda erlend lán. Eins má spyija hvort ríkisstjómin hafi ekki aðrar hugmyndir í atvinnuuppbyggingu í pokahominu,“ sagði Steingrímur Hermannsson. Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður „Sem svar við þessari spumingu vil ég benda á að það er miklum afla hent í sjóinn. Ég heimsótti vel flest sjávarpláss á íslandi í ágústmánuði síðastliðnum. í samtölum, sem ég átti þá við sjómenn, kom fram að þetta er gert. Þetta segja þeir að sé vegna þess að oft á tíðum fái þeir afla sem passar ekki inn í kvótann sem þeir eiga og fiskinum er henL Skipstjórar hafa fullyrt i min eym að það geti numið 70 til 100 þúsund lestum sem hent er í sjóinn árlega. Það er því hægt nú þegar að taka ákvörðun um að refsa mönnum ekki fyrir að koma með afla að landi sem þeir veiða en passar ekki inn í kvót- ann þeirra. Þetta gæti alveg fallið að því kvótakerfi sem nú er án þess að stokka það upp. Því tel ég koma vel til greina að leyfa meiri veiði en með þeim hætti að menn væru fyrst og fremst að koma með í land afla sem þeir sannanlega veiða í dag en henda aftur í sjóinn," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. -S.dór Einari Guðfinns- syni verður bjargað -segirSverrir „Skuldbreyting lána er ekki stórt mál í þetta skiptið. En það eru aðrar ráðagerðir uppi sem ég get ekki greint frá að svo stöddu. Ég er sannfærður um að hægt er að bjarga þessu fyrirtæki. Það verður gerL“ Þetta sagði Sverrir Hermanns son, bankastjóri i Landsbankan- um, aðspurður hvort bankinn myndi aðstoða Einar Guðfinns- son hf. í Bolungarvík í þeirri erf- iðu fjárhagsstöðu sem fyrirtækiö er nú í. „Landsbankinn hefur á undan- fómum árum tekið þátt í mikilli endurskipulagningu með fyrir- tækinu og Bolungarvík. Hann mun enn halda því verki áfram þvi nú taka menn enn til við nauðsynlega endurskipulagn- ingu og taka rajög fast á því máh. Ég er sannfæröur um að þeir munu ná landi nú. Bæjarstjómin ætlar aö legga þeim lið. Lands- bankinn mun fylgja fast eftir og Ijá liðsinni sitt og stuðning. En aöalframlag til þessa verkefnis kemuraðheiman." -JSS Timmanvann Kasparovogfékk 4,2 milljónir Hollendingurinn Jan Timman sigraði Garrí Kasparov í úrslitum atskákmótsins mikla í París í fyrradag þar sem keppendur höfðu 25 mín. hvor til að ljúka skák. Timman hlaut VA vinning úr skákunum tveimur í úrslitum, sigraði í þeirri fyrri á hvítt og fékk 4,2 milfj. króna í verðlaun. Kasparov fékk helmingi minna og hann hrósaði Timman nyög fyrir góða taflmennsku í keppn- inni eftir úrslitaatið. Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem Tim- man sigrar Kasparov. Timman sigraði Kamsky, Karpov og Anand á leið sinni í úrslitin en Kasparov vann Kha- lifinan, Gelfand og Bareev. -hsím í dag mælir Dagfari Þeir sáu þetta ffyrir Strax og forsvarsmenn Atlantsáls höfðu tilkynnt frestun álversfram- kvæmda um ótiltekinn tíma kvöddu helstu stjómmálamenn þjóðarinnar sér hljóðs og sögðu, samtaka: „Þetta vissum við, þetta sögðum við. Frestun á álversfram- kvæmdunum lá fyrir strax á síð- asta ári.“ Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur Hérmannsson, Páll Pétursson, svo að einhveijir séu nefndir af þeim mönnum sem hafa farið með sfjórn landsmála að und- anfomu, hafa allir sagt aö álverið hafi í rauninni verið úr sögunni fyrir ári. Að vísu ekki upphátt og ekki við kjósendur sína en þeir segjast hafa sagt það við Jón Sig- urðsson iðnaðarráðherra og á rík- isstjómarfundum en það hafi eng- inn viljað hlusta á þá. Þeir segja að sfjóm Landsvirkj- unar hafi mátt vita þetta og Jón Sigurðsson hafi mátt vita það og þetta vissi Davíð Oddsson, sem sat í stjóm Landsvirkjunar til skamms tíma og er þó búinn að vera forsæt- isráðherra frá því í vor án þess að segja nokkrum manni frá því sem hann vissi. Meira að segja vinnu- veitendur vom búnir að segja aö þeir vissu að aðrir vissu að álverið yrði ekki byggt. Það má þvi segja að yfirlýsing álversmanna um frestun hafi ekki komið neinum á óvart og allra síst þeim sem ráðið hafa landsmálun- um. Það var helst þjóðin sjálf sem ekkert vissi en það gerir ekki svo voða mikið til því það skiptir yfir- leitt ekki nokkra máli hvað þjóðin veit eða hvað þjóðin veit ekki. Það era landsfeðumir sem ráða og þeir hafa ráðið þvi að áfram var verið að semja við Atlantsál, löngu eftir að þeir afiir vissu að máhð var dautt. Þeir vissu þaö sem aðrir vissu ekki að vitneskja var fyrir um það að allir þeir sem áttu að vita vissu að álverið yrði ekki byggt. Dagfari er feginn að heyra að landsfeður láta ekki koma sér í opna skjöldu. Dagfari er glaður að heyra að Atlantsálmenn vora bún- ir að gefa það í skyn og búa ís- lenska ráðamenn undir að viðræð- umar væra marklausar og gagns- lausar, enda þótt þeim væri haldið áfram fyrir siðasakir. Það er í rauninni alft gott um þetta álver að segja og aUt gott um viðsemjendur okkar að segja nema það eitt að þeir höfðu ekki efni á að byggja álverið. Þeir höfðu aldrei neina peninga til þess og fengu hvergi lánstraust og þetta vissu báöir samningsaðilar en það var gaman að þessu og það höfðu marg- ir atvinnu að þessum samningum og íslendingar fengu að eyða um átta himdrað milljónum króna í undirbúninginn og svo vora kosn- ingar og það var engin ástæða til aö hætta samningaviðræðum fyrr en eftir dúk og disk, þegar því leyndarmáli var ekki lengur haldiö leyndu að þetta væri búið með ál- verið. Það má eiginlega hrósa lands- feðrum fyrir það hvað þeir gátu lengi þagað um að álveriö yrði ekki byggL þótt þeir vissu það og hefðu sagt það í ríkisstjóm að álverið yrði ekki byggt. Sérstaklega verður að bera lof á Jón Sigurðsson sem lét aldrei neinn bilbug á sér finna og skammaði meira að segja vinnu- veitendur fyrir að kjafta frá leynd- armálinu í haust og talaði aUtaf eins og ekkert væri sjálfsagðara en áö álverið mundi rísa að ári. Steingrímur stóð sig líka vel og Ólafur Ragnar, svo að ekki sé talað um Davíð Oddsson sem meira að segja hefur nú lýst yfir vonbrigðum með að það skyldi rætast sem hann vissi að mundi rætasL Það er gott að eiga svona landsfeður og glögga stjómmálamenn sem sjá slíka hluti fyrir og sameinast þó um að þegja um þá þar til yfir lýkur. Það er gott að þetta álver er úr sögunni. Það stóð hvort sem er aldrei til að byggja það, vegna þess að það er eins með álverið og handboltahöl- lina. Það era margir sem vilja byggja en enginn sem tímir að borga. Það segir hins vegar sína sögu um stöðu þjóðarbúsins að ís- lendingar ætla enn að reyna að byggja handboltahöll hvað sem veröur um álverið. Handboltinn hefur forgang. Það syrtir í álinn, sagði Þjóðvilj- inn á forsíðu í gær. En ekki hjá þeim sem vissu og voru búnir að vita það allan tímann að það mundi syrta í álinn hjá þeim sem era að heyra það núna fyrst að álverið mun ekki verða byggt. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.