Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1991, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1991. 9 Tvöfaltmorð áGrænlandi Tuttugu og tveggja ára gamall maður hefur játað fyrir lögregl- unni á Grænlandi að hafa drepið 54 ára móður sína og 45 ára gaml- an mann aðfaranótt laugardags- ins. Líkin fundust á mánudag í íbúð myrta mannsins í Jakobs- höfn. Sonurixm gaf sig fram við lög- reglu á mánudag eftir að lýst haíði verið eftir móður hans. Konan virðist hafa heimsótt manninn á fostudagskvöld. Þau höfðu drukkið töluvert af áfengi þegar sonurinn kom og sfakk þau bæði til bana. Sonurinn var drukkinn þegar hann framdi ó- dæðið. Sænska ríkið vill seijaSAS Rikisstjóm borgaraflokkanna í Svíþjóð hefúr uppi áform um að selja eignarhlut sinn i skandinav- íska flugfélaginu SAS. Flugfélag- ið er á lista yfir 35 ríkisfyrirtæki sem stjómin fær fulltingi þings- ins til að selja. í frétt í danska blaðinu Börsen í gær kemur fram að þessi vfiji Svía opni möguleikana á þvi að samstaða náist meðal eignarland- anna um að einkavæða SAS. Ðan- ir hafa áður sett fram óskir um að það yrði gert en þær hafa strandað á kröfu Norðmanna og Svía um að eining veröi að vera um málið. Poul Schliiter, forsætisráð- herra Danmerkur, tók vel í til- lögu Svia í gær en því var öfugt farið meö Kjell Opseth, sam- gönguráðherra Noregs. Sviar eiga 3/7 hluta SAS en Norðmenn og Danir 2/7 hvor þjóð. Kohlboðiðá hátíðarfund Norðurlandaráðs íHelsinki Helmut Kohl, kanslara Þýska- lands, hefur verið boðið að flytja ræðu á 40 ára afmælisfundi Norð- urlandaráðs í marsmánuði næst- komandi í HelsinkL Það var Anker Jörgensen, for- seti Norðurlandaráðs og fyrrum forsætisráðherra Daiunerkur, sem skýrði frá þessu eflir fund forsætisráðsins í Maríuhöfii á Álandseyjum í gærmorgun. Jörgensen sagði aö Kohl hefði verið boðið sumpart vegna þess að hann væri framámaður i evr- ópskum stjóramálum og sumpart vegna þess að hann hefði verið kanslari þegar þýsku ríkin tvö voru sameinuð. „Hann er nágranni Danmerkur og Norðurlandanna og hann er fulltrúi Evrópu sem Norðurlönd- in eru upptekin af í vaxandi mæli,“ sagði Anker Jörgensen. Rífandigengihjá japönskum smokka- framleiðendum Hlutabréf í helsta smokkafram- leiðslufyrirtæki Japans snar- hækkuðu í verði á veröbréfa- markaðinum í Tokyo í gær. Verð- bréfasalar sögðu ástæðu hækk- unarinnar vera tilkynningu bandarísku körfuboltastjöm- unnar Magics Johnson um að hann hefði smitast af eyðniveir- unni. Sömuleiðis má reýa hækk- unina til samskonar hækkunar á hlutabréfum í bandarísku smokkaframleiðslufýrirtæki á Wall Street í Japan hafa 1852 veriö skráðir með eyðniveiruna og til þessa hafa 202 látist af völdum sjúk- dómsins. RitzauogReuter Smokkur fyrir konur Smokkafyrirtækið Chartex international hefur ákveðið að reyna í byrjun næsta árs söiu á smokkum fyrir konur. Fyrst um sinn verður smokkurinn aðeins á boðstólum í Sviss en ef vel reynist má búast við að hann verði settur á alþjóðlegan markað. Nýi smokkurinn var kynntur í Bem í Sviss í gær. Símamynd Reuter Útlönd Hjúkrunarkona kyrktimóðursína Bandaríska hjúkrunarkonan Gail Ransom hefúr veriö fúndin sek um aö kyrkja sextuga móður sína. Hjúkrunarkonan bar því þó við að hún hefði ekki vitaö hvað hún var að gera vegna þess að hún varundir áhrifum þunglynd- islyfsins Prozac. Dómarinn í máhnu féllst ekki á skýringu þjúkrunarkonunnar. Niðurstaðan var að morðið hefði verið framið að yfirlögðu ráði. Ransom fór til húss móður sinnar með Biblíuna í tösku, bók um kúgum foreldra á bömum sínum og snúru til að kyrkja móður sína með. Að ódæðinu loknu fór Ransom á veitingahús og fékk sér kaffi- bolla áður en hún gaf sig fram við lögregluna. Hatstraumar Curtis Eddesmeyer, haffræð- ingur I Seattle í Bandaríkjunum, ætlar að nota 80 þúsund strigaskó til að mæla hafstrauma í Kyrra- hafinu. Fyrir hálfú öðru ári var skónum hent í hafið. Þeir eru nú á reki og telur haffræðingurinn kjöriö að fylgjast með reki þeirra. Reuter Reynt að smygla léleg- um laxi til Danmerkur Norskt útflutningsfyrirtæki varð uppvist að þvi í októberbyrjun að reyna að smygla 40 tonnum af úr- gangslaxi til Danmerkur. Ætlunin var að reykja laxinn í Hirsthals. Smyglið komst upp við venjulega tollskoðun í Kristiansand í Noregi og ætla norsk sjávarútvegsyfirvöld að kæra útflutningsfyrirtækið. í ljós kom að laxinn var svo lélegur að hann mátti aðeins nota í dýrafóð- ur. Á slíkum laxi eru venjulega sár eða holdið á honum er alveg hvítt. Bannað er að flytja slíkan lax úr landi í Noregi. Dönsk stjómvöld krefjast ekki heil- brigðisvottorða fyrir innflutning af norskum laxi og þess vegna hefur oft verið reynt að smygla lélegum laxi frá Noregi. Norskufisk- eldi bjargað fyrirhorn Norska ríkisstjórnin og bankar í landinu náðu samkomulagi seint í gærkvöldi um aðgerðir til að bjarga laxeldisiðnaðinum. Samkomulagið felur í sér að ríkisstjómin leggur til 400 milljónir norskra króna, eða um fióra núUjarða íslenskra, og bank- arnir leggja fram samtals 335 millj- ónir norskra króna. Ríkisstjómin ætlar einnig að beita byggðasjóði til að koma í veg fyrir stórfelld gjaldþrot fiskeldisfyrir- tælqa. „Með samkomulaginu er vandamál laxafiallsins leyst og það er einnig mikilvægt túlegg tíl að leysa vanda fiskeldisiðnaðarins," sagði Bjame Myrstad, upplýsingafulltrúi í sjávar- útvegsráðuneytinu. Þátttakendur í viðræðunum í gær vora frá utanríkis-, sjávarútvegs- og fjármálaráðuneytunum, svo og ýms- um norskum bönkum, alls 19 manns. NTB VOLKSWAGEN hentugur fyrir ALLAR STÆRÐIR FYRIRTÆKJA © Sparneytinn ® Gangviss ® Þægilegur ínotkun © Auðveldur í endursölu AN VSK SÉRBÚINN SENDIBÍLL Verð frá kr. 746.880 -i- vsk kr. 146.986 Án vsk kr. 599.894 Fjöldi fyrirtækja hefur valið VW POLO ÁN VSK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.